Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 25 Guðrún Agnarsdóttir um afstöðu Kvennalistans: Útílokum engan sem vill teygja sig yfir til okkar Morgunblaðið/Rax Guðrún Agnarsdóttir, Kristín HaUdórsdóttir og Kristín Einarsdóttir, þingmenn Kvennalista, á fundi í Vík í gær. VID erum að sjálfsögðu með ítarlega og góða stefnuskrá. Á hinn bóginn viljum við draga út úr henni meginatriði. Við teljum okkur einnig þurfa að fá tölulegar upplýsingar frá opinberum aðilum. Við viljum vita, hvemig fjárhag hins opin- bera er háttað. Við viljum fá hugmynd um, hvað kostar að framkvæma þau mál, sem við teljum mikilvægust, sagði Guð- rún Agnarsdóttir, þingkona Kvennalistans I samtali við Morgunblaðið í gær i tilefni af stjórnarmyndun og umræðum um þátttöku Kvennalistans. Eftir að kosningaúrslit lágu fyrir, er ljóst að Kvennalistinn kemur til álita sem þátttakandi í ríkisstjóm. Hann hefur sex þing- menn í stað þriggja áður og getur verið hlutgengur í þriggja flokka ríkisstjóm. Jón Baldvin Hannib- alsson, formaður Alþýðuflokksins, hefur kannað forsendur fyrir slíkri stjóm. Pulltrúar Kvennalistans hafa hins vegar varist allra frétta. Þær hafa sagt, að nú þyrftu þær tíma til að fara yfir málefni og setja þau í forgangsröð. I upphafi samtalsins við Guðr- únu Agnarsdóttur sagði blaða- maður, að það orð færi af Kvennalistanum, að þær vildu ekkert við blaðamenn tala, hreyf- ing þeirra minnti helst á frímúrarareglu. Hún sagði þetta alrangt. Þær hefðu engu að leyna. Þær teldu sig á hinn bóginn ekki þurfa að segja frá neinum niður- stöðum sínum opinberlega; það myndu þær annars vegar gera í samtölum við Vigdísi Finnbogad- óttur forseta íslands fyrsta af öllum og hins vegar við talsmenn annarra flokka. „Við viljum auðvitað, að öll okkar mál nái fram að ganga," sagði Guðrún „okkur er á hinn bóginn ljóst, að við erum að semja til ijögurra ára. Við getum ekki vænst þess að ná öllu okkar fram á þeim tírna." Guðrún sagði, að fjórir starfs- hópar ræddu nú um einstaka málaflokka á vegum Kvennalist- ans. Þar væru dregin fram höfuðatriði í tilefni stjómarmynd- unarinnar. Dag hvem gera þessir hópar grein fyrir störfum sínum á sameiginlegum fundi, sem hald- inn er í höfuðstöðvum Kvennalist- ans, þar sem áður var Hótel Vík. Hverjir sækja þá fundi í samtök- um sem hafa enga félagaskrá? „Við höfum að vísu félagatal, þótt það sé ekki fullkomið. Hingað koma Kvennalistakonur, “ sagði Guðrún „eftir áralanga og oft á tíðum erfíða baráttu í þágu íslenskra kvenna erum við famar að þekkja hver aðra. Á laugardag- inn ætlum við svo að halda stóran fund með kvennalistakonum af öllu landinu. Um og eftir helgina verðum við tilbúnar með okkar niðurstöðu." — Verður þetta ekki þungt í vöfum, þegar kemur að því að ræða við aðra flokka? „Nei, það er engin hætta á því. Það er samhentur hópur, sem stendur að Kvennalistanum. Hreyfíngin er sammáia um meg- inatriði. Konur eiga svo margt sameiginlegt og það er mikiu meira og dýrmætara en það sem sundrar þeim." — Hver tekur ákvörðun um skipan fulltrúa ykkar í ráðherra- embætti? „Það gera kvennalistakonur í sameiningu, ef þar að kemur." — Ætlar Kvennalistinn að setja öðrum flokkum einhver föst og ófrávíkjanleg skilyrði? „Það er ljóst, að við förum ekki inn í neina stjóm, sem gengur ekki að vissum skilyrðum. Ég er sannfærð um, að fleiri en við eru nú önnum kafnir við að búa sig undir viðræður um nýja ríkis- stjóm, þótt athyglin hafi einkum beinst að okkur. Aðrir hljóta lík að vera að vega og meta einstök atriði." — Afhenti Jón Baldvin ykkur ekki málefnaskrá frá Alþýðu- flokknum? „Hann lét okkur hafa kosninga- stefnuskrá Alþýðuflokksins. Hún dugar skammt í viðtölum af þessu tagi. Menn hljóta að koma til þeirra sérstaklega undirbúnir. Þess vegna emm við nú að vinna okkar starf." — Setjið þið skilyrði um ráð- herraembætti? „Að sjálfsögðu gemm við það, en slíkt er umræðuefni í stjómar- myndunarviðræðum en ekki í tjölmiðlum á þessu stigi málsins. Við útilokum engan flokk, sem getur og vill teygja sig yfir til okkar. Það verða fyrst og fremst málefnin, sem ráða.“ — Framgangur Kvennalistans vekur verulega athygli utan land- steinanna. Verðið þið varar við það? „í stuttu máli má segja, að það sé ekki flóafriður fyrir erlendum blaðamönnum. Hringt er frá er- lendum útvarpsstöðvum til að fá okkur í yiðtöl og stórblöð í útlönd- um hafa sagt frá okkur eða segjast ætla að skrifa um okkur. Þetta vekur mikla athygli allt frá Nýfundnalandi til Nýja Sjálands. Og við vonum, að fréttir af Kvennalistanum styrki konur í öðmm löndum í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og betri heimi." — Væruð þið kannski að bregðast þeirri eftirvæntingu sem við ykkur tengist, ef þú yrðir ekki forsætisráðherra eða fengir ekki umboð til stjómarmyndunar? „Við skulum ekki ræða saman á þessum nótum." Borgaraflokkur opnar skrifstof- ur um allt land Undirbúningsfuiidur að landsfundi haldinn 9. mai BORGARAFLOKKURINN undirbýr nú að opna skrifstofur i öllum kjördæmunum og verið er að vinna að skipuriti fyrir flokkinn og treysta innviði hans. Stefnt er að þvi að halda landsfund flokksins sem fyrst og hefur verið ákveðið að halda undirbúningsfund að honum 9. mai næstkomandi þar sem kall- aðir verða til frambjóðendur flokksins um allt land og aðrir sem tóku þátt í kosningabaráttunni. „Að loknum þessum kosningasigri okkar sjáum við að við höfum mikið traust um land allt og því er verið að treysta innviði flokks- ins um allt land núna. Þá er verið að • leita eftir hugmyndum um hvemig uppbygging flokksins eigi JNNLENTT að vera á sem lýðræðislegastan hátt og það er stór hópur að vinna að skipuriti fyrir flokkinn, bæði úti á landi og hér í Reykjavík," sagði Guðmundur Ágússtsson 2. maður á lista Borgaraflokksins í Reykjavík í samtali við Morgun- blaðið í gær. Stefnt er að því að kosninga- skrifstofa flokksins í Skeifunni verði opin út næsta mánuð, og verið er að leita að húsnæði fyrir skrifstofu flokksins í Reykjanesi, sem verði fyrst um sinn opin stutt- an tíma á dag þar sem þingmenn og varaþingmenn verða til taks. Stefnt er að opnun skrifstofa í öllum kjördæmunum. Eigum sumarhús og lítil baðhús m/sauna til afgreiðslu í vor og sumar. Uppsett sýningarhús er á lóð okkar að Kársnesbraut 110 Kópavogi.__________ Opið alla virka daga frá 2 - 5 og eftir nánara samkomulagi. KRSUMARnÚS Kristinn Ragnarsson, húsasmíðameistari, Kársnesbraut 110 — símar 41077 og 44777.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.