Morgunblaðið - 30.04.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
29
Brasilía:
Sarney skipar nýjan
fjármálaráðherra
Breytist stefna stjórnarinnar í skuldamálum?
Sao Paulo, Reuter.
JOSE Sarney, forseti Brasilíu, staðfesti á þriðjudag að hagfræðingur-
inn Luiz Carlos Bresser Pereira, sem nú er yfirmaður vísindamála
í Sao Paulo-ríki, yrði skipaður næsti fjármálaráðherra Brasilíu. Bress-
er Pereira tekur við af Dilson Funaro, sem sagði af sér á sunnudag.
Hann féll úr sessi vegna þess að svokölluð Cruzado-áætlun hans um
aðhald í efnahagsmálum og verðstöðvun fór út um þúfur. Banka-
menn velta því nú fyrir sér hvort afsögn Funaros hafi í för með sér
að Brasilíumenn verði sveigjanlegri í skuldamálum sinum og jafn-
framt tiUeiðanlegir tíl að gera samkomulag við lánadrottna sína.
Reuter
Luiz Carlos Bresser Pereira, fjármálaráðherra BrasUíu, (tU vinstri)
ásamt Orestes Quercia, ríkisstjóra í sao Paulo.
Samskipti við lánadrottna versnuðu
mikið í valdatíð Funaros. Hann réði
lögum og lofum í efnahagsmálum og
samningum um skuldir. Reitti hann
bankamenn til reiði þegar hann stöðv-
aði vaxtagreiðslur af 68 milljarða
dollara skuldum til viðskiptabanka í
febrúar. Sérfræðingar um efnahags-
mál sögðu að gagnkvæm óvild milli
Funaros og stjóma bandarískra banka
hefði komið í veg fyrir að samkomu-
lag tækist um að fresta endurgreiðsl-
um á skuldum Brasiliumanna. Þegar
lántökur stjómvalda og banka eru
lagðar saman nema skuldir Brasilíu
111 milljörðum dollara og er Brasilía
skuldugasta ríki þriðja heimsins.
Erlendur bankamaður í Sao Paulo
sagði við fréttamann Reuter nýlega
að lánadrottnar hefðu nánast litið á
það sem forsendu fyrir raunveruleg-
um samningaviðræðum að Funaro
færi frá. Bankamenn kváðust litt
hrifnir af framkomu Funaros og sök-
uðu hann um að vera hrokafullur og
ósveigjanlegur. Eins og áður segir
varð Cmzado-áætlunin Funaro að
falli, en á alþjóðlegum vettvangi mun
afsögn hans hafa eftirköst á sviði
samskipta við lánadrottna og i skulda-
málum. Funaro vildi ekki semja við
Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og fyrir þær
sakir kom sjóðurinn í veg fyrir að
semja mætti um greiðslur skulda.
Hann hélt því fram að þau skilyrði,
sem Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
myndi setja fyrir frestun greiðslna ef
leitað yrði til hans, myndu hafa
kreppu og samdrátt í efnahagsmálum
í för með sér. Fyrr í þessum mánuði
náði Argentína samkomulagi um
greiðslur á 50 milljarða dollara skuld-
um í samvinnu við gjaldeyrissjóðinn
með ágætum skilmálum. Mexíkanar
hafa einnig gert gert samning um
breytt fyrirkomulag greiðslna þannig
að af þremur skuldugustu ríkjum í
rómönsku Ameriku situr Brasilía eftir
án slíks samkomulags.
Stjómmálaskýrendur segja að ekki
megi búast við að Brasilíustjóm vendi
skyndilega kvæði sinu í kross og leiti
á náðir sjóðsins. Aftur á móti fer
þrýstingurinn vaxandi: á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs var viðskiptajöfnuður
Brasilíu aðeins hagstæður um 526
milljónir dollara, en á sama tíma í
fyrra var hann hagstæður um 2,47
milljarða dollara.
Ævintýrið um Lech Walesa
Parfs. Robin Smyth — Observer.
EINS og állinn, sem hlýðir kaUi náttúrunnar og lætur berast með sjáv-
arstraumum, leitaði 27 ára gamall pólskur bóndi að nafni Lech Walesa
úr átthögum sinum i stijálbýlinu til skipasmíðastöðvarinnar í Gdansk.
Þetta var fyrir 20 árum. En það,
sem síðan gerðist, er sagan af tilurð
verkalýðssamtakanna Samstöðu og
andófí þeirra gegn kúgun kommúnis-
mans. Frá því segir Walesa í sjálfs-
ævisögu sinni, sem nýlega hefur verið
gefín út í París. Segja má með sanni,
að útgefandinn, Fayard, hafí skotið
bandarískum og evrópskum keppina-
utum sínum ref fyrir rass með því
að hreppa útgáfuréttinn á sögu frið-
arverðlaunahafans. Það tók heilt ár
að undirbúa útkomu bókarinnar, Un
Chemin d’Espoir (Á vonarvegi), og
allt varð að fara fram í laumi: samn-
ingaviðræður, þýðingarstörf og
textavinnsla, og það varð að smygla
einum og einum kafla fram og aftur
milli höfundar og útgefanda — gegn-
um jámtjaldið. Þegar snurða hljóp á
þráðinn hjá Walesa og bandarískum
útgefanda, sem sóttist eftir að gefa
út bókina, sendi Claude Durand, for-
stjóri Fayard.-Walesa bækur þriggja
höfunda, sem forlag hans hafði gefíð
út: Alexanders Solzhenitsyns, pólska
nóbelsverðlaunaskáldsins Czeslaw
Milosz og Jóhannesar Páls páfa II —
og samningar tókust. Það var auð-
veldasti hluti verksins að fá samþykki
Walesa. En leita varð á náðir mennta-
manna í Samstöðu til að fá hann til
að riíja upp æskuminningar sínar úr
sveitinni, safna saman efni um bar-
áttu samtakanna við pólsk stjómvöld
og setjast svo við skriftir að loknum .
vinnudegi í skipasmíðastöðinni.
Senda varð hvem kafla fyrir sig með
sérstökum sendiboða til Parísar, því
að ekki þótti vogandi að senda eftiið
með pósti. í París tóku þrír þýðendur
til óspilltra málanna undir ritstjóm
Claude Durand. Þá var textinn send-
ur til Gdansk, á sama hátt og hann
kom þaðan, og þýddur á pólsku, svo
að Walesa gæti gert lokaathuga-
semdir sínar fyrir prentun. Sama
leynd varð að hvfla yfír gerð sjón-
varpsviðtals við Walesa um páskana
í tilefni af útkomu bókarinnar. Wa-
lesa kaus, að upptakan færi fram í
kirkju, þar sem sívökulir útsendarar
stjómvalda gætu ekki fylgst með
honum. Bemard Pivot, sem viðtalið
tók, sagði, að vinir Walesa hefðu
komið fílmuspólunni til Parísar.
Sjálfsævisagan, sem er 600 blaðsí-
ður að lengd, hefur nú verið seld til
16 landa. „Hvflík bók!“ skrifaði Nic-
ole Casanova, ritdómari Le Quotidien
Lech Walesa
de Paris í fyrstu umsögninni, sem
birtist um bókina. „Hvflíkur maður,
hvflíkt ævintýri!"
20FS)^n. v*rð
Kúmvm
á pottaplöfm
arsala
m
Nú um helgina seljum við
allar pottaplöntur
með 20-50% afslæth.
napmi um verð;
Polyscias
(Sólhlífartré)
296Í- 207.-
392T- 274.-
A07T- 285.-
Sértilboð á pottahlífum
I tilefni týmingarsölunnar
bióðum við einnig margar
qerðir af fallegum, hvitum
keramikpottahlífum a
30-40% afslætti.
Fagleg þekking, - tagleg Þiónus*
v
Drekatré
59CíT- 295-“
"5-“
495.-
Gróðurhúsinu við Sigtún'. Símar36770-686340