Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 39 Stjörnu- speki Umsjón: Gunniaugur Guðmundsson Svar viÖ Getraun 26. mars síðastliðinn birtist getraun í þættinum. Spurt var í hvaða merki eigandi ákveðins veitingastaðar væri. í dag ætla ég að birta rétt svar. Lykilorð Til upprifjunar má geta þess að undirritaður fór út að borða á ákveðið veitingahús í bænum. Að loknum matnum vakti eigandi staðarins at- hygli hins árvökula stjömu- spekings sem þótti öll umgjörð staðarins, þjónusta og framkoma dæmigerð fyrir ákveðið merki. Hin uppgefnu lykilorð voru tign, glæsileiki, gullskeið og leikræn tilþrif. Einnig var þess sérstaklega getið að eigandinn hefði verið öruggur og að hann hafi stol- ið senunni, eða tekið athygl- ina til sín, ekki einungis athygli stjömuspekingsins, heldur einnig annarra gesta. LjóniÖ Það er greinilegt að lesendur þekkja vel til Ljónsins, því viðkomandi eigandi veitinga- staðarins er í Ljónsmerkinu. Alls bárust þættinum 40 bréf. Af þeim sögðu 35 að eigand- inn væri Ljón, tveir töldu hann vera í Voginni, einn í Meyjarmerkinu, einn í Bog- manni og einn í Hrút. Það verður að teljast vel af sér vikið að 87,5 prósent skili inn réttu svari. Lesendur Einn lesandi sagði. „Ég tel að eigandi veitingahússins sé dæmigert Ljón því fáir eru eru eins mikið fyrir glæsi- mennsku og athygli og Ljónin." Annar sagði: „Mér finnst þessi lýsing eiga mjög vel við einn af vinum mínum sem er Ljón og því læt ég það flakka.“ Einn annar sagði: „í getrauninni í dag var á ferð- inni glæsilegt Ljon, það fór ekki á milli mála. Þó hafa ekki öll Ljón Ijónsþáttinn svona fallegan." Annar sagði: „Ég giska á að eigandinn sé í Ljónsmerkinu, þeir vilja oft vera miðpunktur umhverfis síns.“ Fjórir lesendur þekktu síðan viðkomandi og nefndu hann með nafni og vom meira að segja svo vinsamleg að senda íæðingardag hans og -stund. Þjónustulund Að iokum má geta þess að þættinum bárust tvö bréf þar sem frekar var fjallað um málið. í öðru var þess getið :ið ef maturinn hefði verið góður væri öruggt að kokkur- inn væri Krabbi. I hinu sagði: „En það örlar á þjónustulund og rómantík í honum og ein- hvers staðar er líka við- kvæmni. Þessa þætti hann ég ekki að meta hvaðan eru.“ Kort eigandans Eigandinn hefur Sól (grunn- eðli) og Merkúr (hugsun) í Ljóni, Tungl og Venus (til- finningar og samskipti) í Krabba, Mars (framkvæmda- orka) í Vog, Rísandi (ytri persónuleiki) í Sporðdreka og Miðhimin (starf úti í þjóð- félaginu) í Meyju. Við getum því sagt að Ljónið sjái um stílinn og glæsileikann, það er Krabbinn sem hefur með umhyggjuna og matinn að gera, Meyjan er þjónustulund og fullkomnunarþörf og Vog- in tengist inn í fágun og rómantík. Ljón-Vog er lista- maður, Krabbi-Meyja er þjónusta og veitingahúsrekst- ur og Sporðdrekinn getum við sagt að notist hér sem kúnna- sálfræði. Sem sagt glæsilegur 100% veitingamaður. Og að lokum, hinn stórheppni vinn- ingshafi: Henný Þórðardóttir, Háengi, Selfossi. Biðjum við hana að hafa samband í síma 10377. GARPUR LOFVP TITGAFZ þEGAF ELPINGU UVSTUR. NIÐUR i TÖFEASPEGILINN, EU ' OEJtl Oö KÁFU SLEPPA ... 7 GRETTIR (WQ QF!) T/\j 7 ■W V í7AVf£> ö-í 7_ DYRAGLENS HELPtie’AFWVlJ <T 1 ÉGÆTLAA&VERA !=~— I * HÉe 9ÁLITLA STUNP ] '&OG LœA &ume>- / hJ —'~ZýÆ\_ \ ?/9 '■ininnmn.iiiiiiinim;!i;iiii;i.iniiiiiiiiiniiiniinnniH)im.,.,.,T!;iiJt!iiiHiiinn.ii!tTnmt;mnit:!i.,iH»wK!.,ni,.;i{ii!i;!i " ........ ........................................... FERDINAND PIB COflNHACtN © 1986 Unlted Feature S) Af hverju geri ég þetta? Af hverju er ég að borða Nú líður mér bölvanlega, Pizza að hætti hússins. svona nokkuð? ég vitkast ekkert ... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Spil 88 í Daihatsu-mótimf reyndist mörgum NS-pörum þungt viðureignar vegna hindr- unarandstöðunnar. Vestur gefur; enginn á hættu. Norður ♦ 6 VÁKG10632 ♦ K. ♦ ÁK108 Vestur Austur ♦ KD10987 V 987 ♦ G ♦ 6 ♦ G54 ¥4 ♦ 10974 ♦ G9743 Suður ♦ Á ♦ D5 ♦ ÁD86532 ♦ D52 Vesturspilaramir opnuðu ýmist á þremur eða fjórum spöð- um. Þriggja spaða sögnin er að mörgu leyti betri hindrun, því þá lætur norður duga að segja fjögur hjörtu. Við fjórum spöð- um segir norður hiklaust fimm hjörtu, sem sýnir þá betri spil. Mörg pör náðu sjö hjörtum, og einstaka AV-spilarar fómuðu í sjö spaða, sem kosta aðeins 700. En besti tvímenningssamn- ingurinn er auðvitað sjö grönd. Þangað komust Valur Sigurðív- son og Kristján Blöndal. Sagnir gengu: Vestur Norður Austur Suður 3spadar 4 hjörtu Pass 4 spaðar Dobl Pass Pass Redobl Pass 5 lauf Pa^ss ötíglar Pass Pass 7 grönd Pass Pass Það var mjög örlagarík ákvörðun hjá austri að segja ekki fjóra spaða við fjórum hjört- um. Þar með fékk Valur í suður tækifæri til að bjóða upp í dans og sýna fyrirstöðu í spaða. DoU. vesturs gaf þeim félögum einnig1* mikilvægt tempó; Kristján pass- aði til að fá nánari upplýsingar um fyrirstöðu makkers, og re- doblið sýndi fyrstu fyrirstöðu. Fimm lauf og fimm tíglar vom fiekari fyrirstöðusagnir og Kristján taldi sig þar með sjá 12 slagi ömgga og þann 13. í hillingum. Umsjón iVlargeir <.- Pétursson Á New York Open-skákmót- inu sem lauk í síðustu riku kom þetta athyglisverða endatafl upp í viðureign v-þýzka stórmeistar- ans Eric Lobron, sem hafði hvítt og átti leik, og bandaríska alþjóðameistarans Jay Bonin. Ef svartur getur fómað bisk- upi sínum á hvíta frípeðið heldur hann vafalaust jafntefli, en Lobron tókst með snjöllum leikj- um að hindra það og sigra: 42. Bc7!! — Bxc7, 43. Bd5 (Kemur biskupnum úr uppnámi með leik- vinningi með því að hóta 44. Bf3 mát) 43. - g5, 44. a7 - g4+, 45. Kg2 - f4, 46. a8=D og með drottningu fyrir aðeins riddara og tvö peð vann Lobron mjög auðveldlega. Sigurvegarar á New York Open-mótinu urðu Ungveijinn Adoijan og Banda- rikjamaðurinn Seirawan, sem hlutu 8 v. af 11 mögulegum. Á mótinu tefldu 45 stórmeistarar, sem er mesti fjöldi sem náðst hefur saman á skákmóti, ef Ólympíumót eru undanskilin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.