Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Barð-
strendingafélagsins
Mánudaginn 13. apríl lauk firma-
keppni félagsins. Sigurvegari varð
Bátalón hf. Spilarar voru feðgamir
Einar Ólafsson og Þröstur Einars-
son og hlutu 380 stig.
Staða efstu firma að lokinni
keppni:
Bátalón hf. 380
(Einar Ólafsson — Þröstur Ein-
arsson)
J.S. Gunnarsson sf. 377
(Þórður Miiller — Rögnvaldur
Miiller)
Heklahf. 374
(Guðmundur Jóhannsson — Jón
Magnússon)
Vélsmiðja Viðars og Eiríks 371
(Viðar Óskarsson — Agnar Ein-
arsson)
Pétur 0. Nikulásson heildv. 364
(Sigurður Kristjánsson — Guð-
mann Hauksson)
Gestur hf. 363
(Kristinn Óskarsson — Hermann
Ólafsson)
Vemd hf. 363
(Ragnar Þorsteinsson — Helgi
Einarsson)
Smurstöðin, Hafnarstræti 362
(Stefán Ólafsson — Kristján Ól-
afsson)
Bridsdeildin þakkar eftirfarandi
firmum stuðninginn:
Bræðrunum Ormsson hf., Vatnsveitunni
í Reykjavík, B.M. Vallá, Blikki og stáli,
Valdimar Sveinssyni, Nathan og Olsen,
Vestfjarðaleið, Múrarafélagi Reykjavík-
ur, Borgarhúsgögnum, Húsasmiðjunni
hf., Nesskipum hf., Bifreiðabyggingum,
Segli hf., Múrarameistarafélagi
Reykjavíkur, Seglagerðinni Ægi, J. Þor-
lákssyni & Normann, Laugamesapóteki,
J.J. vinnuvélum, Bifreiðakennslu Hann-
esar, Nonna hf., fstaki, Granda hf.,
Steypustöðinni hf., Glerskálanum, Bún-
aðarbanka íslands, ístex hf., Kristni
Gunnarssyni og Barðstrendingafélaginu
í Reykjaíik.
Dagana 1. og 2. maí nk. koma
Patreksfirðingar og Tálknfírðingar
í heimsókn og verður spilaður tví-
menningur og sveitakeppni. Spilað
verður í Skipholti 50b (Sóknarsaln-
um).
Frá Bridssambandi
Islands
íslandsmótið í parakeppni (blönd-
uðum flokki) í tvímenningi, verður
* <*pilað í Sigtúni nk. laugardag og
sunnudag. Spilamennska hefst kl.
13 á laugardeginum og verður spil-
að fram á kvöld á laugardeginum
og síðan tekið til við spilamennsku
á ný á sunnudeginum. Tæplega 30
pör eru skráð til leiks, en spilað
verður.eftir barometer-formi allir
v/alla og 3 spil milli para. Keppnis-
stjóri er Agnar Jörgensson.
Skráningu í mótið (sem er opið
öllu bridsáhugafólki) lýkur fimmtu-
daginn 30 apríl nk. kl. 16. Skráð
er á skrifstofu Bridssambandsins í
sima 689360 (Ólafur).
íslandsmótið í opnum flokki í
tvímenningi, undanrásir, verða spil-
aðar í Gerðubergi í Breiðholti aðra
»*faelgi í maí, 9.—10. maí. Skráning
er þegar hafin hjá öllum félögum
innan BSÍ, svo og beint til skrif-
stofu BSÍ.
Spilað er eftir Mitchell-fyrir-
komulagi, þrjár lotur. Mótið er
öllum opið og þátttökugjald aðeins
kr. 4.000 pr. par. 23 efstu pörin
úr undanrásum komast síðan í úr-
slitakeppnina, sem spiluð verður
helgina á eftir.
Bikarkeppni Bridssambands ís-
lands hefst í maí. Skráning er hafin
i#*hjá Bridssambandi íslands. Frestur
til að tilkynna þátttöku rennur út
föstudaginn 22. maí. Þátttökugjald
verður aðeins kr. 5.000 pr. sveit.
Spilað er um gullstig í hveijum leik,
en fyrirkomulag verður með sama
sniði og undanfarin ár. Yfir 60
sveitir tóku þátt í Bikarkeppninni
1986. Sú nýlunda hefur verið tekin
upp, að með skráningu skal fylgja
greiðsla sveitarinnar. Bregðist það,
lítur stjóm BSÍ svo á að viðkom-
andi sveit sé ekki með, og verður
því ekki dregin út í 1. umferð. Fyrir-
liðar eru vinsamlegast beðnir um
að taka þessi aðvörun til greina.
Frá Bridssambandi
Vestfjarða
Vestfjarðamótið _ í sveitakeppni
verður spilað á ísafirði helgina
23.-24. maí nk. Skráning er hafin
hjá Ævari Jónassyni á Tálknafírði.
Keppnisstjóri verður Ólafur Lárus-
son.
Bridsfélag
Tálknafj arðar
Úrslit í firma- og einmennings-
keppni félagsins urðu þessi:
Vélsmiðja Tálknafjarðar —
Stefán HaukurÓlafsson 301
Bókhaldsstofan —
Haukur Ámason 301
Landsbankinnn —
Jón H. Gíslason 290
Trésmiðjan Eik —
Ólöf Olafsdóttir 288
Bjamabúð —
StefánJ. Sigurðsson 286
Bridsfélag
- Hafnarfjarðar
Mánudaginn 13. apríl hófst hrað-
sveitakeppni félagsins og er staðan
eftir fyrsta kvöldið eftirfarandi:
Sveit
Þórarins Sófussonar 584
Þorsteins Þorsteinssonar 583
Ólafs Torfasonar 571
Einars Sigurðssopar 559
Ársæls Vignissonar 559
MINUTUM
efurðu oft lítinn tíma en vilt matreiða
hollan og góðan mat handa þér og
þínum? Þá, eins og alltaf, er lambakjöt
kjörið. Vegna þess hve það er meyrt og
safaríkt er auðvelt að matreiða
stórkostlegan rétt á aðeins 30 mínútum.
Ótrúlegt? Prófaðu bara.
Biynjar Eymundsson matreiðslumeistari
á Gullna Hananum hefur valið þennan
rétt - einn af mörgum möguleikum
lambakjötsins í fljótlegum úrvalsréttum.
„Sannkallað fjallalamb“
m/melónu og jurtakryddsósu
Vöðvarnir eru brúnaðir á pönnu á öllum
hliðum og síðan settir í 140°C heitan
ofn í ca. 20 mín. Tími og hiti ræðst þó af
steikingarsmekk.
Rétt fyrir framreiðslu eru ræmur af
melónu og rifinn appelsínubörkur
hitað í ofninum.
Kjötið er nú skorið í þunnar sneiðar og
borið fram með melónukjötinu og sósunni,
skreytt með appelsínuberkinum.
Með þessu má einnig bera fram t.d. soðið
blómkál, steinsel j ukartöflur og eplasalat.
Sósan:
Vitítri vatn.
1 msk. kjötkraftur.
lOstk. einiber.
2 stk. lárriðariauf.
fó tsk. timian.
fi tsk. oregano.
1 tsk. sveskjusulta.
1 msk. sax. blaðlaukur.
Safi úr /2 appelsínu, sósutítur.
Allt sett í pott og soðið niður um !/s og
þá þykkt með 2 tsk. af maísenamjöli
sem er hrært út áður í dálitlu af köldu vatni.
Sósan er síuð og í hana má setja 1 dl. rjóma
efvill.
MARKAÐSNEFND