Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 48

Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 48
MORGUNBLADIÐ, FTMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 * 48 Varnir gegn fíkniefnum Dionneilmur Til að vera maður með mönnum í heimi fræga fólksins þarf að láta framleiða ilmvatn er ber nafn viðkomandi og hefur söng- og leikkon- an Dionne Warwick nú slegist í þennan hóp. Hún kynnti nýlega ilminn „Dionne" og heldur á þessari mynd á risastóru glasi með ilmvatninu í. Á markað fara síðan smærri giös er hafa sömu lögun og stóra glasið. Islensk yfirvöld hafa sýnt veruleg- an vilja til að efla vamir gegn fíkniefnum og er nú verið að til- raunakenna námsefni í nokkrum grunnskólum þar sem bömum og unglingum er gerð grein fyrir hætt- um þeim er af fíkniefnum stafa. Séra Ingólfur Guðmundsson er námstjóri í fíkniefnafræðslu hjá Skólaþróunardeild Menntamála- ráðuneytisins. Sagði hann við blaðamann Morgunblaðsins að um Lögreglumenn í Svíþjóð klæð- ast sérstökum plastbúningum er þeir eiga við fólk sem grun- að er um að vera eyðnisjúkling- ar og allir bera þeir á sér handþurrku með sterkum sótt- hreinsilegi til þess að geta hreinsað sig ef hætta er talin á smitun. væri að ræða bandarískt efni er kennt væri á ensku við Æfingaskól- ann, Lækjarskóla og Grunnskólann á Hellu. Einnig væri verið að at- huga sænskt efni fyrir yngri nemendur og hefði þegar fengist fé til að þýða það og gefa út. Nokkr- ir leiðbeinendur hefðu verið þjálfað- ir til að kenna efnið og væri ætiunin að halda námskeið reglulega fyrir þá sem leiðbeindu í fíkniefnavöm- um. Lionshreyfíngin hefði sýnt þessu máli mikinn áhuga, boðið aðstoð og fjárstyrk til þessarar bar- áttu. Ingólfur sagði að fræðslan mið- aði að því að rækta jákvæð viðhorf hjá nemendum, hjálpa þeim að styrkja sjálfsmynd sína og gera þeim betur kleift að segja nei við. því sem þau vissu að væri skaðlegt s.s. fíkniefnum. Verið væri að und- irbúa útgáfu leiðbeiningabæklings um fíkniefnavamir handa skólum í Skólaþróunardeildinni og samráðs- hópur sem í væru m.a. fulltrúar Kennaraháskólans, Námsgagna- stofnunar, Samtakanna Vímulaus æska og Lionshreyfíngarinnar væri að komast á laggimar og vænti hann góðs af starfí þess hóps. Ingólfur Guðmundsson sagði að þegar hann hefði verið að kynna sér vamir gegn fíkniefnum í Banda- ríkjunum, Noregi og Svíþjóð hefði alls staðar komið fram að alvarleg- um glæpum hefði fjölgað í kjölfar fíkniefnanna og afbrotamennimir væru stöðugt að verða erfíðari og hættulegri viðureignar. Hann sem gamall lögreglumaður hefði farið að kynna sér hvemig lögreglan brygðist við þessu og í ljós hefði komið að farið væri að leggja aukna áherslu á sálgæslu lögreglumanna. Störf þeirra væru orðin hættulegri en áður og álagið meira. Sums stað- ar hefði það leitt til aukinnar óreglu og ofbeldis löggæslumanna. Þess vegna störfuðu nú prestar og sál- fræðingar vfða á vegum hins opinbera og reyndu að sinna and- legum þörfum lögreglumanna og fjölskyldna þeirra og sagðist hann álíta að tímabært væri orðið að huga að þessum málum hér. Morgunblaðið/Einar Falur. Ingólfur Guðmundsson námsstjóri. Veggspjöld er dreift hefur verið gegn: ólöglegum fíkniefnum (efst), áfengi (t.hægri) og reykingum. Reuter. Stærsti gítar í heimi Upp á ýmsu finna menn og félagamir á myndinni, þeir Lambert Cas- as (t.h.) og Pau Vall, er búa í Barcelóna á Spáni, létu sér detta í hug að smíða stærsta gítar f heimi. Þetta tókst hjá þeim og nú vilja þeir láta skrá gítarinn, sem er 1,5 m. á hæð og 3,2 m. á breidd, í Heimsmetabók Guinness.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.