Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
57
Golf:
Opið mót
GOLFKLÚBBUR Hellu heldur
fyrsta opna golfmótiA á árinu
á morgun.
Ræst verður út klukkan níu
og síðan eftir því sem þátttak-
endur mæta. Keppt verður með
og án forgjafar og eru góð verð-
laun í boði. Átján holu völlur
þeirra Hellumanna er í góðu
standi og er gert ráð fyrir fjöl-
menni.
Móti frestað
FYRSTA opna golfmótið á
kappleikjaskrá Golfklúbbsins
Keilis í Hafnarfirði er Kays-
mótið, sem samkvæmt
skránni á að vera laugardag-
inn 2. maí. Vegna óviðráðan-
legra orsaka verður að fresta
mótinu til laugardagsins 16.
maí.
Keila:
íslands-
mótið hefst
á morgun
íslandsmótið í einstaklings-
keppni i keilu hefst í Keilusaln-
um við Öskjuhlíð í fyrramálið,
en úrslit í mótinu verða 16.
mai.
í tilefni mótsins mun Júlíus
Hafstein, formaður ÍBR, veita
Keilufólagi Reykjavíkur form-
lega aðild að ÍBR, en hann setur
mótið og kastar fyrstu kúlunni
klukkan 11. Fólagið var stofnað
árið 1985 og félagar eru um
300 manns.
60 keppendur taka þátt, en
íslandsmeistarar í fyrra urðu
Dóra Sigurðardóttir og Alois
Rachosser.
Skíði:
Firmakeppni
HIN árlega firmakeppní Skíða-
ráðs Reykjavíkur verður haldin
í Bláfjöllum á morgun og sér
skíðadeild Fram um fram-
kvæmdina. Keppt verður í
samhliða svigi með útsláttar-
fyrirkomulagi í Eldborgargili
við Fram-skálann og f göngu
við gamla Bláfjallaskálann, en
brautin er um kflómeter.
192 fyrirtæki hafa skráð sig
til keppninnar og er keppnisfólk
og annað skíðafólk hvatt til að
mæta og taka þátt, en 12
glæsilegir bikarar eru í verð-
laun. ____
Vaxtarrækt:
íslands-
mótið á
sunnudaginn
íslandsmótið í vaxtarrækt
verður að þessu sinni haldið
f Sjallanum á Akureyri og hefst
á sunnudaginn klukkan 14, en
úrslitakeppnin byrjar klukkan
20.30. Flestir þeir bestu verða
á meðal keppenda, þeirra á
meðal Sigurður Geirsson og
Marta Unnars, íslandsmeist-
ararnir f fyrra, og Guðmundur
Sigurðsson verður með á ný
eftir langt hló.
Glíma
ISLANDSGLÍMAN 1987 verð-
ur haldln f fþróttahúsi Kenn-
araskólans kl. 16 á laugardag-
Inn. Á sunnudaginn verður
Grunnskólamót f glfmu á sama
stað.
• Þessi mynd er frá úrslltunum f samhliðasvigi á Skfðamóti íslands
í Bláfjöllum 1986. Guðmundur Johannsson frá (safirði er í vinstri braut-
inni og Örnólfur Valdimarsson í hægri, en hann sigraði.
Besta skíðafólk
landsins keppir
í samhliðasvigi
SAMHLIÐASVIG fer fram í Blá-
fjöllum á laugardaginn. Allt besta
skíðafólk landsins verður á meðal
keppenda og eru mjög vegleg
verölaun f boði.
Samhliðasvig er tiltölulega ný
keppnisgrein hér á landi. Tveir
keppendur fara samtímis niður
eins brautir. Mótið verður með
útsláttarfyrirkomulagi og verða
keppendur í karlaflokki 16 og 8 í
kvennaflokki. Keppendur hafa ver-
ið valdir í mótið með það í huga
að það verði skemmtilegt á að
horfa.
Keppendur í karlaflokki verða
eftirtaldir:
Úr flokki 15—16 ára
Ólafur Sigurösson, Jóhannes Baldursson,
Vilhelm Þorsteinsson, Krístinn Svan-
bergsson og Haukur Arnórsson.
Úr karlaflokki
Örnólfur Valdimarsson, Daniel Hilmars-
son, Guömundur Jóhannsson, Ingólfur
Gislason, Valdimar Valdimarsson og Guö-
mundur Sigurjónsson.
Úr öldungaflokki
Hafsteinn Sigurðsson, Árni Óðinsson,
Haukur Johannsson og Siguröur Jónsson.
Keppendur í kvennaflokki verða:
Úr flokki 15—16 ára
Ásta Halldórsdóttir.
Úr kvennaflokki
Ingigerður Júlíusdóttir, Guðrún H. Kristj-
ánsdóttir, Anna Maria Malmquist, Snædís
Úlriksdóttir og Bryndís Ýr Viggósdóttir.
Úr öldungaflokki
Nanna Leifsdóttir og Steinunn Sæmunds-
dóttir.
Ferðaskrifstofan Útsýn géfur
mjög vegleg verðlaun fyrir fyrstu
sætin í hvorum flokki. Sigurvegar-
arnir fá skíðaferð á góðan stað í
Alpana næsta vetur. Önnur verð-
laun verða skíði frá Sportval og
fyrir þirðja sæti er vöruútekt í sömu
verlsun. Það er því til mikils að
vinna í þessari skemmtilegu
keppni sem á vaxandi vinsældum
að fagna jafnt hjá keppendum sem
áhorfendum.
Keppnin hefst kl. 14 á laugar-
daginn í Bláfjöllum og verður fyrst
keppt í undanrásum í karlaflokki
þar sem einn keppandi kemst í
aðalkeppnina og bætis við þá 15
sem fyrir eru.
Úrslitakeppnin í NBA:
Boston áf ram
Frá Gunnari Valgeirssyni i Bandarfkjunum.
BOSTON Celtics vann Chicago
Bulls 3-0 f fyrstu umferð úrslita-
keppni NBA-deildarinnar og
leikur gegn Milwaukee eða
Philadelphia í undanúrslitum
austurdeildarinnar.
Boston vann 108:104, 105:96
og í fyrrakvöld urðu úrslit 105:94.
Milwaukee og Philadelphia hafa
unnið sitthvorn leikinn, en í hinum
riðli austurdeildarinnar hefur
Detroit sigrað í fyrstu tveimur leikj-
unum gegn Washington og einnig
Atlanta gegn Indiana.
í vesturdeildinni er líklegt að Los
Angeles Lakers og Utah Jazz leiki
saman í undanúrslitum, en bæði
eru yfir 2-0, Lakers gegn Denver
og Utah gegn Golden State Warri-
ors. Houston vann Portland
117:108 í fyrrakvöld og Seattle
vann Dallas 117:107 og leiða Ho-
uston og Dallas 2-1.
í fyrstu umferö þarf að sigra 'í
þremur leikjum til að komast
áfram, en eftir það í fjórum.
0 Michial Thomason sem La-
kers fékk frá San Antonio fyrri
vetur þegar Pátur Guðmundsson
fór frá liðinu skorar hér í ieik
gegn Boston, Larry Bird til varn-
ar.
Golf:
Golfvertíðin
hafin hjá GR
Á morgun, 1. maí, hefst golf-
vertfðin hjá Golfklúbbi Reykjavfk-
Öldungamót
ÖLDUNGAMÓT f skfðagöngu
verður haldið samhliða keppninni
í alpagreinum f Bláfjöllum um
helgina.
Skíðamót þetta er fyrir 35 ára
og eldri. Keppt verður bæði laugar-
dag og sunnudag. Á laugardaginn
verðurkeppt í göngu með frjáslri
aðferð og á sunnudaginn með
hefðbundinni aðferð.
Keppt verður í eftirtöldum flokk-
um: 35—44, 45—54 og 55 ára og
eldri. í kvennaflokki er aöeins einn
flokkur 35 ár aog eldri.
Þátttaka tilkynnist í síma 12371.
ur, þ.a.s. sumarvertfðin þar sem
kylfingar klúbbsins hafa stundað
fþrótt sfna að Korpúlfsstöðum f
allan vetur.
Vertíðin hefst með hefðbundn-
um hætti með einnarkylfukeppnffl
Ætlunin var að opna völlinn í Graf-
arholti fyrir mótið, en þar sem
heldur illa hefur viðrað að undanf-
örnu, þá er völlurinn þar ekki alveg
tilbúinn til leiks. Það verður því
leikið að Korpúlfsstöðum að þessu
sinni. Ræst verður út frá kl. 13.00
og leiknar 18 holur með fullri for-
Qjöf.
Reiknað er með að völiurinn í
Grafarholti verði opnaður í næstu
viku.