Morgunblaðið - 03.05.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
Framkvæmda- og
markaðsstjórar ráðn-
ir hjá Hljóðvarpi hf.
HAFSTEINN Vilhelmsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
nýrrar útvarpsstöðvar í eigu
Hljóðvarps hf., sem tekur vænt-
anlega til starfa í lok maí. Þá
hefur Hallur Leópoldsson verið
ráðinn markaðsstjóri.
Hafsteinn hefur unnið ýmis
stjórnunarstörf og starfaði síðast
hjá Útflutningsráði. Hallur hefur
undanfarið starfað hjá upplýsinga-
þjónustunni Miðlun við markaðs-
kannanir auk þess sem hann hefur
starfað að markaðsráðgjöf.
Ekki hefur verið ráðið fleira fólk
við nýju útvarpsstöðina, en búið er
að raddprófa um það bil 80 manns.
Þeir Þorgeir Ástvaldsson, Gunn-
laugur Helgason og Jón Axel
Ólafsson munu stjóma dagskrár-
gerðinni frá degi til dags, en fýrir-
hugað er að ráða um það bil 20
dagskrárgerðarmenn í hlutastörf.
Eigendur fyrirtækisins auglýstu
eftir heiti á stöðina og barst fjöldi
tillaga. Ekki hefur þó enn verið
ákveðið hvað „bamið á að heita“,
eins og einn forsvarsmaður útvarps-
stöðvarinnar komst að orði.
PENNINN opnar nýja verslun
nk. föstudag í Austurstræti 10,
þar sem áður var verslunin
Torgið. Meðfylgjandi mynd var
tekin þegar Penninn yfirgaf í
gær húsnæði sitt f Hafnar-
stræti, en þar hefur fyrirtækið
verið með verslun í nærri 55 ár.
„Við höfum verið við sömu göt-
una í 55 ár, síðan í desember
1932, og við höfum trú á gamla
miðbænum, hann er og verður
hjarta borgarinnar," sagði Gunn-
ar B. Dungal, eigandi Pennans.
Hann tók við rekstri verslunarinn-
ar af föður sínum, Baldvini
Pálssyni Dungal, sem var stofn-
andi fyrirtækisins.
Verslun Pennans við Austur-
stræti verður á þremur hæðum. í
kjallara hússins verður ritfanga-
deild og í tengslum við þá deild
prentþjónusta, ljósritun og
stimplagerð. Ennfremur verður
þar mikið úrval fylgihluta í tölv-
ur. Að sögn Gunnars hefur fyrir-
tækið alltaf lagt aðaiáherslu á
allan þann búnað, sem tilheyrir
skrifstofuhaldi, og tileinkað sér
þær nýjungar og breytingar sem
orðið hafa á undanfömum árum.
Á götuhæðinni verður bókadeild
og gjafavörudeild. Gunnar sagði
að lögð yrði áhersla á að sinna
ýmsum áhugamannahópum og
því yrðu á boðstólum margs konar
tímarit og bækur um afmörkuð
málefni.
Á efstu hæð hússins verður
deild fyrir arkitekta og myndlist-
armenn, en slík deild hefur um
árabil verið í verslun Pennans við
Hallarmúla. Helmingur hæðarinn-
ar hefur verið leigður Gallery
Borg, sem verður þar með sýning-
arsal.
Sandgerði:
Fundu loftnet af rússneskum kafbáti
VÍÐIRII GK kom til Sandgerð-
is á fimmtudagsmorgun með
hlustunardufl sem bátsveijar
höfðu fundið á reki suðvestur
af Reykjanesi.
Duflið reyndist vera fjarskipta-
loftnet af sovéskum kafbáti.
Áþekkt dufl fannst nýverið á
Ströndum. Landhelgisgæslan tók
duflið í sína vörslu og afhenti
vamarliðinu. Það hefur nú verið
sent til Bandaríkjanna til rann-
sóknar.
Morgunblaðið/Þorkell
Penninn kveður Hafnar-
stræti eftir 55 ára veru þar
Duflið á þilfari Víðis n GK.
Leitin að konunni
árangurslaus
LEITN að konunni S Vestmanna-
eyjum hefur enn engan árangur
borið, en nú eru liðnir fimm dagar
síðan leit hófst.
Konan, sem er 51 árs að aldri, fór
að heiman frá sér um kl. 3 aðfara-
nótt síðastliðins þriðjudags. Þegar
ekkert hafði til hennar spurst um
hádegi á þriðjudeginum hófu Hjálp-
arsveit skáta og Björgunarfélag
Vestmannaeyja leit, en hún hefur
engan árangur borið.
MorgunblaAið/Y ngvi Kristj&nsson
Sumrinu ’87 að ljúka:
Talfélag Reykjavíkur:
TR keppir í Evrópu-
keppni skáksveita
Tjaldbúinn kemur
af þakinu í kvöld
TAFLFÉLAG Reykjavíkur mun fyrsta skipti sem íslensk skák-
I sumar taka þátt í Evrópu- sveit tekur þátt f slíkri keppni.
keppni skáksveita og er það í Keppnin er útsláttarkeppni og
mun TR mæta sveit frá skák-
klúbbnum Politehnica Bukar-
esti frá Rúmeníu í fyrstu
umferð.
Evrópukeppni skákfélaga er nú
haldin í 6. skipti. Tefldar eru 6
umferðir og tekur að meðaltali tvö
ár að ljúka hverri keppni. Að þessu
sinni taka 24 sveitir þátt í keppn-
inni og keppa sex skákmenn í
hverri sveit tvöfalda umferð í hvert
skipti.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Jón G. Briem formaður TR
að bráðlega yrði kallaður saman
12 manna hópur sem í eru allir
sex stórmeistarar íslands og tveir
alþjóðlegir meistarar. Úr þessum
hópi verður keppissveitin valin fyr-
ir hveija umferð.
Jón sagði að skákfélög í Evrópu
legðu töluvert mikið upp úr að
standa sig vel í þessari Evrópu-
keppni og algengt væri að skák-
klúbbar „keyptu" þekkta
skákmenn til að keppa fyrir sig.
Núverandi Evrópumeistari skák-
sveita er skákklúbburinn Ceska
frá Moskvu og þar er fremstur í
flokki fyrrverandi heimsmeistari
Anatoly Karpov.
Ekki hefur verið endanlega
ákveðið hvenær TR keppir við
rúmenska skákklúbbinn en líkleg-
ast er að það verði um næstu
mánaðamót í Bukarest.
SÝNINGUNNI Sumarið ’87 lýkur
í kvöld. Pétur Ásbjörnsson sem
dvalist hefur á þaki Laugardals-
hallarinnar síðan 21. apríl,
kemur niður á jörðina ld. 21.00.
„Óneitanlega er ég farinn að
hlakka til,“ sagði Pétur I samtali
við Morgunblaðið.
Fjöldi sýningargesta nálgaðist
24.000 þegar svæðið var opnað í
gær. Pétur sagði að enn væri ekki
búið að taka saman hversu mikið
fé hefði komið inn í söfnun
Krísuvíkursamtakanna. Tekið er við
framlögum á þremur stöðum, á
skrifstofu samtakanna í síma
621005, hjá Pétri í síma 687115 og
í Laugardalshöll.
Það fennti á þakinu hjá Pétri
Hvalkjötið er
enn í Hamborg
HVALKJÖTIÐ, sem kyrrsett var
í Hamborg fyrir nokkrum vikurn,
er þar enn. Kjötið, samtals um 175
lestir, er í 7 frystigámum og er
því ekki hætt við skemmdum.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals
hf., sagði ( samtali við Morgun-
blaðið, að enn væri ekki Ijóst
hvaða upplýsingar Þjóðveijar
vildu varðandi útflutninginn. Með-
an svo væri, gerðist einfaldlega
ekki neitt.
„Það kemur bara í ljós síðar,
hvernig þetta leysist og hvenær. Þó
þessari leið verði lokað, höfum við
engar áhyggjur af því. Það liggja
margar leiðir til Japans. Hins vegar
byijuðum við á því 1975 að senda
hvalkjöt í frystigámum með Eimskip
til umskipunar í Hamborg. Öll þessi
ár hafa fylgiskjöl verið unnin á ná-
kvæmlega sama hátt og alls hafa
rúmlega 20.000 lestir farið með þess-
um hætti til Japans, það er í gegn
um Hamborg. Þess vegna kemur
þetta heldur flatt upp á okkur," sagði
Kristján Loftsson.
eins og annarstaðar á fímmtudags-
kvöldið. Taldi hann að um 5 cm
jafnallinn snjór hefði verið fyrir
utan tjald sitt á föstudagsmorgun.
„Þetta blés síðan í burtu, norðanátt-
in sá til þess. Mér líður ágætlega
og hefur ekki orðið neitt kalt,“ sagði
Pétur. Hann verður búinn að dvelja
í 300 klukkustundir, eða tólf og
hálfan sólahring á þakinu þegar
yfir lýkur.
- .........
Neysla sterkra
drykkja eykst
NEYSLA sterkra drykkja hefur
aukist á kostnað léttra vina það
sem af er þessu ári, samkvæmt
úttekt Áfengis- og tóbaksverslun-
ar ríkisins. Fyrstu þrjá mánuði
ársins hefur orðið um 11% sam-
dráttur í hvítvínsneyslu í lítrum
taiið en um 16,9% aukning i vod-
kaneyslu.
Heildameysla fyrstu þijá mánuði
þesssa árs var í flöskum talið
889.406 eða 644736,62 lítrar, sem
eru 171.091 alkóhóllítrar. Sambæri-
legar tölur fyrir síðasta ár eru
887.338 flöskur eða 650.568 lítrar,
sem eru 166.489 alkóhóllítrar.
Neysluaukning á milli ára i alkó-
hóllítrum talið nemur því um 2,75%.