Morgunblaðið - 03.05.1987, Síða 24

Morgunblaðið - 03.05.1987, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987 Gunnbritt Lawruns HAUKURDOR Haukur Dór var hér í eina tíð einn þekktasti leirkerasmiður hér á landi og hafði mikið verkstæði á Álftanesi, ef ég man rétt, en svo lagðist hann í ferðalög og hefur víða búið erlendis seinustu árin, er hættur við keramíkina og stundar nú eingöngu listmálun. Haukur Dór er einn af þeim frægu súmmurum og hefur fyrir löngu haslað sér völl sem listamaður hér í sveit. Þó hefur hann aðeins einu sinni haldið sýningu á málverkum sínum hér áður, en sýnt hefur hann á erlendri grund og það fýr- ir skömmu í kóngsins Kaup- mannahöfn. Það hafa átt sér stað miklar breytingar í málverki Hauks Dórs á síðustu árum, eða frá því hann sýndi verk sín 1974 á Kjarvals- stöðum. Hann hefur auðsjáanlega tamið sér meiri einbeitni í vinnu- brögðum og sneggri viðbrögð, sem skapa lifandi myndgerð, skorðaða í þröngu litavali og ag- aðri myndbyggingu. Haukur Dór teiknar mikið með sjálfum litnum og nær skemmtilegum tilþrifum á myndfletinum, en það kemur nokkuð oft fyrir, að myndir hans verða dálítið mónótónar, og orsak- ast það einfaldlega af mjög hnitmiðuðu og þröngu litavali. Hvítt, svart, rautt og blátt hefur yfírhöndina í flestum þeim verk- um, sem eru á núverandi sýningu Hauks Dórs í Kjarvalssal að Kjarvalsstöðum, en þar eru 74 verk á veggjum. Nokkuð þröngt er á sumum þessara verka, þau eru yfirleitt dálítið ágeng í út- færslu og krefjast rýmis. Betra hefði verið að grisja svolítið til og fylgja þar með eðli þessara málverka. Þetta er fersk og fjörug sýning og mætti enn margt ágætt um hana segja, en því lengra mál, þeim mun færri lesendur. Haukur Dór sýnir hér verulegan árangur í myndgerð sinni. Hann virðist snarpur listamaður í öruggri þró- un, og er það sannarlega gleðilegt, að hann skuli hafa náð þeim áfanga, sem raun ber vitni. En einhæfni þessara verka er ótvíræð og verður fróðlegt að sjá hver framvindan verður hjá svo djörf- um listamanni sem Haukur Dór virðist vera. upp á Austurgangi Kjarvals- staða. Það er sænsk listakona sem á í hlut og heitir Gunnbritt Lawruns. Þessar smámyndir eru flestar gerðar á lítil pappaspjöld og eru ekki veigamiklar, hvorki að efni né innihaldi. Það er ilmur gróð- urs og blóma, sem er vaki að þessum verkum, eftir því sem listakonan sjálf segir, og má það vel vera, en að mínum dómi kemst það ekki til skila, sem höfundurinn virðist vilja láta í ljós. Það má vel lesa úr þessum myndum viðkvæmni og ljóðræna tilfinningu, en þótt það séu í sjálfu sér ágætir eiginleikar, nægja þeir vart til að skila mynd- gerð. sem stendur undir nafninu list. Ég fæ ekki greint myndræn gæði í þessum verkum, og að mínu mati eru þau hvergi nægi- lega unnin til að líklegt sé, að þau eigi erindi við almenning. Það er einhver misskilningur í því fólginn hjá Svíum að setja þessa sýningu upp hér hjá okkur og þvi að eyða krafti og krónum í að komast yfír hálft Atlants- hafíð með ekki merkilegri myndlist. Kannski þykir þetta góð og gild vara í Svíþjóð, enda umburðarlyndi þarlendra marg- frægt meðal þjóða. En því miður get ég ekki lagt gott orð inn fyrir þessi verk, sem nú eru á Austurgangi Kjarvalsstaða og sé ilminn af gróðri og blómum i þeim að finna, fer hann að minnsta kosti fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Myndlist Valtýr Pétursson Svo nefnist sýning á smá- myndum, sem sett hefur verið Blomsterangar och botaniska trádgárdar Iðnaðarmenn — Verktakar! Lækkum verkkostnað! Gunnebo skotnaglar og Fiocchiskothylki laus og í beltum í flestar gerðir af naglabyssum. Mjög hagstætt verð. Fæst í öllum helstu byggingavöruverslunum landsins. Einnig fyrirliggjandi Gunfi5c naglabyssur með 30 skota magasíni frá Gunnebo Heildsölubirgðir: BLAFELL Hverfisgötu 105 - Sími 621 640 Gunnebo og Fiocchi, gæðavörur sem eiga samleið. íbúð óskast til leigu Útivinnandi ung hjón með eitt barn óska eft- ir 2ja-3ja herb. íbúð helst í miðbænum eða á stór-Reykjavíkursvæðinu sem fyrst. Fyrírframgreiðsla ef óskað er. Góð meðmæli. Uppl. í síma 14842 í dag. Bladburóarfólk óskast! AUSTURBÆR VESTURBÆR Lindargata 1 -38 o.fl Aragata o.fl. Hverfisgata 4-62 o.fl. Hverfisgata 63-115 o.fl. Háahlíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.