Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
+
ASJONUR KLAUS BARBIES
• íiH
F'. -f^ f!' jÖf1?' JS liá
h.,: *■ ' * - , ■ á.
'i,yÉpf’“
Hinn hlýðni flokksmaður.
Gestapo-foringinn.
Stríðglæpamaðurinn f Bólivíu.
FRAKKAR SJALFIR SAKAÐIR UM STRÍÐSGLÆPI
ÍRÉ TTARHÖLD UNUM GEGNKLA US BARBIE
y .... :
^ r,;+
.... :. ' ( „ V ." ;
' *►' : *vv,' x'V • '
' - ,
KLAUS BARBIE,
yfirmaður Gestapo
í Lyon í Frakklandi
í stríðinu, kemur
fyrir rétt þar 11.
maí, ákærdur fyrir
glæpi gegn
mannkyninu.
Margir Frakkar
vildu helzt ekki að
þessi réttarhöld
færu f ram, því að
þeir telja öllum fyrir
beztu að gleyma
hernámi nazista og
óttast það sem
kunni að koma fram
í þeim.
Verjandi Barbies, vinstri-
öfgamaðurinn Jacques
Verges, sem er aðdá-
andi Pol Pots, hins
blóðþyrsta Kambódíu-
leiðtoga, hyggst nota réttarhöldin
til að saka Frakka sjálfa um
„stríðsglæpi." Réttarhöldunum hef-
ur verið frestað mörgum sinnum
síðan Barbie var framseldur frá
Bólivíu 1983. Sumir hafa vonað að
hann hrökkvi upp af áður en þau
hefjast.
Barbie, eða „slátrarinn frá Lyon“
eins og hann var kallaður, bar
ábyrgð á því að 4,342 manns í borg-
inni voru myrtir, 7,000 Gyðingar
fluttir nauðugir í útrýmingarbúðir
og 14,311 menn úr andspymuhreyf-
ingunni voru pyntaðir.
í réttarhöldunum verður Barbie
í skotheldu glerbúri, svo að enginn
taki lögin í sínar hendur og skjóti
hann. Fjölmargir lögfræðingar, 115
stefnendur og rúmlega 700 blaða-
menn víðs vegar að úr heiminum
verða við réttarhöldin, sem em tal-
in hin sögulegustu í Frakklandi
síðan Pétain marskálkur og Pierre
Laval vom ákærðir eftir stríðið.
Barbie, sem er 73 ára að aldri,
gekkst nýlega undir skurðaðgerð
vegna meins í blöðmhálskirtli.
Hann hefur lifað tilbreytingarlausu
lífi á fyrstu hæð St.Josephs-fang-
elsis í Lyon, skammt frá Hotel
Terminus, þar sem pyntingarklefar
hans vom til húsa, lesið þýzk blöð
og horft á sjónvarp. Einu gestir
hans hafa verið lögfræðingur hans
og dóttir, sem nú býr í Tyrol. Hann
á lífstíðardóm yfir höfði sér.
„Guðfaðirinn“
Frakkar fóm fyrst fram á fram-
sal Barbies frá Bólivíu 1972, en
fengu afsvar, þar sem þeir höfðu
ekki gert samning við stjóm lands-
ins um framsal glæpamanna. Nú
telja margir að frönsk yfirvöld
hefðu átt að láta þar við sitja, en
þá var orðið of seint að snúa við.
Eftir stríðið hafði Barbie tekið
sér nafn eins fórnarlamba sinna,
Gyðingaprests að nafni Klaus Alt-
mann Haussen, og séð sér farborða
í Þýzkalandi með fölsunum, ránum
og svartamarkaðsbraski. Hann var
tvívegis handtekinn, en slapp í
bæði skiptin. í seinna skiptið var
ástæðan sú að hann hafði unnið í
nokkra mánuði fyrir bandarísku
gagnnjósnaþjónustuna (CIC), sem
vissi hver hann var, útvegaði honum
skilríki og greiddi honum 1700 doll-
ara á mánuði.
Barbie bjó yfir mikilvægri vitn-
eskju um starf kommúnista í Lyon
og mun hafa sett á fót njósnanet,
sem komst yfír þýðingarmiklar upp-
lýsingar um Rúmeníu. Hann mun
einnig hafa skýrt frá ískyggilegum
fyrirætlunum Rússa um úraníum-
gröft í Tékkóslóvakíu. Árið 1951
flýði hann til Bólivíu frá Genúa
ásamt konu sinni, Regínu, ogtveim-
ur bömum, Klaus og Ute. Hann
notaði vegabréf, sem Alþjóða Rauði
krossinn gaf út og þóttist vera
„vélaverkfræðingur“. Hann virðist
hafa notið aðstoðar „Odessa“,
flóttasamtaka nazista undir forystu
Ottos Skorzeny, sem fyrirleit hann
af því að hann varð aðeins „SS
Obersturmfúhrer" (kapteinn) í
stríðinu.
Fyrstu árin í Bólivíu vann Barbie
í sögunarmyllu í afskekktu héraði,
Yngas, en mikið var um fyrrver-
andi nazista og aðra Þjóðveija í
landinu og hann sá ekki ástæðu til
að fela sig. Hann fiutti því til höfuð-
borgarinnar La Paz og sneri sér
að timburverzlun og útflutningi og
Aftaka: „næg sönnunargögn".
efnaðist vel. Seinna stofnaði hann
fýrsta skipafélag Bólivíu, Transma-
ritima, og ferðaðist mikið á þess
vegum um alla Evrópu, þótt hann
væri eftirlýstur.
Barbie varð handgenginn bóliví-
skum herforingjum og einræðis-
herrum. Félagi hans, Friedrich
Schwend, sem hafði dreift fölsuðum
pundseðlum í stríðinu, komst í svip-
aða aðstöðu í Perú og skipulagði
leyniþjónustu landsins. Þeir stóðu í
sambandi við félög fv. nazista í
Suður-Ameríku og skiptust á upp-
lýsingum. Upp úr 1970 varð Barbie
síðan „guðfaðir" nýfasista og mála-
liða frá Evrópu, sem voru fengnir
til að verja kókaínverzlun Bólivíu-
manna og stunduðu sjálfir eitur-
lyfjasölu, vopnasmygl og hryðju-
verk. Þeir reyndu líka að koma
hægriöfgamönnum til valda á Ítalíu
og víðar.
Einn þessara málaliða var Stef-
ano delle Chiaie, sem tók þátt í
misheppnaðri byltingartilraun
„svarta prinsins", Junio Valerio
Borghese, 1970 og svipaðri tilraun
fv.yfirmanns leyniþjónustu hersins,
ijórum árum síðar. Seinna var Chia-
ie ákærður fyrir að standa á bak
við sprengjuárásina í Bologna í
ágúst 1980 þegar 48 biðu bana.
Barbie tók þátt í að skipuleggja
byltingu Hugo Banzers Suarez
ofursta í ágúst 1971 og varð örygg-
isráðgjafí innanríkisráðherra hans,
Acre Gómez ofursta. Reynsla hans
úr stríðinu var talin mikilvæg og
hann kom á fót fangabúðum og
dauðasveitum og kenndi yfir-
heyrsluaðferðir og pyntingar með
raflosti. Málaliðar hans myrtu só-
síalistaleiðtogann Marcelo Quiroga
Cruz og skipulögðu loks byltingu
Garcia Meza hershöfðingja, „kon-
ungs kókaínsbraskaranna", 1980.
Frémseldur
Á þessum árum sást Barbie oft
á ferli í höfuðborg Bólivíu og var
tíður gestur á Café La Paz. í fylgd
með honum var jafnan vopnaður
lífvörður, sem innanríkisráðuneytið
lét honum í té. Vinir hans kváðu
hann ljúfmenni, sem ætti um sárt
að binda vegna þess að kona hans
væri að deyja úr krabbameini. Son-
ur hans fórst í svifdrekaflugslysi
1981.
Barbie var alltaf sami gamli naz-
istinn. Honum var kastað út úr
Þýzka klúbbnum í La Paz um 1970
þegar hann heilsaði að nazistasið
og hrópaði „Heil Hitler" af því hon-
um sinnaðist við þýzka sendiher-
rann. Eftir það fækkaði þýzkum
vinum hans í Bólivíu.
Þýzki nazistaveiðarinn Beate
Klarsfeld og eiginmaður hennar,
Serge, franskur lögfræðingur af
Gyðingaættum sem missti föður
sinn í Auschwitz og er sækjandi í
I