Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987 37 Er stemmingin á Islandsmótinu í sveitakeppni að líða undir lok? Brids GuðmundurSv. Hermannsson ÞEGAR ég var að byija að spila alvöru keppnisbrids fyrir ára- tug eða svo þóttum við ungu strákarnir margir vera hálf druslulega til fara. Ég heyrði menn af eldri kynslóðinni stundum tala með söknuði um þá gömlu góðu daga þegar helst var ekki sest niður við spila- borð í alvarlegri keppni án þess að vera í sínum bestu fötum. Það er enginn stíll yfir þessu lengur, sögðu menn og hristu höfuðið. En við strákamir kærðum okkur kollótta um þetta, enda var þetta á þeim tímum þegar það þótti fínt var vera eins og fuglahræða, svo við spiluðum áfram í bolum og gallabuxum og jafnvel með pijóna- húfur yfir hárstrýinu. Þetta voru tímar breytinga; ný kynslóð var að koma fram og leita landvinninga. Og draumur allra var að vinna íslandsmótið í sveita- keppni. Yfir þessu móti hvfldi ákveðinn hátíðleiki, hvað sem síðu hári og bolum leið. Að komast í átta liða úrslitin jafngilti þvi að komast í hóp hinna útvöldu og mótinu sjálfu fylgdi einskonar eft- irvæntingarsæluhrollur, að minnsta kosti man ég svona eftir flestum mínum mótum. Ég er ekki frá því að áhorfendur hafi fundið fyrir þessu líka enda átti íslandsmótið sína tryggu fylg- ismenn sem létu sig aldrei vanta á áhorfendabekkina. Spilasalirnir á Hótel Loftleiðum voru yfirleitt troð- fullir af fólki, einnig ráðstefnusal- urinn, þar sem sýningartaflan var. Þar inni ríkti síðan alveg sérstök stemming, ekki síst þegar skemmtilegir skýrendur eins og Hjalti Elíassson, Stefán Guðjo- hnsen og Jakob R. Möller spáðu í spilin og komu með hæfilega eitr- aðar athugasemdir um frammi- stöðu spilaranna í sýningarleikn- um. Það var_ náttúrulega ýmislegt sem gerði íslandsmótið sérstakt í hugum spilaranna en þar átti töflu- spilamennskan ekki hvað sístan þátt. Menn fengu alltaf pínulítið í magann þegar tilkynnt var hvaða sveitir ættu töfluleik umferðarinn- ar því það fylgdi því talsverð ábyrgð og upphefð að setjast niður við borð með þulinn sér við hlið og heyra hann lýsa sögnum og spilamennskunni, og vita að uppi í sal sátu tugir manna og sáu öll spilin og myndu gagnrýna mis- kunnarlaust öll mistök. Og það var líka sérstök tilfinning að koma upp í ganginn framan við Kristalssalinn eftir að hafa spilað síðasta leik fs- landsmótsins á töflunni og geta varla fundið sveitarfélaga sína í mannþrönginni sem var komin til að fylgjast með lokum mótsins. Núna eru tímamir breyttir. Það sjást varla snyrtilegri menn við spilaborðin en einmitt ungu strák- amir sem eru að hefja keppnisferil sinn. Og við hinir emm líka búnir að láta klippa okkur fyrir löngu og 'eggja bolunum og prónahúfun- um þótt við bregðum okkur stundum í gömlu gallabuxumar ef svo ber undir. En samt er að fara fyrir mér nú eins og gömlu mönnunum í mínu ungdæmi að ég er farinn að sakna gömlu góðu daganna. Ekki vegna þess að klæðaburðurinn hef- ur breyst heldur get ég nefnilega ekki betur fundið en stemmingin á íslandsmótinu í sveitakeppni sé að verða minningin ein. Kannski er ég sjálfur orðinn svona upptekinn af fortíðinni eða hreinlega orðinn ónæmur fyrir þessu en þá er ég ekki einn um það því þessi skoðun heyrðist víðar á nýafstöðnu ís- landsmóti. Á þessu íslandsmóti mátti það heita undantekning ef einhveijir áhorfendur komu til að fylgjast með umferðunum. Og í lokaum- ferðinni hafa kannski tveir þrír tugir manna verið á staðnum til að sjá íslandsmeistarana taka við sigurlaunum sínum. Þetta er ekki hægt að skýra með kosningunum' eða því að ekki var spilað yfir páskahelgina eins og undanfarin ár, því slíkt var einmitt ekki gert á þeim árum sem ég var að lýsa. Og hvort sem það hefur verið afleiðing, eða orsök þessa, var eng- in sýningartafla i gangi í mótinu. Spilarar bara komu, spiluðu og fóru, og það var eins og mönnum væri bara nokk sama hvemig þetta allt saman veltist. Og þetta var ekki aðeins vegna þess að þama voru sömu gömlu spilaramir að spila íslandsmót einu sinni enn því sjálfsagt var rúmur þriðjungur þeirra að taka þátt í sínum fyrstu úrslitum. Það má hinsvegar segja að ís- landsmótið nú endurspegli nokkuð þann vetur sem er að líða. Þótt sjaldan hafi verið haldin fleiri eða fjölmennari mót en einmitt í vetur hefur áhugi spilaranna verið í lág- marki. Og raunar mótshaldara einnig því undirbúningur mótanna hefur alltof oft borið þess merki að kastað hefur verið til höndunum. Ég man ekki eftir því að hafa tek- ið þátt í neinu móti í vetur sem mér fannst. ríkja virkileg stemming í, ég man ekki eftir neinu móti sem var haldið með reglulegum stæl, eins og sagt er. Þvert á móti hefur maður það á tilfinningunni að sum mótin séu haldin afþví þau hafa verið haldin í mörg ár og því orðin einhver leiðinleg skylda. Þetta er hálf aumt því við Íslendingar höfum oft verið til fyrirmyndar í móta- haldi og ég nefni þar til dæmis Norðurlandamótið hér árið 1978 sem var byltingarkennt að mörgu leyti og mörg skemmtileg smáat- riði juku á ánægju spilaranna og áhorfenda; og fyrstu Bridshátíðina sem einnig var mjög skemmtileg bæði fyrir keppendur og áhorfend- ur. Það er ekki nóg að fylla bara spilarakvótann ( mótum svo þau beri sig eða skili hagnaði. Spilurum verður að finnast að það sé þess virði að hafa tekið þátt í mótinu þótt þeir vinni ekki endilega til verðlauna og að mótshöldurum sé virkilega annt um að góðir spilarar séu með og komi síðan aftur á næsta ári og þar næsta. Á það er hinsvegar oftast litið sem sjálfsagð- an hlut. Og þama er kannski komið að kjama málsins. Það skiptir ekki öllu máli hvemig spilaramir sjálfir em til fara eða líta út. Aðalatriðið er að þeir finni til svipaðrar tilfinn- ingar þegar þeir setjast niður við spilaborð í íslandsmóti, eða öðru móti, og þegar þeir setjast að uppá- haldsmatnum sínum eða fá sér staup af uppáhalds koníakinu sínu. En til þess þurfa mótshaldarar að nostra við smáatriðin sem gefa mótunum fyllingu. Þetta var reynt hér áður fyrr en nú er eins og smáatriðin skipti engu máli lengur og um leið fara mótin að minna á hamborgara eða ódýrt brandísull. Og spilarar missa smátt og smátt áhugann. Það hlýtur að slq'óta skökku við að um leið og fjöldi iðkenda brids- íþróttarinnar hefur aldrei verið meiri hefur áhugi spilaranna aldrei verið minni. Þama er eitthvað að , sem forsvarsmenn Bridgesam- bands íslands þurfa að íhuga vel. Kannski hefur þess ekki verið nægilega gætt að byggja undir íþróttina og þótt framhliðin virðist vera í lagi séu á bakvið óhijáleg herbergi sem mönnum er ekkert umhugað um að skoðað sé í eins og uppbygging mótshalds og aðlög- un móta að kröfum tímans, uppbygging bridsfélaganna, ungl- ingastarfið, og svona mætti halda áfram. Ég ætla mér ekki að fara að setjast í eitthvað dómarasæti yfír bridsfomstunni. Ég þekki það af eigin raun að þar em unnin van- þakklát og ttmafrek störf og það er mun auðveldara að gagnrýna • en viðurkenna það sem vel er gert ef menn em orðnir góðu vanir. En einhversstaðar stendur skrifað að þegar menn hætta að gera betur hætti þeir að gera vel. Eg veit að mörgun blöskraði framkvæmdin á síðasta íslandsmóti og okkur, sem þykir vænt um þessa íþrótt af því hún hefur gefið okkur svo mikið, finnst að við svo búið megi ekki standa. Hs A afmælisarinu 1986, var sett nýtt met í sölu Skoda á íslandi. í framhaldi af því náöum viö bestu samningum um verö til þessa. Nú bjóöum viö ár- gerö '87 á ótrúlegu verði: Aöeins kr.145.000.- ■ Kíktu viö um helgina og þú sannfærist um aö þetta eru bestu bílakauþin í dag. OPIÐ LAUCARDAC OC SUNNUDAC KL.1S-17 __ JOFUR HF NYBYLAVEGI2 KÓPAVOGI SÍMI 42600
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.