Morgunblaðið - 03.05.1987, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
Heilbrigðisráðherra Svíþjóðar um alnæmi::
„Ekki ómaksins vert að mót-
efnamæla alla þjóðina...“
MAGN-
ÞRUNGNAR
RAFHLÖÐUR
## Dreifing:
TOLVUSPIL HF.
sími: 68-72-70
eftirSvein
Guðmundsson
LÍKT OG á íslandi hefur sú
hugmynd komið upp í
Svíþjóð að rétt væri að prófa
alla þjóðina með tilliti til
mótefna gegn alnæmisveir-
unni. Nú hefur heilbrigðis-
ráðherra Svía, Gertrud
Sigurdsen, tekið af skarið.
Telur hún að ekki komi til
greina að athuga mótefni
hjá allri þjóðinni.
1 jákvætt...
2.000 neikvæð!
í Svíþjóð eru 5 milljónir manna
á aldrinum 18 til 65 ára. Áætlað
er að 3.500 til 10.000 manneskjur
séu smitaðar af HIV (human im-
munodeficiency virus) í Svíþjóð. Nú
hefur smit greinst hjá 1.500 manns.
Til að fínna alla hina þarf að mæla
HlV-mótefni hjá þessum 5 milljón-
um 2svar á ári svo það megi skila
einhveijum árangri.
Þetta þýðir að uppskeran yrði 1
jákvætt próf fyrir hveijar 2.000
mælingar. Þörf væri á að ráða til
starfa þúsundir starfsmanna á
sjúkrahúsdeildum og rannsóknar-
stofum.
Með þeim rannsóknaraðferðum
sem nú eru í notkun mundu 100.000
próf vera falskt jákvæð. Þörf væri
á 500 ársstörfum til að fylgja eftir
þessum prófum.
3 milljarðar ísl. kr. á ári
Áætlun eins og hér er nefnd
mundi að mati ráðherrans kosta 3
milljarða íslenskra króna á ári
hveiju. Að hennar viti eru bæði
betri og ódýrari áætlanir fáanlegar
til að fínna HlV-smitaða einstakl-
inga og beri Svíum að einbeita sér
að eftirfarandi málaflokkum:
i
FLUG OG BILL
Nú er kominn tími til að bregða undir sig betri hjólunum og fljúga til Luxem-
borgar og rúlla um Evrópu fyrir lítinn pening.
Terra býður einstaklega lágt verð á fluginu og bíllinn kostar sama og ekkert.
Dæmi um Terruverð á flugi og bíl fyrir 4 í tvær vikur:
Fíat Panda: Ford Sierra:
kr. 10.904 or. mann kr. 13.182 pr. mann
Ford Fiesta: Ford Scorpio:
kr. 11.326 pr. mann kr. 16.203 pr. mann
Ford Escort: kr. 11.860 pr. mann
Innifalið í verði er flug (KEF-LUX-KEF) og bíll með ótakmörkuðum akstri,
kaskótryggingu og söluskatti.
Öll verðin miðast við 2 fullorðna og tvö börn á aldrinum 2-12 ára.
Hittu starfsfólk Terru að máli og það opnar þér dyr að töfrum Evrópu.
GÓÐA FERÐ!
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 29 Sími 26100
• Þörf er á því að horfa sérstak-
lega til þeirra hópa sem alnæmi
leggst harðast á, það eru homm-
ar og eiturlyfjaneytendur.
• Núverandi áróðursherferð mun
veita almenningi hugmynd um
smitleiðir. Þeir sem hugsanlega
hafa smitast á liðnum árum láta
mótefnamæla sig. Meðal þeirra
sem leita sjálfír mótefnamæl-
inga leynast hlutfallslega fleiri
sýktir en hjá almenningi.
• Takmarka skal HlV-próf við
hópa þar sem telja má að smit
finnist. Meðal þess hóps er fólk
sem leitar lækninga á móttök-
um kynsjúkdómadeilda.
• Ófrískar konur. Fóstur
kvenna með HlV-smit eru í
verulegri hættu að smitast, þó
þeirri spumingu sé ekki full-
svarað hve mörg bamanna
sleppa án þess að smitast. Ef
kona með HlV-smit verður
ófrísk er talið að hún sé í auk-
inni áhættu að fá alnæmi, og
má því telja fóstureyðingu rétt-
lætanlega frá þeim sjónarhóli.
Einnig má með prófun allra
ófrískra kvenna gera sér grein
fyrir útbreiðslu smits í þjóð-
félaginu.
• Allt blóð og blóð og blóðhlutar
hafa verið prófuð með tilliti til
HlV-mótefna frá haustinu
1985. Á árunum 1980 til 1985
hafa uppgötvast 50 blóðgjafar
sem þá voru smitaðir. Talið er
að nú séu enn ógreindir 50 til
200 einstaklingar sem smitast
hafa með blóðgjöf.
Nú eða aldrei... ?
Sú hugmynd hefur vaknað að
rétt væri að taka einskonar „stikk-
próf“ af blóði sem berst til rann-
sóknarstofa til annarra ákvarðana.
Sú vitneskja sem þannig fengist
gæti ef til vill gefið einhveija hug-
mynd um raunverulega útbreiðslu
HlV-smits í þjóðfélaginu, þó bæði
þessi hópur og ófrískar konur séu
á vissan hátt úrval úr þjóðfélaginu.
Eins og tónninn er í ráðherranum
má því telja ólíklegt að Svíar grípi
til þess ráðs að mæla HlV-mótefni
hjá.allri þjóðinni í nánustu framtíð.
Gagnrýnisraddir á þetta viðhorf
ráðherrans eru á lofti og má vænta
þess að þær verði háværari á næst-
unni. Álíta sumir að umþóttun-
artíminn sé liðinn og ekki muni
kleift að líta um öxl að einu eða
tveimur árum liðnum. Þá verði
ómögulegt að kortleggja útbreiðslu
sýkingarinnar, svo útbreidd sem
hún þá muni verða. Hvort sú verður
raunin veit enginn í dag.
Höfundur er fréttaritari Morgun-
blaðsins / Uppsölum, Svíþjóð.
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
fltagiifsiMiifeife