Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987 59 t Eiginkona mín og systir okkar, ARNDfS FINNBOGADÓTTIR, Kvisthaga 10, Reykjavik, sem lést 24. apríl sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu daginn 4. maí kl. 10.30. Kristinn Tryggvason og systkini hinnar látnu. Maðurinn minn t BJÖRN HÖGNASON múrari, Stóragerði 12, lést 30. apríl. Sigurdrífa Jóhannsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, EDITH THORBERG JÓNSSON, Sólvallagötu 39, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. maí kl. 13.30. Trausti Thorberg Óskarsson, Dóra Sigfúsdóttir, Elna Thorberg Stangegárd, Ole Stangegárd, Georg Thorberg Georgsson, Bylgja Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður + minn, faðir og tengdafaðir. FINNBOGI EYJÓLFSSON bifreiðastjóri, áðurtil heimilis á Egilsgötu 28, Reykjavik, lést 1. maí. Rannveig Pótursdóttir, börn og tengdabörn. t Útför bróður okkar, GUÐMUNDAR JÓHANNESSONAR, Blindraheimilinu Hamrahlfð 17, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 4. maí kl. 13.30. Systklnin. t Útför föður míns, GUNNARS ÞÓRIS HALLDÓRSSONAR, Barónsstfg 63, Reykjavfk, veröur gerð frá Fossvogskirkju þriðjudag 5. maí nk. kl. 13.30. Elfa-Björk Gunnarsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF ÍSAKSDÓTTIR, andaðist á Vífilsstaðaspítala að morgni 1. maí. Dóróthea J. Eyland Gfsli J. Eyland Ólafur G. Einarsson Ragna Bjarnadóttir Kristján Bogi Einarsson Sólveig Haraldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns mfns, föður, tengdaföð- ur, afa og langafa, ÞÓRARINS E. BJARNASONAR frá Reyöarfirði, Alfaskeiði 64. Jónlfna fvarsdóttir, Bjarni Þórarinsson, Svanhildur Jónsdóttir, Þóranna Þórarinsdóttir, Ingólfur Árnason, Ásdís Þórarinsdóttir, Bjami Björgvinsson, Óskar Þórarlnsson, Gunna Kristjánsdóttir, fvar Þórarinsson, Marfa Jónsdóttir, Þórlr Þórarinsson, Kristfn Elfsdóttir, Valur Þórarinsson, Ólaffa Andrósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sigríður Ólafs- dóttír—Minning Fædd 25. apríl 1904 Dáin 23. apríl 1987 Sigríður Ólafsdóttir lést á Hrafn- istu í Reykjavík 23. apríl sl., 82 ára. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun kl. 15;00. Hún var dóttir hjónanna Ólafs Halldórssonar og Magneu Bjarna- dóttur, sem bjuggu á Arnarfelli í Þingvallasveit og Sigríður fæddist Jjar. 1926 giftist hún Finnboga Ámasyni, síðar yfirfískmatsmanni frá Miðdalskoti í Laugardal, fyrstu búskaparárin bjuggu þau á Ketil- völlum í Laugardal en fluttu til Reykjavíkur og festu kaup á Berg- stöðum við Kaplaskjólsveg og bjuggu þar sinn búskap. Og átti með honum fjögur böm, Kristin, kvæntan Guðbjörgu Jóhannsdóttur; Magneu, gifta Þorláki Runólfssyni; Jónu, gifta Bimi Bjömssyni; Guð- rúnu, gifta Ögmundi H. Stephens- en. Okkur tengdabörnum var öllum vel tekið er við komum á heimili þeirra hjóna. Sigríður var mikil dugnaðarkona og hugsaði vel um heimili og íjölskyldu. Eftir að hún var orðin ein og börnin gift og búin að stofna sín heimili fannst henni hún hafa lítið fyrir stafni enda alltaf verið vinnu- söm á stóm heimili. Lá leið hennar til vinnu hjá Lyfjadeild ÁTVR og vann hún þar meðan heilsa leyfði. Um líkt leyti flutti hún í litla íbúð sem hún festi kaup á við Hverfis- götu 73. Það vom margir sem komu við á Hverfisgötunni, skyldfólk og vinir, enda margra leið þegar farið var í bæinn og vitað að heitt kaffi og meðlæti veitt af stórhug og ánægju. Síðustu tíu árin eftir að heilsunni fór að hraka hefur Sigríður verið barnið okkar allra og er það vel því góð var hún móðir og tengdamóðir. Ollum sem kynntust Sigríði þótti vænt um hana enda hennar verk og hjálpsemi góð meðan heilsa leyfði, til hjálpar öðmm. Ég vil enda þessi fáu orð með erindi: Ollum sem eru í nauðum ást mína berðu þeim. Berðu þeim blessun mína berðu hana um allan heim. (G. Dahl) Blessuð sé minning góðrar sam- ferðakonu sem umbar mikið og kunni að fyrirgefa. Þorlákur Runólfsson Á fyrsta degi sumars lagði hún amma augun aftur í hinsta sinn eftir langa lífdaga, bæði sæta og súra. Þó ég viti nú minnst um það, því allir dagar vom góðir í návist < y- hennar, alltaf sama róin og friður- inn sem fylgdi henni og hún gerði alltaf gott úr öllu hjá okkur krökk- unum. Sama hvenær maður kom til hennar, hún var alltaf með bros á vör. Megi Guð og englanir blessa hana ömmu mína í hinum nýju heimkynnum og þakka ég henni fyrir samveruna og alla góðu dag- ana. Friður sé með henni. „Far þú í friði friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“ (V.Br.) Sigríður Þorláksdóttir Guðmundur Jóhannes- son — Minningarorð Fæddur 15. ágúst 1909 Dáinn 27. apríl 1987 Mig langar að minnast hér nokkmm orðum ömmubróður míns, Guðmundar Jóhannessonar, sem jarðsunginn verður á morgun, mánudaginn 4. maí í Fossvogs- kirkju í Reykjavík. Mundi frændi, eins og við vomm vön að kalla hann, fæddist í Litla Laugardal í Tálknafírði. Hann var sonur hjónanna Guðbjargar Vagns- dóttur og Jóhannesar Bjama Friðrikssonar, fimmti í röð ellefu systkina. í Litla Laugardal ólst hann upp til þrettán ára aldurs, er hann fluttist ásamt foreldmm sínum til Patreksfjarðar. Þá þegar hafði hann reynt það sem síðar átti eftir að hafa mikil áhrif á allt hans líf. Þegar hann var tólf ára gamall veiktist hann hastarlega er hann var að sitja yfir ám, og fékk að því er talið er heilahimnubólgu og lá lengi mikið sjúkur. En hann náði sér að mestu og til Patreksfjarðar lá leiðin og síðan til Akureyrar, þar sem hann hugðist hefja nám við gagnfræðaskólann. Áður hafði hann stundað undirbúningsnám hjá sr. Böðvari Bjamasyni á Rafnseyri í Amarfirði. En margt fer öðmvísi en ætlað er og svo var um nám Munda. Sjón hans hafði hrakað svo mjög að augnlæknir á Akureyri réð honum frá frekara námi og bóklestri. Sjón- inni hélt síðan áfram að hraka og þar kom að Mundi varð blindur að mestu á þrítugsaldri. Þar við bætt- ist vanheilsa sem rakin var til áðumefndra veikinda auk mikilla veikinda sem hann átti við að stríða árið 1930, þá kominn til Reykjavík- ur og farinn að vinna við byggingar. Þrátt fyrir mótlætið lét Mundi ekki bugast. Hann ætlaði að standa sig og var lífsviðhorf hans alla tíð það að hann skyldi bjarga sér sjálf- ur þrátt fyrir vanheilsu og blindu. Það var því fátt sem honum líkaði verr en þegar sjáandi vantreystu honum til verka eða vildu vegna blindu hans gera fyrir hann eitthvað það sem hann var sjálfur fullfær um. Hans líf varð því ein sjálfstæð- isbarátta, barátta við viðhorf er ekki trúðu að blindur maður gæti verið hvort tveggja sjálfstæður og sjálfbjarga. í byjjun beitti hann kröftum sínum innan Blindravinafé- lagsins en síðar innan Blindrafé- lagsins, samtaka blindra og sjónskertra á íslandi. Hann var meðal stofnenda þess félags og einn aðalhvatamaður þess að blindir settu sjálfir á stofn og ráku sína eigin vinnustofu. Mundi var alla tíð óþreytandi í vinnu sinni fyrir félagið og málefni blindra hér á landi. Hann helgaði því allt sitt líf og fátt snerti hann meir en er einhver áföll urðu í rekstrinum. En líf hans var ekki aðeins innan veggja vinnustofunnar eða íbúðarhúsa. Hann var sífellt á ferðinni og fór allra sinna ferða um borgina þvera og endilanga og þó víðar væri. Hann vissi afstöðu húsa og gatna og gekk ákveðið og hratt á milli áfangastaða og var þá oft fátt sem sýndi að hér væri blindur maður á ferð. Mundi var kjarkmik- ill í eðli sínu og gegndi því meðal annars eitt sinn að innheimta fyrir Blindravinnustofuna, sem krafðist þess að hann færi einn um alla borg, jafnt þar sem hann hafði kom- ið áður og annars staðar. Ratvísi hans og kunnugleiki í borginni kom mér oft á óvart og minnist ég þess að hann segði mér til, er hann var með mér í bíl og ég villtist og <sit ég þó sjáandi. Mundi var vel gáfum gæddur og minnugur með afbrigðum og hélt hann fullum skýrleika í hugsun allt fram til þess er hann tók sína síðustu sótt um viku fyrir andlát sitt. Hann hafði þá um eins árs skeið átt við mikil veikindi að stríða og verið langdvölum á spítala og notið umönnunar hjúkrunarfólks og lækna Landakotsspítala. Þá var Mundi léttur í lund og kátur mað- ur, skap hans ókyrrðist þó á stundum og gat hann rokið upp. Það var þó jafnan fljótt úr honum aftur og var hann þá gjaman búinn að láta heyra í sér áður en löng stund var liðin og segja viðkomandi að ekki hafi hann nú meint mikið með því sem sagt var. Ég kveð nú ljúfan frænda sem horfinn er af sjónarsviðinu en lifir í minningunni. I mínu hugskoti mun hans alltaf njóta við, því í samtölum okkar og samvistum hefur hann kennt mér svo mikið. Hann hefur bent mér á hversu ríkur maðurinn er af hæfileikum og hversu fátæk- leg viðhorf sjáandi manna eru oft á tíðum til blindra og sjónskertra. Hann hefur kennt mér að virða og meta sjálfstæði og sjálfsbjörg sjá- v andi og blindra. Ég votta systkinum Guðmundar, vinum og ættingjum samúð við frá- fall kærs bróður, vinar og frænda. Þá vil ég þakka hjúkrunarfólki og læknum Landakotsspítala góða umönnun og óska þeim Guðs bless- unar í lífi og starfí. Gunnar Rúnar Matthíasson — Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, RÓSANT SKÚLASON, Faxabraut 7, Keflavfk, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 5. maí kl. 13.30. Soffía Gunnlaugsdóttir, Guðrún Rósantsdóttir, Per Knrsgaard, Skúli Rósantsson, GuArún Lára Brynjarsdóttir og barnabörn. ‘mJi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.