Morgunblaðið - 03.05.1987, Side 61
61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
heimili sínu. Og það eru ekki bara
listamenn sem minnast slíkra
stunda. Ekki var gerður greinar-
munur á háum og lágum, gestum
og gangandi, börnum eða fullorðn-
um, heimili hennar var öllum opið.
Sérstakt þakklæti berum við fjöl-
skylda mín í bijósti nú á leiðarlok-
um. Þær eru margar grónar
götumar í Skálholti. En sú gata sem
við rötuðum og lá að hjarta Önnu
frænku grær aldrei meðan nokkurt
okkar hefur minni til að varðveita
hug okkar.
Guð gefi okkur öllum styrk að
segja með Job: „Drottinn gaf og
Drottinn tók, lofað veri nafn Drott-
ins.“ Guðmundur Ingi Leifsson
í sumarbyijun lést Anna Magn-
úsdóttir í Skálholti. Minning hennar
tengist sumrinu, ógleymanlegum
stundum á heimili hennar og í kirkj-
unni.
Það er sunnudagur, hið fegursta
veður og kyrrð hvílir yfir Skálholts-
stað. I kirkjunni eru að hefjast
tónleikar. Meðal áheyrenda eru
prestshjónin sr. Guðmundur Óli Ól-
afsson og Anna. Þau hafa einnig
sótt tónleikana daginn áður og litið
inn á lokaæfingu á föstudags-
kvöldi. Þegar þau em mætt geta
tónleikar hafist. Eftir tónleikana er
messa í kirkjunni. Orð Guðmundar
Óla berast um kirkjuna og Anna
leiðir söng kirlq'ugesta. Hljómburð-
ur kirkjunnar er hinn fegursti á
landinu. Eftir messu er drukkið
kaffi á prestssetrinu.
Svo hefur verið frá því að Sumar-
tónleikar í Skálholtskirkju hófust.
Anna var stórbrotin kona. Málfar
hennar skýrt og fagurt. Hún bjó
yfír þeim krafti sem til þarf til að
segja skoðun sína umbúðalaust.
Tónlistarskyn hennar var óvenju
næmt. Hún hafði hreina og fagra
sópranrödd.
Ég þekkti hana tólf sumur, en
ein vetrarminning mun þó lengst
lifa. Það var skömmu fyrir síðustu
jól. Það er æfíng fyrir helgileik
bamanna svo að allt geti farið
skipulega fram. Hún syngur með
þeim og talar til þeirra hvatningar-
og uppörvunarorðum. Æfingin tek-
ur hálfan dag og Anna er mjög
veik, en hún gleymir sér í gleði
sinni. Ég kem til hennar þegar liðið
er á æfínguna og spyr hvemig hún
geti annað eins. Og hin kjarkmikla
kona svarar brosandi: „Ég stend
meðan stætt er.“ Slík var Anna.
Frá fyrstu kynnum hefur prests-
setrið í Skálholti staðið mér opið.
Án vináttu og stuðnings þaðan hefði
starf mitt í Skálholti verið óhugs-
andi. Helga Ingólfsdóttir
Lof sé þeim hæsta fyrir lífið, til-
brigði þess, liti og óma. Allur
yndisleiki þess og fegurð festist í
huga okkar allra — augnablikum
tendmðum kærleika og hugnaði
sem stafar bjartar og glæstar frá
einstaka persónu án þess að fölva
slægi á nokkum annan nærstaddan.
I mínum huga er lífslistakonan
Anna Magnúsdóttir, sem nú er
kvödd í sámm trega ástvina sinna
og ijölda vina, ímynd kærleikans
og þeirrar birtu sem breytir um-
hverfi sínu úr gráma í glit vegna
einskærra persónutöfra.
Ég man er ég sá Önnu og hitti
fyrst. Á útmánuðum fyrir röskum
30 ámm er hún kom ásamt manni
sínum, sr. Guðmundi Óla Ólafssyni,
á heimili foreldra minna í Uthlíð.
Það gleymist engum sem sáu Önnu
í fyrsta sinni svo mikil var reisn
hennar og glæsileiki. Lífsstarf
þeirra var ráðið, prestshjón í Bisk-
upstungum hafa þau verið í 32 ár.
Við höfum notið þeirra einstöku
hæfileika í starfi og leik, gleði og
sorg.
Margþætt vom hennar störf sem
prestskona í stórri sveit. Við hveija
athöfn var hún ómissandi. Enga
vissi ég gleðjast meira með glöðum
og ógleymanleg á sorgarstundum,
svo traust og hlý.
Anna kenndi mörg ár við bama-
skólann í Reykholti. Hún var
mikilhæfur kennari, kristinfræði og
íslensku lét henni sérstaklega vel
að kenna. Hún naut sín einnig mjög
vel við kennslu yngri barnanna og
mörg em þau ungmennin sem búa
vel að fræðslu hennar langt um veg
fram.
Ógleymanleg em þau tvö sumur
sem ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að starfa með þeim prests-
hjónum í sumarbúðum barna í
Haukadal. Það var vor í lofti þegar
verið var að undirbúa starfsemina.
Náttúran skartaði sínu fegursta og
mér finnst við öll hafa verið svo
ung. Bjartsýnin og aðstöðuleysið
var jafnt af hvom. Mikið var sung-
ið og mikil var gleðin í Haukadal þá.
Það var mjög lærdómsríkt að
starfa með Önnu og annan eins
náttúruunnanda man ég eigi. Hún
þekkti hveija þá jurt sem Flómna
prýða og var mikil ræktunarkona,
gladdist yfir öllu sem óx og dafn-
aði. Við minnumst allra góðra
stunda úr Haukadal. Þeim stað
unni hún mjög kyrrðin við kirkjuna
og náttúmfegurðin heillaði hana.
Gefðu að móðurmálið mitt
minn Jesú þess ég beiði
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði. H.P.
Oft var þessi fallegi sálmur
Hallgríms Péturssonar sunginn við
messu. Móðurmálið var hennar
hjartans mál. Hljómþýð var röddin
hennar og söngurinn fagur.
Anna fór ekki varhluta af veik-
indum og öðm mótlæti. Ung dvaldi
hún á Vífilsstöðum alvarlega veik
en komst til heilsu á ný. Lífskraftur
hennar var einstakur. Þar hlaut
hver að hrífast af sem til þekkti.
í Skálholti var mikið lífsstarf
unnið. Hús Önnu og Guðmundar
Óla stóð öllum opið sem á þurftu
að halda. Mikil var gestrisnin, öllum
fagnað og erindum sinnt, stómm
sem smáum. Hvergi man ég eftir
að hafa notið betur að sitja að
spjalli en í stofu með þeim hjónum.
Og gaman var er við fómm saman
Línuveg svokallaðan, norðan
Skjaldbreiðar og Hlöðufells, síðast-
liðið sumar. Gleði hennar var svo
ósvikin að fá að líta þau lönd sem
hún hafði ekki farið um fyrr. í
Mosaskarði bað hún um að stansað
yrði, hún sá jurt sem hún vissi ekki
að yxi þama, aðalblábeijalyng. Þó
ekki gengi hún heil til skógar og á
mörkum að vera ferðafær var eld-
móður og áhugi fyrir náttúmnni
óbilaður.
Við þökkum fyrir að hafa átt svo
góðar stundir með Önnu Magnús-
dóttur.
Örlögin em grimm þegar lífsljós
á borð við það sem glæddi vegferð
Önnu er slökkt. Geysikraftur
lífsorku hennar sjálfrar og góð
áform þeirra, sem leituðust við að
hjálpa og hamla, komu öll fyrir
ekki. Hún átti góða að í sínu langa
sjúkdómsstríði. Eiginmaður og
systur vom henni eitt og allt.
Elskunnar Guð þína ævi krýni.
Um eilífð þér ljós hans í fylling skíni.
Friðarins Guð þegar sól nálgast sæinn
svæfi þig blítt eftir liðinn daginn. (S.Þ.)
Við Greipur sendum vini okkar,
sr. Guðmundi Óla Ólafssyni, inni-
legar samúðarkveðjur. Guð blessi
minningu Önnu Magnúsdóttur.
Kristín Sigurðardóttir
I gær var til moldar borin Anna
Guðrún Magnúsdóttir prestsfrú í
Skálholti. í dag drúpa Skálhyltingar
höfði í sorg og söknuði. Við brott-
kall hennar er skarð fyrir skildi úr
röð Skálholtsunnenda. Það skarð
verður vandfyllt.
Um ætt og uppmna Önnu verðyir
ekki fjallað í þessari kveðju, það
gera þeir sem betur til þekkja. Úr
foreldrahúsum liggur leið hennar í
Kennaraskóla Islands. Þaðan tekur
hún próf 1951. Hún hefur þegar
kennslustörf við bamaskóla heima-
byggðar sinnar, Ólafsvíkur, en fær
1952 kennarastöðu við Langholts-
skólann í Reykjavík. Koma þegar j-
upphafi í ljós afburða kennsluhæfi-
leikar hennar. Hinn 30. ágúst 1952
stígur hún sitt stóra gæfuspor, þeg-
ar hún giftist séra Guðmundi Óla
Ólafssyni og flyzt með honum aust-
ur í Biskupstungur, fyrst að
Torfastöðum en síðan að Skálholti.
Þar hefst merkasti og þýðingar-
mesti þátturinn í lífsstarfi Önnu. w
Hún er vakin og sofin á verði um
velferð staðarins. Betri vörð getur
ekki. Heimili þeirra hjóna varð þeg-
ar þekkt að rausn, opið öllum, jafnt
sóknarbörnum sem gestum. <-■,
Við húsmóðurina áttu sannarlega
þessi norrænu orð um gildi konunn-
ar: „Hun skaber hjem.“ Anna var
vingjamleg í viðmóti og virðuleg í
fasi, skapföst og skapmikil og lét
ekki á sinn hlut ganga, hver sem
í hlut átti. Jafnframt húsmóður-
störfum gegndi hún einnig um
árabil kennslu við gmnnskóla Bisk-
upstungna í Reykholti. Nemendur
hennar dáðu hana alla tíð.
Anna var trúkona mikil. Hún
stóð sem bjarg við hlið eiginmanns
sín í öllu, enda hjúskapur þeirra
hinn ástríkasti.
I vöggugjöf hafði Anna hlotið
mikla og sérstaka hljómfagra söng-
rödd. Þá var hún og aflgjafí í hinui^
ágæta Skálholtskór. Bæði studdu
þau hjón hina núþekktu sumartón-
leika í Skálholti svo um munaði.
Skálhyltingar votta minningu
hennar þakklæti og virðingu og eig-
inmanni hennar, séra Guðmundi
Óla, dýpstu samúð.
Sveinbjörn Finnsson
Heimílístækí
sem bíða ekki!
isskápnr
íTim a ííTirn
iriiiiirii'iM
þurrkarj
tMdiivúl
Irystikisla
Nú er ekki eftir neinu að bíöa, þú verslar í Rafbúð
Sambandsins fyrír 100 þúsund og getur þá keypt
öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir
einn mánuð. Enginn (slenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.tr-.V?