Morgunblaðið - 03.05.1987, Page 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
4
t
Eiginkona mín,
SVANLAUG LÖVE,
form. Kattavinafélags íslands,
Reynimel 86,
lést að morgni 30. apríl i Landakotsspítala.
Fyrir mína hönd og ættihgja,
Gunnar Pétursson.
t
Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR,
Hverfisgötu 73,
sem lést þann 23. april sl., veröur gerö frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 4. maí kl. 15.00.
Kristinn Finnbogason, Guöbjörg Jóhannsdóttir,
Magnea Finnbogadóttir, Þorlákur Runólfsson,
Jóna Finnbogadóttir, Björn Björnsson,
Guðrún Finnbogadóttir, Ögmundur Stephensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
SIGURÐAR ÁRMANNS MAGNÚSSONAR
stórkaupmanns,
Barðaströnd 10,
Seltjarnarnesi,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. maí kl. 13.30.
Guðrún Lilja Halldórsdóttir,
Örn Ármann Sigurðsson, Kristfn Gunnarsdóttir,
Halldór Ármann Sigurðsson, Hólmfrfður Valdlmarsdóttir,
Anna Sigurbjörg Sigurðardóttlr,
Magnús Ármann Sigurðsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og
útför eiginkonu minnar, dóttur, móöur okkar, tengdamóöur og
ömmu,
ÖNNU BERNBURG,
Hlfðargötu 21,
Sandgerði,
sem lést 7. apríl sl. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks
Landspítalans fyrir umhyggju og hjálp.
Guð blessi ykkur öll.
Andrés Pálsson,
Olga Elfasdóttir,
Pétur Jóhannsson,
Jón Páll Andrésson,
Olgeir Andrésson,
Ágústfna Andrésdóttir,
Elías Birgir Andrésson,
Harpa Hansen,
Sigrún Slgurðardóttir,
Steinþór Gunnarsson,
Kristfn Erla Einarsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúö og hlýhug vegna andláts
og útfarar bróöur míns,
GÍSLA MAGNÚSSONAR,
Saurum,
Miðfirði.
Guö blessi ykkur öll.
Þórdfs Magnúsdóttir.
t
Einlægar þakkir fyrir samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför
GUÐRÚNAR EYÞÓRSDÓTTUR,
Sauðárkrókl.
Sigrfður Stefánsdóttir,
Eyþór Stefánsson,
Júlfus H. Kristjánsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
' útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóöur, tengdadóttur
og ömmu,
HALLDÓRU GUÐLAUGAR KJARTANSDÓTTUR,
Háagerði 77.
Guðmundur Már Brynjólfsson,
Sesselja Þ. Jónsdóttir, Hallvarður Ferdinantsson,
Una Marfa Guðmundsdóttir, Hatldór Jónasson,
Sólrún Erla Guðmundsdóttir, Reynir Kristófersson,
tengdamóðir og barnabörn.
Ólafsvík:
Mikil óánægja er með
ástand vega á Snæfellsnesi
Ólafsvík.
FRÓÐÁRHEIÐI hefur nú í tvær
vikur verið ófær öðrum bílum
en jeppum vegna aurbleytu. Eng-
inn hreyfing virðist vera á að
fylla í hvörfin. Mikil óánægja er
hér vegna þessa og ýmsir telja
að það sé ásetningur vegagerðar-
innar að láta viðgerð bíða til
þess að beina athygli og umferð
að veginum um Kerlingarskarð.
Sé vísvitandi unnið gegn Fróðár-
heiði sem vor- og vetrarleið og
mætti nefna þar til mörg dæmi
frá liðnum vetri sem þó hefði
verið snjóléttur. Vegagerðar-
menn segjast aftur á móti
einungis vera að meta aðstæður
miðað við takmarkað fjármagn.
Vörubifreiðastjórar segja að ein- .
ungis sé um örfá hvörf að ræða á
Fróðárheiði og að í mesta lagi fari
dagsstund í lagfæringar. Hafa þeir
haft á orði að bjóðast til að vinna
við það í sjálfboðavinnu til þess að
þeir og aðrir þurfí ekki að lengja
leið sína um 40 kílómetra í einni
Reykjavíkurferð. Það er ljóst að
mikil óþægindi og kostnaður er
samfara því að ekki Se hægt að
aka yfír Fróðárheiði. Sérleyfis-
bílamir verða að breyta leið sinni
og draga þar með úr þjónustu við
Staðarsveit og Breiðuvík. Einnig
má benda á að Ólafsvíkurlæknis-
hérað nær yfir þessi byggðarlög.
Dagana áður en Fróðárheiði var
lokað var þar mikil umferð vörubif-
reiða sem nótt og dag fluttu físk
frá höfnum við Breiðaíjörð til
vinnslu syðra. Því benda menn á
að um árið þegar Þorlákshafnarbú-
ar lokuðu veginum hjá sér og þrýstu
á um úrbætur voru ein helstu rök
þeirra að veginn yrði að gera varan-
legan vegna mikilla fiskflutninga
sem kæmu öðrum byggðarlögum
til góða. Þorlákshafnarbúum tókst
að sannfæra fjárveitingavaldið. Nú
fara Snæfellingar ekki fram á að
slitlag verði lagt á Fróðárheiði að
svo stöddu, en ætlast til þess að
hann verði styrktur svo að ekki
sökkvi þar bílar hvert vor.
Fréttamaður náði tali af Bimi
Jónssyni, verkstjóra hjá Vegagerð
ríkisins, og spurði hann hvenær
vænta mætti lagfæringa. Björn
sagði að vegna takmarkaðs fjár-
magns yrði vegagerðin að meta það
blákalt með hvaða ódýrasta hætti
umferð yrði tryggð um Nesið meðan
aurbleytu gætir í vegum. Kerlingar-
skarð hefði orðið fyrir valinu til
viðgerða vegna þess að ekki væri
hægt að beina umferð þungra bíla
um Skógarströnd vegna þess að þar
mætti ekkert út af bera með veg-
inn. Kerlingarskarð yrði því að vera
samnefnarinn því ótækt væri að sóa
fjármagni á margar leiðir.
Aðspurður um Fróðárheiði sagði
Bjöm að nú þegar væri mikill aur
á efsta hluta heiðarinnar. Við skoð-
un hefði komið í ljós að segja mætti
að frá Rjúpnaborgum og suður í
Heiðarkast væri vegurinn á floti og
ekkert vit að athafna sig þar fyrr
en þomaði. Sama mætti segja um
veginn í Staðarsveit frá Brautar-
holti suður til Hofsstaða, yrði því
að hlífa honum. Bjöm sagði að fé
væri fyrir hendi til að bera lag á
veginn á Fróðárheiði að sunnan-
verðu. Yrði það notað til þess í
sumar, en alls ekki núna þegar að
tíð væri svo vætusöm eins og hefur
verið að undanfömu og langir kafl-
ar ættu ekki eftir annað en að
springa í sundur.
Bjöm sagði það efalaust að mikl-
ir fiskflutningar hefðu átt sinn þátt
í að auka á vandann. Það ásamt
rigningunum hefði gert sitt til að
ástandið væri jafnslæmt og raun
ber vitni.
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Eg er bitur
Ég hef orði fyrir svo miklum vonbrigðum um ævina að hjarta
mitt er fullt af beiskju. Ég veit að þetta er rangt, en 'eg fyl-
list gremju þegar ég hugsa um sumt sem á dagana hefur
drifið. Hvernig get ég losnað við þessa beiskju?
Gott er að þú áttar þig á að biturleikinn er af hinu illa og
að hann veldur eyðileggingu. Biblían varar okkur við: „Hafið
gát á... að engin beiskjurót renni upp, sem truflun valdi
og margir kunni af henni að saurgast" (Hebr. 12,15). Biblían
segir líka: „Ef þér hafið beiskan ofsa og eigingimi í hjarta
yðar, þá stærið yður ekki og ljúgið ekki gegn sannleikan-
um ... er hún jarðnesk, náttúrleg, djöfulleg. Því að hvar sem
ofsi og eigingimi er, þar er óstjóm og hvers kyns ill hátt-
semi“ (Jak. 3,14—16).
Er einhver leið að eyða þessari beiskju? Byrjaðu á því að
viðurkenna þessa synd og játa hana fyrir Guði. Jesús Kristur
dó á krossinum til þess að taka syndir þínar í burtu. Treystu
því að Guð fjarlægi þessa synd úr lífí þínu, eins og reyndar
allar syndir þínar, ef þú hefur ekki áður sett traust á Krist
sem drottin þinn og frelsara.
Bið síðan Guð að hjálpa þér að sætta þig við þær aðstæð-
ur sem hafa valdið þessari beiskju í huga þínum. Guð elskar
þig. Hann veit, að þessi reynsla hefur verið þér erfíð. En
hann hefur leyft að þetta kæmi fyrir þig. Hann getur notað
þessa reynslu til að mynda þig og móta til þeirrar gerðar
sem hann stefnir að með þig.
Minnstu Páls postula. Hann lenti í fangelsi vegna trúar
sinnar og hefði getað fyllst beiskju. En hann sagði: „Ég hef
lært að vera ánægður með það sem ég á við að búa. Bæði
kann ég að búa við lítinn kost, ég kann einnig að hafa alls-
nægtir. Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan
gjörir“ (Fil. 4,11,12,14).
Að endingu skaltu biðja Guð að gefa þér nýjan kærleika
gagnvart þeim sem í kringum þig eru, einkum þeim sem
kunna að gera þér lífíð leitt. Kærleikur og beiskja geta ekki
farið saman því að: „Kærleikurinn er langlyndur, hann er
góðviljaður; kærleikurinn öfundar ekki. .. hann reiðist ekki,
tilreiknar ekki hið illa“ (1. Kor. 13,4—5).
t
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóöur, ömmu og langömmu okkar,
SIGRÍÐAR HALLDÓRU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Hólmgarði 27.
Krlstjén R. Þorvarðarson,
Þórhildur Kristjánsdóttir, Eggert Bogason,
Sigri'ður Kristjánsdóttir, Viðar Vilhjálmsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Viö biðjun Drottin að blessa alla þá sem sýndu okkur samúö og
vinarhug, og þá mörgu sem veittu aðstoö sína viö andlát og út-
för eiginmanns míns og fööur okkar,
WILLY HANSSEN
trúboða,
Álfatúnl 31,
Kópavogi.
Guölaug Hanssen,
Davíð Stefán Hanssen,
fsrael Daníel Hanssen.
— Helgi
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð f
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu lfnubili.