Morgunblaðið - 13.05.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
Heimsmeistaramót unglinga í skák:
Hannes Hlífar efstur
eftir þrjár umferðir
HANNES Hlífar Stefánsson hef-
ur fengið 3 vinninga í fyrstu
þremur umferðunum á heims-
meistaramóti unglinga í skák
sem nú fer fram í Innsbruck í
Austurríki og er efstur á mótinu
ásamt tveimur öðrum. Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir sem teflir í
stúlknaflokki er með 1,5 vinn-
inga eftir þijár umferðir. íjórða
umferðin verður tefld í dag.
í fyrstu umferð tefldi Hannes við
Kocur frá Belgíu og vann með
svörtu eftir miklar sviptingar. í
annarri umferð vann hann Vazquez
frá Mexíkó og í þriðju umferð vann
hann Hill frá Astralíu í ágætri skák
að sögn Guðmundar Sigurjónssonar
sem er fararstjóri ungmennanna.
Guðfríður Lilja tapaði í fyrstu
umferð fyrir heimsmeistara stúlkna
í skák, Alabjova frá Búlgaríu, en
gerði jafntefli í annarri umferð á
móti Limbach frá Hollandi. í 3.
umferð vann hún Moffata frá Skot-
landi.
Hannes Hlífar, Adams frá Eng-
landi og Biro frá Ungveijalandi eru
efstir í drengjaflokki en þar eru 45
keppendur. Alabjova og Majul frá
Kólombíu eru efstar í stúlknaflokki
með 3 vinninga en 28 stúlkur taka
þátt í mótinu.
Morgunblaðifl/Árni Sœberg
TF-Sif í pörtum inni í flugskýli Landhelgisgæslunnar. Þyrlan kemst
ekki í gagnið aftur fyrr en eftir helgi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Grindverkið umdeiida við Hvassaleitisskóla, sem ibúar í nágrenninu vilja að verði rifið niður.
Hvassaleitisskóli:
Maður flettir sig klæð-
um í skjóli grindverks
Foreldrar vilja rífa grindverkið niður
Landhelgisgæslan:
TF-Sif frá þessa
viku vegna skoðunar
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-Sif, er nú í reglubundinni
skoðun og verður ekki tekin í
gagnið aftur fyrr en í næstu viku.
Þyrlan, sem kom hingað til lands
i nóvember 1985, er nú í 400
klukkutíma skoðun, en alls hefur
þyrlunni verið flogið í 700 tíma
síðan hún var tekin í notkun. Flug-
virkjar Landhelgisgæslunnar
annast þessa skoðun en þeir hafa
aliir fengið réttindi til slíks hjá
frönsku Aerospatialeverksmiðjun-
um sem smíðuðu TF-Sif.
Notkun þyrlunnar hefur sífellt
verið að aukast og fyrstu fjóra
mánuði þessa árs sinnti hún 32
útköllum, þar af 18 sjúkraflutning-
um og 14 beiðnum um leit og
björgun.
„ÞARNA er á ferðinni maður
sem ekki hefur alveg eins góðar
hugsanir og aðrir menn,“ sagði
Herdís Hupfeldt, sem á 9 ára
dóttur er varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að maður
fletti sig klæðum fyrir framan
hana.
Telpan er ein þriggja telpna á
aldrinum 8-9 ára sem orðið hafa
fyrir þessari áreitni á sama árstíma
á svipuðum slóðum undanfarin tvö
ár. Svo virðist sem maðurinn haldi
sig við Hvassaleitisskólann, en þar
er há girðing á lóðinni, svo erfitt
er að fylgjast með hvað þar fer
fram. Telpumar þijár voru einar á
ferð um miðjan dag þegar maðurinn
kallaði til þeirra. Þegar þær litu við
Fjármálaráðuneytið
segir verkfall flugum-
ferðarsljóra ólöglegt
Flugnmf erðarstj órar segjast vera í fullum rétti
Fjármálaráðuneytið telur að
boðað verkfall flugumferðar-
stjóra sé ólöglegt þar sem þeir
hafi ekki verkfallsrétt. Flugum-
ferðarstjórar telja hins vegar að
þeir séu í fullum rétti til að boða
verkfallið. Hugsanlegt er að
þessari deilu verði skotið til fél-
agsdóms.
Indriði H. Þorláksson formaður
samninganefndar ríkisins sagði í
samtali við Morgunblaðið að flug-
umferðarstjórar hefðu ekki haft
verkfallsrétt fremur en aðrir ríkis-
starfsmenn utan BSRB áður en lög
um verkfallsrétt opinberra starfs-
manna tóku gildi 1. janúar síðastlið-
inn. í þeim lögum hefði síðan verið
ákvæði þess efnis að þeir sem starfa
meðal annars við öryggisgæslu
hefðu ekki heimild til að fara í verk-
fall. Jafnframt var ákvæði um að
gerð sé skrá yfir þær starfsgreinar
sem ekki hafa verkfallsrétt. Slík
skrá, sem unnin var í samráði við
fagráðuneytin, fylgdi með laga-
frumvarpinu þegar það var lagt
fram og á henni voru flugumferðar-
stjórar. Því, sagði Indriði, er ljóst
að þeir hvorki höfðu verkfallsrétt
né hafa hann eftir þessa breytingu
á lögunum.
Ámi Þ. Þorgrímsson formaður
Félags flugumferðarstjóra sagði að
við gerð þessarar skrár hefði verið
miðað við að haft yrði samráð við
viðkomandi aðildarfélög en það
hefði ekki verið gert í þessu tilviki
því flugumferðarstjórar hefðu frétt
utan að sér að þeir væru á þessum
lista. Því hefðu þeir mótmælt, bæði
munnlega og skriflega, innan þeirra
tímamarka sem fmmvarpið sagði
til um og sagst vera tilbúnir til við-
ræðna en ekkert svar fengið. Þeir
hefðu því, í samráði við lögfræðing
félagsins, ákveðið að fara fram á
verkfallsheimild sem um 80% fé-
lagsmanna hefði samþykkt. Við
teljum okkur því vera í flillum rétti,
sagði Ámi.
Indriði var spurður hvort til
greina kæmi að vísa þessum ágrein-
ingi til félagsdóms og svaraði hann
að það væri lang eðlilegasti vett-
vangurinn til að skera úr svona
deilum. Ákvörðun um slíkt hefði
þó ekki verið tekin enn enda treystu
menn því að flugumferðarstjórar
færu að lögum.
Aðspurður um stöðuna í samn-
ingaviðræðum við flugmálastjóra
sagði Indriði að þeim hefðu verið
boðnar launabreytingar sem fælu í
sér ívið meiri launahækkanir en
aðrir opinberir starfsmenn hefðu
fengið undanfarið. Kröfur flugum-
ferðarstjóra væru síðan um langt-
um meiri launabreytingar en aðrir
hafa fengið. Indriði sagði að miðað
við heildarlaun gætu flugumferðar-
stjórar ekki talist til iáglaunahópa
í þjóðfélaginu og því hefði samn-
inganefndin ekki talið veijandi að
ganga lengra.
Ámi Þ. Þorgrímsson sagði um
þetta að í ljósi þess að dómsmála-
yfírvöld hefðu nýverið birt flugum-
ferðarstjómm ákæm vegna
mistaka í starfí væra þeir nú að
fara fram á vissa tryggingu vegna
starfsréttinda sinna. Síðan væri það
ekkert launungarmál að þeir vildu
miða sig í launum við flugmenn
enda hefðu laun flugumferðarstjóra
og aðstoðarflugmanna í innanlands-
flugi verið sambærileg um 1970.
Nú munaði hins vegar töluvert
miklu á þessum stéttum. Ámi
nefndi sem dæmi um laun flugum-
ferðarstjóra að eftir 35 ára starfs-
aldur væri taxtinn 50-55 þúsund
krónur á mánuði án vaktaálags.
kom maðurinn fram undan girðing-
unni, fletti sig klæðum og sýndi á
sér kynfærin. Lýsing telpnanna á
manninum er eins í öll skiptin.
Hann er dökkhærður, jafnvel með
litað hár á aldrinum 20 til 30 ára.
„Dóttir mín lenti i þessu um pásk-
ana,“ sagði Herdís. „Ég hef oft
beðið hana um að fara frekar
göngustíginn sem liggur að skólan-
um í stað þess að vera í umferðinni
og hún gerði það. Eftir skamma
stund kom hún hágrátandi og ég
gat ekki skilið hvað hún sagði í
fyrstu en svo sagði hún mér hvað
hafði komið fyrir. Hún gat ekki
komist fram hjá manninum og
hlaupið beint heim því hann var í
veginum, svo hún hljóp heim til
bekkjarfélaga síns hágrátandi. Hún
þorði ekki að segja fólki sem hún
mætti á leiðinni frá hváð komið
hafði fyrir."
Herdís sagðist strax hafa hringt
til lögreglunnar og tilkynnt um at-
burðinn. Hún var beðin um að bíða
dijúga stund í símanum eftir að
hafa sagt erindið en fékk loks þau
svör að lögreglubíll yrði sendur á
staðinn við fyrsta tækifæri þegar
minna væri að gera hjá lögregl-
unni. „Ég sá aldrei neinn bíl koma,
en um kvöldið hafði ég samband
við kunningja minn í lögreglunni
sem tilkynnti rannsóknarlögregl-
unni um atburðinn," sagði Herdís.
„Nokkmm mínútum síðar er rann-
sóknarlögreglumaðurinn kominn
hingað og farinn að taka skýrslu
af atburðinum. Lögreglan í
Reykjavík gerði aldrei neitt."
Telpan svaf ekki á nætumar eft-
ir atburðinn og vildi ekkert tala um
hvað hafði gerst. „Það kom í hana
einhver ógleði og henni fannst hún
þurfa að kasta upp,“ sagði Herdís.
„Og svo var hún með svo mikið
samviskubit því hún skammaðist
sfn fyrir að hafa orðið fyrir þessu.
Henni fannst eins og hún væri eitt-
hvað afbrigðileg. Það var ekki fyrr
en hún frétti að aðrar telpur sem
hún þekkti hefðu orðið fyrir sömu
reynslu, að hún áttaði sig á að hún
er ekki ein á báti og við það jókst
kjarkurinn.
Mér fínnst að við foreldrar sem
eigum böm á þessum slóðum verð-
um að láta hvort annað vita um
hvað er á ferðinni. Það er engin
ástæða til að ég þegi með niðurbrot-
ið bam og önnur móðir sé þegjandi
í sömu aðstöðu. Við verðum að sam-
einast um að koma í veg fyrir að
atvik sem þetta endurtaki sig. Fyrst
og fremst verður að rífa grindverk-
ið niður og reyna að opna út á
göngustíginn svo að hægt sé að
fylgjast betur með þeim sem eiga
leið þama um.“
Engin lausn að
rífa girðinguna
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„í mínum huga er það ekki
girðingin sem skiptir máli,“ sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri,
vegna ummæla Herdísar Hup-
feldt um að fjarlægja bæri
girðinguna á skólalóðinni við
Hvassaleitisskóla. Við girðing-
una og á göngustígnum við
skólann hefur maður á aldrinum
20-30 ára flett sig klæðum á
undanf örnum árum þegar telpur
á aldrinum 8-9 ára hafa átt þar
leið um.
„Svona mál em alltaf viðkvæm
og alvarleg þegar þau koma upp,“
sagði Davíð. „í mínum huga er
maðurinn vandamálið en ekki girð-
ingin. Hann getur hagað sér svona
annarstaðar því aldrei er það svo
að ekki sé einhverstaðar girðing eða
skot. Því tel ég að lögreglan verði
að bregðast hart við og reyna að
ná manninum. Það er voðalegt að
vita til þess að svona kumpánar
gangi lausir sem gera svona voða-
verk. Hér er augljóslega sami
maðurinn á ferðinni og hann lætur
ekki af þessari iðju þótt girðingin
verði tekin niður, heldur kemur sér
fyrir á öðmm göngustíg eða í al-
menningsgarði. Hans óeðli hverfur
ekki með girðingunni. Eins og móð-
irin lýsir atburðinum em vinnu-
brögð lögreglunnar forkastanleg en
nú hef ég ekki heyrt hlið lögregl-
unnar á þessu máli.“