Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
3
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Bifreiðin á hvolfi utan vegar. Lögreglumenn og farþegar kanna
aðstæður.
• •
Okumaður og þrír
farþegar sluppu
naumlega
Selfosai. ^
ÖKUMAÐUR og þrír farþegar
sluppu ómeiddir úr Susuki-
bifreið sem fór útaf Suður-
landsvegi og á hvolf skammt
vestan Markarfljótsbrúar.
Fólkið var á leið frá Hornafirði
til Reykjavíkur. Ökumaðurinn
missti stjóm á bílnum þegar hann
fór skyndilega að rása á veginum
og skipti engum togum að hann fór
þvert yfir veginn og útaf. Framend-
inn stakkst niður og bíllinn enda-
stakkst á hvolf. Á meðan
farþegamir bröltu út úr bílnum lak
úr buveltu
bensín yfir þá og var um tíma
hætta á að kviknaði í bílnum.
Ökumaðurinn, tvítug stúlka,
sagðist ekkert hafa vitað fyrr en
bíllinn hefði henst til að aftan og
áður en varði var hann á hvolfí.
Þak bílsins lagðist niður að hluta
og mesta mildi var að ekki fór verr.
Ökumaður og farþegar vildu koma
á framfæri þökkum til ökumanna
og lögreglu sem veittu þeim aðstoð
eftir óhappið.
Sig. Jóns.
Á þessari mynd sést greinilegur
munur á þeim svæðum sem
hafa verið hreinsuð, á enni og
skyrtu.
Hér er hreinsun og lagfæringu
lokið.
Alþingi:
Málverk af Jóni Sigurðs-
syni hreinsað eftir 120 ár
FRANK Ponzi listfræðingur
hefur að beiðni Alþingis hreins-
að og lagfært málverk af Jóni
Sigurðssyni forseta.
Myndina málaði danski listmál-
arinn August Schiott árið 1866
að beiðni samþingsmanna Jóns
og telur Frank Ponzi að myndin
hafí verið máluð í Danmörku.
Þingmennirnir færðu Alþingi mál-
verkið að gjöf og hefur það hangið
á sama stað í þingsalnum frá
upphafí. „Ég held að myndin hafí
ekki verið hreinsuð í 120 ár og
enginn hefur tekið eftir hvað hún.
var orðin óhrein," sagði Frank.
Myndin er máluð í olíu á striga
og er 71 cm x 56,5 cm að stærð.
FACIT9401
ERICSSON >;
Informatiors Systems
Já, það komast fáir í fótspor Facit.
Enn er Facit feti framar, nú með nýja ritvél. Sérfræðingar Facit
hafa hannað þessa afburða ritvél sem byggð er á langri hefð og
nýjustu tækni.
Líttu við því sjón er sögu ríkari. Við fullyrðum að verð og gæði
koma svo sannarlega á óvart.
Okkar þekking í þína þágu.
GISLI J. JOHNSEN SF.
n
Nýbýlavegi 16. Sími 641222