Morgunblaðið - 13.05.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
Már Péturs-
son skipaður
sýslumaður
MÁR Pétursson, héraðsdómari í
Hafnarfirði, var í gær skipaður
sýslumaður Kjósarsýslu og bæj-
arfógeti í Hafnarfirði. Forseti
íslands skipar í embættið að
fenginni tillögu dómsmálaráð-
herra.
Már Pétursson lauk prófi frá
lagadeild Háskóla íslands árið
1967. Hann stundaði framhalds-
nám í einkamála-, skipta- og
félagarétti við Kaupmannahafnar-
háskóla um níu mánaða skeið. Már
varð fulltrúi við bæjarfógeta- og
sýslumannsembættið í Hafnarfirði
og var skipaður héraðsdómari við
sama embætti árið 1972 og hefur
gengt því embætti síðan.
Auk Más sóttu tíu aðrir um emb-
ættið. Þeir voru: Guðmundur L.
Jóhannesson, héraðsdómari í Hafn-
arfirði, Hjalti Zóphóníasson, deild-
arstjóri í dómsmálaráðuneytinu,
Hjördís Hákonardóttir, borgardóm-
ari, Jón Thors, deildarstjóri
dómsmálaráðuneyti, Sigurður
IÍEÐUR
Félag íslenskra leikara:
Kj arasamningnr gerður við
Svía vegna Trístans og ísoldar
Már Pétursson
Helgason, sýslumaður Norður-
Múlasýslu, Stefán Hirst, skrifstofu-
stjóri lögregluembættisins í
Reykjavík, Stefán Skarphéðinsson,
sýslumaður Barðastrandasýslu og
Þorleifur Pálsson, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneyti. Tveir umsækj-
endur til viðbótar óskuðu nafn-
leyndar.
FÉLAG íslenskra leikara hefur
gert samning við sænska kvik-
myndafyrirtækið Cinema Art
Productions, sem stendur að
framleiðslu kvikmyndar Hrafns
Gunnlaugssonar „Tristan og
ísold“ í samvinnu við íslendinga.
Samningurinn er hliðstæður
þeim samningi sem sænska leikara-
félagið og kvikmyndaframleiðendur
þar í landi hafa gert með sér.
Sænski samningurinn gerir ráð fyr-
ir að leikarar fái greitt ákveðið
lágmark, 7.200 krónur fyrir daginn
miðað við um það bil 5.000 króna
lágmark hérlendis. Þetta er í fyrsta
skipti sem íslenska leikarafélagið
gerir slíkan samning við erlent kvik-
myndafyrirtæki. íslenskir leikarar
verða í meirihluta í kvikmyndinni,
hátt í 20 manns.
Áætlaður kostnaður við myndina
er 63 milljónir íslenskra króna. Þar
/ DAG kl. 12.00:
y \ p
r\ r
f r
p /
p r p r
r / /
r
\\ Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl: 16.15 i gærj
VEÐURHORFUR I DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Yfir norðausturströnd Grænlands er 1023
millibara hæð sem þokast austur. Á suðvestanverðu Grænlands-
hafi er 998 millibara djúp lægð sem þokast norðaustur.
SPÁ: Suðaustlæg og síðan austlæg átt á landinu, víðast kaldi eða
stinningskaldi (5-6 vindstig) en hægari er líður á daginn. Skýjað
verður um allt land, rigning um sunnan- og austanvert landið eink-
um framan af degi, en skúrir á stöku stað norðanlands og vestan.
Hiti á bilinu 4 til 7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Vestlæg eða suðvestlæg átt og skúrir um vestan-
vert landið. Suölæg átt og rigning á suðaustur- og austurlandi
framan af degi en lóttir til síðdegis. Hiti á bilinu 3 til 6 stig.
FÖSTUDAGUR: Suðlæg átt og hlýnandi veður. Rigning um sunn-
an- og vestanvert landið og þykknar upp norðaustanlands.
TÁKN:
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
■JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. y Él
Léttskyjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / zzz Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
W £
V f
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri 5 skýjað
Reykjavík S hálfskýjað
Bergen vantar
Helsinki 6 rlgning
Jan Mayen 0 skýjað
Kaupmannah. S skúr
Narssarssuaq 5 rignlng
Nuuk 0 snjókoma
Osló vantar
Stokkhólmur 7 alskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve vantar
Amsterdam 9 skúr
Aþena 20 hálfskýjað
Barcelona 19 mistur
Berlín 10 rlgning
Chicago 9 helðskírt
Feneyjar 16 skýjað
Frankfurt 11 rignlng
Hamborg 10 rignlng
Las Palmas 22 hálfskýjað
London 13 úrkomaigr.
LosAngeles 18 þokumóða
Lúxemborg vantar
Madríd 23 léttskýjað
Malaga 26 lóttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Mlaml 24 skúr
Montreal 12 hálfskýjað
NewYork 17 skýjað
Parfs vantar
Róm 20 láttskýjað
Vín 16 skýjað
Washington vantar
Winnipeg 12 skúr
af hefur Kvikmyndasjóður styrkt
Hrafn með 15 milljónum. Útitökur
fara fram á íslandi í sumar, en inni-
tökur munu fara fram í upptökusal
í Svíþjóð.
„Við lögðum strax áherslu á að
sænski samningurinn yrði látinn
gilda fyrir íslensku leikarana þar
sem Svíar og íslendingar leika í
myndinni hlið við hlið. Norræna
leikararáðið hefur ályktað um það
að í slíkum tilvikum skuli betri
samningurinn gilda," sagði Amór
Benónýsson, formaður Félags
íslenskra leikara, í samtali við
Morgunblaðið. Amór sagði að
íslenskir leikarar hefðu ekki haft
neinn samning við Samband
íslenskra kvikmyndaframleiðenda í
rúmt ár þar sem ástandið í kvik-
myndaheimi íslendinga væri þannig
að ekki hefði þótt ástæða til að
gera sérstakan heildarkjarasamn-
ing. Hinsvegar hefði verið samið
sérstaklega við hvem kvikmynda-
framleiðanda síðasta árið fyrir hönd
leikara.
„Við reiknum með að þetta sam-
komulag geti haft fordæmisgildi.
Það em ýmsar þreifingar í gangi
og íslenskir kvikmyndaframleiðend-
ur era að leita fyrir sér með
fjármagn erlendis. Ég tel að ef
kvikmyndaframleiðsla hér á að eiga
einhveija framtíð fyrir sér, verði
erlent fjármagn að koma til í aukn-
um mæli,“ sagði Amór.
Hasssending á Egils-
stöðum gerð upptæk
Egilsstöðum.
LÖGREGLAN á Egilsstöðum
gerði á sunnudag upptæka hass-
sendingu sem aðilar í Reykjavík
voru að senda mönnum hér aust-
anlands með áætlunarvél Flug-
leiða.
Að sögn Úlfars Jónssonar lög-
regluvarðstjóra á Egilsstöðum var
hér um fremur lítið magn að ræða
en málið er í frekari rannsókn hjá
sýslumannsembættinu á Eskifirði.
Þetta er annað eiturlyfjamálið
sem lögreglan hér á Egilsstöðum
kemur upp um á sl. þremur vikum.
Hér á Egilsstöðum hafa verið mikl-
ar umræður um eiturlyfjavandamál
nú í vor. Fyrir skömmu gengust
foreldrar á svæðinu fyrir undir-
skriftasöfnun á Egilsstöðum og i
Fellabæ þar sem skorað er á yfír-
völd að beita öllum tiltækum ráðum
til að stemma stigu við neyslu og
dreifingu þessara efna á svæðinu.
— Bjöm
Friðgeir
Bjömsson
yfirborg-
ardómari
FRIÐGEIR Björnsson, borgar-
dómari, var í gær skipaður í
embætti yfirborgardómara í
Reykjavík og tekur við embætt-
inu af Birni Ingvarssyni, sem
lætur af því fyrir aldurs sakir.
Friðgeir lauk námi frá lagadeild
Háskóla Íslands árið 1970. Hann
varð fulltrúi hjá yfirborgardómar-
anum í Reykjavík árið 1970 og síðar
borgardómari. Auk hans sóttu þrír
aðrir um embættið, borgardómar-
Friðgeir Bjömsson
arnir Garðar Gíslason og Hrafn
Bragason og einn umsækjandi sem
óskaði nafnleyndar.
Alþýðuflokkurinn;
Guðmundur Einars-
son framkvæmda-
stjóri flokksins
FRAMK V ÆMD ASTJ ÓRN Al-
þýðuflokksins mun á fundi sínum
í dag taka afstöðu til tillögu þess
efnis að Guðmundur Einarsson,
fyrrverandi þingmaður Alþýðu-
flokksins verði ráðinn fram-
kvæmdastjóri flokksins.
Jón Baldvin Hannibalsson, form-
aður Alþýðuflokksins sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks-
ins sem haldinn hefði verið um
síðustu helgi hefði verið gengið frá
því að Árni Gunnarsson, nýkjörinn
þingmaður Alþýðuflokks hætti
störfum sem stjómmálaritstjóri Al-
þýðublaðsins og Ingólfur Margeirs-
son ritstjóri Alþýðublaðsins yrði
framvegis einnig stjómmálaritstjóri
blaðsins.
Jón Baldvin sagði jafnframt að
ákveðið hefði verið að gera tillögu
um það til framkvæmdastjómar
Alþýðuflokksins að Guðmundur
Einarsson, fyrrverandi þingmaður
yrði ráðinn framkvæmdastjóri Al-
þýðuflokksins. Framkvæmdastjóm
myndi afgreiða málið á fundi sínum
í dag og Guðmundur hefja störf sem
slíkur á morgun.