Morgunblaðið - 13.05.1987, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
5
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Skógafoss glóir
Sagt er, að Þrasi landnámsmaður hafi fólgið gull sitt í hylnum und-
ir Skógafossi. Á einum fyrsta degi vorsins var þessi mynd tekin og
er engu líkara en gull „Þrasa glói“ og sé að kalla til sín þá sem
vilja takast á við ævintýrið og höndla gullið.
Sovétmenn kaupa
ullarvörur fyrir
190 milljónir kr.
Búist við samningi um sölu á milljón treflum
SOVÉTMENN kaupa á þessu ári
meira af peysum en minna af
treflum en gert hefur verið ráð
fyrir. Álafoss hefur fengið pönt-
un á 80 þúsund peysum og
iðnaðardeild SÍS annað eins.
Gert er ráð fyrir að á næstunni
verði gengið frá sölu á milljón
treflum þangað og að Álafoss
framleiði 700—800 þeirra, en iðn-
aðardeildin afganginn.
Sovétmenn kaupa því ullarvörur
fyrir um 5 milljónir dollara, eða lið-
lega 190 milljónir kr. Áð sögn
Guðjóns Hjartarsonar, verksmiðju-
stjóra hjá Álafossi, keyptu þeir fyrir
1,3 milljónir dollara í fyrra, en árið
1985 voru ullarviðskiptin svipuð og
í ár. Aukningin frá því í fyrra bygg-
ist á viðbótarfarmi af olíu sem
íslendingar kaupa af Sovétmönn-
um. Raznoe export annast viðskipt-
in samkvæmt samningum
þjóðanna.
Guðjón sagði að Álafoss hefði
tekist að selja 10 tonn af hand-
pijónabandi að verðmæti um 5
milljónir kr., til annars fyrirtækis,
Exportljón. Hann sagði að hand-
prjónaband hefði ekki áður verið
flutt út til Sovétríkjanna, en sagði
að þar gæti smám saman orðið til
markaður fyrir íslenska hand-
pijónabandið. Þá hefur Álafoss selt
7 þúsund peysur til Vneshposyltorg.
Þetta eru svokallaðar verðlistavörur
fyrir dollarabúðir í Sovétríkjunum.
Þetta fyrirtæki hefur einnig pantað
24 þúsund trefla og húfur úr ang-
óraull.
Sérstök gæðavín á
boðstólum hjá ÁTVR
ÁFENGIS- og tóbaksverslun
ríkisins er nú að hefja innflutn-
ing á sérstökum gæðavínum sem
munu kosta allt að 3.500 krónur
flaskan. Um er að ræða rauðvín,
hvítvin og kampavin og hefur
verið útbúin sérstök geymsla fyr-
ir þessi vín i húsakynnum ÁTVR.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, sagði að þrátt fyrir að á
boðstólum væru fjölmargar tegund-
ir af ágætum vínum, hefðu við-
skiptavinir kvartað yfir því að vín
í sérstaklega háum gæðaflokki
vantaði hjá ÁTVR. Hann sagði að
það væri ákveðið metnaðarmál
bæði fyrir veitingahús og fyrirtækið
sjálft að hafa slík vín á boðstólum.
Vinin sem hér um ræðir eru frá
ýmsum Evrópulöndum og eru allt
árgangsvín. ÁTVR mun aðeins
flytja inn um 100 flöskur af hverri
tegund. Innflutningur á þessum
gæðavínum fer fram í gegnum
áfengissölu sænska ríkisins og
sagði Höskuldur ástæðu þess vera
þá að mjög dýrt væri að kaupa lítið
magn frá einstökum framleiðend-
um. Það hefði þvi virst hagkvæm-
asta lausnin að kaupa af lager
sænsku áfengissölunnar þar sem
Svíar væru bæði stórir kaupendur
og þekktir að ágætum vínsmekk.
tískuhús
Austurstræti lOa, 4. hæð. Sími 22226.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Galvaniserað
plötujárn
ST 02 Z DIN 17162 W
Plötuþykktir: 0.5-2mm
Plötustærðir: 1000 x 2000 mm
og 1250 x 2500 mm
SINDRA AmSTÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
r
IMK m IMIIIH
V
A W
r v
* í
Take off fatalínan fró Adidas í fyrsía skipti á íslandi
og þá auðvitað í Sportvali við Hlemm.
k < /iSportval \
v/Hlemm, símar 14390 & 26690.