Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Þolgæði
Þriðji þáttur Meistarans, spum-
ingaþáttarins hans Helga Pé á
Stöð 2, var á dagskránni síðastliðið
sunnudagskveld en þessi þáttaröð er
eins og alþjóð veit byggð á Master-
mind-þáttum Magnúsar Magnússon-
ar en þeir þættir hafa fært ásjónu
Magnúsar inná gafl Bretanna. Og
hann Magnús hefír víst ekki látið sitt
eftir liggja við að hrinda Meistaranum
úr vör — sannur íslandsvinur. Af
ásettu ráði hef ég beðið með að fjalla
um Meistarann en nú hef ég loksins
komist að þeirri niðurstöðu að spum-
ingaþáttur þessi sé næsta fróðlegur
þótt hann sé á afleitum tíma, það er
fréttatíma ríkissjónvarpsins, væri
ekki við hæfi að senda þáttinn út til
dæmis klukkan 20:20? Þá er umgjörð
þáttarins mjög við hæfí, það er að
segja anddyri Þjóðminjasafns íslands.
Hvað varðar fróðleiksgildi Meistar-
ans markast það annars vegar af
hinum svokölluðu sérsviðsspuming-
um er taka til þess sérsviðs er
þátttakendur velja sér og svo em
almennar spumingar. í síðasta þætti
spönnuðu sérsviðsspumingamar allt
frá dönsku útgáfunni af Andrési önd
til stríðsrekstrar Fom-Rómveija.
Annars tel ég nú að Meistaraþættim-
ir verði fyrst spennandi er líður að
hólmgöngu „meistaranna" það er
þeirra einstaklinga er komist hafa
áfram í keppninni. Fyrstu þættimir
vom fremur dauflegir, en þar var í
rauninni um að ræða einskonar for-
keppni, senn líður að úrslitum. Að
lokum vil ég geta þess að SÍS styrk-
ir Meistaraþættina. Hér er náttúrlega
á ferðinni óbein auglýsing en um leið
er verið að stæla menn til þekkingar-
leitar. Tel ég að íslensk fyrirtæki
ættu að feta í fótspor SÍS og veita
hluta af auglýsingafé til styrktar
hverskyns menningarstarfsemi. Mið-
stýringarmenn sjá ofsjónum yfir slíku
„styrktarfé", en hvar væmm við á
vegi stödd án öflugra fyrirtækja er
standa í raun og vem undir menning-
arlífínu?
Hetjurnar
Frónbúar ræða gjaman um hafsins
hetjur og er það vel, þorskurinn er
nú einu sinni vort lifíbrauð, en höfum
við ekki að undanfömu eignast menn
er kalla má „ljósvakahetjur"? Hér á
ég einkum við þá ljósvakamiðla er
streitast við að skemmta okkur er
heima sitjum í allt að þijár klukku-
stundir hvem virkan dag. Er hægt
að ætlast til þess að menn séu
skemmtilegir fímmtán ljósvakastund-
ir á viku hverri? Að mfnu mati er
kominn tími til að ljósvakastjórar
hyggi að því hversu lengi ljósvaka-
hetjumar fljóta á etemum. Persónu-
lega ber ég mikla virðingu fyrir
þessum harðjöxlum en er ekki hætta
á því að lagavalið verið svolftið ein-
hæft þá menn rembast við míkrófón-
inn fímmtán klukkustundir á viku?
Væri ekki þjóðráð að lífga svolítið
þriggja tíma maraþonþættina með
fullverkuðum dagskrárinnskotum er
hvíldu hetjumar? En hveijar eru svo
þessar 'hetjur?
Ég kalla til tvo kraftakarla er hafa
lengi staðið vaktina á Bylgjunni og
þá fyrst hann Pál Þorsteinsson er
situr við hljóðnemann frá 9.00-12.00.
Einstaklega notalegur útvarpsmaður
Páll en full þaulsætinn f sjálfti þular-
stofunni og á ég þá við að Páll fer
nánast aldrei af vettvangi og ekki
hóar hann í gesti. Þess f stað fetar
hann vendilega einstigi dagskrárinn-
ar og er Páll reyndar ekki einn um
slíka sporgöngu er einkennir gjaman
hina svokölluðu „léttu" tónlistar-
spjallþætti útvarpsstöðvanna. Þó er
hægara um vik að brydda uppá nýj-
ungum þar sem hópur manna situr
við hljóðnemann einsog á rás 2 en
þar er þó morgunþátturinn fremur
fsistmótaður. Ég sé ekki nema eina
lausn á þessu vandamáli, þá að lífga
þættina með innskotum hverskonar
einsog áður gat. Æ, ég má ekki
gleyma hinni ljósvakahetjunni, hon-
um Pétri Steini, sem skrapp á
dögunum í smá hvíld til Belgíu og
er nú í Sviss. Vonandi blæs fjallaloft-
ið nýjum hugmyndum í bijóst þessar-
ar þolnu ljósvakahetju.
Ólafur M.
Jóhannesson
Ríkissj ónvarpið:
Spáspil
■IMBi Annar þáttur í Tarot-spilin og spáð f þau.
0015 þáttaröðinni Þátttakendur auk umsjón-
Sjöttaskilninga- varmannsins, Jökuls
vitið sem sjónvarpið lét Jakobssonar, eru Áslaug
gera árið 1975 verðurend- Thorlacius, Harald G. Har-
ursýndur í kvöld. M.a. er alds og Sigvaldi Hjálmars-
rætt við Svein Kaaper um |son.
'otvttt
Stöð 2:
Lúxus-
líf
■■■■ Lúxuslíf, ný
00^5 bandarísk sjón-
varpsþáttaröð,
hefst á Stöð 2 í kvöld. í
þáttunum eru m.a. viðtöl
og frásagnir af því fólki
sem oft má lesa um í slúð-
urdálkum dagblaða, og
eins og nafnið bendir til
fjalla þeir um ríkt og frægt
fólk.
Fjallað verður um spilaspár i þættínum Spáspil sem er
á dagskrá sjónvarps í kvöld.
ÚTVARP
©
MIÐVIKUDAGUR
13. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Jón
Baldvin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Fréttir
á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Veröldin er alltaf ný"
eftir Jóhönnu Á. Steingríms-
dóttur. Höfundur les (8).
9.20 Morguntrimm. Lesiö úr
forustugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Úr fórum fyrri tíöar.
Umsjón: Ragnheiður Vigg-
ósdóttir.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 íslenskt mál. Endurtek-
inn þáttur frá laugardegi
sem Gunnlaugur Ingólfsson
flytur.
11.20 Morguntónleikar.
a. Polonaise í cís-moll op.
26 nr. 1 eftir Frédéric Chop-
in. Garrick Ohlsson leikur á
píanó. b. Tilbrigði um rok-
okkostef op. 33 eftir Pjotr
Tsjaíkovskí. Robert Cohen
leikur á selló með Filharm-
óníusveit Lundúna; Zdenek
Macal stjórnar. c. Bachian-
as Brasileiras nr. 5 eftir
Heitor Villa-Lobos. Anna
Moffo syngur með sellóleik-
urum undir stjórn Leopolds
Stokovskys.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Börn
og skóli. Umsjón: Sverrir
Guöjónsson.
14.00 Miödegissagan: „Fall-
andi gengi” eftir Erich Maria
Remarque. Andrés Krist-
jánsson þýddi. Hjörtur
Pálsson les (15).
14.30 Norðurlandanótur. Dan-
mörk.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Vestfjörðum. Umsjón: Finn-
bogi Hermannsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Siödegistónleikar.
a. „Carnivar, forleikur op.
92 eftir Antonin Dvorák. Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna
leikur; Istvan Kertesz stjórn-
ar. b. Fiölukonsert nr. 1 í
g-moll op. 26 eftir Max
Bruch. Josef Suk og Tékkn-
eska fílharmóníusveitin
leika. Karel Ancerl stjórnar.
17.40 Torgið — Umsjón:
Steinunn Helga Lárusdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 I garðinum
með Hafsteini Hafliöasyni.
(Þátturinn verður endurtek-
inn nk. laugardag kl. 9.15.)
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Fjölmiðlarabb. Bragi Guð-
mundsson flytur. (Frá
Akureyri.)
19.45 Diabelli-tilbrigöin
eftir Ludwig van Beethoven.
Rudolf Serkin leikur á píanó.
20.40 Að tafli. Jón Þ. Þór flytur
skákþátt.
21.00 Létt tónlist.
21.20 Á fjölunum. Þáttur um
starf áhugaleikfélaga. Um-
sjón: Finnbogi Hermanns-
son.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
22.20 Frá útlöndum. Þáttur
um erlend málefni í umsjá
Bjarna Sigtryggssonar.
23.10 Djassþáttur. Jón Múli
Árnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
13. maí
17.15 Úr myndabókinni.
Endursýndur þáttur frá 10.
maí. Umsjón: Agnes Jo-
hansen.
18.10 Evrópukeppni bikarhafa
i knattspyrnu.
Úrslit: Ajax Amsterdam —
Lokomotiv Leipzig. Bein út-
sending frá Aþenu.
20.10 Fréttir og veöur.
20.45 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.56 Spurt úr spjörunum.
Fjórtándi þáttur. Spyrlar:
Ómar Ragnarsson/Kjartan
Bjargmundsson. Dómari:
Baldur Hermannsson.
Stjórn upptöku: Ásthildur
Kjartansdóttir.
21.25 Kane og Abel.
Fjórði þáttur. Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur i sjö
þáttum gerður eftir skáld-
sögu Jeffrey Archers.
Aöalhlutverk: Peter Strauss
og Sam Neill. Þýðandi: Jón
O. Edwald.
22.15 Sjötta skilningarvitiö
s/h. 2. Spáspil. Endursýnd-'
ur þáttur frá árinu 1975.
Rætt er við Svein Kaaber
um Tarot-spilin og spáð í
þáu. Þátttakendur í umræð-
um auk umsjónarmanns eru
Áslaug Thorlacius, Harald
G. Haralds og Sigvaldi
Hjálmarsson. Umsjónar-'
maður: Jökull Jakobsson.
Stjórn upptöku: Rúnar
Gunnarsson.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
§ 17.00 Vort daglegt brauð
(Mass Appeal).
Bandarísk kvikmynd frá ár-
inu 1984. Aöalhlutverk: Jack
Lemmon, Zeljko Ivanek og
Charles During. Leikstjóri
er Glenn Jordan. Flestir
prestar eiga sinn söfnuð en
séra Farley (Jack Lemmon)
á sér aðdáendahóp og
minna messur hans einna
helst á vinsælan sjónvarps-
þátt. Honum þykir sopinn
góður og lætur hverjum
degi nægja sína þjáningu.
En hann er tilneyddur til að
endurskoöa lifsviðhorf sitt
þegar hann fær ungan, upp-
reisnargjarnan prest til
þjálfunar.
§ 18.30 Myndrokk.
19.05 Spæjarinn. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Viöskipti. ( þess-
um viöskipta- og efnahags-
þætti er viða komiö við i
athafnalífi landsmanna.
Stjórnandi er Sighvatur
Blöndahl.
20.20 Happ í hendi.
Lukkuhjóliö snýst í orðaleik
Bryndisar Schram.
§21.00 Matreiðslumeist-
arinn. Ari Garöar matreiðir
Ijúffenga rétti í eldhúsi
Stöðvar 2.
§21.25 Listræningjarnir
(Treasure Hunt).
(talskur spennumyndaflokk-
ur í 6 þáttum. 3. þáttur.
Listaverkum er stoliö viðs
vegar um Ítalíu.
§ 22.25 Lúxuslíf (Lifestyles
Of The Rich And Famous).
Ný bandarísk sjónvarps-
þáttaröð. Eins og nafnið
bendir til fjalla þættir þessir
um rikt og frægt fólk. í þátt-
unum er að finna viðtöl og
frásagnir af því fólki sem oft
má lesa um á síðum slúður-
dálkanna.
§ 23.20 Skyndiárás Ulzana
(Ulzana's Raid).
Bandarísk kvikmynd frá ár-
inu 1972 með Burt Lancast-
er, Bruce Davison, Jorge
Luke, Richard Jaeckel og
Lloys Bochner i aðalhlut-
verkum. Leikstjóri er Robert
Aldrich. Myndin gerist i New
Mexikó um 1870. Indiána-
foringinn Ulzana og flokkur
hans fara um landiö í hefnd-
arhug. Þeir pynta og drepa
alla sem á vegi þeirra verða
af miskunnarleysi. Riddara-
lið Bandaríkjamanna rekur
blóðuga slóð þeirra. Mynd
þessi er ekki við hæfi barna
og fólks með viðkvæmar
taugar.
01.00 Dagskrárlok.
00.10 Næturútvarp.
Hjörtur Svavarsson stendur
vaktina.
6.00 í bitiö. Erla B. Skúladótt-
ir léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist i
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Meðal efnis: Plötupotturinn,
gestaplötusnúöur og mið-
vikudagsgetraun.
12.20 Hádegisfréttir
12.46 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.06 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00Kvöldfréttir.
19.30 Iþróttarásin. Ingólfur
Hannesson og Samúel Örn
Erlingsson iþróttafrétta-
menn taka á rás.
22.05 Perlur. Jónatan Garð-
arsson kynnir sígilda
dægurtónlit. (Þátturinn
verður endurtekinn nk.
sunnudagsmorgun kl.
9.03.)
23.00 Vlð rúmstokkinn. Guð-
rún Gunnarsdóttir býr fólk
undir svefninn með tali og
tónum.
00.10 Næturútvarp. Snorri
Már Skúlason stendur vakt-
ina til morguns.
2.00 Nú er lag. Gunnar Sal-
varsson kynnir gömul og ný
úrvalslög. (Endurtekinn
þáttur frá gærdegi.)
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Opin lina til
hlustenda og sitthvaö fleira.
Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn. Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með því sem helst er i
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk i bland við létta tón-
list. Fréttir kl. 13.00 og
14.00.
14.00—17.00 Þorsteinn Ás-
geirsson á réttri bylgju-
lengd. Þorsteinn spilar
síðdegispoppið og spjallar
við hlustendur og tónlistar-
menn. Fréttir kl. 15.00,
16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir i Reykjavik siðdeg-
is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólkiö sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á ílóamarkaöi
Bylgjunnar. Flóamarkaöur
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á miövikudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Ljúf
tónlist og fréttatengt efni.
Dagskrá i umsjá Braga Sig-
urössonar fréttamanns.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Þorsteinn Ás-
geirsson. Tónlist og upplýs-
ingar um veður og
flugsamgöngur. Fréttir kl.
03.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Fjallað um sveitarstjórnar-
mál og önnur stjórnmál.
Umsjón Erna Indriðadóttir.
VM 1*M
8.00 Morgunstund:
orö og bæn.
8.15 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.