Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 13. MAÍ 1987
7
Vísitalan fór 1,33%
yfir rauða strikið
Verðbólgan 17,7% síðustu 3 mánuði
MEÐAL EFNIS
VÍSITALA framfærslukostnaðar
nú í maí er 1,33% hærri en miðað
var við í kjarasamningi Alþýðu-
sambands Islands og Vinnuveit-
endasambands íslands 6.
desember síðastliðinn, sam-
kvæmt útreikningum kauplags-
nefndar og mun launanefnd
þessara aðila koma saman innan
skamms til að fjalla um áhrif
þessa á kjarasamninginn. Vísital-
an reyndist vera 195,56 stig í
maíbyijun eða 1,22% hærri en í
aprílbyrjun, og hefur visitalan
hækkað um 15,7% síðustu 12
mánuði.
Af þessari 1,22% hækkun stafar
0,2% af hækkun á verði matvöru,
0,1% af hækkun á verði fatnaðar,
0,3% af hækkun húsnæðisliðs, um
0,3% af hækkun á tryggingaiðgjöld-
um bifreiða og um 0,3% af hækkun
á verði ýmissa vöru- og þjónustu-
liða.
Hækkun vísitölunnar er 15,7%
síðustu 12 mánuði eins og áður
sagði og hækkunin um 1,22% milli
mánaða svarar einnig til 15,7% árs-
hækkunar. Undanfama þijá
mánuði hefur vísitalan hækkað um
4,1% og jafngildir sú hækkun 17,7%
hækkun á einu ári.
í KVÖLD
m
22:25 LÚXUSLfF
(Lifestyles of the Rich and
Famous). Nýþáttaröð sem
fjallar um lífshætti rika og
fræga fólksins. Viðtöl og frá-
sagnir við það fólk sem hvað
oftast birtist í slúðurdálkum
blaða og tímarita.
Á NÆSTUNNI
22:20
Flmmtudagur
SÖNQUR BRIAN'S
(Brian's Song). Sönn saga um 2
fótboltaleikara sem bundust
sterkum vináttuböndum allt til
dauða Brians, en hann lóst úr
krabbameini, aðeins 26 ára að
aldri. Myndin hefur unnið 5
Emmy verðlaun.
m
23:40
Fðstudagur
AMERÍSKU
MYNDBANDA-
VERDLAUNIN
(American Video Awards).
Framleiðsla tónlistarmynd-
banda stendurí miklum blóma
og hafa þau viðtæk áhrifá kvik-
myndagerð, tisku, auglýsingar
og allan skemmtanaiðnaðinn.
STÖÐ2
Auglýsingasími
Stöðvar2er67 30 30
Lyklllnn faarA
þúhjá
Helmlllstsakjum
Heimilistæki hf
S:62 12 15
gengisskr. 1.587
Við hjá Lancia viðurkennum fúslega að við höfum gaman
af því að vera fyrstir. Fyrir 25 árum síðan smíðuðum við
fyrsta ítalska bílinn með framdrifi. Það var líka okkar hug-
mynd að smíða bíl með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum
og sjálfberandi yfirbyggingu. Og enn erum við í fararbroddi,
Nú er það fólksbíll sem skipar sér á bekk með þeim bestu í
Evrópu og sameinar kraft og aksturseiginleika sportbílsins og
íburð og þægindi luxusbílsins. Þetta er LANCIA THEMA.
Að innan er THEMA íburðarmikill og geysilega rúmgóður og
undir húddinu leynist 165 hestafla TURBO vél með millikæli og
ýmsum tæknilegum eiginleikum, sem hingað til hafa eingöngu verið
notaðir í vélar kappakstursbíla. Þessi vél skilar THEMA TURBO úr
kyrrstöðu upp í 100 km hraða á aðeins 7.2 sekúndum og hámarkshraðinn
er 218 km/klst! Vélin er næsta hljóðlaus og titringsdeyfar eyóa öllum titringi,
þannig að þú finnur raunverulega aldrei fyrir þessum ógnarkrafti. Hröðunin
og mýktin er slík, að líkast er að setið sé í þotu í flugtaki! Ef þetta er ekki nóg
fyrir þig, þá er hægt að fá THEMA með 32 ventla FERRARI V8 vél og þá er
hröðunin í 100 km hraða aðeins 6.8 sekúndur!
LANCIA THEMA TURBO kostar nú aðeins 995 þúsund krónur* með álfelgum og ríku-
legum búnaði. Aðrar gerðir af LANCIA THEMA kosta frá 815 þúsund krónum*.
Ef þú telur að þú eigir aðeins það besta skilið, hafðu þá samband við okkur og fáðu að reynsluaka
LANCIA THEMA TURBO, ÞAÐ ER LÍFSREYNSLA ÚT AF FYRIR SIG!
LANCIA THEMA ER FLUTTUR INN AF BÍLABORG H.F. ÞAÐ TRYGGIR ÖRUGGA
ENDURSÖLU OG 1. FLOKKS ÞJÓNUSTU, SEM ER RÓMUÐ AF ÖLLUM SEM TIL ÞEKKJA!
LANCIA THEMA FÆST í 5 MISMUNANDI GERÐUM:
THEMA TURBO - 2000 cc, 165 hö, 0-100 km/klst = 7.2 sek.
THEMA i.e - 2000 cc, 120 hö, 0-100 km/klst = 9.7 sek.
THEMA 6V - 2850 cc, 150 hö, 0-100 km/klst = 8.2 sek.
THEMA TURBO DIESEL - 2500 cc, 100 hö, 0-100 km/klst = 11.9 sek.
THEMA 8.32 - 2927 ccc, 218 hö, 0-100 km/klst = 6.8 sek.
LANCIATHEMA^
BÍLABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, SlMI 68 12 99
LANCIA THEMA:
ÍBURÐUR,
ÞÆGINDI
0G TÆKNILEG
FULLK0MNUN