Morgunblaðið - 13.05.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
19
Þöglu tvíburamir
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Majorie Wallace: The Silent
Twins
Útg. Penguin 1987
FAA grunaði þegar tvíburarnir
June og Jennifer Gibbons litu fyrst
dagsins ljós þann ll.apríl 1963,
hvílík ævi biði þeirra. Foreldrar
þeirra voru ættaðir frá Barbados.
Þau áttu tvö böm fyrir, þegar
tvíburamir fæddust. Heimilisfaðir-
inn vann við störf á herstöðvum og
fjölskyldan flutti oft á milli staða.
Tvíburarnir virtust undur heilbrigð-
ar og eðlilegar telpur. June var
fáeinum mínútum eldri, þær voru
eineggja og mikil þörf þeirra fyrir
návist hvor annarrar á bemskuár-
unum þótti sjálfsögð og eðlileg.
En það fór fljótlega að bera á
ýmsu, sem mönnum þótti athuga-
vert. Tvíburamir virtust seinir til
máls, en það var vitanlega skýrt
með því, að svo er oft um tvíbura
og þarf ekki að vera agnar ögn
bogið við það. Tvíburamir virtust
gefa hvor öðrum merki, sérstaklega
virðist Jennifer snemma hafa komið
sér upp einhvers konar augnmáli.
Móðir tvíburanna Gloria afsakaði
tvíburana lengi, og þótt henni fynd-
ist sjálfri sérkennilegt, að tvíbur-
amir skyldu aldrei tala við foreldra
sína, löngu eftir að þær voru greini-
lega búnir að ná tökum á tali, varði
hún tvíburana í lengstu lög. Því að
vissulega vom tvíburamir orðnir
talandi. Og orðaforði þeirra var í
ágætu lagi. Þeim var lagið að tjá
sig í skrifuðu máli, það kom í ljós
þegar dagbækur tvíburanna og
önnur skrif komu fram í dagsbljó-
sið. En tvíburamir þögðu. Þeir
gengu í skóla og leystu verkefni sín
bara sæmilega. En höfðu engin
samskipti við nemendur né kenn-
ara. Svo lölluðu stúlkurnar tvær sér
heim úr skólanum, yrtu ekki á for-
eldra né eldri systkini, fóm upp í
herbergi og læstu að sér. Þær fen-
gust við skriftir bak við lokaðar dyr
og alls kyns vangaveltur leituðu á
hug þeirra. Móðir þeirra færði þeim
matinn upp og skildi hann eftir við
dyrnar. Ef tvíburarnir vildu horfa
á sjónvarpið, settu þeir miða þess
efnis á eldhúsborðið. Enginn annar
mátti vera niðri samtímis.
Allt atferli tvíburanna benti til
sjúkleika. Þótt enginn hafi treyst
sér til að kveða upp úr með það
hvorki þá né raunar síðar, hvað
nákvæmlega hijáði þær. Augljós-
lega vom þær um sumt bráðvel
gefnar og innan í þögninni gerðu
þær sér afar vel grein fyrir um-
hverfinu og líðan annarra, þótt þær
treystu sér ekki til að gera neitt
það, sem gæti breytt þessu. Skóla-
sálfræðingar og fleiri sérfróðir
menn glímdu við gátuna um „þöglu
tvíburana" en allt kom fyrir ekki.
Tvíburarnir fóm sínu fram og virt-
ust færast í aukana. En samtímis
því sem vald þeirra yfir nánasta
umhverfi gat um sumt vaxið, fór
að bera á ótrúlegri og hræðilegri
samkeppni þeirra í millum. Sú hat-
ursást, sem þær hafa hvor á annarri
og leiðir til voðalegra atvika, verður
ekki minnstur þáttur í stríði þeirra.
Þær lögðu fæð hvor á aðra og
reyndu nokkmm sinnum að fyrir-
koma hinni. Ef þær vom síðan
skildar að, til að vita hvort amk
annar tvíburinn kynni með því að
C terkur og
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
bjargast af, urðu báðir tvíburamir
báðir líkamlega veikir; hvorki June
né Jennifer gat lifað án hinnar. Og
enn síður saman.
Brezka blaðakonan Majorie
Wallace, sem er höfundur bókarinn-
ar, heyrði fyrst um tvíburana, þegar
þeir vom átján nítján ára og sátu
í varðhaldi fyrir ótal íkveikjur,
skemmdarverk og fleira. Hún fékk
áhuga á máli þeirra og að beiðni
fangelsislæknisins kom hún til
þeirra og reyndi að ná sambandi
við þær June og Jennifer. Og það
virðist hafa tekizt. Þær fengu á
henni traust og trú og eftir æði
langan tíma var svo komið að hún
vissi öll þeirra leyndarmál, viðbrögð
við hveiju atviki. Og þær biðu
spenntar eftir að hún lyki við bók-
ina um þær. Samt virðist í bókarlok,
að þær hafí ekki náð valdi á sjúk-
leika sínum. Þeim virðast allar
bjargir bannaðar og vist þeirra á
fangelsissjúkrahúsi það sem bíður
þeirra.
Þetta er óvenjuleg bók, ótrúleg
en sönn. Hún gefur enga lausn. Það
er ekki sjálfgert að skilja tvíburana
og hörmulegt lífshlaup þeirra. En
hvað sem því líður, framúrskarandi
verk. Penguinútgáfan er alveg ný-
komin út og varla hér í bókabúðum
enn, þótt ugglaust megi panta hana.
Tvíburarnir June og Jennifer Gibbons
TÖLVUSÝNING
Tölvuvædd 13.og14.mai1987
hönnun
Sýningin er opin 11.00-19.00
(Víkingasal Hótel Loftleiða eru helstu söluaðilar tölvubúnaðar á (slandi með sýningu á
grafískum vélbúnaði.
Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá og bera saman bæði verð og gæði búnaðar til nota
við tölvuvædda hönnun.
Aðgangur ókeypis.
Einar J. Skúlason hf.
ERICSSON
g i t a
VlCTé R
IRoland
ROLAND DG CORPORATION
Wtiot HEWLETT
1"KM PACKARD
IKRISTJAN O.
SKAGFJÖRÐ HF.
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
n 1
' KAUPSTEFNAN
REYKJAVlK HF
e búnaður
AUTODESK