Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 32

Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 32
Akureyrarkirkja: Tilboð opnuð í safnaðarheimilið TILBOÐ í byggingu safnaðar- heimilis við Akureyrarkirkju voru opnuð i gær. Híbýli og Norðurverk buðu í verkið og á það síðarnefnda lægra tilboðið sem er 1G% undir kostnaðará- ætlun. Safnaðarheimilið verður um 700 fm að stærð og að stór- um hluta grafið inn í kambinn suðaustan við kirkjuna. „Þetta var orðið brýnt. Kirkja án safn- aðarheimilis er ekki nema svipur hjá sjón miðað við þær kröfur sem til hennar eru gerð- ar i dag. Við vonum að þetta verði mikil og góð breyting,“ sagði Arni Johannson formað- ur byggingarnefndar kirkjunn- ar. Inngangur í safnaðarheimilið verður í grasbalanum suðaustan við kórinn. Þá verður stór glugga- veggur grafinn á kambinum sem mun bera í Sigurhæðir. í safnað- arheimilinu verða skrifstofur fyrir starfsfólk og presta safnaðarins, sem hafa til þessa haft skrifstofur á heimilum sínum, æfingaaðstaða fyrir kirkjukórinn og fundaher- bergi. Haukur Haraldsson arkitekt hefur teiknað safnaðarheimilið. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 19,8 milljónir. Tilboð Norðurverks nam 17,9 milljónum krona, en til- boð Híbýla 22,4 milljónum króna sem er 12% yfír kostnaðaráætlun. Byggingin er boðin út í einum áfanga. Henni verður skilað fok- heldri og einangraðri með frá- genginni lóð. Nú er einnig verið að endur- skipuleggja umhverfí kirkjunnar. Ami sagði að stígurinn suðvestan við kirkjuna, sem líkbílar hafa ekið, verði mjókkaður og breytt í göngustíg. Þá verður grasblettun- um umhverfís breytt og gróður færður í betra horf. Útlitsteikning af nýja safnaðarheimilinu. Útgerðarfélag Akureyrar: Starfsmömiuin greidd sérstök orlofsuppbót ÚTGERÐARFÉLAG Akureyrar sýndi rúmlega 89 milljóna króna hagnað á síðasta ári. Aðalfundur ÚA sem haldinn var á mánudags- kvöld samþykkti að greiða starfsmönnum fyrirtækisins á árinu 1986 sérstaka orlofsupp- bót, samtals 10 milljónir króna. Að jafnaði unnu 450 menn hjá fyrirtækinu. Aflaverðmæti skipa félagsins jókst um 35% á milli STRENGJADEILD Tónlistar- skólans á Akureyri efnir til tónleika í Akureyrarkirlyu ann- að kvöld. Vortónleikar eldri nema skólans verða á laugardag í Borgarbíói. Á tónleikunum á morgun leika 60 nemendur samleiks- og hljóm- sveitartónlist af ýmsu tagi. Strengjasveitin kemur fram og einnig hljómsveit blásara og strengja. Yngsti nemandinn sem ára, en söluverðmæti framleiðsl- unnar um 27%. Aðalfundarmenn samþykktu að gefa út jöfnunarhlutabréf og tvö- falda þannig hlutafé félagsins sem er nú 110 milljónir króna. Af hluta- bréfum verður greiddur 5% arður. Tekjur Útgerðarfélagsins voru tæpar 805 milljónir á síðasta ári, en kostnaður nam um 661 milljón króna. Á árinu 1985 voru tekjumar leikur á tónleikunum er aðeins þriggja ára. Tónleikamir hefjast kl. 19.00 Eldri nemendumir munu flytja tónlist eftir Bach, Bartok, Chopin, Debussy, Mozart, Pureell, Villa Lobos, Schumann, Atla Heimi Sveinsson á úrval blásturs- og strengjahljóðfæra. Vortónleikamir heQast kl. 15.00 á laugardaginn. Áðgangur að báðum tónleikun- um er ókeypis og öllum heimill. 643 milljónir og kostnaður 506 milljónir. Vátryggingaverð togara félags- ins sem em fimm er 642 milljónir króna. Skipin em að miklum hluta afskrifuð og er bókfært verð því rúmlega 221 milljón króna. Allir rekstarþættir útgerðarinnar skiluðu hagnaði, að togumnum Svalbak og Sléttbak undanskildum. Ástæða þess er að Svalbakur var frá í þijá mánuði á árinu vegna klössunar. Var sá kostnaður færður á viðhaldsreikning hans. Sléttbakur hefur verið í Slippstöðinni frá því um mánaðamótin október-nóvem- ber þar sem unnið er að því að breyta honum aftur í frystitogara. Áætlað er að breytingunni verði lokið í endaðan júlí. Skreiðarverkunin skilaði um 825 þúsund króna ágóða í fyrra, en árið 1985 var tæplega 30 milljóna króna tap af henni. Þá var megnið af birgðum afskrifað vegna slæmra söluhorfa. Þetta hefur nú breyst til batnaðar, ekki síst vegna góðrar sölu og verðs á Ítalíumarkaði. Skráðar birgðir um áramót vom 276 lestir og verður haldið áfram að vinna í skreið eftir föngum á þessu ári, að sögn Jons Aspar skrif- stofustjóra. Yngsti hljóðfæra- leikarínn er 3 ára Þórey í Galleri Nytjalist. Morgunblaðið/Benedikt Stefánsson. Húsnæði Nytjalistar selt: „Ejgiiin í engin hús að venda“ FÉLAGIÐ Nyljalist, sem er áhugamannafélag um heimilis- og listiðnað á Norðurlandi, verður húsnæðislaust um næstu mánaða- mót. Aðstaða sem félagið hefur haft í gamla útvarpshúsinu við Norðurgötu var nýlega seld Lions klúbbnum Hængi. Að sögn Þór- eyjar Eyþórsdóttur formanns Nytjalistar una félagsmenn þess- um málalokum illa. „Við höfum í engin hús að venda. Við höfum leitað til bæjaryfirvalda og menntamálaráðuneytisins um stuðning en engin svör fengið. Það er alltaf verið að tala um að styrkja beri menningarstarfsemi, en þegar til á að taka virðast það orðin tóm,“ sagði Þórey. Nytjalist sem var stofnað fyrir rúmum tveimur árum fékk inni í útvarpshúsinu fyrir tilstilli þáverandi útvarpsstjóra, Jonasar Jónassonar, að sögn Þóreyjar. Hún sagði að leiga af húsnæðinu hefði verið hófleg. Því hefði hinsvegar fylgt mikil óvissa og amstur að húsið hefur verið til sölu allan leigutímann. í húsinu hefur Nytjalist verslað með muni félagsmanna í litlu gall- eríi í anddyri þess. Þar hafa verið haldin námskeið og opið hús einu sinni í viku. Þórey sagði að húsið hefði hentað starfseminni mjög vel. „Við höfum til að mynda haft upp- setta sjö vefstóla fyrir félaga til afnota. Félagið vex hröðum skref- um, en það er engin launung að óvissa um húsnæðið hefur staðið starfseminni fyrir þrifum," sagði hún. Þórey sagði að hún hefði persónu- lega boðið 600.000 krónur fyrir húsið þegar það var sett á sölu. Li- onsklúbburinn hefði hinsvegar boðið 900.000 krónur fyrir aðstöðuna. Einnig mun Ferðafélag Akureyrar hafa gert tilboð í húsið. „Við erum áhugamenn og þurfum að betjast fyrir okkar tilveru. Á bak við okkur eru engir fjársterkir aðilar og okkar vinna er ekki arðbær. Það er óskiljanlegt af hveiju ríkið, eig- andi hússins, hefur ekki komið til móts við okkur og af hveiju bæjar- yfírvöld sjá ekki ástæðu til þess að styðja við bakið á okkur," sagði Þórey. Morgunblaðið/Benedikt. Elín og Gestur héldu daginn hátídlegan í gær með niðjum sínum og vinum. Sjötíu ára brúðkaups afmæli í Selinu HJÓNIN Elín Ásgeirsdóttir og orðnir 34 talsins. Gestur Halldórsson héldu upp Elín og Gestur fæddust bæði á 70 ára brúðkaupsafmæli sitt á árinu 1895. Þau voru gefín í Selinu, hjúkrunarheimili saman í hjónaband 12. maí árið aldraðra, í gær. Fjöldi ætt- 1917. Fyrstu hjúskaparárin ingja og vina sóttu þau heim héldu þau bú á Garðsvík. Frá og sátu kaffisamsæti sem árinu 1944 til ársins 1957 haldið var í samkomusal heim- bjuggu þau á Svalbarðseyri, ilisins. Elín býr nú á hjúk- síðan í tvö ár á Húsavík. Þau runarheimilinu, en Gestur á bjuggu á Holtsgötu 12 á Akur- elliheimilinu Hlíð. Þau hjónin eyri fram til ársins 1967 er þau áttu fjögur börn og eru þijú fluttust bæði á dvalarheimili. á lífi. Afkomendur þeirra eru

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.