Morgunblaðið - 13.05.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
41
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur!
Hvað getur þú sagt mér um
son minn sem er fæddur 17.2.
1967 kl. 8.20 e.h. í Reykjavík?
Með þakklæti. E.G.“
Svar:
Hann hefur Sól í Vatnsbera,
Tungl og Miðhiminn í
Tvíbura, Merkúr, Venus og
Satúmus í Fiskum, Mars í
Sporðdreka og Meyju
Rísandi.
SjálfstœÖur
Sól í Vatnsbera og Úranus
Rísandi táknar að sonur þinn
leggur mikla áherslu á að
vera sjálfstæður og fara eigin
leiðir. Það getur jafnvel geng-
ið svo langt að hann verði
uppreisnargjam, a.m.k. ef
aðrir ætla að setja stein í
götu hans eða segja honum
fyrir verkum. Þetta gerir að
hann verður ekki ánægður í
vinnu nema hann ráði sér
sjálfur.
Félagslyndur
Vatnsberi og Tvíburi tákna
að hann er félagslyndur og
þarf á öðm fólki að halda.
Satúmus í mótstöðu við
Rísandi og Úranus í mótstöðu
við Venus getur hins vegar
sett strik í reikninginn. Hætt
er því við að hann vilji um-
gangast margt fólk en setji
múr á milli sfn og annarra.
Þörf fyrir spennu og sjálf-
stæði gerir einnig að hann
er heldur órólegur í tilfinn-
ingamálum. Um vissa tog-
streitu getur því verið að
ræða á félagssviðinu.
EirÖarlaus
Tungl í Tvíbura táknar að
hann þarf að vera mikið á
ferðinni í daglegu lífí, þarf
að hreyfa sig og fást við fjöl-
breytileg mál. Dagsdaglega
er sonur þinn léttur og hress.
Auk sjálfstæðis er mikilvægt
að starf hans gefí kost á
hreyfíngu og fjölbreytileika,
að hægt sé að skipta um
umhverfí og bíjóta upp
tímann, þ.e. að ekki sé unnið
allan daginn við það sama á
sama stað.
Draumlyndur
Merkúr í Fiskum í andstöðu
við Plútó táknar að hann er
heldur draumlyndur og dulur
í hugsun. Hugsun hans er
myndræn og því getur hann
átt erfítt með að tjá sig í orð-
um.
Dulur
Mars í Sporðreka táknar að
hann er duglegur og kraft-
mikill í vinnu en jafnframt
dulur á aðferðir sínar og
framkvæmdamáta. Hann
hefur góða varaorku.
Gagnrýninn
Meyja Rísandi táknar að hann
er hógvær og varkár í fram-
komu. Hann getur átt til að
vera full sjálfsgagnrýninn en
einnig gagnrýninn á aðra.
Mótsögn
Það er erfítt fyrir mig að
draga kortið saman í eina
heild. Ástæða er sú að í kort-
inu eru ákveðnar mótsagnir
sem geta brugðið til beggja
vona. Hvernig á málum hefur
verið haldið hingað til skiptir
því öllu máli.
Búseta erlendis
Staða Tungls í 9. húsi og
Júpíters í þjóðfélagshúsum
bendir til að sonur þinn hafi
áhuga á erlendum löndum og
þvi að víkka sjóndeildarhring
sinn. Ferðalög og búseta er-
lendis eru því meðal mála sem
gætu gefið honum mikið.
Sterk áhersla á 6. hús gefur
einnig til kynna áhuga á
heilsumálum og líkamsrækt,
eða a.m.k. að slíkt er æski-
legt fyrir hann.
GARPUR
GRETTIR
HVi SVXLPOM V/P VBtZA GEKP
AP ALAIENNU APHL'ATURSEFM/
SPiRA AF Því AD V/p KJÖSLWL
AO LIFA HÆGL’ATU LÍFI ?V\£>
VID Æ.TTXJM AP
NÆST þEGARRDLKKALLA^
plG LATAM 5E<3ÐU pVÍ PA
AQlDPJ.HAPU? VERIP
DÝRAGLENS
... 06 SVO ER KJÁLKUAd \
OKKflie PyK/K AÐ pAKKAy \
AÐ VW6BTUM GLBVgT
Sr/BRRI BtiAÞ, en MApOR I
G/CTI i'/VTyNPAP 6ÉRJ
UÓSKA
FERDINAND
I MOPE I LL BE
TME PRETTIE5T ANP
5MARTE5T 6IRL IN
TMEWHOLE CLA55..
Ég vona að ég verði fal-
legasta og gáfaðasta
stelpan í öllum bekknum.
SCMOOL 5TART5 NEXT
WEEK..I MOPE I GET
BETTER SRAPE5THI5YEAR
Skólinn byrjar í næstu
viku ... ég vona að ég
fái betri einkunnir í ár.
v HOPE 15 A 600P
BREAKFA5T, BOT IT
15 A BAP 5UPPER "
„Vonin er góður morgun-
verður, en slæmur
kvöldverður.“
SMAFOLK
WMEN DE G0T0C0LLE6E,
MARCIE, l'M NOT 60IN6
TO ROOM WITM YOU.. ,
Ég verð ekki herbergis-
félagi þinn, Magga,
þegar við förum í
menntaskóla.
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er ekki tekið út með sæld- .
inni að komast í hóp útvalinna
í undankeppni íslandsmótsins í
tvímenningi. Aðeins tæpur fjórð-
ungur keppenda kemst áfram,
svo skorin þarf að vera töluvert
yfir meðallagi. Staðan er reiknuð
út nokkum veginn jafnharðan,
svo keppendur vita gjörla hvar
þeir standa á hveijum tíma og
hvað þeir þurfa að skora til að
„komast inn“. Fyrir síðustu set-
una taldi eitt parið að það skriði
inn ef það kæmist áfallalaust í
gegnum tvö síðustu spilin. En
það kom upp hættuleg staða:
Austur er gjafari og allir á
hættu. Austur opnar á þremur
spöðum, suður segir þijú grönd
og vestur doblar með hraða
ljóssins. Og þessi ósköp blöstu
við norðri:
Norður
♦ Á2
VG10942
♦ 765
+ 632
Hvað hefðir þú gert?
Eftir töluverðar sálarkvalir
ákvað norður að taka út í fjögur
hjörtu. Hann hugsaði sem svo:
Ekki getur doblið verið byggt á
góðum spaða, svo líklega á vest-
ur rennandi lit. Væntanlega
annan hvom láglitinn — þann
sem makker á ekki. Þegar allir
pössuðu fjögur hjörtu leit út fyr-
ir að ákvörðunin hefði verið rétt.
En það var öðru nær:
Norður
♦ Á27
VG10942
♦ 765
+ 632
Vestur
VÁKD876 Hlllj
♦ G1093
+ G4
Suður
Austur
♦ KG109763
V5
♦ Á84
+ 109
+ D54
¥3
♦ KD2
+ ÁKD875
Útreikningur norðurs var
réttur, svo langt sem hann náði.
Vestur átti rennilegan lit, en
bara ekki þann sem við var
búist. Vestur taldi ástæðulaust
að dobla, sem reyndist rétt mat.
Þótt sagnhafi slyppi tvo niður
gaf 200 AV semitopp. Tölumar
lágu allar í NS, flestar himin-
háar.
En mesti svíðingurinn var
þessi: Með hjartahámanni út em
þijú grönd óhnekkjandi!! Þótt
vömin eigi fímm slagi slítur út-
spilið samganginn, svo ekki er
hægt að taka þá. Ekki má vest-
ur taka þijá slagi á hjarta og
spila spaða, því þá er sagnhafi
kominn með níu slagi. Og ef
hann skiptir yfír í spaða getur
sagnhafí sótt sér níu slagi í ró-
legheitum.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Dortmund í apríl
kom þessi staða upp í skák V-
Þjóðveijanna BUcker, sem hafði
hvitt og átti leik, og Lohmeier.
20. Rxg6! - hxg6, 21. Bf4 -
Rh7, (21. - Dd7, 22. Bxc7 og
næst 23. d6+ var einnig vonlaust)
22. Bxd6 — Rxg5, 23. Dc4 og
svartur gafst upp, því hann fær
engan veginn fullnægjandi bætur
fyrir drottninguna.