Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
félk í
fréttum
Félagarnir voru einhuga um hvaða afmælisgjöf passaöi best.
Hvítar ungmeyjarblúndubuxur í fallegum ramma skyldi það
vera og tók afmælisbarnið, Ólafur Ásberg Árnason, fagnandi
við gjöfinni.
Reuter
Reagan grínari
Reagan og Bob Hope.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti sinnir ýmsu fleiru en
beinum stjómunarstörfum.
Síðastliðinn sunnudag kom hann
t.a.m. til liðs við háðfuglinn Bob
Hope, þar sem Hope skemmti
hermönnum á Pope-herflugvelin-
um í Norður Karólínufylki. Tilefn-
ið var gerð sjónvarpsþáttar, þar
sem þess er minnst að hinn 25.
þessa mánaðar verða 40 ár liðin
frá stofnun flughers Banda-
ríkjanna. Fram að því höfðu
flugsveitir verið undir landherinn
settar — utan þær, sem staðsettar
voru á flugmóðurskipum.
Það sem þeir vinir og félagar
göntuðust mest með var eigin ald-
ur og framganga í stríðinu. Að
venju bar Hope sig mannalega og
sagði tröllasögur af sér og
stríðsafrekum sínum, en ekki leið
á löngu áður en upp komst um
strákinn Tuma. Kom þá fram að
Hope hafði í raun aldrei náð
lengra en að vera kartöfluskræl-
ari í birgðastöð hersins í Kansas.
í raun og sann unnu báðir í þágu
áróðursdeildar hersins, svo ekki
verður efast um framlag þeirra.
Einnig er hermt að Reagan hafi
reytt af sér brandara um sjálfan
sig, Nancy og störf sín í Hvíta
húsinu. Þá gat hann ekki á sér
setið og gerði ennfremur góðlát-
legt grín að pólítískum keppinaut-
um sínum.
Sem sjá má á myndinni eru
kumpánamir að ávarpa hvor ann-
an og hermir sagan að báðir hafi
sagt í einu: „Ég vona að ég líti
jafnvel út og þú þegar ég kemst
á þinn aldur!“
ísafjörður:
Afmælisveisla
á bryggjunni
Norðaustan kaldi og élja-
hreytingur, hiti um frost-
mark. „Og hvað með það,“ sagði
Ólafur Ásberg Ámason, sjómaður
á rækjutogaranum Hafþóri. „Ef
maður ætlar að halda bryggju-
veizlu, þá heldur maður það
hvemig sem viðrar."
Ólafur Ásberg sagðist hafa lát-
ið sig dreyma um það í mörg ár
að halda afmælisveislu í tjaldi, en
fyrir nokkrum dögum datt honum
í hug að halda upp á 20 ára af-
mæli sitt á fostudaginn með
matarveislu á bryggjunni.
„Við pöntuðum mat og þjón-
ustu frá Sjómannastofunni,
Rækjuverksmiðja O.N. Olsen lán-
aði okkur borð og stóla og af því
að norðannepja var komin þegar
að veislunni kom höfðum við sam-
band við strákana hjá Eimskip.
Þeir komu strax og lánuðu okkur
stóran gám. Hann notuðum við
sem skjól fyrir norðanáttinni. Við
erum með leyfí upp á vasann frá
Lárusi sýslufulltrúa og allt á
hreinu," sagði þessi hressi ísfírski
sjómaður sem hefur stundað sjó-
inn um margra ára skeið þó ungur
sé.
— Úlfar
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Veislugestimir skála fyrir af-
mælisbarninu. Úthafsjómannin-
um þótti venjuleg kampavínsglös
of borðlág. Vatnsglös dugðu bet-
ur undir freyðandi kampavínið.
Veislan var haldin á föstudags-
kvöldið á Oliumúlanum við
gömlu bátahöfnina á ísafirði. í
baksýn er rækjutogarinn Hafþór
þar sem afmælisbamið (með
pípuhatt) er skipveiji.
Reuter
Mynd sem tekin var af Hirasawa í réttarsal árið 1955 um leið og
dómsorðið var upp kveðið.
Beið aftöku í 32 ár:
Dó úr kvefi
Maður nokkur, sem beið þess
að vera tekinn af lífí lést
síðastliðinn sunnudaga af völdum
lungnabólgu. 32 ár eru liðin síðan
að hann var dæmdur til dauða, en
aftöku hans var frestað vegna þess
að ekki þóttu öll kurl til grafar
komin í máli hans. Maðurinn, Sada-
michi Hirasawa, átti sér fjölda
stuðningsmanna, sem eru fullvissir
um sakleysi hans. Fremstur þar í
flokki er 28 ára gamall fóstursonur
hans, Takehiko að nafni. „Ég mun
eyða ævinni til þess að færa sönnur
á sakleysi Hirasawa", sagði Take-
hiko. Lögfræðingur Hirasawa sagði
að málið yrði ekki látið niður falla.
Það eina sem forsætisráðherra Jap-
ans, YasuHira Nakasone, hafði um
dauða hins 95 ára gamla sakbom-
ings að segja var að hann vottaði
aðstandendum hans samúð sína og
að hann bæði þess að Hirasawa
fengi að hvfla í friði.
Hirasawa, sem var listamaður
að atvinnu, var dæmdur fyrir að
drepa 12 bankastarfsmenn á eitri
í bankaráni árið 1948 og var dæmd-
ur til dauða á líkum og með tilstilli
meintrar játningar, sem Hirasawa
sagði hafa verið knúða fram með
vafasömum aðferðum. Mál Hira-
sawa var síðasta málið sem dæmt
var í samkvæmt hinni gömlu keis-
aralegu refsilöggjöf, en í henni var
lítil áhersla lögð á beinar sannanir.
Síðan Hirasawa var dæmdur hafa
allir dómsmálaráðherrar Japans
neitað að undirrita tilskipunina um
fullnægingu dauðadómsins, sem
styður kenningar um að framið
hafí verið dómsmorð á listamannin-
um.
Þrátt fyrir að Hirasawa hafi ótt-
ast það mjög að hann kynni einn
góðan veðurdag að leggjast undir
sverðið, lagði hann mikla stund á
myndlist sína og teiknaði og málaði
meira en 1.300 myndir í fangelsinu.