Morgunblaðið - 13.05.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
51
Fækkun lækna o g
skerðing læknaþj ónustu
Til Velvakanda
I.
Þegar sjúkur maður þarf að leita
til heimilislæknis þarf hann oftast
að bíða í nokkra daga til þess að
fá viðtal vegna anna viðkomandi
læknis.
Þurfí sjúkur maður að fá heimil-
islækni í heimsókn má það heita
útilokað. Læknirinn ber við tíma-
leysi. Eða er það e.t.v. einskonar
leti?
Þurfí sjúklingur á sérfræðilegri
læknisþjónustu að halda verður
hann yfírleitt að bíða í margar vik-
ur til þess eins að fá að tala við
sérfræðinginn. Tímaleysi er kennt
um og löngum biðröðum sjúklinga.
Fyrir almennan borgara verkar
þetta ástand sem læknisleysi. Oft
hefur sjúklingum utan af landi
gengið betur að ná fundi læknis í
Reykjavík heldur en borgarbúum
sjálfum. Þeir munu stundum vera
látnir ganga fyrir.
Allir kannast við þetta ástand í
læknamálum því þetta er hin al-
menna reynsla.
Kæri Velvakandi
Okkur langar til að koma því á
framfæri að að okkar mati er allt
of mikið af knattspymu í íþrótta-
þættinum hjá Bjama Fel. Yfírleitt
fer meirihlutinn af þættinum í fót-
bolta og skiptast síðan örfáar
mínútur milli hinna íþróttagrein-
anna. Til dæmis voru örfáar
mínútur sýndar frá landsmótinu á
skíðum sem haldið var á ísafírði.
Hugsið ykkur, þetta var landsmó-
tið. Við vitum vel að Bjami var
fótboltakappi hér áður fyrr og við
skiljum vel að hann hafí áhuga fyr-
ir fótbolta, en þessi þáttur er ekki
bara fyrir hann. Okkur langar að
vita hvort Bjami Felixson er ein-
valdur í efnisvali, og ef svo er hvort
ekki væri hægt að fá einhvem ann-
an umsjónarmann sem gerði þáttinn
fjölbreyttari. Til dæmis Ingólf
Hannesson, hann er mjög góður
stjómandi og var með fjölbreytt
efni. Við emm alls ekkert á móti
fótbolta og emm báðar búnar að
æfa hann í mörg ár. En til em tak-
mörk. Er t.d. ekki nóg að hafa
ensku knattspymuna í þar til gerð-
um þætti - þarf endilega að troða
henni inn í hinn íþróttaþáttinn líka?
Með þessu áframhaldi er ekki nein
Gys-bræður
voru frábærir
Til Velvakanda.
Ég get ekki orða bundist vegna
skrifa í dagblöðunum upp á síðkast-
ið varðandi kosningasjónvarpið og
samkeppnina sem þar ríkti meðal
stöðvanna tveggja, sérstaklega
hvað varðar skemmtiefnið.
Það hefur verið skrifað um gaml-
ar lummur hjá Hljómum. Ég gat
nú ekki séð annað en það væri nóg
um gamlar lummur hjá Stuðmönn-
um líka og svo gamlir brandarar
einnig. Það verður að segja um lög
Stuðmanna að ekki eldast þau eins
vel og lög Hljóma. Aftur á móti
vom Gys-bræður sigurvegarar
kosninganna og bara þeir, ekki Stöð
2. Lengi lifir Hljómar og Gys-
bræður.
Ánægður kjósandi
H.
Það virðist því skjóta heldur
skökku við þegar forystumenn
Læknafélagsins telja lækna hér á
landi alltof marga og berjast fyrir
fækkun þeirra. Vilja þeir helst loka
læknadeild háskólans næstu tíu
árin í þessu skyni. Telja þeir sig
þó, til málamiðlunar, geta fallist á
að 20 læknar verði útskrifaðir ár-
lega, til að þóknast stjómvöldum,
í stað tölunnar 36 sem gilt hefur
tvö síðustu árin, en voru mun fleiri
áður. — (Sjá grein um þetta efni í
Morgunblaðinu 31. okt. 1986 á bls.
19 um atvinnuhorfur lækna), en þar
segir Haukur Þórðarson, formaður
læknafélagsins, það eindregna
kröfu læknaforystunnar, að fækka
mjög nemum í læknadeild háskól-
ans.
IH.
Hinn almenni borgari, sem oft
býr við hálfgert læknisleysi, hlýtur
að spyrja:
ástæða til þess að kalla þennan
þátt íþróttir, af hveiju ekki að kalla
þáttinn bara Sparkbolta kvöldsins.
Tvær svektar
„Hveiju sætir þessi krafa lækna-
forystunnar um fækkun lækna?
Vilja þeir enn lengja biðraðir
sjúklinga þeirra, sem þurfa að ná
læknisfundi?
Halda þeir að fækkun lækna leiði
til bættrar læknisþjónustu, eða er
þeim það algjört aukaatriði?
Eða eru þessar kröfur bomar
fram í þeim tilgangi einum, að geta
spennt launakröfubogann sem
hæst, þegar samkeppni- á þessum
vinnumarkaði er úr sögunni?
Og enn mætti spyija: Er þa
ekki hálfgert (eða algert) einræð
yfírvalda, ef afnema á frelsi ungrí
karla og kvenna til að velja séi
námsbraut í háskóla eftir því sem
hugur og hæfileikar hvers og eins
segja til um?
Eru ekki þessi mál öll að komast
á það stig, að vera gerræðisleg,
yfírdrottnun og ofstjómun á einka-
málum þeirra er vilja leggja út í
læknanám og þar með helga sig
líknar- og mannúðarmálum, sem
læknaþjónustan vissulega er, ef
rétt er á málum haldið?
Á þröngsýn atvinnumálastefna
læknaforystunnar að verá eina leið-
arljósið?
Ef þessar nýju kröfur læknafé-
lagsins ná fram að ganga er þá
ekki verið að stíga skref afturábak
en ekki áfram í heilbrigðismálum
þjóðarinnar?
Spyr sá sem ekki veit.
Einn sem undrast
HEILRÆÐI
Verkstjórar — verkamenn
Notkun hjálma við hvers konar störf hefur komið I veg fyrir hina
alvarlegustu höfuðáverka. Því er notkun þeirra sjálfsögð.
Of mikil knattspyrna
Trimm
námskeið
Trimmnámskeið fyTÍr almenning
verður haldiðí húsakynnum Iþrótta-
sambands íslands í Laugardal,
sunnudaginn 17. maí kl. 10-15
Námsefni:
Fræðilegt og verklegt.
Æfingar, ganga og skokk.
Leiðbeinendur:
Páll Ólafsson, íþróttakennari
Jóhann Heiðar Jóhannsson, læknir
Ástbjörg Gunnarsdóttir, íþróttakennari
Innritun og upplýsingar á
skrifstofu ISÍ, simi 83377.
Framtið |nn*...
Opnunargengi
lil 22.5.1987 Kaupgengi Sölugengi
Sjóösbréf 1 985 1.000
Sjóösbréf 2 985 1.000
* Sjóðsbréfin bera nú 9-11% ávöxtun umfram verdbólgu.
Það skal vanda sem lengi á að standa.
yfðhréfamariiaður “úla7
Iðnaðarbankans hf. er ee -1 o -40
Gufukatlar
frá
Staölaðar stærðir alls 24
Gufuframleiðsla: 200-14000 kg/klst
Árangur 120 ára þróunar og
reynslu þýskrar tækni og verk-
þekkingar er tryggir þér sjálf-
virkan, öruggan og nýtinn gufu-
ketil á hagstæöu verði.
Allar nánari upplýsingar gefur
LANDSSMIÐJAN HF.
SÖLVHÓLSGÖTU 13-101 REYKJAVÍK • ÁRMÚLA 23-108 REYKJAVÍK
SÍMI (91) 20680 ■ TELEX 2207 GWORKS • PÓSTHÓLF 1388