Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
Sljórnamef nd um málefni
fatlaðra hefur vísað á bug gagn-
rýni Svæðisstjómar um málefni
fatlaðra í Reykjavík vegna út-
hlutunar Sljómaraefndarinnar
úr Framkvæmdasjóði fatlaðra.
Svæðisstjórain sendi frá sér frétt
þar sem deilt var á vinnubrögð
við úthlutunina hvað varðaði hlut
Reykjavíkur. Undir fréttinni
voru nöfn og stöðuheiti 3 stjóra-
armanna Svæðisstjórnarinnar og
10 fulltrúa stofnana og félaga-
samtaka í Reykjavík sem sóttu
um framlög úr Framkvæmda-
sjóðnum. A fréttamannafundi
sem Stjórnarnefndin hélt um
málið voru hins vegar lögð fram
bréf frá þremur þessara fulltrúa
sem segjast ekki hafa samþykkt
þær yfirlýsingar sem komu fram
í frétt Svæðisstjórnarinnar og
nöfn þeirra því í heimildarleysi
undir fréttinni.
A fréttamannafundi Stjóraar-
nefndarinnar var lögð fram
eftirfarandi fréttatilkynning:
Hinn 21. f.m. sendi borgarlæknir
í Reykjavík ijölmiðlum fréttatil-
kynningu, þar sem greint er frá
fundi svæðisstjómar um málefni
fatlaðra í Reykjavík með fulltrúum
14 stofnana og félagasamtaka og
var tilefnið úthlutun stjómamefnd-
ar um málefni fatlaðra á fé
Framkvæmdasjóðs fatlaðra fyrir
árið 1987.
í fréttatilkynningu borgarlæknis,
sem jafnframt er formaður svæðis-
stjómar, er veist harkalega að
stjómamefndinni og þeim þremur
ráðherrum, sem fara með úthlutun
úr sjóðnum, þ.e.a.s. félagsmálaráð-
herra, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra og menntamálaráð-
herra. Eru þessir aðilar sakaðir um
skilningsleysi á þörfum fatlaðra í
Reykjavík, brot á lögum nr.
41/1983, um málefni fatlaðra og
ótilhlýðileg afskipti af röðun verk-
efna innan Reykjavíkur.
Vegna rangfærslna og órök-
studdra fullyrðinga, sem fram koma
í tilkynningu borgarlæknis, á
stjómamefnd um málefni fatlaðra
ekki annars úrkosti en að koma á
framfæri eftirfarandi athugasemd-
um:
1. Nefndin hefur í störfum sínum
leitast við að mæta þörfum fatlaðra
við úthlutun þannig að fé nýtist sem
allra best, óháð landfræðilegri
svæðaskiptingu. Þegar Fram-
kvæmdasjóðurinn tók til starfa
1980 var málum þannig háttað að
lítil þjónusta var til staðar fyrir
fatlaða utan höfuðborgarsvæðis og
Akureyrar. Á þeim 7 árum sem lið-
in eru hefur tekist að byggja upp
þjónustu í mismunandi mæli, í land-
inu öllu, þannig að tekist hefur að
verulegu leyti að koma í veg fyrir
búferlaflutninga og byggðaröskun
vegna skorts á þjónustu fyrir fatl-
aða. Þrátt fyrir þessa uppbyggingu
úti á landi hefur nær helmingur
ráðstöfunarfjár sjóðsins á árunum
1980—1987 farið til framkvæmda
í Reykjavík.
Er það þeim mun athyglisverðara
þar sem þær stofnanir sem þjóna '
landinu í heild, t.d. Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins, Kópavogs-
hæli, Skálatún, Sólheimar, Tjalda-
nes og Reykjalundur, eru allar utan
Reylqavíkur.
2. í tilkynningu borgarlæknis
kemur fram að aðeins 48 millj. kr.
eða 31% af ráðstöfunarfé sjóðsins
1987 sé veitt til Reykjavíkur, þar
sem um 40% þjóðarinnar búa.
Stjómamefnd bendir á að mjög vill-
andi sé að setja málin fram á
þennan hátt m.a. vegna þess að af
155 millj. kr. sem em til ráðstöfun-
ar, fara til sameiginlegra þarfa
landsmanna allra, óháð svæðaskipt-
ingu, fjármunir sem hér segir:
a) Kr. 14 millj. vegna Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar ríkisins,
sem valinn hefur verið staður í
Kópavogi.
b) Kr. 8 millj. vegna endurbóta á
Kópavogshæli, en meirihluti
íbúa þar á lögheimili í Reykjavík.
c) Kr. 4,5 millj. vegna uppbygging-
ar endurhæfíngar á Reykjalundi,
sem þjónar landsmönnum öllum.
d) Kr. 0,5 millj. vegna sumardvalar
fatlaðra á Úlfljótsvatni.
e) Kr. 1,5 millj. til að bæta aðstöðu
svæðisstjóma.
f) Kr. 1 millj. vegna framkvæmda
19. gr. laga um málefni fatl-
aðra, þ.e.a.s. styrkir til fatlaðra
vegna sjálfstæðs atvinnurekstr-
ar.
g) Kr. 6,8 millj. vegna meðferðar-
heimilis fyrir einhverf böm. Er
hér um að ræða 28,3 millj. kr.
Eitt vantar enn inn í dæmið, en
það er ágóði Oryrkjabandalagsins
af svokölluðu „lottói". Er reiknað
með að ha’nn nemi um 60 millj. kr.
á yfirstandandi ári og verður honum
varið til íbúðakaupa fyrir fatlaða.
Af þessum sökum dró Öryrkja-
bandalagið til baka umsókn sSna í
sjóðinn vegna framkvæmda í
Reykjavík.
3. Ásakanir borgarlæknis um
lagabrot em órökstuddar, þannig
að ógjörningfur er að svara þeim.
Verður óskað eftir rökstuðningi þar
Flugklúbbur
Grindavíkur
stofnaður
Morgunblaðið/Sverrir
Stjóraaraefnd um málefni fatlaðra á fréttamannafundi. Frá vinstri eru Ingimar Sigurðsson, fulltrúi
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins í nefndinni, Magnús Magnússon, fulltrúi menntamálaráðuneytis-
ins, Húnbogi Þorsteinsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Theodór A. Jónsson, varaformaður
stjóraaraefndarinnar, Sigurfinnur Sigurðsson, fulltrúi félagasmálaráðuneytisins og formaður nefndar-
innar, og Margrét Margeirsdóttir, ritari nefndarinnar.
Stjórnarnefnd um málefni fatlaðra:
Vísar á bug gagnrýni
vegna úthlutunar úr
Framkvæmdasjóði
Grindavík.
FLUGKLÚBBUR Grindavíkur
var formlega stofnaður 2. maí í
grunnskólanum. Markmið
klúbbsins er að vinna að fram-
gangi flugmálá í bænum og
byggja flugbraut við Grindavík.
Áhugi á stofnun flugklúbbs hér
í Grindavík hefur verið nokkur og
hafði Einar Dagbjartsson flugmað-
ur veg og vanda af því að haldinn
var undirbúningsfundur til að
kanna möguleika á stofnun flug-
klúbbs. Á þann fund mætti Siguijón
Ásbjömsson frá Vélflugfélagi ís-
lands og gaf ráðleggingar um
hvemig standa ætti að slíkum fé-
lagsskap.
Klúbburinn var síðan stofnaður
2. maí og em stofnfélagar um 20
manns en stofnskrá verður opin
fyrst um sinn. Á fundinn mætti
Gunnar Þorvaldsson formaður Vél-
flugdeildar Flugmálafélagsins og
ritari Flugklúbbs Selfoss og aðstoð-
aði_ við stofnun klúbbsins.
I fyrstu stjóminni em: Einar
Dagbjartsson formaður, Hrafn Ás-
geirsson ritari, Haraldur Karlsson
gjaldkeri, Hallur Sigurðsson vara-
formaður, Eiríkur Dagbjartsson
meðstjómandi og Kristmundur Her-
bertsson og Egon Marcher vara-
menn. Aðaltilgangur klúbbsins er
að vinna að framvindu flugmála í
bænum og annars staðar. Fyrsta
málið á dagskrá er að fá leyfi til
að byggja flugbraut við Grindavík.
— Kr.Ben.
sem hér er um mjög alvarlegar
ásakanir að ræða.
4. Varðandi ótilhlýðileg afskipti
stjómamefndar af forgangsröðun
svæðisstjómar Reykjavíkur hlýtur
að vera átt við breytingar sem
stjómamefndin sá sig tilknúna að
gera og helguðust af þeim skuld-
bindingum, sem gerðar höfðu verið
um framkvæmdir við Öskjuhlíðar-
skólann.
Með skírskotun til ofanritaðs
vísar stjómamefnd um málefni fatl-
aðra málflutningi borgarlæknis á
bug um leið og hún harmar þau
vinnubrögð að mál skuli rekin í fjöl-
miðlum án þess að leitað sé skýring-
ar áður. Afgreiðsla borgarlæknis á
málinu til fjölmiðla er ámælisverð
eins og glöggt má sjá á meðfylgj-
andi erindi Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, þar sem nafn
fulltrúa þess er í fréttatilkynning-
unni notað í fullkomnu heimildar-
leysi.
Vinnubrögð borgarlæknis eru
síst til þess fallin að vinna málefn-
inu stuðning, þvert á móti til þess
fallin að ala á úlfúð og sundur-
lyndi. Þess þarfnast fatlaðir allra
síst.
8. maí 1987,
Stjórnamefnd um málefni
fatlaðra samkv. lögum nr.
41/1983.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Áhugasamir væntanlegir flugmenn á stofnfundi Flugklúbbs
Grindavíkur, f.v.: HaUdór Ingvason, Stefán Tómasson og Einar Dag-
bjartsson.
Fyrsta stjórn Flugklúbbs Grindavíkur, fremri röð frá vinstri: Harald-
ur Karlsson gjaldkeri, Einar Dagbjartsson formaður, Hrafn Ás-
geirsson ritari. Aftari röð frá vinstri: Kristmundur Herbertsson
varamaður, Eiríkur Dagbjartsson meðstjórnandi, Hallur Sigurðsson
varaformaður og Egon Marcher varamaður.
Svæðisnefnd fatlaðra í Reykjavík:
Gagnrýnir úthlutun
úr Framkvæmdasjóði
SVÆÐISNEFND málefna fatl-
aðra í Reykjavík hefur harðlega
átalið Stjórnarnefnd um málefni
fatlaðra vegna framlaga úr
Framkvæmdasjóði fatlaðra. Tel-
ur nefndin að hlutur Reyk-
víkinga hafi verið fyrir borð
borin í þeim efnum.
Að þessu sinni komu 155 milljón-
ir til úthlutunar úr Framkvæmda-
sjóði fatlaðra, en á síðasta ári hafði
sjóðurinn 80 milljónir til ráðstöfun-
ar. Að þessu sinni nema framlög,
sem veitt eru til Reykjavíkur, 48
milljónum króna, eða 31% af ráð-
stöfunarfé sjóðsins og telur Svæðis-
nefndin í Reykjavík það of lítið og
sú niðurstaða alvarlegt áfall fyrir
alla þá sem vinna að málefnum
fatlaðra í Reykjavík.
Svæðisnefndin hélt fund um
miðjan apríl síðastliðinn og sam-
þykkti þar ályktun þar sem vinnu-
brögð Stjórnamefndar um málefni
fatlaðra vegna framlaga úr Fram-
kvæmdasjóði eru harðlega átalin.
Telur Svæðisnefndin að Stjómar-
nefndin hafi með þessu sýnt skiln-
ingsleysi á margvíslegum þörfum
fjölda fatlaðra í Reykjavík. Þá seg-
ir í ályktuninni að Stjómarnefndin
hafi útvíkkað hlutverk Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra og tekið upp
fjárveitingar til verkefna við al-
mennar stofnanir á sviði mennta
og heilbrigðismála, sem öðrum beri
lögum samkvæmt að standa straum
af. Þá telur Svæðisnefndin að með
úthlutun sinni í ár hafi Stjómar-
nefndin kosið að endurraða fram-
kvæmdum I Reykjavík og hafí
þannig tekið allt aðra stefnu í upp-
byggingu þjónustunnar við fatlaða
í Reykjavík heldur en þá, sem Svæð-
isstjómin hefur verið að móta á
undanfömum árum. Þá segir enn-
fremur: „Tillitsleysi stjórnarnefndar
við fjölda fatlaðra í Reykjavík,
útvíkkun á hlutverki framkvæmda-
sjóðs og breyting á framkvæmda-
röð, sem truflað getur uppbyggingu
hinnar flóknu þjónustukeðju fatl-
aðra árum saman, sýnir, að Stjórn-
amefndin hefur í störfum sínum
sniðgengið skýr lagaboð."