Morgunblaðið - 13.05.1987, Síða 56

Morgunblaðið - 13.05.1987, Síða 56
'ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA 1 GuðjónÓLhf. I 91-27233 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Líklegt að Steingrímur skili umboðinu til forseta í dag STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra lauk viðræðum sínum við formenn stjórnmálaflokkanna síðdegis í gær og hélt að því loknu þingflokksfund, þar sem staðan var rædd. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun Steingrímur ganga á fund Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands kl. 10.30 í dag og tilkynna henni að hann skili af sér umboðinu til stjórnarmyndunar. Steingrímur mun hafa komist að þeirri niðurstöðu að honum takist ekki að mynda þriggja flokka ríkisstjórn í þessari umferð. Steingrímur vildi að loknum þingflokksfundinum síðdegis í gær ekki greina frá því hvað hann hygð- ist leggja fyrir forsetann á fundi sínum með honum nú ryrir hádegi. „Ég tel að þessar viðræður við for- ystumenn flokkanna hafi verið gagnlegar og hreinskiptnar. Mér fínnst liggja alveg ljóst fyrir hvaða möguleikar eru fyrir hendi,“ sagði Steingrímur í samtali við Morgun- blaðið. Forsætisráðherra ræddi tvívegis við Þorstein Pálsson formann Sjálf- stæðisflokksins í gær auk þess að ræða við Svavar Gestsson formann Alþýðubandalagsins, Albert Guð- mundsson formann Borgaraflokks- ins og Stefán Valgeirsson. í kjölfar þeirra viðræðna mun hann hafa gert upp hug sinn og komist að þeirri niðurstöðu að honum tækist ekki í þessari umferð að mynda þriggja flokka ríkisstjóm, en hann hafði áður en hann fékk umboðið lýst því yfír að hann myndi einung- is reyna myndun þriggja flokka ríkisstjómar. Steingrímur taldi að eini mögu- leikinn til þess að mynda þriggja flokka ríkisstjóm, eftir að Jón Bald- vin Hannibalsson hafnaði viðræðum við Framsóknarflokkinn í fyrradag, væri ríkisstjóm Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Kvennalista. Steingrímur ræðir lítillega við fulltrúa Kvennalista árdegis í dag, en gengur að því búnu á fund for- seta. Kl. 11 fyrir hádegi heldur hann síðan fund með fréttamönnum og greinir þeim frá ákvörðun sinni og fundi sínum með forsetanum. vikunni ÁFENGI mun hækka að meðaltali um 10% í vikunni, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins og þar af munu létt vín að jafnaði hækka meira en brennd vín vegna gengisbreytinga á Evrópu- gjaldmiðlum. Tóbak mun einnig hækka í verði. Morgunblaðið bar þetta undir Gústaf Níelsson skrif- stofustjóra Áfengis og tóbaks- verslunar ríkisins og sagði hann það venju hjá ATVR að neita hvorki né játa svona fregnum. Ekki var reiknað með því að þessi hækkun kæmi til framkvæmda í dag en venju- lega hefur útsölustöðum ÁTVR verið lokað daginn sem verðbreytingar verða. Að- spurður sagði Gústaf að stefnt væri að því að ekki þyrfti að grípa til slíkra lokana þar sem verið væri að tölvuvæða fyrir- tækið og að því Ioknu væri hægt að ganga frá verðbreyt- ingum kvöldið áður en þær koma til framkvæmda. Gunnar J. Friðriksson, formaður Vinnuveitendasambandsins: Aðalsteinn Þórðarson Starfsstúlkum Lystadúns bjargað af skyggni fyrir ofan aðaldyr i vélskóflu örskömmu eftir að eldur- inn kom upp. Svartur reykurinn fullur af eiturgufum stígur til himins í þykkum bólstrum. Tugmilljónatjón í eldi Mesta mildi að starfsmenn Lystadúns sluppu ómeiddir úr eldhafinu MIKILL eldur braust út í húsi Lystadúns við Dugguvog í gær- morgun. Húsið varð alelda á skömmum tíma og er ónýtt. Tjónið í eldsvoðanum er talið nema tugum milljóna króna, en húsið var að fullu vátryggt. Eigendur fyrirtækisins hafa í hyggju að endurreisa það sem fyrst. Eldurinn kom upp skömmu fyr- ir kl. 11 þegar starfsmenn voru að bera lím á dýnur. Neistar hrukku í dýnumar, svo strax gaus upp mikill eldur. Starfsmenn reyndu að slökkva hann, en fengu ekki að gert. Þeir forðuðu sér því út úr húsinu, sem varð alelda á næstu mínútum. Starfsmenn á efri hæð hússins lokuðust inni, en tókst að komast út um glugga. Að sögn Onnu Sveinsdóttur, verk- stjóra, fylltist efri hæðin mjög fljótt af svörtum og eitruðum reyk. Tvær konur fóru út um glugga á hlið hússins og hún sjálf, ásamt tveimur öðrum, út á skyggni fyrir ofan aðaldyr. „Ég hef unnið hér í fjórtán ár og það var sárt að sjá þennan góða vinnu- stað verða eldinum að bráð á örfáum mínútum, en til allrar hamingju slasaðist enginn,“ sagði Anna. Slökkviliði tókst von bráðar að ná tökum á eldinum og koma í veg fyrir að hann næði að læsa sig í næstu hús. Hús norðanvert við verksmiðjuna skemmdist þó lítillega. Skömmu eftir hádegi var eldurinn slökktur, en vakt var við húsið í alla nótt. Enginn hefur enn farið inn í húsið, þar sem mikil hætta er á að það hrynji. Að sögn Kristjáns Sigmunds- sonar, framkvæmdastjóra, verður hafist handa þegar í dag við að flnna lausn á vanda viðskiptavina fyrirtækisins. „Við munum síðan heflast handa við að kaupa vélar og fínna húsnæði, en æskilegast væri ef við gætum byggt nýtt hús á sama stað,“ sagði Kristján. Sjá frásögn, viðtöl og myndir á bls. 22 og 23. Áfengi og tóbak hækkarí Ríki og sveitarfélög komi á fót vinnu veitendasambandi Fj árveitinganefnd Alþingis semji við opinbera starfsmenn GUNNAR J. Friðriksson, for- maður Vinnuveitendasambands íslands, sagði á aðalfundi þess í gær, að tímabært væri orðið að ríki og sveitarfélög mynd- uðu samtök sem vinnuveitendur með svipuðu sniði og gerist í nágrannalöndunum og kæmu fram sameinuð gagnvart stétt- arfélögum opinberra starfs- manna með sama hætti og samtök á almennum vinnu- markaði. Gunnar kvað einnig þörf á end- urskoðun á vinnulöggjöfínni, sem væri orðin hálfrar aldar gömul og þjónaði á engan hátt þörfum nútímasamfélags. Það væri alltof algengt, að kjaradeilur væru í raun innbyrðis barátta launþega- hópa um launahlutföll fremur en átök um hlut ijármagns og launa. Hann gagnrýndi samtök opin- berra starfsmanna, og sagði launakröfur þeirra í reynd vera kröfur á hendur þjóðfélaginu um hærri skatta til að greiða fyrir dýrari opinbera þjónustu. Kröfur annarra launþega um breytingu á launum til samræmis við launa- þróun opinberra starfsmanna væru svar við þessari þróun. Svar- ið væri skýrt og ákveðið það, að aðrir launþegahópar sættu sig ekki við að greiða aukinn hlut af tekjum sínum til að standa straum af launagreiðslum starfsmanna ríkis og bæja. Formaður Vinnuveitendasam- bandsins sagði ennfremur, að nauðsynlegt væri að íhuga breyt- ingar á nýsamþykktum lögum um samningsrétt opinberra starfs- manna, sem væru í þá átt að knýja menn til ábyrgari vinnu- bragða í stærri hópum. Hann kvaðst einnig telja fulla þörf á að endurmeta forsvar ríkisins í þess- um málum, því að varhugavert kynni að reynast að láta einn ráð- herra sitja með þá feikilegu ábyrgð, sem fælist í launasamn- ingum við starfsmenn ríkisins. í því sambandi nefndi hann, að hugsa mætti sér að í stað ráð- herra hefði fjárveitinganefnd Alþingis hið formlega forsvar. Sjá ræðu Gunnars J. Frið- rikssonar í heild á miðopnu og fréttir á bls. 30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.