Morgunblaðið - 14.05.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
7
SÖNGUR BRIAN’S
(Brian's Song). Sönn saga um
2 fótboltaleikara sem bundust
sterkum vináttuböndum allt til
dauða Brians, en hann lést úr
krabbameini, aðeins 26 ára að
aldri. Myndin hefur unnið 5
Emmy verðlaun.
Föstudagur
SUMARID LANQA
Stjórn-
samur bóndi verður fyrir von-
brigðum með veikgeðja son sinn
og býður þviungum og hressum
manniað búa á býlisínu og
gengur honum i föðurstað. Aðal-
hlutverk: Paul Newman, Joanne
Woodward og Orson Welles.
m
23:20
Laugardagur
SKIN OG SKÚRIR
(Only When I Laugh). Myndin
fjallar um leikkonu með óljósa
sjálfsímynd og drykkjuvanda-
mál, en kímnigáfuna i lagi.
Aðalhlutverk: Marsha Mason,
Kristy McNichol ogJames Coco.
Auglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lykllinn f»rð
þúhjá
Helmlllstsakjum
Helmliistækl hf
§:@i 1 i 1 §
Irskur píanóleik-
ari með Sinfóníu-
Uppþvottagrind m/bakka og
vaskafati fKr, 380,-
kaupfélOgin ^kaupstaður stórmarkaðurinn
IMJÓDD
hljómsveit Islands
FIMMTÁNDU áskriftartónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands á
þessu starfsári verða haldnir i
Háskólabíói á fimmtudagskvöld,
14. maí. Þar kemur fram þekktur
írskur píanóleikari, Barry
Douglas, en hann mun á næst-
unni leika með mörgum af
fremstu hljómsveitum heimsins.
Stjórnandi að þessu sinni verður
Arthur Weisberg, sem hefur
staðið þó nokkrum sinnum á
stjórnandapallinum hér á landi
upp á síðkastið.
Á efnisskránni er Píanókonsert
nr. 3 í C-dúr op. 26 eftir Sergei
Prokofiev, sem Barry Douglas leik-
ur. Þessi píanókonsert var saminn
árið 1921 og hefur orðið hvað vin-
sælastur af þeim fimm píanókon-
sertum sem Prokofiev samdi. Á
tónleikunum verða að auki flutt
verkin „Rússneskir páskar", hátíð-
arforleikur eftir N. Rimski-Kor-
sakov og Sinfónía nr. 5 eftir Carl
Nielsen.
Einleikarinn Barry Douglas
fæddist árið 1960 í Belfast á ír-
landi, þar sem hann hóf á unga
aldri píanónám. Síðar stundaði
hann nám hjá John Barstow í The
Royal College of Music í Lundúnum
og einnig var hann um tíma undir
handleiðslu Mariu Curcio. Barry
Douglas hlaut fyrstu verðlaun í
Tsjaíkofskí-keppninni í Moskvu á
sl. sumri. Eru tónleikarnir með Sin-
fóníuhljómsveit íslands hinir fyrstu
sem hann er ráðinn til að leika á
eftir þann sigur, en í kjölfarið mun
svo fýlgja tónleikahald með mörg-
um fremstu hljómsveitum heims.
Hljómsveitarstjórinn Arthur
Weisberg er bandarískur, fæddur í
New York árið 1931. Hann lærði
fyrst á píanó og fiðlu en sneri sér
síðan að námi í fagottleik og lauk
burtfararprófí frá Julliard-skólan-
um í New York á það hljóðfæri.
Um tíma var hann fagottleikari í
hljómsveitum í Houston, Baltimore
og Cleveland en sneri síðan aftur
til Julliard og nam hljómsveitar-
*
Islensk
málnefnd
gefur út
Málfregnir
ÍSLENSK málnefnd hefur hafið
útgáfu tímarits sem heitir Mál-
fregnir og á að koma út tvisvar
á 'ári. Því er ætlað svipað hlut-
verk og Fréttabréf islenskrar
málnefndar hafði meðan það
kom út (1982—1984), þ.e. að
flytja fregnir, fróðleik og grein-
ar sem varða islenska málrækt
og íslenskt mál.
Meðal efnis í fyrsta tölublaði
Málfregna er grein um nýja staf-
rófsröð í símaskrá og þjóðskrá.
Eftir henni er farið í nýju síma-
skránni sem kemur út á næstunni.
Þá er greinin „Mál og útvarp", þar
sem rætt er m.a. um ný laga- og
reglugerðarákvæði sem varða með-
ferð máls í útvarpi, og birt er
málstefna Ríkisútvarpsins. Sagt er
frá störfum þriggja nefnda sem
ráðherrar hafa skipað til að gera
tillögur um málvöndun og fram-
burðarkennslu. Ennfremur er í
Málfregnum yfirlit yfir íslenskar
íðorðaskrár og starfandi orðanefnd-
ir, grein um íslensk heiti yfir AIDS,
ritfregnir og fleira.
Ritstjóri er Baldur Jónsson. Þeir
sem vilja gerast áskrifendur geta
snúið sér til íslenskrar málstöðvar,
Aragötu 9, Reykjavík.
(Fréttatilkynning.)
EKKI
BRRR
OFRRR
Barry Douglas píanóleikari.
stjórn hjá Jean Morel. Síðan hefur
Weisberg stjórnað ýmsum hljóm-
sveitum, bæði vestan hafs og
austan og hljóðritað yfir 30 hljóm-
plötur. Sinfóníuhljómsveit íslands
stjórnaði hann í fyrsta sinn í mars
1985, en á þessu starfsári hefur
hann verið hér tíður gestur.
(Fréttatilk;
I KAUPFELAGINU ÞINU!
félögin sig saman um stórlækkun á verði valinna vörutegunda. Með
því gefum við þér kost á að gera sannkölluð reyfarakaup meðan
«■»»«****
Kr. 1.785
Kr. 108
M;sj x*wm
5 5P » BiíTs