Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 64
VZterkurog O hagkvæmur auglýsmgamiðill! 1*- STERKTKORT FIMMTUDAGUR 14. MAI 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Fer vísitalan 4% yfir rauða strikið? ÚTLIT er fyrir að þann 1. sept- ember næstkomandi geti fram- færsluvísitalan farið um 4% fram yfir „rauða strikið“ svokallaða i samningum ASÍ og VSÍ, að sögn Vilhjálms Ólafssonar á Hagstof- unni. Framfærsluvísitalan er núna 195,56 stig og á hún aðeins eftir að hækka um lh% til að komast í viðmiðunarmörkin 1. september, sem eru 196,50 stig. Þegar eru ákveðnar hækkanir sem munu valda hækkun vísitölunnar töluvert umfram „rauða strikið" í septem- ber. Hækkanir á áfengi og tóbaki og afnotagjöldum útvarps og sjón- varps valda til dæmis nálega 1% hækkun vísitölunnar við næsta út- reikning hennar og í júlí. Síðan er eftir að reikna vísitöluna út í júní, júlí, ágúst og september og má búast við að einhveijar verðlags- hækkanir komi fram á þeim tíma. Útgerðarmenn skrifa Hafrannsóknastofnmi: Leita aðstoðar vegna aukins smáfiskadráps LANDSAMBAND íslenzkra útvegsmanna hefur nú ritað stjórnendum Hafrannsóknastofnunar bréf, þar sem skorað er á stofnunina að hún leggi til við sjávarútvegsráðuneytið, að stærri svæðum verði lokað til lengri tíma, þar sem þorskurinn elst upp. Ennfremur að friðuð hrygningarsvæði þorsksins verði stækkuð. Þorskafli togara hefur að undanförnu byggzt á smáfiski, innan við 2 kíló að þyngd, og vertíð á hinum hefðbundnu svæðum hefur misfarizt. Stjórn LÍU lýsir miklum áhyggjum af þessari þróun um leið og áskorun þessi er send. Jakob Jakobsson, forstjórí Hafrannsóknastofnunar, segir að stofnunin muni leggja fram gögn um stöðu mála og hugsanlega legga til einhveijar leiðir til úrbóta. Stjóm LÍÚ kom saman til fundar síðastliðinn mánudag og samþykkti þá eftirfarandi tillögu með öllum greiddum atkvæðum: „Stjóm LÍÚ lýsir áhyggjum yfir þeirri þróun sem átt hefur sér stað með aukinni veiði á smáfiski. Stjómin telur brýna nauðsyn bera til að bæta nýtingu þorskstofnsins með því að leyfa stærri hluta hans að vaxa til kyn- broskaaldurs. Stjóm LÍÚ skorar því ^ Hafrannsóknastofnunina að leggja til við sjávarútvegsráðuneyt- ið, að stærri svæðum verði lokað til lengri tíma, þar sem þorskurinn elst upp. Ennfremur að stækka frið- uð svæði, þar sem þorskurinn hrygnir, til að auðvelda hrygningu þorsksins og hindra of mikla sókn í þann hluta stofnsins." Jakob Jakobsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að sér kæmi þessi áskorun stjómar LÍÚ ekki á óvart. LÍÚ hefði ætíð verið mjög ábyrgt í afstöðu sinni til ákvörðunar heild- arafla. Hann sagði, að stofnunin myndi athuga aflasamsetningu og stærðarskiptingu þórskaflans á fiiðunum umhverfis landið og draga sínar ályktanir af þeim niður- stöðum. Hins vegar væru lokanir til vemdar smáfiski erfiðar, þar sem þorskurinn hefði sundfæri sem hann notaði í talsverðum mæli til að koma sér úr stað. Hann væri því mikið á ferðinni og til að lokan- ir kæmu að gagni yrðu þær að ná yfir mjög stór svæði. „Við leggjum fram einhver gögn til þess að auðvelda stjómvöldum ákvörðun, væntanlega í samráði við hagsmunaaðila. Hugsanlega bend- um við á einhveijar leiðir, en þessi áskomn var rétt að berast okkur, svo enn get ég lítið sagt um mál- ið,“ sagði Jakob Jakobsson. Morgunblaðið/Sverrir Yngsta kynslóðin í Grafarvogi undi glöð við sitt meðan mælingamenn frá Reykjvaíkurborg boruðu fyrir mælipunkti í nýja hverfinu í Grafarvogi. Fyrstu lóðunum í hverfinu verður úthlutað þar í sumar. 8 lóðir eftir I Grafarvogi Búið að úthluta 58 einbýlishúsalóðum umfram áætlun ÁTTA einbýlishúsalóðir eru eftir til úthlutunar í Grafarvogi og er þá búið að úthluta yfir 1.100 íbúðum í hverfinu þegar fjölbýlishús eru talin með. Að sögn Hjörleifs Kvaran skrif- stofustjóra borgarverkfræð- ings var í síðustu fjárhagsáætl- un gert ráð fyrir 65 lóðum undir einbýlishús til úthlutunar á árínu en þegar er búið að úthluta 123 ióðum. Hafinn er undirbúningur að gatnagerð í næsta áfanga í Grafarvogi og verður fyrstu lóðunum úthlutað í sumar en þær verða ekki byggingarhæfar fyrr en næsta Ekki var reiknað með að gatna- gerð og annar undirbúningur hæfíst í næsta íbúðarhverfí í Graf- arvogi fýrr en að ári en ásókn í einbýlishúsalóðir kemur væntan- lega til með að raska þeirri áætlun. Að sögn Hjörleifs er gert ráð fyrir að úthlutun hefjist þar í sumar til að mæta eftirspum þó ekki verði hægt að hefja fram- kvæmdir á lóðunum fyrr en næsta vor. Gatnagerðargjöld fyrir einbýl- ishúsalóð fylgja byggingavísitölu og ef miðað er við 650 rúmmetra hús þá eru þau 750 þúsund krón- ur á hveija lóð. Steingrímur skilaði umboðinu í gær Þorsteinn gengnr á ný á fund forseta STEINGRÍMUR Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, gekk á fund Vigdísar Finnboga- dóttur, forseta Islands, í gær og skilaði af sér umboði til stjórnar- myndunar. Forsetinn kvaddi í gær á sinn fund þá Þorstein Pálsson, Jón Baldvin Hannibals- son og Svavar Gestsson og átti við þá viðræður í bústað forseta- embættisins við Laufásveg. Forsetinn mun á nýjan leik ræða við Þorstein Pálsson árdegis í dag. A fundi með fréttamönnum í gær greindi Steingrímur Hermannsson frá því að hann teidi það liggja ljóst fyrir að honum tækist ekki að mynda ríkisstjóm í þessari umferð. Hann sagði að einungis einn mögu- leiki hefði verið eftir á þriggja flokka stjóm í fyrradag, þegar hann hefði lokið viðræðum við forystu- menn allra flokka, og það hefði Afbrotaslóð eftír þrjú ungmenni LOGREGLAN leitaði í gær tveggja pilta og einnar stúlku á brúnni bifreið af Lancer- gerð, en fólkið er grunað um að hafa stolið bensini, brotist inn í Hrútafirði og á bæjum í Borgarfirði. Fólkið hefur ferðast víða um land síðustu daga. Þremenning- anna var leitað eftir að þeir sviku út bifreiðina, sem hefur númerið G-2037, á höfuðborgarsvæðinu. Fólkið hélt til Vestfjarða, en þar fer engum sögum af ferðum þess, utan hvað lögreglunni var gert viðvart að þar væri bifreiðina að finna, en ekki tókst að stöðva ferðina þar. í fyrradag, þriðjudag, varð fólksins svo vart að Þambár- völlum í Bitrufirði. Þangað kom það um kl. 17 og óskaði eftir að fá keypt bensín. Þegar tuttugu lítrum af bensíni hafði verið dælt í tank bifreiðarinnar óku þre- menningarnir á brott án þess að greiða fyrir og var lögreglunni gert aðvart. í gærmorgun kom í ljós að brot- ist hafði verið inn í Kaupfélag Borðeyrar við Hrútafjörð og hefur það verið á tímabilinu frá kl. 19 á þriðjudeginum til kl. 9 í gær- morgun. Þaðan var stolið greiðslukorti, bankakorti og pen- ingum, ásamt nokkru magni af tóbaki. Að sögn Ríkharðs Másson- ar, sýslumanns í Strandasýslu, virðist sem þremenningamir hafi komið yfir SteingrímsQarðarheiði á Strandir og ekið þaðan til Borg- arfjarðar. Brotist var inn í þijá bæi í Norðurárdal í Borgarfírði aðfara- nótt miðvikudagsins og gmnar menn sterklega að þar hafí sama fólk verið að verki. Innbrotin áttu sér stað á meðan heimafólk á bæjunum var sofandi. Brotist var inn á Hreimsstöðum, Hvassafelli og á Glitstöðum, en litlu mun hafa verið stolið. Allar líkur eru taldar á að fólk- ið sé nú komið aftur til höfuð- borgarinnar. Karlmennimir hafa báðir komið allnokkuð við sögu lögreglu þrátt fyrir ungan aldur. verið ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks, Kvennalista og Framsóknarflokks. Þegar hann hefði fengið þau svör frá Þorsteini Pálssyni síðdegis á þriðjudag, að Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki reiðubúinn á þessu stigi að heija þríhliða stjómarmyndunar- viðræður við Framsóknarflokk og Kvennalista, hefði hann komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að skila af sér stjómarmyndunarum- boðinu. Um hádegisbilið í gær kvaddi forsetinn Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins, á sinn fund. Því næst ræddi forsetinn við Jón Baldvin Hannibalsson, formann Al- þýðuflokksins, og loks við Svavar Gestsson, formann Alþýðubanda- lagsins. Forsetinn hefur kvatt Þorstein á sinn fund á nýjan leik árdegis í dag, til þess að ráðgast frekar við hann, áður en hún tekur ákvörðun um það hveijum hún felur næst stjómarmyndunammboðið. Ekki er vitað hvenær það verður, en allt eins er búist við að það verði síðdeg- is í dag eða kvöld. Sjá nánar frásögn af blaða- mannafundi Steingríms Hermannssonar á bls. 26.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.