Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987 Æftfyrir tónleika STRENGJASVEIT Tónlistarskóla Akureyrar japanska meistarans Suzuki. Yngsti hljómsveit- var á æfingu í Akureyrarkirkju í gær fyrir vor- armeðlimurinn er aðeins þriggja ára. Það gaf tónleika sína í kvöld sem hefjast kl. 19.00. Á því að líta fiðlur og hljóðfæraleikara af öllum tónleikunum kemur fram sveit 30 ungra nem- stærðum og gerðum þegar blaðamaður tók þess- enda sem kennt hefur verið samkvæmt aðferð ar myndir í kirkjunni í gær. Flugleiðin Reykjavík-Akureyri: Aukning á farþega og vöruflutningum „ÉG HLAKKA mikið til þess að heilsa 100.000. farþeganum á flugleiðinni Akureyri-Reykjavík á þessu ári. Það verður væntanlega einhverntíma í nóvember eða des- ember,“ sagði Gunnar Oddur Sigurðsson umdæmisstjóri Flug- leiða á Norðurlandi. í janúar flugu 30% fleiri farþegar frá Reykjavík til Akureyrar en á sama tíma í fyrra. Hafa vöru- og póstflutning- ar aukist stig af stigi allt þetta ár. í sumar verður flogið allt að sex sinnum á dag milli Akureyrar og höfuðborgarinnar. Halldór Jónsson bóndi látinn Dalvfk. HALLDÓR Jónsson bóndi og fyrr- verandi oddviti frá Jarðbrú í Svarfaðardalshreppi lést í Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri hinn 11. maí síðastliðinn. Halldór fæddist 24. mars árið 1931 sonur hjónanna Rannveigar Sigurðardóttur og Jóns Jónssonar bónda á Jarðbrú. Hann var gagn- fræðingur frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri og búfræðingur frá Bænda- skólanum á Hvanneyri. Halldór hóf búskap í tvíbýli við föður sinn árið 1953 en árið 1969 tók hann við bú- inu og bjó á Jarðbrú þar til á síðasta ári að hann brá búi og fluttist til Akureyrar. Árið 1954 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Ingibjörgu F. Helgadóttur frá Ólafsfirði, og eign- uðust þau 6 böm. Halldór gegndi um langan tlma starfi dýralæknis í sveitinni og þótti mörgum bóndanum gott að leita til hans. Árið 1974 var Halidór kosinn í hreppsnefnd Svarfaðardalshrepps og var kjörinn oddviti. Því starfí gegndi hann fram að síðustu sveitar- stjómarkosningum en þá hafði hann ákveðið að hætta búskap og flytjast úr sveitinni. Jafnframt oddvitastarf- inu gegndi Halldór ýmsum trúnaðar- störfum fyrir sveit sína og samtök sveitarfélaga. Þá átti hann um tíma sæti í stjóm Sparisjóðs Svarfdæla. Fréttaritarar Rauðu reiðhjóli stolið EITT blaðburðarbarna Morgun- blaðsins á Akureyri varð fyrir því að ieiðhjóli hennar var stolið. Þetta mun hafa gerst síðastliðinn föstudag. Reiðhjólið er meðalstórt telpuhjól af Regent-gerð, rautt að lit. Stúlkan býr í Þingvallastræti 22. Þeir sem upplýsingar kynnu að hafa um hvar reiðhjólið er niðurkomið eru beðnir um að hafa samband þar eða á skrif- stofu blaðsins. Eigandinn heitir fímmhundruð króna fundarlaunum. „Ég kann I raun engar skýringar á þessari aukningu. Samkeppni okk- ar við landleiðina fer alltaf harðnandi með bættum vegum og tíðari ferðum. Engu að síður virðast flutningar á þessari leið halda áfram að aukast. I ár munum við því ef svo heldur áfram sem horfír setja nýtt flutn- ingamet á þessari flugleíð," sagði Gunnar. Fyrstu þijá mánuði ársins flugu 22.053 farþegar á milli Akureyrar og Reykjavíkur, heldur fleiri fóru norður en suður. í janúar var aukn- ingin að meðaltali 25% miðað við sama mánuð í fyrra, í febrúar 13% en í marz var engin aukning. Gunnar sagði að þar þyrfti að taka með í reikninginn að páskamir voru í mars- mánuði í fyrra en nú í apríl. Mesta umferðin I flugi er einmitt um bæna- dagana og jólin. Mikil aukning varð einnig í vöru- flutningum, þó sérstaklega frá Akureyri til Reykjavíkur. Þannig var flutt um 40% meira af vörum í jan- úar og febrúar. í mars var hinsvegar flutt 75% meira af vörum en í sama mánuði í fyrra. Frá næstu mánaðamótum verða allt að sex ferðir daglega milli Akur- ,eyrar og Reykjavíkur og líður minnst klukkutími milli brottfara. Flestar eru ferðirnar á fímmtudögum, föstu- dögum og sunnudögum. Þá er brottför kl. 8.50,11.35,14.20,17.20, 20.20 og 8. maí bætist við kvöldvéí kl. 23.05. Seinasta kvöldvélin er ekki á áætlun á laugardögum og á þriðju- dögum og á miðvikudögum er ekki brottför kl. 11.35. Morgunblaðið/Benedikt Veríð er að breyta Sléttbaki í Slippstöðinni, tríllukarlar huga að bátum sínum í forgrunni. Útgerðarfélag Akureyrar: Vantar bara grænt ljós á nýtt skip“ - segir Sverrir Leósson stjórnarformaður „ÚTGERÐARFÉLAG Akureyrar hefur litið svo á að það eigi inni skip, eftir að Sólbakur fór í úr- eldingu. Við höfum átt í viðræð- um við Slippstöðina um smíði nýs skips. Á næstunni verður lagst hart á árar til þess að knýja á um framgang þessa máls gagn- vart ríkisvaldinu. Það væri með ólíkindum ef það gengi ekki í gegn,“ sagði Sverrir Leósson stjórnarformaður Útgerðarfé- lags Akureyrar í samtali við blaðamann í gær. Aðspurður hversvegna Utgerðar- félagið teldi nauðsyn á því að eignast nýtt skip, sagði Sverrir að fyrirtækið væri vaxandi og þyrfti að geta tekið þátt í öllum greinum fískvinnslunnar. Það væri sín skoð- un að innan þriggja ára þyrfti ÚA að eignast tvo nýja togara. Annar myndi þá afla hráefnis fyrir vinnsl- una í landi en hinn yrði frystitogari. Sá fyrrnefndi ætti að hafa forgang. Einn togara Útgerðarfélagsins, Sléttbakur, hefur verið í Slippstöð- inni frá því í haust þar sem verið er að breyta honum aftur í frysti- togara. Sverrir taldi æskilegt, ef fyrirtækið eignaðist þessi tvö nýju skip, að Svalbak systurskipi Slétt- baks yrði breytt á sama hátt. „Það éina sem okkur vantar er grænt ljós. Mer þætti óskiljanlegt ef ríkisvaldið kæmi ekki til móts við Útgerðarfélagið sem vegnar vel og hefur góða eiginfjárstöðu. Eins er um Slippstöðina, en hún getur ekki haldið í þá þekkingu og starfs- kraft sem til þarf ef áfram verður haldið á þeirri braut að loka á alla nýsmíði," sagði Sverrir. í byijun apríl höfðu bændur á samlagssvæðinu lagt inn 11,8 millj- ónir lítra af mjólk, eða 43% þess fullvirðisréttar sem hefur verið út- hlutað á þessu framleiðsluári. Guðmundur sagði að í fyrra hefði töluverður hluti bænda alls ekki notað allan sinn fullvirðisrétt og raunar hefðu sumir verið mjög langt frá mörkunum. Nú virðist annað upp á teningnum. „í fyrra var full- virðisréttinum ekki úthlutað fyrr en nokkuð var liðið á framleiðsluárið, en nú lá ákvörðunin fyrir áður en það hófst. í fyrra fékkst greitt með afföllum fyrir þá mjólk sem lögð var inn umfram mörkin. Það er því líklegt að margir bændur hugsi sem svo að skárra sé að fara aðeins yfír mörkin en að verða innan við þau,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að reginmunur væri á heyi nú og síðastliðinn vetur. Þá hefði verið hart í ári. Nú væru bændur með mjög gott fóður og nytin hefði því aukist mikið I kún- um. „Menn fylgjast örugglega vel með framleiðslunni og gera sér grein fyrir því að það eru litlar líkur á þv! að greitt verði fyrir umfram- mjólk. Bændur reyna nú að halda öllum kostnaði niðri og fóðurbætisgjöf er örugglega 5 lágmarki á flestum bæjum. Það er hinsvegar ekki hægt að leggja kú eins og togara, menn verða að láta þær mjólka. Ef nytin er pínd niður vara þau áhrif langt fram á næsta ár, svo það leikur sér enginn að slíku,“ sagði Guðmundur. Eyfirskir bændur nær hálfnaðir með kvótann „MÉR SÝNIST að mikill meiri- fuilvirðismörkunum. Um mán- hluti bænda komi til með að ná aðamótin mars-apríl var magnið þegar orðið mjög ríflegt og það er liklegt að strax i júní og júlí verði einhveijir þegar komnir yfir mörkin,“ sagði Guðmundur Steindórsson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar aðspurður um mjólkurfram- leiðsluna á vormánuðum. Eitt- hvað mun vera um verslun með fullvirðisrétt bænda sem hafa ekki notað búmark sitt í vetur. Líklegt er að ekki verði greitt fyrir þá mjólk sem fer umfram mörkin. I fyrra var greitt sem nam 20% af fullu verði fyrir umframmjólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.