Morgunblaðið - 14.05.1987, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
ÞÚSEM STRAUJAR
GERÐTJ KRÖFUR!
BELDRAY strauborðin eru fyrir þá
sem strauja.Þaueruléttog
meðfærilegog standast kröfur um
góða aðstöðu fyrir þig, straujárnið
og þvottinn.
Þannig á gott strauborð að vera.
BELDRAYstrauborðin fást íbúsáhaldaverslunum og kaupfélögum um landallt.
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON &CO HF SÍMI 24020
Förðunar
námskeið
Öll undirstöðuatriði dag- og kvöldförðunareru
kennd á eins kvölds námskeiðum.
AÖeins 10 eru saman í hóp og fær hver þátttakandi
persónulegatilsögn.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 19660 eftir kl. 10:00.
Kristín Stefánsdóttir
Snyrti-og föröunarfræðingur Laugavegi 27 ■ Sími 19660 I
Kennari:
Metsölublað á hverjum degi!
Endurnýjun í forystu SUS
eftir Benedikt Boga-
son ogDavíð
Stefánsson
Störf og starfshættir Sambands
ungra sjálfstæðismanna eru meðal
þeirra þátta sem þurfa endurskoðun-
ar við í kjölfar ósigurs Sjálfstæðis-
flokksins í alþingiskosningunum.
Þetta á jafnt við um málefnastarf,
málflutning og félagsstarfið í einstök-
um félögum og samtökum SUS. Það
er eðlilegt og sjálfsagt að rannsókn
eða úttekt fari fram á innri málum
stjómmálaflokks eftir slíkt áfall sem
úrslit kosninganna voru. Ungir sjálf-
stæðismenn verða ekki síður en önnur
samtök flokksins að líta í eigin barm
og viðurkenna að eitthvað hefur farið
úrskeiðis.
Vitaskuld réði klofningsframboð
Borgaraflokksins miklu um ósigur
Sjálfstæðisflokksins en ástæðumar
em fleiri. Það virðist sem trúnaðar-
brestur hafi orðið milli flokksins og
kjósenda. Málflutningur frambjóð-
enda flokksins fékk ekki þann
hljómgmnn meðal kjósenda sem ætl-
að var. Miklu varðar að þama verði
til trúnaðarsamband á nýjan leik.
Ungir sjálfstæðismenn eiga mikið
verk fyrir höndum í því sambandi þar
sem þeir verða að höfða til yngri kjós-
enda með mun árangursríkari hætti
en tókst í þessum kosningum. Þetta
er sérstaklega mikilvægt vegna lækk-
unar kosningaaldurs sem eykur vægi
yngri kjósenda til mikilla muna.
Svo vel vill til að í byijun septem-
ber verður haldið þing Sambands
ungra sjálfstæðismanna í Borgar-
nesi. Það er því kjörið tækifæri að
endurmeta stöðuna og skipuleggja
nýja sókn á traustum gmnnni.
Raunar hlýtur það að verða megin-
þáttur starfs ungra sjálfstæðismanna
í sumar að vinna að endurskoðun og
tillögugerð sem síða verði tekin til
afgreiðslu á þinginu í haust. En ung-
ir sjálfstæðismenn mega ekki undir
neinum kringumstæðum láta þar við
sitja. Ekki er nóg að gera tillögur til
úrbótít ef ekki er eftir þeim farið.
Það verður því einnig að vanda vel
til þeirra einstaklinga, karla og
kvenna, sem veljast til forystu í sam-
tökum ungra sjálfstæðismanna og
þar verður að vera fólk sem getur
höfðað til sem flestra.
Benedikt Bogason
„Einn mikilvægasti
þátturinn í starfsemi
SUS er nú sem endra-
nær að virkja sem
flesta til stuðnings við
hugsjónir sjálfstæðis-
stefnunnar. Það verður
því að huga vel að
„ímynd“ samtakanna í
augum ungs fólks þann-
ig að sem flestum
finnist að þar eigi þeir
innangengt.“
Einn mikilvægasti þátturinn í
starfsemi SUS er nú sem endranær
að virlqa sem flesta tii stuðnings við
hugsjónir sjálfstæðisstefnunnar. Það
verður því að huga vel að „ímynd"
samtakanna f augum ungs fólks
þannig að sem flestum fínnist að þar
eigi þeir innangengt.
Við teljum nauðsynlegt að auka
breiddina í forystusveitum Sjálfstæð-
isflokksins ef hann á að standa undir
nafni sem flokkur allra stétta.
Davíð Stefánsson
í öflugum samtökum á borð við
SUS eru vitaskuld fjölmargir hæfí-
leikamenn og konur, sem vel geta
komið í foiystu samtakanna og unnið
að þeirri endumýjun sem hlýtur að
eiga sér stað í SUS á næstu misser-
um.
Það liggur ljóst fyrir að á þingi
Sambands ungra sjálfstæðismanna í
Borgamesi í september verður kjör-
inn nýr formaður í stað Vilhjálms
Egilssonar. Við sem þetta ritum telj-
um að Ámi Sigfússon, borgarfulltrúi,
hafí þá kosti til að bera sem nauðsyn-
legir eru til að leiða þá baráttu sem
framundan er hjá Sambandi ungra
sjálfstæðismanna. Hann er kennari
að mennt og á einnig að baki þriggja
ára framhaldsnám í opinberri stjóm-
sýslu í bandarískum háskóla. Hann
var á sínum tíma formaður Heim-
daliar og framkvæmdastjóri full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna f
Reykjavík. Á báðum þessum stöðum
ávann hann sér mikið traust og virð-
ingu. Við viljum skora á unga sjálf-
stæðismenn um allt land að fylkja
sér um Áma Sigfússon með hvatn-
ingu til hans um að taka að sér
formennsku Sambands ungra sjálf-
stæðismanna.
Benedikt er stjórnarmaður í
Heimdalli og Davíð er stjórnar-
maðurSUS.
URVAL AF
^ HEPRADEILD 7 ^