Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
VEL VORAR EFTIR
MILDAN VETUR
Mikill annatími í sveitunum
EFTIR milHan vetur um land allt vorar vel. Tún eru byijuð að grænka og birki að Laufgast. Hvergi er
milfill klaki í jörðu og litur víðast hvar vel út með gróður í sumar. Sauðburður er kominn vel á veg í
syðstu sveitum en er rétt að hefjast annars staðar á landinu. Þetta er mesti annatími ársins hjá bændum,
en jafnframt einn sá ánægjulegasti. Fleiri vorverk kalla, svo sem áburðardreifing og viðhald ýmiskon-
ar. Hér á eftir fara pistlar frá nokkrum fréttariturum Morgunblaðsins, um vorkomuna og störfin í
sveitunum á þessum árstima.
Gnúpveijahreppur:
Vel lítur út með
sprettu í sumar
Tún ókalin eftir mildan vetur
Eystra-Geldingaholti.
EFTIR mildan vetur eru tún í Gnúpveijahreppi ókalin, eftir því sem
best verður séð, klaki lítill i jörðu og gróður að minnsta kosti í
meðallagi á veg kominn, eða nokkru fyrr en mörg undanfarin ár.
Nokkuð kalt hefur þó verið undanfarið og frost um nætur. Það lítur
því heldur vel út með sprettu í sumar. Nú þyrfti að hlýna verulega,
þá kæmi fljótt góður gróður á tún.
Það er alkunna að vorið er mik- varpinu í fyrradag, kom fram að
ili annatími hjá okkur í sveitinni,
ekki síst hjá þeim sem stunda hefð-
bundinn búskap. Sauðburður er
aðeins að byija, en almennt hefst
hann upp úr miðjum maí. Mesti
annatíminn hjá sauðQárbændum er
því að hefjast, en sauðburðurinn er
að margra mati skemmtilegur og
spennandi, að minnsta kosti ef vel
gengur.
Margir bændur fá unglinga og
skólafólk til aðstoðar á vorin, ekki
síst um sauðburðinn. Margir hafa
af því ánægju og mikla lífsfyllingu
að hjálpa til við hin margbreytilegu
og lífrænu störf í sveitinni. En gall-
inn er sá að skólatíminn er að
lengjast og því komast færri en
vilja til þessara starfa. Gott væn
að sem flestir skólar væru búnir
um miðjan maí, enda er öllum hollt
að kynnast atvinnulífi þjóðarinnar
á sem flestum sviðum
Á þessum annatíma í sveitinni
sem vorið er, kallar allt að í einu:
m.a. að sinna búfénu, bera á túnin
og lagfæra ýmislegt sem úrskeiðis
hefur farið yífir veturinn. í búnaðar-
þætti Óttars Geirssonar í ríkisút-
nú þyrfti víða að fara að bera á
túnin. Hér í sveit er nú svo ástatt
að mest allur áburður er ókominn.
Ástæðan er lélegir og lokaðir vegir
fyrir þungaflutninga. Viðhald
margra þessara vega hefur nær
ekkert verið í Qölda mörg ár og
velta menn því fyrir sér hvert við-
haldsféð fer. Bændur geta ekki
unað við þetta ástand og verður að
gera vegina þannig að þeir verði
færir.
Félagslíf hefur verið mikið og
gott hér í sveit sem jafnan áður á
þessum nýliðna vetri. Ungmennafé-
lag, kvenfélag, hestamannafélag,
Ámeskór, kirkjukór og fleiri félög,
sem starfa að hinum ýmsu félags-
og menningarmálum, hafa haldið
uppi öflugri starfsemi, en stórsam-
koma sveitarinnar var auðvitað
þorrablótið, nú sem fyrr.
Menn vona svo að við fáum gott
og gjöfult sumar og mikil og góð
hey, því á því byggist okkar af-
koma, sem lifum af því að framleiða
hollar og góðar matvörur fyrir fólk-
ið í landinu.
Jón
Sauðburðurinn er rúmlega hálfnaður í Óræfum.
Gaulveijabæjarhreppur::
Menn keppast við að
aka mykju á túnin
Gaulveijabæ.
HÉR í Flóanum, sem í öðrum sveitum, er hafinn annatími er stend-
ur fram á næsta haust. Sauðburður er að hefjast og fyrir nokkru
hafinn hjá þeim er nota tæknifijóvgun á bestu ærnar til að bæta
ræktunina. Sauðfé hefur fækkað mjög undanfarin ár og er víða
alveg fjárlaust hér á bæjum. Óþarft er að minnast á mildan vetur
og það virðist líka vora vel.
Hér hefur verið nokkur væta og
eru tún flest algræn og ókalin und-
an vetri. Menn keppast hér þessa
dagana við að aka mykju á tún og
einnig er einstaka bóndi byrjaður
að dreifa tilbúnum áburði.
í sumar verða töluverðar fram-
kvæmdir hér í Gaulveijabæjar-
hreppi á mælikvarða fámenns
sveitarfélags. Byggt verður íbúðar-
hús, §ós á öðrum bæ, hlaða
annarstaðar, refahús stækkað og
sumarhús eru fyrirhuguð.
Talsvert er ræktað af gulrótum
hér og var sáð fyrir þeim fyrir
tveimur vikum. Selst sú vara mjög
vel enda nokkuð flutt inn af gulrót-
um. Þungt hljóð er í mörgum
kartöflubændum og telja þeir sölu-
mál í miklum ólestri.
Fé var veitt á fjárlögum til undir-
búnings á malbikun Gaulveijabæj-
arvegar er liggur frá Selfossi áleiðis
að ströndinni. Talið er að umferð
aukist talsvert hér um slóðir með
tilkomu nýrrar Ölfusárbrúar.
— Valdim.G.
Fljótshlíð:
Fjölgar í
hópi korn-
ræktar-
bænda
Kirkjulæk, Fyótshlið.
VETURINN var óvanalega
mildur, lítill klaki í jörð.
Rétt fyrir páska kólnaði
veðrátta og í vor hefur ver-
ið fremur kalt, þó er jörð
orðin klakalaus og tún farin
að grænka.
Bændur eru að byija að bera á
túnin og vorverkin hafín, t.d. er
búið að sá komi í 15-20 hektara
lands í Fljótshlíð og eru tveir nýir
aðilar byijaðir í komrækt. í fyrra
vom þrír bændur með komrækt
og tilraunastöðin á Sámsstöðum
sem hefur ræktað korn um árarað-
ir með nokkuð góðum árangri og
hafa bændur stuðst við reynslu
þaðan.
Vegna mikillar úrkomu í vor
hefur verið erfítt að vinna akra
og einnig að komast um votlend-
ari tún, þó vonast bændur eftir
að gróður geti orðið í meðallagi
ef hlýna fer í veðri.
Sauðburður er hafínn víðast
hvar svo vinnutími fólksins er
mjög langur og reynt er að bjarga
lasburða lömbum þótt fullvirðis-
réttur sé vart fyrir þau á komandi
hausti.
— Eggert
Barðaströnd:
Gróður að
takavið
sér
Innri-Múla, Barðaströnd.
NÚ ER vor í lofti á Barðaströnd.
Gróður er að byrja að taka við
sér og sauðburður að hefjast, þó
hann sé með minna móti vegna
fjárleysis hér síðustu ár. Kúabú-
skapur er hér þó nokkur.
Horfa bændur og annað búalið
björtum augum til framtíðarinnar.
Þó skuggi hvfli yfír landbúnaðinum
um sinn er hér næg atvinna við
önnur störf. Vona menn samt að
birti yfír landbúnaðinum svo bænd-
ur geti haft aðalatvinnu sína af
honum og unga fólkið sinni þá öðr-
um störfum.
SJ.Þ.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Örn Bergsson á Hofi í Öræfum setur niður kartöflur. í Öræfum var
byijað óvenju snemma að setja niður kartöflur, sett var niður í
fyrstu garðana í byrjun maí.
Miðfjörður:
Yeturinn ekki tilbúinn
að víkja fyrir vorinu
Staðarbakka, Miðfirði.
LIÐINN er eftirminnilegur vetur hvað hagstæða veðráttu
snertir. Það sem af er þessu vori hefur verið fremur kalt,
ekki mikið frost en tíðum snjóél og aldrei verið nein hlý-
indi. Eins og veturinn sé ekki enn tilbúinn að vikja fyrir
sumrinu. Tún eru þó að byija að grænka og klaki er lítiU í
jörðu svo umskipti gætu orðið snögg ef gerði hlýindi. Ekki
er farið að dreifa tilbúnum áburði enda yfirleitt blaut tún.
Allir aðalvegir í héraðinu hafa
verið í góðu lagi í vor og samgöng-
ur því með eðlilegum hætti. Fé er
alls staðar á fullri gjöf. Á nokkrum
bæjum er sauðburður byijaður en
almennt er það þó ekki fyrr en um
miðjan mánuðinn og hefst þá erfíð-
ur en jafnframt hinn ánægjulegasti
tími ársins hjá sveitafólkinu ef vel
gengur.
Bama- og unglingaskólanum
lýkur nú í vikunni og munu flestir
krakkamir fagna tilbreytingunni.
Fermingar eru afstaðnar með til-
heyrandi veisluhöldum og tilstandi.
Vorfuglamir eru komnir nema
krían, sem ekki hefur látið til sín
heyra ennþá, svo það er víðar
söngvakeppni en í Bmssel þessa
dagana. Ánnars er lífíð hjá fólkinu
með hefðbundnum hætti, að sjálf-
sögðu vorhugur ríkjandi og von um
að sumarið verði gott og gjöfult.
— Benedikt
Lambfé á Hofi í Öræfum. Morgtinblaðið/Sigfurður Gunnarsson
VORIÐ OG SVEITASTÖRFIN