Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAI 1987
29
Sorpprammi aft-
ur til síns heima
Reuter
Robert McFarlane ásamt konu sinni, Jondu, sem hefur verið honum
til halds og trausts i yfirheyrslunum.
New York, Reuter.
PRAMMI með sorp frá New York
um borð, sem siglt hefur verið
fram og til baka um höfin í 51
dag, er nú á leið með farm sinn
aftur til borgarinnar.
Sex fylki í Bandaríkjunum og
Mexikó og Belize neituðu að taka
við ruslinu og má segja að þetta
sé eitthvert fáránlegasta ferðalega,
sem nokkru sinni hefur verið farið
með hlass af úrgangi. Og Mexikan-
ar sendu meira að ségja sjóher sinn
á vettvang til að langþreyttir skip-
verjar á sorpprammanum reyndu
ekki að losna við farm sinn í skjóli
myrkurs.
En nú hafa yfirvöld í Islip á Long
Island í New York samþykkt að
taka við ruslinu aftur og verður það
notað til landfyllingar þar sem það
ekki mátti hafna áður. Bærinn
þurfti samþykki frá yfirvöldum
New York-fylki til að svo mætti
verða og hefur ákveðið að krefja
eigendur prammans um 124 þúsund
dollara fyrir að fá að losna við rus-
lið.
Kaupsýslumaðurinn Lowell
Harrelson á nú ruslið og hann er
ekki beint ær af fögnuði um þessar
mundir. Það kostar hann sex þús-
und dollara á dag að halda ruslinu
á floti.
Austurrískir
þingmenn hand-
teknir í Búdapest
McFarlane í yfirheyrslum Bandaríkjaþings:
Reagan hvatti til að-
stoðar við skæruliða
Waahington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti hvatti oft aðstoðarmenn
sína til að aðstoða skæruliða í
Nicaragua á þeim tíma, sem það
var bannað, og fékk regulega
upplýsingar um hernaðaraðgerð-
ir þeirra. Robert McFarlane,
fyrrum öryggisráðgjafi, hélt
þessu fram í gær við yfirheyrslur
á Bandaríkjaþingi.
Á þriðja degi yfirheyrslnanna
yfir McFarlane sagðist hann telja,
að fjárstuðningurinn við skæruliða
og önnur aðstoð hefðu verið ólög-
leg. Reagan hefði hins vegar oft
hvatt hann sem yfírmann þjóðarör-
yggisráðsins til að hjálpa skærulið-
um án þess að útlista það nánar í
hverju hjálpin ætti að vera fólgin.
Þá kvaðst McFarlane margsinnis
hafa gefið Reagan skýrslu um starf-
semi skæruliðanna.
Reagan hefur ávallt sagt, að
hann hafi ekkert vitað um; að
greiðslurnar fyrir vopnin til Irans
hafi gengið til skæruliða í Nic-
Kínverji
vill aðeins
klæði Adams
Peking, Reuter.
TVÍTUGUR Kínverji í Sichuan-
héraði hefur aldrei í föt farið og
gengur nakinn um í heimabæ
sínum og skeytir engu um augna-
gotur og hneykslissvip þeirra sera
á vegi hans verða.
Pilturinn hefur verið rannsakaður
og greind hans mæld. Ekkert virðist
athugavert við hann, nema hann er
frábitinn því að vera í fötum. Hann
hefur enga menntun hlotið vegna
þess ekki hefur þótt stætt á þvi að
hafa hann berstrípaðan í skólanum.
Piltinum þykir skemmtilegast að
leika sér við dýr og að lokum er tek-
ið fram, að hann hafi aldrei orðið
uppvís að neinu ósiðlegu athæfi. Fólk
sem býr í bænum er löngu orðið vant
því að pilturinn gangi um I adams-
klæðum, en gestum í bænum bregður
að sögn í brún þegar þeir koma þang-
að í heimsókn.
aragua eða að bandarískir embætt-
ismenn hafi beðið erlendar ríkis-
stjórnir að styðja þá.
I yfirheyrslunum í fyrradag tók
McFarlane upp hanskann fyrir Re-
agan og Oliver North, fyrrum
starfsmann þjóðaröryggisráðsins,
og sagði, að honum sjálfum væri
fyrst og fremst um að kenna.
„Ég tel, að Reagan hafi í þessu
máli öllu ávallt viljað fara að lögum,
honum er ekki um að kenna hvern-
ig að þessu var staðið. Ef einhver
ber ábyrgðina þá er það ég sjálf-
ur,“ sagði McFarlane og bar einnig
blak af North, sem hann sagði trú-
aðan mann, að vísu kannski full
bókstafstrúaðan.
Vínarborg, Reuter.
NIU Austurríkismenn voru hand-
teknir í Búdapest í gær fyrir að
mótmæla umdeildri stíflugerð í
Dóna. Meðal hinna handteknu
voru þrír þingmenn úr Grænin-
gjaflokknum.
Tuttugu Austurríkismenn héldu
til Búdapest til að mótmæla svoköll-
uðum Nagymaros-Gabcikovo stíflu-
framkvæmdunum, sem Ungveijar
og Tékkar standa sameiginlega að.
Dreyfðu þeir bæklingum um fram-
kvæmdirnar og áhrif þeirra á
umhverfið. í bæklingnum er því
haldið fram að stjórn Austurríkis.
flytji út umhverfísvandamál með
því að aðstoða Ungveija við fram-
kvæmdir, sem þeir segja að muni
hafa ófyrirséða umhverfisröskun í
Austurríki í för með sér.
Austurríkismenn hafa lánað
Ungveijum átta milljarða shillinga,
jafnvirði 630 milljóna dollara, til
framkvæmdanna. Ungverjar munu
endurgreiða lánið að hluta með ra-
forku.
Umhverfissinnar í Ungveijalandi
hafa lagst gegn framkvæmdunum,
sem þeir segja muni valda miklu
tjóni í lífríkinu, bæði á gróðri og
dýralífi. Hafa þeir leitað ásjár hjá
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, en hún er formað-
ur nefndar á vegum Sameinuðu
þjóðanna sem lætur til sín taka
umhverfis- og þróunarmál. Vilja
þeir að nefndin beiti sér fyrir því
að virkjunarframkvæmdimar verði
stöðvaðar.
Annar fékk
brúðina
Bahrein, Reuter.
GIFTINGARathöfn í Saudi Arabiu
á dögunum tók óvænta stefnu,
þegar faðir brúðarinnar ákvað að
gefa dóttur sína öðrum en fyrir-
huguðum brúðguma. Ástæðan var
sú, að brúðguminn varð seinn fyr-
ir. Þegar hann kom til brúðkaups
síns hafði vigslan þegar farið
fram og hann hafði misst af kvon-
fanginu í það sinnið.
Tekið er fram að sá sem fékk
stúlkunnar hafi verið boðsgestur í
veizlunni, en hann hafði áður keppt
við hinn „brúðgumann" um hylli
stúlkunnar. Honum hafði verið neitað
um hönd hennar, en boðið til veizl-
unnar í sárabætur.
Alþjóðaþing PEN:
Rithöfundar deila um
mál Nelsons Mandela
Refsingar við skrifum ofarlega á baugi
Lúganó, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarilara Morgunblaðsins.
ALLS hundrað þrjátíu og sjö rithöfundar eru nú í haldi vegna
skrifa sinna samkvæmt upplýsingum Michaels Scammel, form-
anns fanganefndar PEN-samtakanna. Það er 67 rithöfundum
færra en fyrir einu ári. Fjöldi fanga er mestur í Víetnam og
þykir sérstaklega illa farið með fanga þar. „Þeir vega milli 30
og 40 kíló, verða að veiða sér rottur og mýs til að nærast. Með
því að vekja þá á nóttunni og láta þá þylja texta, sem þeir hafa
verið neyddir til að læra utanbókar, eru þeir heilaþvegnir. Og
þeir fá ekki að hafa neitt samband við umheiminn. Við lítum
ástandið í Víetnam mjög alvarlegum augum,“ sagði Scammel.
Fimmtugasta ársþing alþjóða-
samtaka rithöfunda stendur nú
yfir í Sviss. Yfir 500 rithöfundar
hvaðanæva úr heiminum eru
skráðir til þátttöku í ráðstefnunni
sem er haldin í fundahöllinni í
Lúganó. Þeir eru samankomnir
til að ræða stefnumál sambands-
ins og flalla almennt um „Rithöf-
unda og landamærabókmenntir".
Fanganefndin gaf skýrslu í gær
en friðarnefndin mun gera grein
fyrir starfi sínu í dag. Umræðunni
um fanga er þó ekki lokið. Skipt-
ar skoðanir ríkja um hvort
samtökin eigi að beita sér fyrir
frelsi Wilson Mandela, sem er
pólitískur fangi í Suður-Afríku.
Fanganefndinni var falið á árs-
þingi PEN í Hamborg í fyrra að
kanna hvort samtökin ættu að
hafa sömu afskipti af máli hans
og þau hafa af mönnum, sem
varpað hefur verið í fangelsi ein-
vörðungu fyrir skrif sín.
Scammel telur að þau eigi ekki
að gera það þar sem Mandela
hefur viðurkennt að hann hafi
eftir langa umhugsun fallist á að
ofbeldi gæti flýtt fyrir jafnrétti
svartra í Suður-Afríku. „Samtök-
in hafa ekki beitt sér fyrir frelsi
slíkra fanga hingað til,“ sagði
hann. „Eg tel að Mandela yrði
slæmt fordæmi þótt hans mál sé
að sjálfsögðu mjög sérstakt."
PEN-félögunum í Afríku er sérs-
taklega annt um mál Mandela og
benda á að skrif hans stuðluðu
einnig að handtöku hans.
Fanganefnd PEN heldur skrá
yfir alla þá sem eru handteknir
fyir skrif sín, hvort sem um rithöf-
unda, fréttamenn eða fræðimenn
er að ræða. Þau reyna að fá fang-
ana látna lausa eða aðstæður
þeirra í fangelsum bættar með
því að skrifa yfirvöldum og birta
frásagnir af handtökunum opin-
berlega. Þrýstingur þeirra hefur
borið árangur, nóbelsverðlauna-
hafinn Wole Soyinka var til dæmis
látinn laus úr fangelsi í NSgeríu
eftir að PEN tók mál hans að sér
og skáldkona sem var látin laus
og leyft að fara frá Sovétríkjunum
í vetur sagði að þrýstingur PEN-
samtakanna hefði hjálpað sér.
Soyinka fékk ekki leyfi yfirvalda
til að sækja þingið í Lúganó.
Scammel fagnaði þróuninni í
Sovétríkjunum og sagði að 46 rit-
höfundar hefðu fengið frelsi þar
á síðasta ári. En hann sagði að
enn væru þó nokkrir í haldi og
nefndi rithöfundinn Akhmetov
sérstaklega, en hann er lokaður
inni á geðveikrahæli.
Thor Vilhjálmsson, forseti
íslenska PEN-klúbbsins, er full-
trúi íslands á alþjóðaþinginu.
Hann var nýkominn út af lokuðum
fundi um fangamálin þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum. „Eg
verð svo hryggur þegar ég heyri
þessar harmatölur," sagði hann.
„Sem betur fer búa íslenskir rit-
höfundar við þau forréttindi að
mega segja og skrifa það sem þá
lystir. íslenskir stjómmálamenn
hafa ekki völd til að forsmá rithöf-
unda nema í litlum mæli. Þeir
geta ekki höggvið hausa." Hann
sagði að PEN væri starfrækt til
að hjálpa rithöfundum til að skrifa
það sem þeim sýnist. „Samtökin
tala máli mannúðar. Þau taka
afstöðu með manneskjunni, mál-
frelsi og friði. íslendingar hafa
sama atkvæðarétt hér og aðrir
og ég tel það drengskaparskyldu
okkar að taka þátt í starfsem-
inni. Við getum hjálpað öðrum
skáldum.“ Thor taldi að PEN
ætti að reyna að hjálpa Mandela.
„Maðurinn er þjóðhetja," sagði
hann. „Það væri ekki sbmt for-
dæmi að hjálpa honum."