Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ1987
31
Myndin er tekin nokkrum mínútum eftir að sprengjan sprakk og eins og sjá má á bíihræinu var hún
gríðarlega öflug.
Sýrlenzkur hermaður
lézt og tveir slösuðust
Beirut, Reuter.
BÍLSPRENGJA sprakk í grennd við bækistöð sýrlenzkra hermanna
í Beirut í gær, miðvikudag, með þeim afleiðingum að einn Sýrlend-
ingur Iézt og tveir slösuðust alvarlega. Þetta er fyrsti sýrlenzki
hermaðurinn sem lætur lífið í Beirut frá því stjómin í Damaskus
sendi lið inn í hverfi múhammeðstrúarmanna i Beirut fyrir nær
þremur mánuðum.
í fyrstu fréttum var ekki sagt frá
því, að manntjón hefði orðið. En
um svipað leyti skóku tvær spreng-
ingar til viðbótar byggingar í
þessum borgarhluta, þar sem Sýr-
lendingar hafast við. Skemmdir
urðu, en ekki talið að neinir hafi
særzt,
Sérfræðingar um líbönsk mál-
efni telja að þetta kunni að vera
byijun á meiriháttar aðgerðum
gegn Sýrlendingum og sögðu
fréttamenn, að spenna hefði enn
hlaðizt upp í Beirut og hefði varla
verið á hana bætandi.
Þegar þetta er skrifað, síðdegis
á miðvikudag, hafði engin lýst
ábyrgð á sprengjutilræðunum á
hendur sér. Samkvæmt fréttum
virðast sýrlenzku hermennimir hafa
uppgötvað bflsprengjuna og voru
að reyna að gera hana óvirka, þeg-
ar hún sprakk í höndum þeirra með
þeim afleiðingum sem fyrr greinir.
Karami, forsætisráðherra Líban-
ons, sagði af sér á dögunum.
Gemayel forseti hefur ekki greint
frá því, hvort hann taki afsögnina
til greina, né heldur hefur hann
falið neinum öðrum að gera tilraun
til að koma saman stjóm. Frétta-
menn segja, að ekkert spyijist til
gíslanna, sem er vitað að em í haldi
mannræningja í borginni. Ekki sé
heldur vitað til að nein viðleitni
hafí verið sýnd, í alvöru, til að koma
þeim til hjálpar upp á síðkastið.
Teg.: 25/54
Litur: Hvftt
Verð: 690.-
Úr skinni og einnig margar aðrar gerðir.
TOPP
s0
SKORINN
VELTUSUNDI 2,
21212
FINNMARK FYLKESKOMMUNE
KIRKENES SYKEHUS,
FINNMARK,
NORGE
Getur þú hugsað þér að starfa með okkur?
Okkur bráðvantar
UÓSMÓÐUR
(lærða hjúkrunarkonu með reynslu í Ijósmóður-
störfum) til sumarafleysinga og aðra til lengri tíma.
Á fæðingardeildinni, sem er lítil og hugguleg, tök-
um við á móti u.þ.b. 350 börnum á ári hverju.
Útbúnaður er mjög góður og af nýjustu gerð.
Góður starfsandi er á deildinni. Sjúkrahúsið mun
aðstoða við húsnæðisöflun og greiða ferðakostn-
aðframog til baka.
Laun: Norskar krónur 13.500 á mánuði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir yf irhjúkruna-
rkonan, Jorunn Haug, eða yfirljósmóðir, Marie
Hallonen, sími 085/91701.
Hafir þú áhuga þá vinsamlegast hafðu samband
fyrir 20. maí nk. annað hvort í síma eða skrifa til:
KIRKENES SYKEHCIS
Personalkontoret
9901 Kirkenes
Norge.
að þegar
við kaupum leð-
ursófasett veljum við
& alltaf gegnumlitað leður og
alltaf anilínsútað (krómsútað)
leður og leðurhúðir af dýrum frá
norðlægum slóðum eða fjallalöndum —
og yfirleitt óslípaðar húðir (sem eru end-
ingarbestar).
Ef þú ert í einhverjum vafa um hvort þú
ert að kaupa góða vöru eða ekki, skaltu
bara biðja okkur um 5 ára ábyrgð.
Tegund Ceylon. Sumir eiga svo stórar stof-
ur að þeir fá aldrei nógu stór homsett í
þær. Þeir ættu að koma og líta á Ceylon
homsófann.
Litir: Svart og brúnt í úrvalsleðri
með afborgunarkjörum í 12 mánuði.
húsgagna4iöllín
REYKJAVÍK