Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
35
Sýningar á
kvikmyndum
eftir skáldsög-
um Hamsuns
ÞRJÁR kvikmyndasýning-ar
verða á vegum Norræna hússins
fimmtudaginn 14. maí, föstudag-
inn 15. maí og laugardaginn 16.
maí. Eru þetta kvikmyndir gerð-
ar eftir skáldsögum Knuts
Hamsun og verða þær sýndar í
Norræna húsinu og Regnbogan-
um.
Fyrsta sýningin verður í Nor-
ræna húsinu í kvöld, 14. maí, kl.
20.30 og verður þá sýnd Gróður
jarðar. Myndin er þögul, gerð 1921,
leikstjóri er Gunnar Sommerfeldt
og í aðalhlutverkum eru Amund
Rydland og Karen Thalbitzer.
Föstudaginn 15. maí kl. 17.00
verður sýnd kvikmyndin Sultur í
Regnboganum. I aðalhlutverkinu
er Per Oscarsson og í öðrum hlut-
verkum eru m.a. Gunnel Lindblom,
Birgitte Federspiel og Oswald
Helmuth. Myndin er gerð 1965 í
samvinnu Dana, Norðmanna og
Svía. Leikstjóri er Henning Carlsen
,en handritið er eftir Peter Seeberg.
Laugardaginn 16. maí kl. 17.00
er sýning á Pan í Regnboganum.
Myndin er gerð 1962. í aðalhlut-
verkum eru Jarl Kulle, Bibi Anders-
son, Liv Ullman, Allan Edvall og
Claes Gill. Leikstjóri myndarinnar
er Bjarne Henning-Jensen og hand-
ritið er eftir Astrid og Bjame
Henning-Jensen.
Að þessum sýningum standa
ásamt Norræna húsinu, Norræna
félagið, Almenna bókafélagið og
norski sendikennarinn.
Bæklingur
um kynferðis-
lega áreitni
ÚT ER kominn á vegum Barna-
hóps Samtaka um Kvennaat-
hvarf, Barnaverndarráðs og
menntamálaráðuneytis bækling-
urinn „Kynferðisleg áreitni —
Hvað er það?“
Bæklingi þessum er ætlað að
svara helztu spumingum, sem
vakna hjá foreldrum, þegar böm
skýra frá kynferðislegri áreitni eða
árás.
í fyrstu verður bæklingnum
dreift til bamavemdamefnda og
ýmissa opinberra starfsmanna, sem
afskipti hafa af börnum, en síðar
er vonazt til að dreifing nái til for-
eldra skólabama.
Þeir, sem óska eftir að fá eintak
af bæklingnum, geta snúið sér til
skrifstofu Bamavemdarráðs,
Laugavegi 36, 101 Reykjavík, sími
11795 eða 621588, eða skrifstofu
Samtaka um Kvennaathvarf, Hlað-
varpanum, Vesturgötu 3, 101
Reykjavík, sími 23720 f.h.
(Fréttatilkynning.)
600DYEAR
gerir kraf taverk
Dekk f yrir
TRAKTORA OG
TRAKTORSGRÖFUR
Til kraftaverka sem þessa þarf gott jarðsamband.
Það næst með GOODYEAR hjólbörðum.
Gott samband jarðvegs og hjólbarða auðveldar alla
jarðvinnu.
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNAR HJÓLBARÐA
Glæsileg hátíð á Broadway í kvöld þar sem
kjörin verður fyrirsæta ELITE og NYS LÍFS.
D A G S K R Á
Fulltrúi frá Elite í
New York útnefnir
fyrirsætu NÝS LÍFS
og ELITE 1987
Snæfríður Baldvinsdóttir
__________-sigurvegari 1986
Blómaval annast blómaskreytingar á hátíöinni. Aö-
göngumiöinn gildir sem happdrættismiöi
en glæsilegir blómvendir sem blóma-
skreytingafólk frá Blómavali útbýr á s'aön-
___________um eru verölaunin í happdrættinu._________
Hátíðin hefst meö fordrykk kl. 19.30 en síöan veröur
borinn fram hátíöarkvöldveröur á hagstæöu
_________veröi kr. 1.390,-___________________________
Hátíð í sérflokki sem enginn má missa af.
Borðapantanir í síma 77500
I fyrsta sirm í Reykjavík:
Leyniþjónustan: Jakob Magnússon, Ragnhildur
Císladóttir, Jón Kjell ásamt
gestaspilurum
Dans: Dansarar frá Dansstúdíói Sól-
eyjar sýna nýja dansa
TÍSKUSÝNING:
Þeir sem sýna: Kjallarinn, Assa, Garbó, Viktoría og Eggert feldskeri
Stúlkurnar sem komust í úrslit koma fram í tískusýningu undir stjórn
Sóleyjar Jóhannsdóttur og Guörúnar Hrundar Siguröardóttur