Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
45
2.500 miðar í
happdrætti SKÍ
NÚ stendur sem hæst sala á miðum
í happdrætti Skíðasambands ís-
lands, sem hleypt var af stokkun-
um fyrr í vetur. Draga átti í
happdrættinu 22. april sl., en
vegna nálægðar við alþingiskosn-
ingar og fleira, var ákveðið að
fresta drætti til 20. maí nk. Gefnir
eru út 2.500 miðar, sem hver kost-
ar 1000 kr. og er aðeins dregið
úr seldum miðum.
Vinningar eru: Fiat Croma bifreið
að verðmæti kr. 754 þúsund, ferða-
vinningur frá ferðaskrifstofunni
Samvinnuferðir Landsýn, að verð-
mæti kr. 25.200, skíðabúnaður frá
versluninni Útilíf, að verðmæti kr.
20 þúsund, vikudvöld í Kerlingarfjöll-
um, að verðmæti kr. 18 þúsund og
hljómtæki í bílinn frá Hljómbæ, að
verðmæti kr. 18 þúsund.
Fjárþörf Skíðasambandsins er
gífurleg baaði vegna útbreiðslu- og
fræðslumála og úthalds landsliða.
Benda má á að skíðaíþróttin er ein
íþrótta, sem er í þeirri aðstöðu að
mega ekki selja aðgang að íþrótta-
kappleikjum sínum.
Miðar í happdrættinu eru seldir
um land allt hjá öllum skíðafélögum
og skíðaráðum. Skíðasamband ís-
lands væntir þess að velunnarar
íþróttarinnar bregðist vel við mála-
leitan þessari, með því að kaupa miða.
(F réttatilkynning.)
Tveir íslandsmeistarar á skíðum, þeir Örnólfur Valdimarsson og
Einar Ólafsson, ásamt vinningsbifreiðinni.
Réfíur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Sagt var hér fyrrum:
— Böl er búskapur,
hryggð er hjúskapur,
aumt er einlífið
og að öllu er þó nokkuð. —
Þessi svartsýnistónn virðist nokk-
uð nútímaiegur, enda er fátt
mönnum nýtt íþessum efnum. Jafn-
vel verðbóigan og hratt hrun
krónunnar, sem nú setur alla heimil-
isreikninga úr skorðum, er einnig'
gamalkunnugt vandamái
Nú, við höfum ekki yfir miklu að
kvarta á meðan enn veiðist fiskur
við landið. Við bjóðum því í dag upp
á frábæra
Smálúðu
ofnbakaða
með krydd-
jurtabráð
800 gr—1 kg smálúða
salt og hveiti
40 gr smjörlíki
lhi sítróna
*/2 bolli vatn
1 tsk. worcestershire-sósa
'A tsk. hvítlauksduft
'A tsk. laukduft
V4 tsk. múskat
1 tsk. kartöflumjöl
3 matsk. vatn
1 matsk. fínsneiddar möndlur
malaður pipar
1. Ofninn er hitaður í 225 gráður.
Smálúðan er hreinsuð og þerruð
vel og uggar gjaman klipptir af.
2. Lúðan er síðan skorin í 5 stykki.
Ristur er ca. 5 sm langur skurður
á ská rétt aðeins í gegnum roðið
þar sem fiskurinn er þykkastur
og síðan annar skurður þvert á
hinn eða í kross. Þetta er gert
við hvert stykki á báðum hliðum.
3. Álþynna er sett á plötu. Salti er
stráð á fiskstykkin og þau síðan
hrist með hveiti þannig að þau
fái léttan hveitihjúp. Auðveldast
er að setja hveiti í plastpoka og
hrista fiskinn með hveitinu í pok-
anum. Hveitihjúpurinn kemur í
veg fyrir að roðið harðni og
springi við bökun.
4. Fiskstykkjunum er síðan raðað
saman aftur á álklædda pönnuna
og er álið lagt létt að fiskinum
þannig að það myndi einskonar
fiskmót. Fiskurinn er síðan settur
inn í heitan ofninn.
5. Smjörlíkið er brætt, safa úr V2
sítrónu er bætt út í smjörlíkið og
feitinni síðan hellt yfir fískstykk-
in. Vatninu, >/2 bolla, er bætt út
í og er fískurinn þannig bakaður
eða soðinn í ofni í 10—15 mín.
Soðinu er ausið yfír hann öðru
hvom á suðutímanum.
6. Fiskurinn er síðan færður upp á
fat og haldið heitum á meðan
bráðin er útbúin. Soðið er mjög
bragðgott og fyrir þá sem hafa
einfaldan smekk nægir að jafna
sósuna með kartöflumjölinu
hrærðu út með vatninu, til að
gera hana örlítið þykkari. En
sælkerar, sem gjarnan dekra við
bragðlauka sína, þeir hræra
worcestershire-sósu, hvítlauks-
dufti, laukdufti, múskati og
kartöflumjöli með vatninu og
jafna fisksoðið (notið pott) um
leið og þeir bragðbæta það.
Möndlunum bætt út í. Látið
krauma í nokkrar mínútur og
hrærið stöðugt í á meðan.
Fiskstykkjunum er raðað á fat og
þau skreytt með sítrónubátum (hin-
um helmingnum af sítrónunni),
tómötum og gúrkusneiðum ef til
eru. Fiskurinn er síðan borinn fram
með bráðinni og soðnum kartöflum.
Verð á hráefni
Smálúða 1 kg kr. 190,00
sítróna 15.00
kr. 205,00 _