Morgunblaðið - 14.05.1987, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
Tónleikar
GRAFÍK
Gestir kvöldsins:
Mamma var Rússi
(EX-Fræbblar)
Húsið opnar kl. 22.
Hótel Borg
í I1 i I 11 ■ iV*
Mllll/'vU
lil|.k i
"" z#
Nú er tækifærið.
’nidaisýnirM
í kvöld kl. 21.30
rÖKIN#jlPk
MODELS AMTOKIN
sýna tískufatnað frá
verzluninni
BENTÍNU,
Laugavegi 80.
KASKÓ skemmtir.
HÓTEL ESJU
Guttenberg nær sér mun betur á
strik í Lögregluskólaförsunum
en í Vitnunum, þar sem hann fer
með sitt fyrsta hlutverk utan
gamanmyndar.
ólíkt sínum fyrri og þó svo hann
komist stórslysalaust frá sínu er
það engin spuming að pilturinn er
mun betur kominn í lögregluskóla-
försunum og öðrum slíkum. Hann
skaðar kannski ekki myndina en
hann styrkir hana ekki.
Vitnin er vel skrifuð og laglega
gerð flétta og á auglýsingaplak-
atinu er haldið fram að hún sé gerð
í hefð spennumeistarans, (A. Hitch-
cock). Það verður að teljast orðum
aukið. Kvikmyndafrásögnin nær
aldrei lengra en augað sér, öfugt
við gamla meistarann sem einmitt
var snillingur í að spila á ímyndun-
arafl áhorfandans.
í úlfakreppu
viðhald sitt, Isabelle Hubbert, konu
húsbóndans, heim til sín eftir veislu
á skrifstofunni. í pásu þurfti hún
endilega að kíkja út um svefn-
herbergisgluggann og verða vitni
að líkamsárás. Er hún sett í sam-
band við röð morða sem framin
hafa verið í borginni að undanfömu.
Þó svo að Hubbert geti gefið
greinargóðar lýsingar á ódæðis-
manninum þá treystir hún sér ekki
— stöðu sinnar vegna — að fletta
samtímis ofanaf framhjáhaldinu svo
þau koma sér saman um að það
hafi verið Guttenberg sem vitni
varð að árásinni. Og eftir að hafa
fengið greinargóða lýsingu á mann-
inum hefur hann samband við
lögregluna.
En Guttenberg tekst ekki að
koma sökinni á mann sem augsýni-
lega er morðinginn og fyrr en varir
em böndin farin að berast að Gutt-
enberg sjálfum. Að lokum er hann
hundeltur af lögreglunni og hefur
ekki í annað hús að venda en hjá
Elizabeth McGovem, stúlkunni sem
slapp úr höndum morðingjans.
Sameiginlega leggja þau fyrir þau
gildm.
Nokkuð lunkin mynd en fer ró-
lega í gang. Söguþráðurinn er
heillegur, bæði hann og kvikmynda-
takan, lýsingin, minna á „film
noir“-myndir ijórða og fimmta ára-
tugsins. Einkum samband Gutten-
bergs og Hubbert hinnar frönsku,
sem er einkar sannfærandi sem hið
tælandi „flagð undir fögm skinni".
Guttenberg fæst hér við hlutverk
B*>^sbðeaT
p\otosnoðat-
» söngkonan
He'ons'f^S sUcmmOr i
JaW.GraV«^w
Sæbjörn Valdimarsson
VITNIN - THE BEDROOM
WINDOW ☆ ☆ >/2
Leikstjóri og handrit: Curtis
Hanson. Kvikmyndatökustjóri:
Gil Taylor. Tónlist: Michael Shri-
eve og Patrick Gleason. Aðalleik-
endur: Steve Guttenberg,
Elizabeth McGovern, Isabelle
Hubbert, Paul Shenar, Carl
Lumbly, Fredecrick Coffin.
Bandarísk. DEG 1987.
Kringumstæðumar hafa komið
Steve Guttenberg í snúna klípu.
Vandræðin byrjuðu er hann fór með
Hin heimsfræga söngkona
f fyrsta skipti á íslandi
í dag kom hin heimsfræga söngkona
Jaki Graham til landsins og skemmtir
hún í EVRÓPU í fyrsta skipti í kvöld.
Jaki Graham hefur á síðastliðnum
þremur árum sungið fjölmörg lög sem
komist hafa inn á langflesta vinsælda-
lista í Evrópu. Pekktasta lag hennar er
án efa ”Could It Be I’m Failing In Love”,
sem hún söng ásamt David Grant árið
1985. Það lag sló í gegn víða um lönd og
komst í efstu sæti vinsældalista um
gervalla Evrópu.
Jaki Graham kemur fram í kvöld kl.
23.30.
Svo verða það bæjarins bestu plötu-
snúðar sem sjá um tónlistina.
Spakmœli helgarinnar: Gœfa fylgir djörfum.
Fjölgar í Félagi
framhaldsskóla
AÐALFUNDUR Félags fram-
haldsskóla var haldinn í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð,
laugardaginn 18. apríl síðaslið-
inn. Auk venjulegra aðalfundar-
starfa var á fundinum fjallað um
framkomið frumvarp mennta-
málaráðherra um framhalds-
skóla.
Félag framhaldsskóla var stofn-
að 29. október 1986 af 11 nemenda-
félögum á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu og var þetta því fyrsti
aðalfundur félagsins. í skýrslu
stjórnar FF, sem lögð var fram á
fundinum, kom m.a. fram að nú
hafa tvö nemendafélög til viðbótar
gengið í félagið, Nemendafélag
Fjölbrautaskóla Suðurlands og
Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Suðumesja. Þar kom einnig fram
að á þessu fyrsta starfsári félagsins
stórefldist allt samstarf á milli að-
ildarfélaganna og er stofnun
Útvarpsfélags framhaldsskólanema
og rekstur Útrásar einna besta
dæmið þar um.
Eftirfarandi ályktun varðandi
frumvarp til laga um framhalds-
skóla var samþykkt samhljóða:
„Þar sem menntamálaráðherra
hefur nú lagt fram á Alþingi frum-
varp til laga um framhaldsskóla,
vill FF láta eftirfarandi álit sitt í
ljós á frumvarpinu:
1) Félagið fagnar því að fram
skuli vera komið frumvarp um
heildarskipan framhaldsskóla en
lýsir jafnframt yfir sárum vonbrigð-
um sínum með margt af innihaldi
frumvarpsins.
2) Félagið fagnar þeirri grund-
vallarhugmynd frumvarpsins, að
draga úr miðstýringu framhalds-
skóla. Sú leið sem menntamálaráð-
herra velur í frumvarpinu til þess
ama, er hins vegar stórhættuleg
og félagið lýsir fullri andstöðu sinni
við hana. Hér er auðvitað átt við
þá fáránlegu flokkspólitísku skóla-
nefnd sem ráðherra vill fá í hendur
stjóm hvers framhaldsskóla. Það
að ætla að fela þremur mönnum,
skipuðum af flokkunum, óháð þekk-
ingu þeirra á skólamálum, vald til
að ákvarða námsframboð, skóla-
gjöld og ráðstöfun þeirra, sem og
hlutdeild í ráðningu kennara og
inntöku nemenda, er ekki eingöngu
fáránlegt heldur felst i þessari skip-
an mála atlaga að framhaldsskóla-
kerfínu. Öllum áhrifum nemenda,
kennara og starfsliðs skólanna er
varpað fyrir róða og þau fengin í
hendur utanaðkomandi aðilum. Fé-
lagið heitir fullri andstöðu sinni við
skólanefnd frumvarpsins og mun
aldrei sætta sig við tilvist hennar.
3) Félagið fagnar þeirri stefnu
frumvarpsins að innleiða áfanga-
kerfíð í framhaldsskólana. Félagið
bendir hins vegar á að með skil-
greiningu fmmvarpsings á „nema“
og úthlutunarreglum þess á fjár-
magni til skólanna, er vegið að
þeirri grundvallarhugsjón áfanga-
kerfisins að nemendur geti valið sér
sinn eigin námshraða. Frumvarpið
vegur einnig að jafnrétti til náms
á verklegum brautum, með ákvæði
þess um aukna þátttöku nemenda
í efniskostnaði námsins. FF lýsir
því einnig andstöðu sinni við þessi
tvö ofangreindu atriði.
4) Félagið varar við þeirri ný-
breytni frumvarpsins sem felst í
möguleikum einstakra skóla til að
setja ákveðnar lágmarkskröfur í
einstökum fögum, við innritun í
skólana. íslenskt menntakerfi þarf
á allt öðru að haida en að sá draug-
ur fortíðarinnar verði vakinn upp á
ný. Félagið frábiður sér uppbygg-
ingu menntakerfís þar sem til verða
„tossa-skólar“ annars vegar og
„úrvals-skólar" hins vegar. Við
þurfum skólakerfi þar sem allir
skólar eru opnir öllum.
5) Félagið fagnar því að nú skuli
hafin umræða um framtíð fram-
haldsskóla á íslandi. Stefnulaus
mun framhaldsskólinn verða stöðn-
un að bráð og því lýsir FF sig
albúið til frekari umræðna um mál-
efni hans á komandi misserum."