Morgunblaðið - 14.05.1987, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
3. flokkur kvenna:
Víkingur
íslands-
meistari
VÍKINGUR varð íslandsmeistari
í 3. flokki kvenna í handknattleik.
Þær eru, efri röð frá vinstri: Þó-
runn Þorvaldsdóttir, Hildur
Sigurðardóttir, Kristín L. Bjarna-
dóttir, Erna Aðalsteinsdóttir,
Heiða Erlingsdóttir, Matthildur
Hannesdóttir og Jóhanna Jóns-
dóttir. Neðri röð frá vinstri: Gróa
Másdóttir, Guölaug Jónsdóttir,
Katrín Jónsdóttir, Hjördís Guð-
mundsdóttir, Halla María Helga-
dóttir, Lísa Hjaltested, Helga
Jónsdóttir og Inga Dagmar Karls-
dóttir. Þjálfari liðsins var Inga
Lára Þórisdóttir og liðsstjóri Sigr-
ún Ólafsdóttir.
7\ V ' X f w f ^ mm •
L ' ; j ' , VL 0% * J
• Við útnefninguna hlaut Erna farandbikar sem fylgir titlinum, auk
afsteypu af honum og var boðið upp á heljarmikla tertu, sem að sjálf-
sögðu var sundlaugarlíkan.
íþróttamaður ársins í Bolungarvík:
Tíu ára
sundmeistari
ÍÞRÓTTAMAÐUR ársins 1986 var
nýlega kjörinn í Bolungarvík og
hlaut titilinn Erna Jónsdóttir, ung
og efnileg sundkona á eltefta ári.
Formaður íþróttaráðs, Víðir
Bendiktsson lýsti kjörinu í hófi sem
íþró ttaráð efni til í tilefni útnefning-
unnar.
Erna sló á siðasta ári hvert
metið af öðru. Hún setti m.a. 15
(slandsmet í flokki hnáta og á
reyndar öll íslandsmetin í þeim
flokki. Að auki setti hún 41 Bolung-
arvíkurmet á árinu og 38 Vest-
fjarðamet. Þá sigraði Erna í báðum
sínum greinum á aldursmeistara-
móti íslands með miklum yfirburð-
um og setti glæsileg íslandsmet.
Hún hefur æft sund frá sjö ára
aldri og æfir nú reglulega fjórum
sinnum í viku.
Forseti bæjarstjórnar, Ólafur
Kristjánsson? afhenti Ernu glæsi-
legan farandbikar sem útnefning-
unni fylgir, auk afsteypu af
bikarnum og viðurkenningarskjal.
Foreldrar Ernu eru Rannveig
Snorradóttir og Jón Valgeir Guð-
mundsson.
Aðalfund-
urFH
AÐALFUNDUR knattspyrnudeild-
ar FH verður haldinn í Gaflinum
í Hafnarfirði föstudaginn 22. maí
og hefst klukkan 20. Félagar eru
kvattir til að fjölmenna.
LEGO-meistari
FYRIR skömmu sögðum við frá því að ungur Islendingur væri að
gera það gott í knattspyrnunni í Svíðþjóð með liði sínu Bifröst. Nú
hefur okkur borist mynd af kappanum sem heitir Tómas Róbertsson
og látum við hana fljóta hér með. Tómas er fyrirliði síns flokks hjá
Bifröst og fyrir stuttu unnu þeir mikið mót sem kallast LEGO-mót
og fengu að launum veglegan bikar sem auðvitað var úr LEGO-
kubbum. Með Tómasi á myndinni eru þjálfari hans og mótstjórinn.
70. þing USAH:
Steinunn Snorradóttir
íþróttamaður ársins
Blönduósi.
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga (USAH), sem er 75
ára á þessu ári hólt sitt 70. hér-
aðsþing fyrir skömmu, 47 fulltrú-
ar áttu rétt á setu á þinginu.
Mikil gróska var í fþróttastarf-
semi USAH á sl. ári og þá einkum
í frjálsum íþróttum. Valinn var
íþróttamaður ársins 1986 og fyrir
valinu varð ung frjálsíþróttakona
Steinunn Snorradóttir á Blöndu-
ósi. Nýr þáttur í starfsemi USAH
var rekstur á sumarbúðum sl. vor
á Reykjum f Hrútafirði ásamt
Ungmennasambandi V-Húnvetn-
inga og Héraðssambandi
Strandamanna.
er orðin ein af burðarliðum í frjálsí-
þróttaliði USAH þrátt fyrir ungan
aldur. Hefur hún sýnt geysilegar
framfarir í íþrótt sinni sem eru
hlaupagreinar (100 m—1500 m)
og er það fyrst og síðast vegna
þess hve vel hún hefur æft.“ Á
þessu þingi var ennfremur gengið
frá skiptingu á lottótekjum milli
USAH og aðildarfélaga þess og
að sögn formanns USAH, Stefáns
Hafsteinssonar, ríkti fullkomin
samstaða um skiptingu lottótekn-
anna. Nokkrir gestir ávörpuðu
þetta afmælisþing USAH og árn-
uðu Ungmennasambandinu heilla.
Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ,
færði USAH forkunnarfagran bikar
að gjöf frá UMFÍ, sem keppt skal
um á komandi árum.
Mörg verkefni bíða USAH á
þessu ári og ber þar hæst þátttaka
íþróttafólks úr Austur-Húnavatns-
sýslu í landsmóti ungmennafélag-
anna á Húsavík. Stjórn
Ungmennasambands Austur-
Húnvetninga skipa núna: Stefán
Hafsteinsson, formaður, Kristinn
Guðmundsson, Sigurður I. Guð-
mundsson, Þorleifur Ingvarsson
og Gunnar Richardsson.
— Jón Sig.
Það var 30. mars 1912 sem
Ungmennasamband Austur-Hún-
vetninga var formlega stofnað á
Blönduósi. Það voru þeir Jón
Kristófersson á Köldukinn og Níels
Jónsson á Balaskarði sem boðuðu
til undirbúningsfundar að stofnun
USAH, en fyrstu stjórn sambands-
ins skipuðu þeir Jón Pálmason,
Akri, Hafsteinn Pétursson, Gunn-
steinsstöðum og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir, Blönduósi.
Það kom fram í reikningum
USAH að stærsta tekjuöflunin
væri Húnavakan, sem haldin er
árlega. En hagnaður af henni á sl.
ári var um 419 þús. Ennfremur eru
styrkir frá sveitarfélögum, félögum
og fyrirtækjum í Austur-Húna-
vatnssýslu mikilvægir í rekstri
USAH, en alls námu styrkir á sl.
ári 595 þús. kr. Heildarvelta USAH
á sl. ári var 1,3 milljónir kr. Stærsti
útgjaldaliður USAH var rekstur
frjálsíþróttadeildar, en alls fóru í
þann lið 521 þús. kr. Einn er sá
þáttur í starfsemi USAH, sem
merkan má telja og gefur USAH
nokkrar tekjur en það er útgáfa
Húnavökuritsins. Útgáfa þess
hófst árið 1961 og hefur Stefán
Á. Jónsson frá Kagaðarhóli lengst
af verið ritstjóri þess. Á þinginu
var greint frá kjöri íþróttamanns
ársins 1986. Fyrir valinu varð 15
ára frjálsíþróttakona, Steinunn
Snorradóttir frá Blönduósi. í um-
sögn með útnefningu íþrótta-
manns árins 1986 segir: „Steinunn