Morgunblaðið - 14.05.1987, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
61
Eldri kylfingar:
Vormót F.E.K.
haldið í Grindavík ’
Samvinnuferðir Landsýns stiðja 1. deildina:
Hægt að auka veg
knattspyrnunnar
• Jóhann Magnússon hinn efni-
legi bakvörður IBK mun ekki leika
með auglýsingu frá SL í sumar.
- segir Helgi Jóhannsson forstjóri Samvinnuferða Landsýn
HVAÐ er það sem fœr fyrirtœki
til að eyða á þriðju milljón króna
f fyrstu deildina f knattspyrnu?
Margir hafa velt þessari spurn-
ingu fyrir sór og til að forvitnast
nánar um ástæður þess að ís-
landsmótið, 1. deild, kallast f
sumar SL-mótið 1. deild fórum
við á fund Helga Jóhannssonar
forstjóra Samvinnuferða Land-
sýn.
„Við fórum aö skoða þessi mál
í heild sinni eftir að við stofnuðum
íþróttaráð fyrir nokkru. Fram að
þeim tíma hafði alltaf komið upp
visst vandamál hjá okkur þegar
íþróttahópar, sem skipta mikið við
okkur, komu og vildu fara eitthvað
Maradona á flakk?
DIEGO Maradona sagði í samtali
við blað í Napolí f gær að hann
vildi leika með þremur stórliðum
í Evrópu áður en hann færi aftur
tii Argentínu.
„Ég vil leika eitt ár með Real
Madrid, eitt með Tottenham og
eitt með Barcelona og Ijúka síðan
ferlinum með Boca Juniors," sagði
snillingurinn.
Maradona lék fyrst með Argent-
inos Juniors, en varð síðan meist-
ari meö Boca Juniors 1981. Þaðan
lá leiðin til Barcelona, en samstarf-
ið var stirt, og því fór hann til
Napolí 1983, þrátt fyrir að liðið
ætti í vandræðum. „Þeir sögðu
mér að með mig í liðinu myndu
þeir vinna allt og ég hef ekki vald-
ið þeim vonbrigðum," sagði
Maradona, en Napolí varð Ítalíu-
meistari um helgina sem kunnugt
er.
Samningur Maradona við Napolí
rennur út eftir tvö ár, en félagið
hefur þegar boðið honum fram-
lengingu.
Sund:
Öldungamót
Á SUNNUDAGINN stendur sund-
deild KR fyrír sundmóti, sem
eingöngu er fyrír 25 ára og eldri.
Þetta er fyrsta mót sinnar teg-
undar og er haldið til að hvetja
almenning til enn meirí þátttöku
í sundi.
Keppt verður í 50 m skriðsundi
og 50 m bringusundi í sex aldurs-
flokkum karla og kvenna, 25-29
ára, 30-34 ára, 35-39 ára, 40-44
ára, 45-49 ára og 50 ára og eldri.
Auk þess keppa KR og Ármann t
sundknattleik.
Keppnin hefst á sunnudaginn
klukkan 14 í Sundhöll Reykjavíkur,
en upphitun byrjar klukkan 13.
Þátttöku skal tilkynna til Alberts
(s. 14914) eða Axels (s. 16409).
erlendist til að taka þátt í mótum.
Með stofnum íþróttaráðsins söfn-
uðum við upplýsingum á einn stað
og nú er þetta allt miklu auðveld-
ara en áður og ekkert vandamál.
í framhaldi af stofnun íþrótta-
ráðsins fékk ég þá hugmynd að
rétt væri að styrkja knattspyrnuna
markvisst en ekki eins og áður,
með nokkurs konar happa og
glappa aðferð. íþróttahreyfingunni
hefur lítið verið sinnt og ef það
hefur verið gert þá hefur það verið
mjög ómarkvisst. Þessu vildum við
breyta og útkoman varð að við
styrkjum 1. deildina í ár.
Ég er sannfærður um að hægt
er að auka veg knattspyrnunnar
hér heima mikið og með þessu
viljum við leggja okkar að mörkum
til þess aö svo verði. Þetta er auð-
vitað gert í samráði við liðin sem
leika í 1. deild og KSl og með það
fyrir augum að samningurinn kæmi
félögunum til góða. Við ætlum að
auglýsa leikina vel í fjölmiðlum og
reyna að stuðla þannig að aukinni
aðsókn."
- Þetta er aðeins eins árs samn-
ingur hjá ykkur?
„Já, og án allra skuldbindinga.
Ég held að með þessu hafi verið
stigið skref í rétta átt. Þetta er
ekki bara peningapakki heldur
ætlum við líka að gera gangskör í
því aö auka áhugann á knattspyrn-
unni. íslendingar eru mjög kröfu-
harðir og fara jafnvel í fýlu þegar
ef við vinnum ekki Frakka og Sov-
étmenn. Ef við ætlum að ná langt
þá verða leikmenn að fá einhverja
umbun fyrir erfiði sitt og með þess-
um samningi er stigið skref í þá átt.
Það er óhemju mikið starf sem
forráöamenn knattspyrnufélagana
vinna í sjálfboðavinnu og þeir eru
betlandi, eða svo gott sem, út um
allan bæ. Ég hef þá trú að eftir
nokkur ár verði mikið af fyrirtækj-
um sem hafa áhuga á að stiðja við
bakið á deildinni með svipuðum
hætti og við gerum í ár og þá er
markmiði okkar náð.
Við riðum á vaðið og ég er
ánægður með að hafa átt hlut að
máli við að ýta skútunni á flot. Ég
er sannfærður um að eftir svona
3-5 ár verður þessi pakki orðin svo
dýr að við hefðum ekki efni á að
vera með og því er gott að vera
fyrstur. Þetta kostar að vísu drjúg-
• Helgi er Keflvíkingur en langar dálftið til að halda með Fram.
Hann telur að eftir nokkur ár sláist fyrirtæki um að fá að auglýsa 1.
deildina i knattspyrnu.
an pening fyrir okkur en ég vil taka
það skýrt fram að ég tel þetta
enga ölmusu af okkar hálfu.
Þó svo við séum ekki með Rim-
ini eða Rhodos auglýsingar á öllum
leikjum þá er óg sannfæröur um
að þetta hefur ákveðið auglýsinga-
gildi fyrir okkur og auövitaö
hagnast liðin líka á þessu. Við aug-
lýstum til dæmis hjá ÍBK en erum
nú hættir því og auglýsum ekki á
búningum félga í ár. Keflvíkingar
fá örugglega meira út úr þessum
samningi en þeim gamla auk þess
sem þeir geta nú fengið pening
fyrir auglýsingu á búning sinn að
auki."
- Finnst þér það rétt að „selja“
íslandsmótið í 1. deild svona?
„Ég held það sé ekkert nei-
kvætt við það þó mótið verði kallað
SL-mótið 1. deild í ár. Næsta ár
koma einhverjir aðrir og síðan koll
af kolli. Við skoðuðum aðeins
hvernig þetta hefur verð í Englandi
undanfarin ár og þar hefur þetta
gefist vel. Þó svo mótið heiti SL-
mótið núna þá vita allir að þetta
er íslandsmótið og því gleyma
menn ekki. Þetta vegur mikið fyrir
þá sem styrkja mótið hverju sinni
og ég held að knattspyrnuhreyf-
ingin eigi mikla tekjumöguleika
með því að gera þetta svona. Ég
held að þetta só bara jákvætt.
Það hefur gengið vel hjá Sam-
vinnuferðum Landsýn og það eru
margir sem eiga hlut í fyrirtækinu,
ábyggilega margir leikmenn í 1.
deildinni líka, og íþróttahópar
skipta mikið við okkur. Við viljum
með þessu sýna að samskipti okk-
ar við íþróttahreyfinguna er ekki
einhliða. Annað sem réði tölverðu
um að við tókum þátt í þessu var
að við vildum reyna að hrista okk-
ur út úr því takmarkaða sviði sem
við erum á, að sjá um flutning á
fólki. Þetta gefur Íífinu lit og kridd-
ar tilveruna dálítið."
- Að tokum. Fylgist þú með
knattspyrnu?
„Já, það geri éa. Ég er hálfgerður
„íþróttaídjót". Ég held með Keflvík-
ingum enda er óg fæddur og
uppalinn þar og lék með jiðinu al-
veg upp í meistaraflokk. Ég á þrjá
stráka sem allir eru í Fram og ég
held ég myndi halda með Fram
ef ég gæti losnað við ÍBK!,“ sagði
forstjóri Samvinnuferða Landsýn
að lokum.
Knattspyrna:
Fram semur vid
IBM og Adidas
Knattspyrnudeild Fram hefur
endurnýjað samningana við IBM
og Adidas. Þetta er sjöunda áríð
f röð, sem allir knattspymumenn
Fram leika í Adidas-búningum,
en undanfarin þrjú ár hefur
meistara- og 1. flokkur deildar-
innar leikið með IBM-auglýsingu.
- Nú munu hins vegar allir flokkar
leíka í eins búningum með eins
auglýsingu. Á myndinni eru Hall-
dór B. Jónsson, formaður delldar-
innar, og Gunnar M. Hansson,
forstjórí IBM á islandi ásamt ung-
um leikmönnum í nýju búningun-
um.
NÚ ÞEGAR sumarflatir hafa verið
teknar í notkun á golfvöllunum,
hvanngrænar á að Ifta, hefst
keppnistfmabillð hjá kylfingum.
Landssamtök eldri kylfinga, þar
sem eru karlar 55 ára og eldri
og konur yfir fimmtugt, hafa gefið
út myndaríega kappleikjaskrá,
þar sem tilgreindar eru 17 opnar
keppnir fyrir þennan aldursflokk
f sumar. Sú fyrsta verður á golf-
vellinum við Grindavfk næstkom-
andi laugardag, 16. maf, og
verður ræst út á milli kl. 9 og 12.
Þetta verður 18 holu höggleikur
og keppt bæði með og án forgjaf-
ar.
Á hverju ári bætast góðir liðs-
menn í flokk eldri kylfinga og hefur
þrjú undanfarin ár verið valið í
landslið og hefur verið tekið þátt
í Evrópumeistaramóti kylfinga, 55
ára og eldri, fyrst í Luxemborg,
síðan í Portúgal og í fyrra í Sviss.
í ágúst í sumar fer þetta mót fram
í Stokkhólmi. Þangað munu vænt-
anlega fara tvær 6 manna sveitir;
keppir önnur án forgjafar, en hin
með. í fyrra tókst að sigra Hollend-
inga og Belga og stefnt er að því
að sterkari sveitir geti keppt í
Stokkhólmi.
Nú hefur einnig verið komið á
árlegri keppni eldri kylfinga, þar
sem Bandaríkin eru annarsvegar
og Evrópa hinsvegar. Stefnt er að
því að fjögurra manna sveit fari
héðan síðla júlímánaðar, en þessi
keppni mun fara fram í Deauville
í norðvestur Frakklandi. Þeir sem
þangað fara verða að hafa 14 eða
lægra í forgjöf og sama gildir um
A-sveitina, sem keppir í Stokk-
hólmi, en í B-sveitinni verða menn
að hafa 20 og þar undir. íslands-
mót eldri kylfinga verður haldið á
Hólmsvelli í Leiru 17,—19. júlí og
verður án efa hart barist þar. Nú-
verandi Islandsmeistari er Þor-
björn Kjærbo, sem jafnframt er
eini meistaraflokksmaðurinn í röð-
um eldri kylfinga.