Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Bros á vör
Það er í rauninni alveg stórfurðu-
legt hversu þjóðin hjarir með
allar þessar hörmungar inná stofu-
gólfi hvert kvöld; logandi fólk,
sundurtætt og -skotið, dagleg sjón á
skerminum og stöðugar frásagnir í
útvarpinu af náttúruhamförum og
voðaverkum sálsjúkra ofbeldis-
manna. Mikil mildi að ekki drýpur
blóð af ljósvakanum því þá drukkn-
aði þjóðin. En stöku sinnum heim-
sækja ljósvakamiðlar jákvæða
einstaklinga er bera með sér yl lífsins
og þá þorna tárin í táradalnum og
harmagrátur hljóðnar stundarkom.
Hvern dag
Ég gleðst hvem dag . . . nefndist
mánudagsþáttur ríkissjónvarpsins,
þar sem lýst var ævi og starfi Jóns
E. Guðmundssonar myndlistarmanns,
kennara og brautryðjanda í íslensku
brúðuleikhúsi. Hinn góðkunni sjón-
varpsmaður, Tage Ammendmp,
stjómaði þættinum og fórst vel úr
hendi þrátt fyrir að úrvinnslan hafi
verið ósköp hefðbundin, rabb við sam-
ferðarmenn Jóns rofíð af rabbi Jóns
sjálfs og svo voru myndverk Jóns
fílmuð í krók og kring. En Tage
Ammendrup er býsna næmur kvik-
myndagerðarmaður og fannst mér
persónulega hann ná að lýsa inní hinn
sólbjarta heim Jóns E. Guðmundsson-
ar.
Nú er tíska að hæla í bak og fyrir
kvikmyndagerðarmönnum er kunna
að skjóta frumlega með myndavél-
inni, en þaulreyndir þáttastjórar
ríkisfjölmiðlanna, er kunna lítt að
auglýsa eigin ágæti, hverfa í skugg-
ann. Samt eru þessir menn oft
næmari á hin fíngerðari blæbrigði
hins hversdagslega mannlífs en
tæknimeistaramir. Þannig virðist líf
Jóns E. Guðmundssonar býsna hvers-
dagslegt við fyrstu sýn en Jón hefír
lengst af fengist við bamakennslu
og svo hefír hann sýnt bömum brúðu-
leik og málað ljúfar myndir í svo
hefðbundnum stíl að ég efast um að
þær kæmust inní hin helgu vé gallerí-
anna. Sn máski rata hinar sérstæðu
tréskurðarmyndir gegnum nálaraug-
að. Til hvers að fílma slíkan mann,
sem nýtur ekki einu sinni heiðurs-
launa listamanna? Svarið var að fínna
I hinni nærfæmu myndræmu Tage
Ammendrup, þar sem áhorfendur
komust nálægt hinum ljúfa og bjart-
sýna manni, Jóni E. Guðmundssyni,
er smíðar brúður sem eru einstakar
í henni veröld og miðlar bömum af
lífsgleðinni í ómerktum bílskúr útá
Granda, manni sem hefir ferðast tíu
sumur um landið okkar, ekki í þeim
tilgangi að græða á sveitamönnum,
heldur til að gleðja bömin, ekki síður
en hina fullorðnu, og svo hélt Jón smá
brúðugerðamámskeið að sýningar-
lokum. Slíkt afrek á að launa með
heiðurslaunum listamanna því hér er
gefíð af hjartans auði og einskis kraf-
ist að launum nema ástar á brúðuleik.
VirÖingarleysi
Fá annars listamenn er skapa lista-
verk handa blessuðum bömunum
nokkumtíman æðstu viðurkenningu,
eða hafa Astrid Lindgren eða Thor-
bjöm Egner verið nefnd til Nóbels-
verðlauna? Nei, það þykir víst ekki
nógu fínt að skapa listaverk handa
bömum, hvað þá að skapa listaverk
með bömunum einsog Jón E. Guð-
mundsson hefír gert, og samt kann
sú sköpun að skipta sköpum í lífí
bams. Hér koma í hugann ummæli
Ingólfs Ingólfssonar smíðakennslu-
stjóra Kennaraháskóla íslands er
sagði mér nýverið frá því að Japanir
hefðu aukið mjög verkmenntakennslu
við japanska grunnskóla með þeim
árangri að mjög hefði dregið úr sjálfs-
morðsfaraldri japanskra grunnskóla-
nema, og það sem meira er, að í
kjölfar margefldrar handmennta-
kennslu stórbatnaði námsárangur
nemenda. Já, Japanir vita sko hvað
þeir syngja, og því ættu menn að
hafa vit á að efla hér og styrkja hvers-
kyns handmenntakennslu, en á þessu
sviði er Jón E. Guðmundsson einn
af brautryðjendunum.^
Ólafur M.
Jóhannesson
Gamanmyndaflokkurinn Hver á að ráða er á dagskrá
sjónvarps í kvöld.
Ríkissjónvarpið:
Hver á að ráða?
Níundi þáttur
1 Q30 bandaríska
1 gamanmynda-
flokksins Hver á að ráða
er á dagskrá sjónvarps í
kvöld. Fjallað er um ein-
stæðan föður sem vinnur
eldhússtörfín fyrir önnum
kafna móður, og gengur á
ýmsu á því heimili. Með
aðalhlutverk fara Tony
Danza, Judit Light og Kat-
herine Helmond.
Stöð 2:
Allt
í gamni
■^■H Allt í gamni
OA20 er á dagskrá
stöðvar 2 í
kvöld. Þá munu þeir Laddi
og Júlíus Brjánsson taka á
móti gestum og spjalla við
þá. Gestir þeirra að þessu
sinni verða eftirhermumar
Jörundur Guðmundsson og
Jóhannes Kristjánsson. I
þættinum munu þeir leika
listir sínar og herma eftir
góðkunnum íslendingum.
Magnús Kjartansson mun
sjá um tónlistina að venju.
Allt í gamni, þáttur þeirra Júlíusar Brjánssonar og
Ladda er á dagskrá stöðvar 2 í kvöld.
UTVARP
©
MIÐVIKUDAGUR
20.maí
6.45 Veðuiiregnir. Bæn.
7.00 Fréttir
7.03 Morgunvaktin. Jón Bald-
vin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagöar kl. 7.30 og 9.00
og veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Fréttir
á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Ottó nashyrningur"
eftir Ole Lund Kirkegárd.
Valdís Óskardóttir les þýð-
ingu sina (3).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Óskastundin
Umsjón: Helga Þ. Step-
hensen
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Islenskt mál.
Endurtekinn þáttur frá laug-
ardegi sem Ásgeir Blöndal
Magnússon flytur.
11.20 Morguntónleikar.
12.10 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Börn
og skóli
Umsjón: Sverrir Guðjóns-
son.
14.00 Miödegissagan: „Fall-
andi gengi" eftir Erich Maria
Remarque. Andrés Krist-
jánsson þýddi. Hjörtur
Pálsson les (20).
14.30 Segðu mér að sunnan
Ellý Vilhjálmsdóttir velur og
kynnir lög af suörænum
slóðum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Frá Austurlandi. Umsjón:
Inga Rósa Þóröardóttir.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpiö
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síödegistónleikar.
17.40 Torgið
Umsjón: Steinunn Helga
Lárusdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 í garöinum
með Hafsteini Hafliðasyni.
(Þátturinn verður endurtek-
inn nk. laugardag kl. 9.15)
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar '
Fjölmiðlarabb
Gunnar Karlsson flytur.
19.45 Tónlistarkvöld Rikisút-
varpsins
I. Hljóðritun frá tónleikum
Kvartetts Síbelíusar-aka-
demiunnar i Norræna
húsinu 5. apríl sl.:
Kynnir: Sigurður Einarsson.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
20. maí
18.30 Úr myndabókinni —
Endursýndur þáttur frá 17.
maí. Umsjón: Agnes Jo-
hansen.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Hver á að ráða? (Who’s
the Boss?) — Níundi þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur um einstæðan föður
sem vinnur eldhússtörfin.
fyrir önnum kafna móður.
Aðalhlutverk: Tony Danza,
Judith Light og Katherine
Helmond. Þýöandi Vrr Bert-
elsdóttir.
20.00 Fréttir óg veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Spurt úr spjörunum —
Fimmtándi þáttur. Spyrlar:
Ómar Ragnarsson/Kjartan
Bjargmundsson. Dómari:
Baldur Hermannsson.
Stjórn upptöku: Ásthildur
Kjartansdóttir.
21.10 Kane og Abel
Fimmti þáttur. Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur í sjö
þáttum geröur eftir skáld-
sögu Jeffrey Archers.
Aðalhlutverk. Peter Strauss
og Sam Neill. Þýðandi Jón
O. Edwald.
22.00 Sjötta skilningarvitið
s/h.
3. Hugboð. Endursýndur
þáttur frá árinu 1975.
Rætt er við Jakob Jakobsson
fiskifræöing, Stefán Stef-
ánsson skipstjóra, Guðjón
Ármann Eyjólfsson kenn-
ara, Erlend Haraldsson
sálfræðing og Sigurjón
Björnsson prófessor. Um-
sjónarmaður Jökull Jakobs-
son. Stjórn upptöku Rúnar
Gunnarsson.
23.50 Fréttir í dagskrárlok
(í
!)
STOÐ-2
MIÐVIKUDAGUR
20. maí
i 17.00 3 konur (3 Women).
Athyglisverð og frumleg,
bandarísk mynd frá árinu
1977. Leikstjóri er Robert
Altman og með aöalhlut-
verkin fara Sissy Spacek,
Shelley Duvall og Janice
Rule. Sérkennileg, ung kona
fær vinnu á heimili fyrir aldr-
aða. Hún myndar fljótlega
náið samband við sam-
starfskonu sína sem lifir eftir
forskriftum kvennablaða.
Inn í myndina bætist dular-
full listakona og mynda
þessar þrjár konur óvenju-
leg tengsl sín á milli.
19.05 Spæjarinn. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Viðskipti.
(þessum viðskipta- og efna-
hagsþætti er víða komið við
í athafnalífi landsmanna.
Stjórnandi er Sighvatur
Blöndahl.
20.20 Allt í ganni.
Háalvarlegur rabbþáttur
með laufléttu ívafi. Þórhallur
Sigurðsson (Laddi) og Júlíus
Brjánsson taka á móti gest-
um, sem leika við hvern sinn
fingur svo og aðra líkams-
hluta.
21.00 Matreiðsla. Ari Garðar
Georgsson kennir áhorfend-
um Stöðvar 2 matargerð.
i 21.25 Listræningjarnir (Tre-
asure Hunt).
ítalskur spennumyndaflokk-
ur í 6 þáttum. 4. þáttur.
Listaverkum er stolið víðs
vegar um Ítalíu.
i 22.25 Lúxuslíf (Lifestyles of
the Rich and Éamous).
Ný bandarísk sjónvarps-
þáttaröð. Eins og nafnið
bendir til fjalla þættir þessir
um ríkt og frægt fólk. í þátt-
unum er að finna viðtöl og
frásagnir af því fólki sem oft
má lesa um á siöum slúöur-
dálkanna.
5 23.20 Flækingurinn frá há-
sléttunum (High Plains
Drifter).
Bandarísk kvikmynd frá
1973 með Clint Eastwood
og Verna Bloom í aöalhlut-
verkum. Leikstjóri er Clint
Eastwood. Útlagar, sem eru
nýsloppnir úr fangelsi, herja
á smábæ og skelfa íbúana.
Ókunnur og heldur undar-
legur flækingur kemur
ríðandi á hesti sinum inn i
bæinn og ráða íbúarnir
hann til að hafa hemil á
hefndarþyrstum útlögum.
01.00 Dagskrárlok.
22.20 Frá útlöndum
Þáttur um erlend málefni I
umsjá Bjarna Sigtryggsson-
ar.
23.10 Djassþáttur
Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
&
MIÐVIKUDAGUR
20. maí
00.10 Næturútvarp.
Gunnlaugur Sigfússon
stendur vaktina.
6.00 í bítið. Erla B. Skúladótt-
ir léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veöri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist I
morgunsáriö.
9.05 Morgunþáttur I umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Meðal efnis: Plötupotturinn,
gestaplötusnúður og mið-
vikudagsgetraun.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.05 Hringiöan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00Kvöldfréttir.
19.30 íþróttarásin. Ingólfur
Hannesson og Samúel Örn
Erlingsson iþróttafrétta-
menn taka á rás.
20.30 I gestastofu. Elín Þóra
Friðfinnsdóttir og Sigríður
Halldórsdóttir taka á móti
gestum.
22.05 Perlur. Jónatan Garð-
arsson kynnir sígilda
dægurtónlit. (Þátturinn
verður endurtekinn nk.
sunnudagsmorgun kl.
9.03).
23.00 Við rúmstokkinn. Guð-
rún Gunnarsdóttir býr fólk
undir svefninn með tali og
tónum.
00.10 Næturútvarp. Hjörtur
Svavarsson stendur vaktina
til morguns.
02.00 Nú er lag. Gunnar Sal-
varsson kynnir gömul og ný
úrvalslög. (Endurtekinn
þáttur frá gærdegi.)
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Fjallaö um sveitarstjornar-
mál og önnur stjórnmál.
Umsjón Erna Indriöadóttir.
MIÐVIKUDAGUR
20. maí
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Opin lína til
hlustenda og sitthvað fleira.
Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.00-14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn. Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með þvi sem helst er í
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk í bland við létta tón-
list. Fréttir kl. 13.00 og
14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar siðdegispoppið og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavík siðdeg-
is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaði
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á miövikudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Ljúf
tónlist og fréttatengt efni
Dagskrá í umsjá Arnars
Páls Haukssonar frétta
manns.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Þorsteinn Ás-
geirsson. Tónlist og upplýs-
ingar um veður og
flugsamgöngur. Fréttir kl.
03.00.
FM 102,9
MIÐVIKUDAGUR
20. maí
8.00 Morgunstund: Guðs
orð og bæn.
8.16 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.