Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
ASÍ, VSÍ og VMS:
Fundur um
endurskoðun
samninga
FORSVARSMENN Alþýðusam-
bands íslands, Vinnuveitendasam-
bands íslands og Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna
funduðu á þríðjudag um endur-
skoðun kjarasamninganna frá því
í desember, í ljósi þeirra launa-
þróunnar, sem átt hefur sér stað
síðan þá. Annar fundur er ákveð-
inn í næstu viku.
Fulltrúar Alþýðusambands fs-
lands fór fram á endurskoðun
samninga eftir að ljóst var að samn-
ingar við opinbera starfsmenn fólu
í sér meiri launabreytingar, en samd-
ist um í desembersamningunum.
Telja þeir að afleiðingar samninga
opinberra starfsmanna verði launa-
skrið á almennum markaði, sem
verði til þess að lægst launuðu hóp-
amir verði skildir eftir. Vilja þeir
því að samningamir frá því í desem-
ber verði endurskoðaðir.
Nýjar reglur um burðarþolsútreikninga:
Höfundamir hækkajarð-
skjálftastaðalinn um 50%
_ __ __ _ nnfímn Tillorvon nímní/v wóA
- segir Þórður Þ. Þorbjarnarson borgarverkfræðingur
„ÉG lít svo á að borgarráð hafi tekið afstöðu til hvernig á að fara mun hafa mikil áhrif á bygginga-
með burðarþolsútreikning mannvirkja i framtíðinni,“ sagði Þórður markaðinn og ljóst að menn verða
Þ. Þorbjarnarson borgarverkfræðingur, en borgarráð hefur sam-
þykkt nýjar reglur um burðarþolsútreikninga í borginni. Reglurnar
eru settar eftir að niðurstaða skýrslu, sem unnin var að tilhlutan
félagsmálaráðherra, sýndi að burðarþol tíu húsa í Reykjavík er ábóta-
vant.
að ætla sér mun lengri bygging- inni
artíma. Tillagan gerir einnig ráð
fyrir að viðkomandi hönnuður beri
ábyrgð á kostnaðinum sem hlýst
af þessu eftirliti, gagnvart borg-
sagði Þórður.
Sovétmenn
eiga sprengi-
efniá
Rjúpnahæð
UM 10 tonn af sprengiefni, í eigu
Sovétmanna, eru geymd á
Rjúpnahæð fyrir ofan Reykjavík.
Efnið á að nota vegna leiðangra
sovéskra vísindamanna, sem fást
við jarðsveiflumælingar hér á
landi. Hluti efnisins er geymdur
f gámum á hæðinni.
Á Rjúpnahæð eru geymslur fyrir
sprengiefni og eiga nokkuð margir
aðilar efni þar, t.d. Orkustofnun,
bæjarfélög, Vegagerð ríkisins, virkj-
anir og ýmsir verktakar, sem á
slíkum efnum þurfa að halda. Lög-
reglan í Reykjavík hefur eftirlit með
að tryggilega sé frá sprengiefnunum
gengið og að þau verði ekki of göm-
ul til notkunar.
Sprengiefnið, sem Sovétmenn
eiga, er í vörslu Orkustofnunar. Stef-
án Sigurmundsson, fulltrúi hjá
Orkustofnun, sagði að undanfarin
sex ár hefðu Sovétmenn notað um
10-15 tonn af sprengiefni á ári við
rannsóknir sínar. „Orkustofnun ber
alfarið ábyrgð á þessu, því stofnunin
hefur yfirumsjón með rannsóknum
erlendra rannsóknarhópa hér,“ sagði
Stefán. „Þessir hópar taka gjaman
með sér sprengiefni hingað og það
er geymt þar til á því þarf að halda.
Orkustofnun hefur geymt slík efni
fyrir fleiri hópa en Sovétmenn, til
dæmis Þjóðveija. Geymslur Orku-
stofnunar em fullar nú svo hluti
efnisins er geymdur í gámum fyrir
utan, en það er mjög tryggilega frá
þeim gengið og þeir eru njörvaðir
niður."
«Ég er nokkuð ánægður með
þessa niðurstöðu. Reglumar byggja
á samsuðu úr tillögum meiri- og
minnihluta sem fram komu á
síðasta borgarstjómarfundi," sagði
Þórður. „Ég hef ekki hugsað mér
að gefa upp hvaða hús er um að
ræða eða hveijir hönnuðu þau. Ég
tel mig bundinn trúnaðarleynd
gagnvart félagsmálaráðherra. Ef
menn era á þeim buxunum að fella
þunga áfellisdóma, þá vil ég benda
á að sá staðall fyrir jarðskjálftaálag
á byggingar skiptir landinu í þijú
jarðskjálftasvæði og álagsmismun-
ur milli svæða er töluverður.
Samkvæmt staðlinum era
Reykjavík og Kópavogur norðan
Kópavogslækjar á áhættusvæði tvö.
Það sem skýrsluhöfundar gera er
að búa til milliflokk fyrir Reykjavík
og hækka þannig reikningslega
jarðskjálftaáraun um 50% frá því
sem staðallinn gefur til kynna að
hún eigi að vera. Það er hins vegar
ekki hægt að áfellast menn fyrir
að nota þann staðal sem þeir era
með í höndunum. Þetta er atriði sem
ég vil meðal annars fá álit Verk-
fræðistofnunar Háskólans á.“
Þórður sagði að verkfræðistofn-
unin væri að vinna úr niðurstöðum
mælinga eftir jarðskjálftana sem
urðu nýlega. Á Hellu á Rangárvöll-
um þar sem þyngdarhröðun
mældist hvað mest var hún um 6%,
en á mælum í Reykjavík mældist
engin hröðun í þessu tilviki.
„Þáttur starfsmanna bygginga-
fulltrúa í hönnun þessara húsa er
auðvitað mjög slæmur, en við meg-
um ekki gleyma því að þeir era
ekki einu hönnuðumir sem hlut eiga
að máli. Starfsmenn byggingarfull-
trúa hafa leyfí til að taka að sér
hönnun, en í þessum tilvikum þá
hefur ekkert leyfí verið veitt," sagði
Þórður.
Hann benti á að tillögur borgar-
ráðs fælu í sér róttækar breytingar,
en samkvæmt þeim verða hönnuðir
að skila inn útreikningum á burðar-
þoli húsa með teikningum, sem
óháður aðili fer yfír. „Þetta inngrip
Röng túlkun á niður-
stöðum skýrslunnar
- segir Gunnar Sigurðsson byggingafulltrúi
„ÉG var að mlnnsta kosti ekki rekinn,“ sagði Gunnar Sigurðsson,
byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar, þegar hann var spurður álits
á gagnrýni borgarráðs á starfsháttum embættisins. Borgarráð sam-
þykkti á þriðjudag nýjar reglur um eftirlit með húsbyggingum eftir
að birt var niðurstaða skýrslu um burðarþol tíu húsa í Reylgavík.
„Ég tel gæta nokkurrar rang-
túlkunar á niðurstöðum skýrslunnar
sem félagsmálaráðuneytið lét gera
og hef ákveðna fyrirvara þar á,“
sagði Gunnar. „Eg vil gagnrýna
þær reikningsforsendur sem lagðar
era til grandvallar og að þama er
einungis um niðurstöður að ræða
og ekki hægt að sannreyna þær.
Fyrst og fremst gagnrýni ég 50%
hækkun á reikningsstuðli fyrir jarð-
skjálftaþol húsa, en Reykjavík hefur
hingað til flokkast sem miðsvæði
hvað jarðskjálftahættu varðar."
Gunnar sagði að embætti bygginga-
fulltrúa hefði bent á að styrkja
þyrfti Foldaskóla og að það verk
hafí verið unnið í samvinnu við
Verkfræðistofnun Háskóla íslands.
„Það er of mikið sagt að starfs-
menn embættisins hafí verið í vinnu
hjá byggingarmeisturam í bænum.
Eins og fram hefur komið hjá borg-
arverkfræðingi þá er það hans álit
að byggingartæknifræðingar og
verkfræðingar eigi að fá að taka
að sér slík verkefni og því er ég
sammála,“ sagði Gunnar. „Það er
opinbert leyndarmál að launin eru
lág en við þurfum að fá nokkuð
góða menn í eftirlitið. Það fæst
enginn maður til að vinna þessa
vinnu nema með aukavinnu. Hins
vegar verður að vera hóf á öllu
þegar leyfí er gefíð, en slík leyfí
voru ekki fyrir hendi í þessum tilvik-
um. Ég vil engu spá um hvort tekið
verði fyrir aukavinnuna en ég kvíði
því að erfítt verði að fá menn til
starfa ef það verður gert. Það verð-
ur höfuðverkur eftirmanns míns.“
Herdís Þorvaldsdóttir formaður Lífs og lands afhendir Davíð
Á. Gunnarssyni 200 tijáplöntur.
Dalbraut 12:
Ný unglinga-
geðdefld opnuð
OPNUÐ var í gær formlega ný
unglingageðdeild Landsspítal-
ans við Dalbraut 12. Fjöldi
gesta var við opnunina og
þeirra á meðal forseti íslands,
frú Vigdls Finnbogadóttir
ásamt fjölda gesta.
Davíð Á. Gunnarsson forstjóri
Ríkisspítalanna bauð gesti vel-
komna og lýsti byggingunni og
byggingarsögu. Ragnhildur
Helgadóttir heilbrigðisráðherra
flutti því næst ávarp og opnaði
unglingadeildina formlega. Amór
Pálsson umdæmisstjóri Kiwanis-
hreyfingarinnar afhenti heilbrigð-
isráðherra síðan framlag
hreyfíngarinnar til byggingarinn-
ar, 5,5 milljónir, sem fór í innrétt-
ingar og búnað. Tómas Helgason
prófessor rakti stuttlega sögu
geðlækninga á íslandi og sleit
Davíð Á. Gunnarsson því næst
athöfninni. Herdís Þorvaldsdóttir
afhenti fyrir hönd samtakanna
Líf og land 200 tijáplöntur, sem
plantað hafði verið fyrir utan geð-
deildina.
Það var fyrir u.þ.b. einu og
hálfu ári að borgarstjórinn í
Reykjavík og heilbrigðisráðherra
náðu samkomulagi um eiganda-
skipti á jörðinni Ulfarsá, sem var
í eigu ríkisins og húsnæðinu í
Dalbraut, sem var í eigu
Reykjavíkurborgar. í húsnæðinu
er fyrir bamageðdeild, en báðar
era þær hluti geðdeildar Lands-
spítalans.
Að sögn Davíðs Á. Gunnarsson-
ar, er hér um 600 fermetra hús
að ræða og pláss fyrir um 6 til 8
unglinga. Starfsmenn deildarinn-
ar verða 17; læknar, hjúkruna-
rfræðingar og annað starfsfólk.
15. júní mun fyrsti sjúklingurinn
leggjast inn og um svipað leyti
verður opnuð göngudeild. Sjúkra-
þjálfunar- og iðjuþjálfunardeild
verður opnuð síðar. „Það er ljóst
að þörfín á þessari deild er mikil,
enda er henni ekki síst ætlað að
þjóna unglingum með eiturlyfja-
vandamál," sagði Davíð Á.
Gunnarsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Mikið fjölmenni var viðstatt opnun unglingageðdeildarinnar.
Fremst á myndinni eru (talið frá vinstrí)Tómas Helgason prófess-
or, Ragnhildur Helgadóttir heilbrígðisráðherra, Fríðrik Sophus-
son formaður stjómar Ríkisspítalanna, Vigdís Finnbogadóttir
Forseti íslands, Davíð Á. Gunnarsson forstjóri Rikisspítalanna
og Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra.
Amór Pálsson afhendir Ragnhildi Helgadóttur heilbrígðisráð-
herra framlag Kiwanishreyfingarínnar.
Húsnæði hinnar nýju unglingadeildar að Dalbraut 12.