Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 80
STERKTKORT
tfgtiiiMftfrUÞ
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
VERÐ f LAUSASÖLU 50 KR.
Islenzku-
prófin ekki
endurmetin
STARFSMENN menntamála-
f-^áðuneytis hafa undirbúið nei-
kvætt svar menntamálaráðherra
við erindi hóps fslenskukennara
varðandi það að úrlausnir á sam-
ræmda prófinu í íslensku í vor
verði endurmetnar.
Kennaramir gengn á fund Sverris
Hermannssonar, menntamálaráð-
herra, á þriðjudag. Hrólfur Kjartans-
son í menntamálaráðuneytinu sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að neitun ráðherra byggðist
m.a. á því, að ekki sé full ástæða til
þess að endurmeta prófin og svo er
búið að slíta mörgum skólum.
Sjá viðtöl við kennara á bls.
40-42.
Aðalfundur SÍF:
Verðjöfnun-
arsjóður ver$i
lagður niður
AÐALFUNDUR SÍF, sem hald-
inn var í gær, samþykkti meðal
annars að beina því til næstu
ríkissfjórnar, að Verðjöfnunar-
sjóður fiskiðnaðarins verði
Iagður niður. Ennfremur var því
beint til stjórnar SÍF, að leitað
verði samstöðu meðal hagsmuna-
aðila í sjávarútvegi um mótun
fiskveiðistefnu eftir að núver-
andi lög falla úr gildi.
Einnig var samþykkt að vísa því
til stjómar, að hún kannaði áhuga
meðal annarra hagsmunasamtaka
innan sjávarútvegsins á stofnun
samtaka atvinnurekenda í sjávarút-
vegi. Sú hugmynd kom meðal
annars fram hjá Friðrik Pálssyni,
forstjóra SH, á aðalfundi SH í
síðustu viku.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, varaði í ræðu
sinni við auknum útflutningi á
ferskum fiski, sem hann sagði
stuðla að bættri stöðu keppinauta
okkar um markaði fyrir unninn fisk.
Hann sagði ennfremur að þessi út-
flutningur væri farin að skerða
atvinnu í ýmsum sjávarplássum.
Siá nánari frásagnir af fundi
SIF á bls. 77
Morgunblaðið/Júlíus
Laust fyrir hálfellefu í gærkveldi, þegar formlegum stjórnarmyndunarviðræðum hafði verið slitið. Frá vinstri: Kristín Halldórsdóttir, þing-
maður Kvennalista, Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokks, Kjartan Jóhannsson, þingmaður alþýðuflokks, Friðrik Sophusson,
varaformaður Sjálfstæðisflokks, Kristín Einarsdóttir, þingmaður Kvennalista og Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks.
Þorsteinn Pálsson sleit formlegum viðræðum í gærkveldi:
Ágreiningnr um lög-
bindingu lægstu launa
Ákvörðun um framhaldið tekin á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokks í dag
UPP úr formlegum stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Kvennalista slitnaði laust eftir kl. 22 i gærkveldi.
Mat Sjálfstæðisflokks og Kvennalista á ástæðum þess að upp úr slitn-
aði er það að ekki hafi náðst samkomulag um lögbindingu launa,
en Alþýðuflokkur telur að ástæðurnar séu víðtækari, þ.e. að ekki
hafi náðst samkomulag um fyrstu aðgerðir. Þingflokkur SjáJfstæðis-
flokksins kemur saman til fundar síðdegis í dag og þar verður
ákvörðun tekin um framhaldið.
Viðræður aðila hófust á nýjan
leik kl. 14 í gær, en áður hafði
Þorsteinn Pálsson gengið á fund frú
Vigdísar Finnbogadóttur, forseta
íslands, og greint henni frá gangi
viðræðnanna. Fundir stóðu svo með
hléum í gær, þar sem fulltrúar hvers
flokks um sig fóru afsíðis og ræddu
málin.
Það var svo um miðjan dag í gær
sem fulltrúar Alþýðuflokks lögðu
fram tillögur um fyrstu aðgerðir
og leiddu þær til þess að vart varð
bjartsýni meðal fulltrúa undir kvöld
í gær. Þorsteinn Pálsson bað þá
fulltrúa Kvennalista að gera upp
hug sinn til ákveðinna atriða, eink-
um og sér í lagi til þess hvort þær
væru reiðubúnar að falla frá kröf-
unni um tafarlausa lögbindingu
lágmarkslauna og gerði hlé á fundi
til kl. 21. Kvennalistakonur komu
síðan tii fundar í gærkveldi með
óbrejrtta afstöðu og er það varð
ljóst, tók Þorsteinn þá ákvörðun að
slíta viðræðunum.
Sjá viðtöl við þau Þorstein
Pálsson, Jón Baldvin Hanni-
balsson og Kristínu Halldórs-
dóttur á bls. 76.
Stykkíshólmur:
Mönnum bjargað frá
köfnun í vélarrúmi
Borgadómur:
Barní dæmdar 5,7
mílljóna kr. bætur
SEX ára gömlu bami voru í Borgardómi á þriðjudag dæmdar
5,7 milljónir f örorku- og miskabætur úr hendi ríkissjóðs, vegna
tjóns sem það beið í fæðingu. Barnið er 100% öryrki og hefur
vitsmunaþroska 2 -4 mánaða gamals barns. Foreldrum barnsins
voru dæmdar samtals 1,5 milljón í bætur vegna miska og fyrir
umonnun.
Forsaga þessa máls er sú, að
kona kom á fæðingardeildina til
fæðingar og var bamið í þver-
stöðu. Vakthafandi læknir
framkvæmdi svokallaða ytri vend-
ingu og var konan klukkustund
síðar tengd sírita, sem skráir
hjartslátt bams og legsamdrætti.
Strimill úr þessum sírita hefur
T hins vegar týnst og ekki fundist,
þ.a. lítil gögn eru til um hjartsiátt
fósturs. Síðan geristþað, að nafla-
strengur fellur fram og óljóst hvað
gerist fram að keisaraskurði 28
mín. síðar. Tveir læknar á fæðing-
ardeildinni héldu því fram, að
hugleiðingar hafí verið um að ná
baminu út með sogklukku, en
sjálfur neitar læknirinn að hafa
reynt slíkt.
í niðurstöðu dómsins segir að
ósannað sé, að allt hafí verið gert,
sem í valdi viðkomandi læknis
stóð til að ná baminu út á sem
skemmstum tíma eftir að nafla-
strengurinn féll fram og óupplýst
sé hvers vegna svo langur tími
leið frá slysinu, þar til konan var
svæfð fýrir keisaraskurð. „Það
verður að ætla að þessi tími kunni
að hafa skipt sköpum um ástand
bamsins og líkur þess til að kom-
ast óskaddað úr fæðingunni. Eins
og málsatvikum er háttað, þykir
sönnunarbyrðin um þessi atriði
hvfla á stefndu."
TVEIMUR rafvirkjum í Stykkis-
hólmi var bjargað úr vélarrúmi
mótorbáts í vikunni. Mennimir
unnu við að hreinsa rafal og
úðuðu leysiefni á spólur og lok
rafalsins. Blásari í vélarhúsinu
var óvirkur og mettaðist loftið
fljótt. Þegar komið var að mönn-
unum var annar þeirra meðvit-
undarlaus, en hinn með lftilli
meðvitund. Þeir vom fluttir á
sjúkrahús en fengu að fara heim
eftir sólarhringsdvöl.
Karl Matthías Helgason rafvirlqa-
nemi var sá sem missti meðvitund
niðri í vélarrúminu. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
hafi farið niður í bátinn um klukkan
fimm á mánudaginn ásamt félaga
sínum og bytjuðu þeir á því að úða
efninu á spólur og lok rafalsins.
Eftir stutta stund fóru þeir upp til
að jafna sig vegna þess að loftið
niðri í vélarrúminu var orðið mjög
mettað. Aður höfðum þeir athugað
hvort ekki væri hægt að setja vélar-
hússblásarann í gang, en svo var
ekki.
„Við fórum svo aftur niður og
byijuðum að hreinsa" sagði Karl.
„Úðarinn var í gangi og smám sam-
an leið ég út af og vissi ekkert af
mér. Ég man ekkert fyrr en ég var
kominn upp á dekk og fólk var að
stumra yfir mér“.
Að sögn Sveins Inga Lýðssonar
lögregluvarðstjóra í Stykkishólmi
voru mennimir mjög hætt komnir.
Hann sagði að það væri bæði tilvilj-
un og snarræði að þakka að þeim
varð bjargað. Rafvirkjamir höfðu
hitt mann sem sendist fyrir verslun
á staðnum og beðið hann að versla
fyrir þá og koma því til þeirra í
bátinn. Hann kom um einum og
hálfum tíma fyrr en hann hafði
gert ráð fyrir og rétti þeim vaming-
inn niður um opið á vélarrúminu.
Annar mannanna tók við því, en
þegar maðurinn hafði yfirgefið bát-
inn áttaði hann sig á því að ekki
var allt með felldu. Hann hitti menn
úr áhöfn Hrímnis frá Stykkishóimi
á bryggjunni og fór að ræða um
þetta við þá. Þeir brugðust snarlega
við og fór einn maður niður í vélar-
rúm bátsins. Þá var annar rafvirkj-
anna orðinn meðvitundarlaus og
hinn rænulítill. Þurfti að sælq'a
annan þeirra langt inn í vélarrúmið
og sagði Sveinn Ingi að björgunar-
maðurinn hefði lagt sig í mikla
hættu við að ná manninum upp.