Morgunblaðið - 07.06.1987, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987
iðkar er, út af fyrir sig, takmark
í sjálfu sér. Takmarkið er maður-
inn og Guð. Viðleitni kirkjunnar
beinist að því að Guð og maðurinn
eigi samleið, eins og Hann ætlast
til og hefur birt sem sinn vilja,
einmitt í þeirri staðreynd sem er
homsteinn kristinnar trúar: Guð
gerðist maður í Kristi."
Eru Guðsþjónustur hluti af
list og menningu þjóðarinnar?
„Já, ég tel það hiklaust. Ég er
nú á því að það megi hnykkja
Engm list
er kirkjunni
óviökomandi
á móti, hvað er list? Veistu um
einhvem sem getur svarað því?
Þetta hugtak er eitt þeirra, sem
felur í sér óræða stærð, sem eng-
inn veit hvað er, en sem við þó
getum mætt sem mjög áhrifamikl-
um og gagntækum veruleika.
Afhveiju gerom við það? Afhveiju
hefur maðurinn þessa þörf og
hvers vegna lifir hann þessa sér-
kennilegu nautn sem hann verður
fyrir þegar hann nýtur listar?
Hann finnur þar, ótvírætt,
ákveðna Iífsfyllingu, bæði þegar
hann skapar og þegar hann nýt-
ur, en sú lífsfylling vísar ævinlega
út fyrir sjálfa sig. Það er alltaf
eitthvað á bak við sem við náum
ekki. Hvað er þetta? Þeirri spum-
ingu get ég ekki velt fyrir mér,
fyrir mitt leyti, án þess að ég sjái
ákveðið samband milli trúar og
listar, hvort sem það samband á
aðeins rætur í sál mannsins, eða
í tilveronni utan mannsins, og þá
í þeim djúpum hennar sem trúin
telur sig vera í tengslum við. Ég
er þeirrar skoðunar að svo sé.
Blanda þó ekki saman trúarlegum
innblæstri eða hughrifum og list-
rænum, þó að ég sjái skyldleika.
Og því miður er hugur mannsins
viðsjálsgripur, hann getur orðið
innblásinn af ljótleika eins og feg-
urð, lygi sem sannleik. í heimi
listarinnar getur orðið sjmdafall,
eins og í heimi trúarinnar.
Þú spyrð um skil milli kirkju-
legrar listar og veraldlegrar. Þau
ero að sjálfsögðu til staðar. Eng-
inn maður er fæddur kristinn og
engin list er fædd kristin. List
verður ekki kirkjulist fyrr en hún
fellur að því munstri sem líf kirkj-
unnar motast af. List getur verið
trúarleg í einhveijum skilningi þó
hún sé ekki kirkjuleg og engin
list er kirkjunni óviðkomandi,
fremur en annað mannlegt. En
kristin Guðsdýrkun hefur ákveð-
inn grunn, viðmiðun og stefnu og
list sem er ætlað að vera þáttur
í tilbeiðslu kristins safnaðar, getur
ekki verið hverskyns listræn við-
leitni. Hún verður að gangast, af
auðmýkt, undir það hlutverk að
biðja, boða, lofa og þakka með
kristinni kirkju. Hún verður að
stilla sína strengi inn á bylgju-
lengd hennar."
Þegar haldnar eru Listahátí-
ðir í Reykjavík fer lítið fyrir
kirkjulist. A hún ekki erindi við
alla, hvenær sem er, eða er
flutningur trúarlegrar listar
bundinn við hátíðir kirkjunnar?
„Trúarleg list á vissulega erindi
hvenær sem er og við hvem sem
er eins og boðskapur kirkjunnar,
og kirkjan heldur ekki hátíðir
afþví að aðrar tíðir séu einskis
varðandi, heldur einmitt afþví að
allir dagar og tíðir ero svo mikil-
vægir. Hún vígir ekki ákveðin hús
afþví að aðrar mannavistir skipti
ekki máli, heldur einmitt til þess
að minna á hve mikilvæg hver
mannleg vist og hvert mannsins
spor er á þessari jörð. En erindi
kirkjunnar á misjaftilega greiðan
aðgang að fólki, eins og við vitum,
en hún heldur sínum dyrom opn-
um fyrir öllum og ekkert sem hún
mikið á þessu með því að segja
að Guðsþjónusta kirkjunnar hafi
verið ein megin uppspretta listar
og menningar í þessu landi.
Það er víst óhætt að segja að
i kirkjunum, aðallega, hafí þjóðin
átt kost á listrænni reynslu. Okk-
ur kann að virðast að það hafi
verið fátæklegt framboð menn-
ingarlegrar listar, en það er þó
staðreynd að munir og prýði
helgra húsa á íslandi, ljósin þar
og söngurinn, gáfu alþýðu manna
það sem hún gat eignast fegurst,
og þar lifði hún áreiðanlega Iist-
ræna fyllingu. Og reyndar ekki
bara í kirkjunum, bókmenntaverk
eins og Passíusálmamir og
Vídalínspostilla veittu auðvitað
fyrst og fremst trúarlega svölun
og uppbyggingu, en jafnframt
listræna."
Tilheyrir trúarleg listsköpun
fortíðinni, eða er hún enn Uf-
andi? Erum við ekki stöðugt
að endurflytja trúarleg verk
frá miðöldum?
„Það er nú svo merkilegt, að
sum mannleg afrek eldast ekki.
Við köllum slík verk sístæð eða
klassisk. Þau siitna ekki. Ein kyn-
slóð af annarri leitar þangað og
kemst í snertingu við innblástur
yfirburðarmanna. Það er mikils-
metið á íslandi að Hallgrímur
skuli vera lesinn á hverri föstu, í
útvarpi og sjónvarpi. An þess að
kunna að meta og njóta göfugra
hugsana og verka frá liðinni tíð,
skapa menn varla nýja og góða
hluti eða merkilega sögu.
Ég veit ekki hvort nútíminn
stendur svo mikið að baki öðrom
tímum á sviði trúarlegrar listar.
Þegar við nefnum nútíma, skulum
við gera okkur grein fyrir því, að
við erom þannig mótuð og gerð,
og ekki síst yngri kynslóðin, að
hinn svonefndi nútími nær yfir
ákaflega stutt skeið. En á síðari
árom, svo ég haldi mig við þau,
hafa orðið til merkileg listaverk,
kristin. Það gildir bæði um bygg-
ingarlist (kirlq'ur), myndlist og
tónlist."
En ef við snúm okkur frá
lifandi trúarlegri Ustsköpun,
langar mig að lokum að spyrja
þig, hvað er „lifandi trú?“
„Ég hef séð nafnið þitt nokkr-
um sinnum, hugsanlega rekist á
eitthvað lesmál tengt því nafni
sem ég hef staldrað við, en sjálf
varstu mér aðeins nafn. Nú situr
þú allt í einu í stól fyrir framan
mig. Ég mæti augum og svip og
tali sem túlkar hugsun og tilfínn-
ingar manns, og uppfrá þessari
stundu ertu mér ekki bara nafn,
eða nafnnúmer, ekki greinahöf-
undur, eða hvað annað ópersónu-
legt. Þú ert mér lifandi persóna.
Lifandi trú er samband við lif-
andi Guð. Hann er ekki nafn,
ekki hugtak. hann er persóna,
hugur sem ég get blandað geði
við og sem ég veit af, virði og tek
tillit til sem raunverolegs föður
og vinar, nær mér en hjartaslögin
mín og jafnframt „yfír og allt um
kring með eilífri blessun sinni."
Viðtal: Súsanna Svavars-
dóttir
Frá Hlíðardalsskóla
Nánari upplýsingar ísímum: 91-13899, 99-3607og
99-3606. Umsóknarfresturertii30.júní. Umsóknir
sendist Hlíðardalsskóla, skólastjóra, 815Þorláks-
höfn.
Skólastjóm.
Hlíðardalsskóli er heimavistarskóli, sem starfrækir
8. og 9. bekk grunnskóla samkvæmt fræðslulög-
gjöf landsins. Auk tilskilinna námsgreina læra
nemendur ýmis hagnýt störf utan húss og innan.
Kristindómurinn er grundvallarhugsjón skólans. Er
því lögð mikil alúð við að „rækta manninn". Skólinn
er staðsettur í sveitinni Ölfus, 45 km frá Reykjavík.
Þar er gott næði til náms.
/1 hveiju ári byijar Rosenthal
framleiðslu á úvali nýira
skrautmuna eftir heimsþekkta
hönnuði. Um leið er eirmig
hætt að framleiða ýmsa
skrautmuni, sem lengi hafa
verið á boðstólum.
Rosenthal hefur gefið okkur
kost á að bjóða viðskipta-
vinum okkar slíka skrautmum,
sem nú er hætt að framleiða,
á lækkuðu verði með allt að
helmingsafslætti.
Næstu vikur munum við bjóða
slfkar vömr í verslun okkar á
meðan birgðir endast.
studio-linie
studiohúsiö
á horni Laugavegs og Snorrabrautar Sími 18400
Harrison Ford í hlutverki sínu í
myndinni „Moskítóströndin".
Moskító-
ströndin
sýnd í Bíó-
borginni
BÍÓBORGIN frumsýnir annan í
hvitasunnu myndina Moskító-
ströndin með Harrison Ford í
aðalhlutverki. Leikstjóri mynd-
arinnar er Peter Weir.
Alli Fox, sem Harrison Ford leik-
ur, er á margan hátt óvenjulegur
maður. Hann er sannfærður um að
það verði styijöld í Bandaríkjunum
og ákveður þess vegna að forða sér
og fjölskyldu sinni. Fjölskyldan
heldur til Moskítóstrandarinnar í
Mið-Ameríku, þar sem þau ætla að
framleiða ís. Éitt fyrsta verk Fox
á þessum nýju slóðum er að kaupa
land þar sem hann ætlar að koma
upp verksmiðju til ísframleiðslunn-
ar. En það kemur margt upp sem
hann gerði ekki ráð fyrir í upphafí
og kemur að því að Fox missir
stjóm á gangi mála, segir í frétt
frá kvikmyndahúsinu.
SUMARLEGTÁ
STÖDVUM ESSO
Nú er hægt að Ijúka undirbúningi
ferðarinnar í rólegheitum á bensínstöðvum
Esso. Þar finnst margt nauðsynlegt í
sumarfríið: íþróttaskór, trimmgallar, stígvól ec)a
regngallar handa krökkunum, veiðistöng
handa mömmu, grill handa pabba
og ... bensín á bílinn.
Líttu inn í leiðinni,
það er margt girnilegt í hillunum
hjá Esso!
Góða ferð!
íþróttaskór frá 350 kr.
Trimmgallar frá1190kr.
(peysa, bolur, buxur)
Stígvél frá 580 kr.
Regngallar frá 944 kr.
Olíufélagiðhf