Morgunblaðið - 07.06.1987, Page 5

Morgunblaðið - 07.06.1987, Page 5
skömmu eftir 1334 varð það þó Benediktínaklaustur. Var það vell- auðugt og jafnframt menntasetur. Með siðaskiptum var klaustrið lagt af og kemur fram í konungsbréfí að þaðan í frá átti Viðey að vera konungsgóss og jafnframt aðsetur fyrir höfuðsmenn konungs. Ekki kom þó til þess og húsin dröbbuð- ust niður og eyjan eyddist af mannfólki, varð ekki annað en illa hirt útibú frá Bessastöðum, þar til Skúli Magnússon kom til sögunnar. Skipaður landfógeti 1749 og sótti þegar í stað um það til konungs að byggður yrði embættisbústaður handa honum í eynni. Fram að því höfðu amtmenn og landfógetar báð- ir búið á Bessastöðum, en ófagrar sögur gengu um samkomulag Ping- els amtmanns og Christians Drese, forvera Skúla. Hefur hann ekki langað til að verða nágranni amt- manns. í upphafí var ætlunin að byggja í Viðey bindingsverkshús, en síðar var ákveðið að stækka bygginguna þannig að hún rúmaði bæði bústað landfógeta og stiftamtmanns. Skyldi húsið vera tveggja hæða og rammbyggilegt steinhús. Skildu þeir búa hvor á sinni hæðinni. En skömmu seinna var hætt við það, því Otto Rantzau þáverandi stift- amtmaður var tregur til að flytjast til landsins. Var þá með konungsúr- skurði ákveðið að minnka húsið um eina hæð. Segir vandlega frá Við- eyjarstofu og byggingu hennar í bók dönsku arkitektanna Helge Finsen og Esbjöm Hiort, sem Kristján Eldjám þýddi, „Steinhúsin gömlu á íslandi", enda er Viðeyjar- stofa elst þessara steinhúsa. Það eitt að byggja húsið úr steini sætti stórtíðindum. Frægur arkitekt og merkilegt hús Var nú efni pantað til smíðinnar og danskir múrarar fengnir til verksins og komu þeir til landsins 1753. En þá hafði verið aflað grjóts í húsið að talið er í eyjunni, en jarð- fræðingar munu nú vera að skoða það mál nánar. Þekktur arkitekt þeirra tíma, Niels Eigtved hirð- húsameistari, teiknaði Viðeyjar- stofu, en verk hans em enn talin meðal hárra tinda í danskri bygg- ingarsögu. „ Teikning hans var fullgerð í apríl 1752 og sýnir barok- hús í góðum hlutföllum, tveggja hæða og með nýtanlegri þakhæð að auki. 3 kvistir á hvorri hlið og tveir gluggar á göflum. (Seinna urðu kvistimir fjórir, en nú er aftur búið að breyta þeim í fyrra horf). Húsaskipanin hrein og einföld, eins og í öllum húsum Eigtveds . . . Iburður í frágangi er látinn lönd og leið, sömuleiðis öll skreyting, húsagerðarleg tjáningarmeðul ein- skorðuð við grundvallaratriði, , samleikinn milli lengdar, breiddar' og hæðar, gerð þaksins og staðsetn- ingu múropnanna: heildaráhrifín. Með þessu hafa Eigthved og Thuran (höfundur Hóladómkirkju) gefið tóninn, hreinan og kláran, í þessum fyrstu skrumlausu íslensku stein- húsum." En nú var einni hæð einfaldlega _ skellt ofan af húsi Eigtveds. Á það sett timburþak, með þeim afleiðingum að það varð ekki vatnshelt, en talið að arkitekt- inn hafi hugsað sér þaksteina. Húsið verður ein hæð og ris, reist fyrir Skúla einan og settist hann þar að 1755. Húsið í Viðey var stærsta íbúðarhús á íslandi þegar það var byggt og enn er það elsta húsið, sem hér hefur varðveist. Er Skúli Magnússon lét af emb- ætti 1793 fluttist Ólafur Stephen- sen stiftamtmaður til Viðeyjar og bjó hann í Viðeyjaretofu til dauða- dags árið 1812. Árið 1816 seldi konungur syni hans, Magnúsi Stephensen konferensráði, jörðina með húsum og var hún í eigu af- komenda hans til 1903. Magnús flutti m.a. með sér prentsmiðju til eyjarinnar frá Leirárgörðum og var hún rekin í Viðey til ársins 1844. Árið 1938 komst eyjan í eigu Step- hans Stephensens kaupmanns í Reykjavík og afkomanda stiftamt- manns og var í þeirra eigu þar til ríkið keypti hana. Brátt líður að því að Viðeyjar- stofa verði aftur sú gersemi sem hún var og endurbygging hennar Reykjavík til sóma. Morgunblaðið/E.Pá Mjöii Snæsdóttlr fornleifa- fræðingur (fremst á myndinni) með-smu fólki við uppgröftinn norðan við Viðeyjarstofu, þar sem á að koma fyrir neðanjarð- arhúsi. Þarhafa fundist mannvistarleifar, líklega frá dögum Skúla Magnússonar. Tvö merkileg eldstœði eru í Viðeyjarstofu og verða bæði gerð upp. Annað svo stórt að yfirþvígátu hangið þrír skrokkar til reykingar. Hór er byggingarstjórinn, Magnús Sædal, viðannað eldstæðið. ig kom þar upp vaðsteinn, þ.e. tilhöggin steinn, en þeir voru notað- ir til að þyngja handfærin. Ekkert hefur enn fundist sem bendir til klaustursins, enda ekki komið nægilega langt niður. Að minnsta kosti hálfur metri niður á það, ef svo ólíklega vildi til að það hefði verið þama. En menn vita ekki hvar klaustrið var í eynni. Hóllinn þama norður af er allur í rústum, en uppgröftur annars staðar en á þessu aflanga mjóa svæði, þar sem á að byggja, getur beðið betri tíma. Sagt var að klausturhúsin hefðu staðið á fyrri tíð þar sem útihús stóðu í tíð Skúla, talsvert vestar í túninu. Nú liggur á að ljúka þessu verki. Sjálf kveðst Mjöll ekki verða við þetta lengur en út júní. Hún hættir þá störfum hjá Árbæjarsafni og hafði ákveðið að halda í sumar áfram uppgreftinum á Minni-Borg. En þá halda aðrir áfram. Um leið og viðgerðin fór fram á þaki Viðeyjarstofu var sett nýtt þak á kirkjuna. Hún stendur þarna nán- ast ekkert breytt frá því hún var byggð 1774, með sínu fallega klukknaporti á þakinu, sem gert var upp eins og það var upprunalega og með gömlu klukkunum. Kirkjan fylgdi með afmælisgjöfínni og verð- ur væntanlega gengið í að gera við kirkjuna strax á eftir Viðeyjarstofu. í kirkjugarðinum má m.a. sjá leg- stein Magnúsar Stephensens. Og síðast var þar grafínn Gunnar Gunnarsson skáld að eigin ósk og síðar kona hans og sonur. Hafði Grein: Elín Pálmadóttir Danskur múrari, Hans Danry, er sórfræðingur ísvona húsum. Hór er hann annar frá hægri, ásamt Magnúsi Sædal og íslensku múrurunum, Kristjáni Ástráðssyni og StefániArnasyni, við prófanir á efni. þá ekki verið grafið þar í áratugi. En garðurinn geymir eflaust fleiri grafír en vitað er um. Fjöldi grafa hlýtur að hafa verið í Viðey á dög- um klaustursins, því fólk sóttist eftir að fá þar próventu. Klaustur og höfðingjasetur Saga Viðeyjar hefst með klaustrinu, sem stofnað var 1225. Árið eftir vígði Magnús biskup Gizurarson það sem Ágústínusarklaustur, en MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987 m B 5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.