Morgunblaðið - 07.06.1987, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.06.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987 B 7 Jón setti tvo einþáttunga DUrren- matts á svið beggja vegna Rínarfljóts i vor. hafa neitt vit á slíkri hreppapólitík og er hreykinn af að hafa verið fyrsti leikarinn til að leika í báðum leikhúsunum sama leikárið." Rafhlöðurnar hlaðast við að fara heim Vestur-þýsk sjónvarpsstöð gerði myndina um Brekkukotsannál og nokkrum árum síðar kom Jón aftur heim með Þjóðverjana til að taka Paradísarheimt. Honum var þá neit- að um leyfi úr Schauspielhaus svo hann sagði upp störfum þar. „Sam- bandið við Schauspielhaus rofnaði út af þessari þegnskylduvinnu," sagði Jón, — hann notar gjaman það orð um störf sín í þágu íslenskr- ar menningar erlendis. „En ég var ekki í nokkrum vafa um að ég hefði tekið rétta ákvörðun þegar Vigdís Finnbogadóttir forseti kom út til Hamborgar og var viðstödd fjöl- miðlasýninguna á Paradísarheimt. Hún var með yndislegt nesti fyrir Rolf Hedrich leikstjóra og mig í pokahominu. Hún sæmdi okkur riddarakrossi íslensku fálkaorðunn- ar og þá var ég fullviss um að ég hefði gert rétt.“ Jón hefur síðan verið í lausa- mennsku og notar tímann vel. Hann fæst við ritstörf meðfram leiklist- inni og þýðir meðal annars íslensk verk „ofan í skúffuna" sína. Þýðing- ar hans á verkum eftir Halldór Laxness, sem hann kallar leiðar- stjörnu lífs síns, Sigurð A. Magnús- son og á ljóðum eftir Matthías Johannessen hafa verið gefnar út. í borgarhlöðu Waldshut, þar sem Jón rekur leikhús. mér ágætt. Ég lendi oft í rimmu við góða svissneska vini mína sem eru vinstrimenn. Þeir eru margir af ríkum heimilum og voðalega óhamingjusamir með landið sitt, kerfið og ég veit ekki hvað. En sá lokar augunum fyrir staðreyndum sem fullyrðir að hér ríki einveldi. Auðvitað ræður peningavaldið miklu, en það er ekki hægt að neita því að hér rkir lýðræði." Sautján árum eftir að Jón fór úr Þjóðleikhússkólanum utan til náms bauðst honum loks hlutverk heima á íslandi. Hann var þá fast- ráðinn við Schauspielhaus (1968- 1978) í Zurich en var að undirbúa gerð kvikmyndarinnar Brekkukots- annáls. Hann tók sér launalaust frí og Guðlaugur Rósinkranz, þv. þjóð- leikhússtjóri, bauð honum aðalhlut- verkið í Óthelló og kennarahlut- verkið í Sjálfstæðu fólki. „Ég var fyrst hræddur um að íslenskan mín væri ekki lengur nógu góð og hik- aði en Guðlaugur minnti mig á að Óthelló var gestkomandi í Fen- eyjum svo að það gerði lítið til þótt vottaði fyrir hreimi. Ég tók boðinu og fékk svo upphringingu frá Sveini Einarssyni, sem þá var leikhússtjóri í Iðnó, og hann bauð mér hlutverk Gests f Dómínó eftir Jökul. Hann var stórkostlegur rithöfundur. Það var mikil spenna milli leikhúsanna á þessum tíma, en ég sagðist ekki Atríði úr Educating Rita, sem Jón setti á svið í kjallaraleikhúsinu i Kaiserstuhl í fyrra. „Ég hefði þýtt miklu meira ef það væri ekki svo erfítt að koma íslensk- um höfundum á framfæri," sagði hann. „Það er hægt að selja íslensk hross hingað og koma fólki upp í áætlunarbfla og selja þeim íslands- ferðir — fossana og Geysi, eins og Einar Benediktsson gerði — en það er feikilega erfítt að koma út íslenskri bók. Ég hef alltaf verið í sjöunda himni þegar það hefur'tek- ist.“ Þýðing Jóns á Skáldatíma fékk frábæra dóma í hinu virta blaði Neue Ziircher Zeitung og hann hlaut bókmenntaverðlaun Zurich- kantónunnar meðal annars fyrir þýðingar sínar á nóbelsskáldinu. „Ég reyni að þýða verk Halldórs eins og ég held að hann hefði skrif- að þau á þýsku ef hann hefði gefíð sér tíma til þess. Mér þótti mjög vænt um dóminn í Neue Zurcher Zeitung, lærði hann meira að segja utan að,“ og hann fór með lof bók- menntagagnrýnandans. „Þessi dómur og riddarakrossinn eru með fegurstu sigrum sem ég hef unnið á lífsleiðinni." Þjóðleikhúsið hefur sýnt tvö leik- rit, Heimssöngvarann og Návígi, eftir Jón. Hann lék heimssöngvar- ann sjálfur á þýsku á hátíðarsýn- ingu. „Starfsmenn leikhússins breyttu sviðinu í musteri þjóðarinn- ar í ruslahaug fyrir mig,“ sagði Jón og hló hátt. „Þetta var þögull leikur í einar fímmtán mínútur en það var eins og ísklaki bráðnaði innan í mér eftir að ég sagði nokkrar setning- amar og heyrði fyrsta hláturinn. Móttökumar vom stórkostlegar og ég var grobbinn af löndum mínum sem skildu þessa framandi tungu.“ Návígi fékk verri viðtökur. Nokkrir gagmýnendur hökkuðu stykkið í sig. Ólafur Jónsson ráð- lagði Jóni til dæmis að sleppa því að skrifa og benti honum á að koma bara heim sem leikari. „Aðrir gagn- rýnendur, sem ég tók meira mark á, skildu hvert ég var að fara og hældu leikritinu og uppsetningu Brynju Benediktsdóttur. Én ég var skelfingu lostinn þegar dómamir komu út,“ sagði Jón. Hann hefur ekki verið heima síðan. „Mig er farið að langa afskaplega mikið heim. Það hefur hlaðið rafgeymana að skreppa þangað, jafnvel þótt það sé súr dropi, vermúth-dropi, í þessu út af móttökum tveggja eða þriggja leikdómara. Gísli Alfreðsson hefur minnst á það við mig að koma heim, en ég veit ekki hvenær af því verð- ur. Við höfum rætt ýmsar hug- myndir en höfum ekki ákveðið neitt enn. Ég hefði átt að taka meiri þátt í íslensku leikhúslífí en ég hef gert. En ég vil ekki taka neina sök á sjálfan mig í því sambandi þótt það væri sjálfsagður hlutur ef ég vissi slíka sök upp á mig. Ég er ansi oft búinn að skrifa heim og minna á mig og segja að það væri nú gaman að koma heim. Én það var oft fjári langt á milli heimboðanna, loks bauð ég mér sjálfur þegar ég ákvað að vinna þar að gerð Brekkukots- annáls." Jón segist stundum fá dálitla heimþrá þótt hann hafi búið erlend- is í öll þessi ár og sé sestur þar að. Islendingurinn er sterkur í honum. Það hefur aldrei hvarflað að honum í alvöru að taka svissneskan ríkis- borgararétt. „Ég hefði getað orðið svissneskur ríkisborgari um svipað leyti og Vigdís forseti kom með hið góða veganesti til Hamborgar. En það hefði verið óskaplega aumingja- legt að sækjast eftir nýjum ríkis- borgararétti eftir að fá slíkan heiður frá sinni eigin þjóð. Þessi litli, íslenski, blái passi opnar mér allar dyr. Það er bara á landamærum þar sem ég hef aldrei komið áður að það er stundum töf. Þá eru verð- imir að hrópa upp yfír sig af undrun yfír að rekast á þetta dýr frá norð- urhveli jarðar. Eg mæti hlýju alls staðar sem Islendingur og nýt þess að vera frá þessari litlu söguþjóð." Texti og myndir: ANNA BJARNADÓTTIR Fegurðar- drottning Islands Fegnrðar- drottning Reykjavíkur Bergrós Anna Margrét Kjartansdóttlr Jónsdóttir Fjóla Grótaradóttlr Brynhlldur Gunnarsdóttlr frls Hildur Guðmundsdóttir Guðmundsdóttir Magnea Krlatfn Jóna Magnúsdóttir Hilmarsdóttlr Þóra Birglsdóttir Sigrfður Guðlaugsdóttir Krýningar- kvöld á BROADWAY 2. í hvítasunnu kl. 20:00 OÆSHEOASIA HÁTÍB ÁSSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.