Morgunblaðið - 07.06.1987, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987
B- 19
Þuríður Guðmundsdóttir
rithöfundur.
Orlof fyrir Reykvískar
húsmæður á Hvanneyri
í SUMAR mun Orlofsnefnd
húsmæðra í Reykjavík starf-
rækja orlofsheimili á
Hvanneyri í Borgarfirði.
Dvalið verður eina viku í
senn í sex hópum frá 20.
júní til 1. ágúst.
Hægt er að velja um eins eða
tveggja manna herbergi sem hvert
hefur sér snyrtingu. Heitur pottur,
gufubað og sólskýli er á staðnum,
leikfimi á hveijum morgni og guðs-
þjónusta í Hvanneyrarkirkju hvem
sunnudag. Á miðvikudögum er far-
ið í skoðunarferð um Borgames og
nágrannasveitir.
Frá og með þriðjudeginum 9.
júní verður tekið á móti umsóknum
á skrifstofu Orlofsnefndar í Traðar-
kotssundi 6. Fyrstu tvo innritunar-
dagana hafa þær konur forgang
sem ekki hafa áður notið dvalar á
vegum nefndarinnar.
Skrifstofan er opin frá kl.
15.00-18.00 mánudaga til fostu-
daga.
neitt sérstaklega vel birgur af bók-
um. Þá var ekki til neitt bókasafn
í sveitinni, það kom ekki fyrr en um
1920 og það var þá lestrarfélag."
Þú hefur vart haft mikinn tíma
til að lesa meðan mest var í heim-
ili hjá þér?
„Nei, það get ég ekki sagt, en þó
gat ég nánast aldrei sofnað án þess
að líta í bók, en þá vait maður út
af vegna þess að maður fékk aldrei
að hvíla sig eins og maður þurfti."
En þegar þið fluttust til
Hólmavikur og Arni varð frysti-
hússtjóri þá hefur væntanlega
hægst um hjá þér?
„Jú, þá verður mikil breyting, en
bömin kunnu ekki við sig þar. Þau
vildu ekki vera á Hólmavík. Þrír af
bræðrunum fóru til Akraness og
elsta dóttir okkar, María, líka og ég
hélt ekki heldur í yngstu dætumar.
— Jú, þá hafði ég tíma til að lesa
og þá las ég og þá langaði mig líka
til að skrifa. En það varð ekkert úr
því. Ég fór að vinna í frystihúsinu
með manninum mínum."
Af hverju langaði þig svona
mikið til að skrifa?
„Ja, þetta er nú spuming sem ég
get ekki svarað. Þetta kom einhvem
veginn innan frá. Ég hafði ekkert
markmið eða stefnu, en þegar ég
byijaði þá hugsaði ég strax að það
æri gaman að setja saman þessa
ppbyggingu og aðdragandann að
.íenni. En maðurinn minn var á
móti þvi, hann þoldi það ekki.“
Af hveiju þoldi hann það ekki?
„Jú, karlmenn voru allt öðruvísi
þá en nú er. Karlmaðurinn var allt.“
Hafði hann ekki áhuga á bók-
*im?
„Jú, hann las mikið, en mest bara
sér til skemmtunar, bara reyfara og
svo náttúrulega blöðin. Hann las t.d.
bækumar hennar Guðrúnar frá
Lundi og hafði afskaplega gaman
af. Hann las mikið íslendingasög-
umar og kunni þær utanað, eða því
sem næst.“
Heldur þú að það sé vegna þess
að þú ert kona, sem þú fórst ekki
fyrr fram á ritvöllinn?
„Já, ég býst við því að það hafí
verið minnimáttarkenndin sem hélt
aftur af mér. Konumar áttu ekki
að skipta sér af neinu en þær áttu
að hafa allt í standi."
Hvað með þátttöku í félagslifi?
„Ég var aldrei í ungmennafélagi.
Fyrsta félagið sem ég var í var kven-
félagið Snót í Kaldrananesi og svo
kvenfélagið Glæður á Hólmavík. Við
saumuðum og útbjuggum ýmislegt
og reyndum að hjálpa þar sem fólk
bjó við neyð. Ég þroskaðist mikið
við að taka þátt í þessum félags-
skap, sérstaklega eftir að ég kom á
Hólmavík. Þar voru fyrir eldri og
reyndari konur og því hafði maður
meiri fyrirmynd. Ég varð svo fræg
að verða formaður kvenfélagsins á
Hólmavík þijú síðustu árin okkar
þar.“
En þrátt fyrir allt segist Þuríður
frá Bæ vera ánægð með lífíð og það
hvemig bókunum hennar hefur verið
tekið. Hún trúir því að forlög manna
séu ráðin fyrirfram. „Mér líður mjög
vel héma,“ sagði hún að lokum, „en
ég vona bara að mér takist að koma
Sólrisi út á prent áður en ég fer
héðan.“.
Næsta brottför til Costa del Sol
9 JÞNI
Við bjóðum þér nýtt og glæsilegt íbúðahótel á Sunset Beach.
Eigendur þess og starfsfólk hafa sérstakt dálæti á íslendingum.
Þess vegna höfum við fengið verulegan afslátt af gistingu á þessu frábæra hóteli.
Við bjóðum þér 3 vikur á Costa del Sol með gistingu á þessu hóteli, fyrir
aðeins kr. 26.200 pr. mann*.
' \v lpv' '’V' w .'
V'V" '\A\\V ' '
''.' *' .
ÍT'SföSsSl
Þeir sem til þekkja, taka Sunset Beach
fram yfir aðra staði á Costa del Sol. Og
það er ekki að ástæðulausu. Öll aðstaða
til að njóta lífsins er stórglæsileg jafnt fyr-
ir börn sem fullorðna. Hótelið er eitt af
þrem glæsilegustu íbuðarhótelum á Costa
del Sol. Allar íbúðirnar eru smekklega
innréttaðar og með sérstakri loftkælingu.
Við hótelið eru sundlaugar með hreinsuð-
um sjó, fyrsta flokks sólbaðsaðstaða,
ahús, skyndibitastaðir og ótal
margt fleira. Við hótelið er einnig
falleg baðst
Á vegum hótelsins er sérstök dagskrá fyr-
ir börn og unglinga frá morgni til kvölds.
Á kvöldin er einnig sérstök dagskrá fyrir
fullorðna fólkið. Skipaðu þér í hóp þeirra
fjölmörgu, sem hafa tekið Sunset Beach á
Costa del Sol fram yfir aðra staði. Komdu
tímanlega og tryggðu þér sæti.
* Verðið miðast við 2 fullorðna og 2 börn yngri en 12 ára.
Ferðaskrifstofa, Snorrabraut 27-29 Reykjavik. Sími 26100.