Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
165. tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 25. JULI 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Talsmaður V-Þýskalands:
Pershing-1 ekki
til umræðu nú
Hugsanlega samið um þær síðar
Bonn, Reuter.
VESTUR-Þjóðverjar ítrekuðu í
gær að Pershing 1-A eldflaugar
þeirra væru ekki samningsatriði
í viðræðum risaveldanna um út-
rýmingu skamm- og meðal-
drægra kjamorkuflauga. Hins
vegar sagði talsmaður varnar-
málaráðuneytisins að hugsanlegt
væri að samið yrði um flaugarn-
ar á öðmm vettvangi síðar.
Talsmaðurinn, Horst Prayon,
sagði að flaugamar væm þýskar
Hollensk smjör-
líkisgerð:
Fékk skip
íheimsókn
Rotterdam, Reuter.
Vélritunarstúlkur holl-
enskrar smjörlíkisgerðar
fengu óvenjulega heimsókn á
skrifstofu sina í gær, því þar
var komið norskt strand-
ferðaskip.
Vélritunarstúlkur smjörlíkis-
gerðarinnar Van den Bergh en
Jurgens vom í óða önn að vél-
rita viðskiptabréf og vömreikn-
inga þegar vinnufriður þeirra
var rofinn. Inn um vegginn kom
allt í einu stefni 1.254 tonna
norsks skips, Hedlo að nafni,
en skipstjóri þess átti í einhveij-
um vandræðum með að snúa
því í höfninni.
Enginn slasaðist, en tjónið var
metið á nokkur þúsund gyllini.
og kæmu því samningum risaveld-
anna ekki við. Hann ítrekaði að
flaugamar væm mikilvægar og að
yrðu þær teknar niður yrðu Vestur-
Þjóðveijar að fá eitthvað í staðinn.
Hann bætti við: „Þetta kerfi ætti
að gera Sovétmenn sveigjanlegri í
því að draga úr möguleikanum á
innrás þeirra."
Prayon sagði að útrýming meðal-
drægra eldflauga muni stofna
Vesturlöndum í hættu, þar sem
Varsjárbandalagið muni þá öðlast
yfirburði á sviði hefðbundins her-
afla, en bætti við að drægju
Sovétríkin til baka ógnanir sínar
gagnvart Vesturlöndum væri uppr-
æting Pershing-flauganna ekkert
vandamál.
Bandaríska herskipið Kidd sést hér sigla í humátt á eftir risaolíuskipinu
þyrla í leitarflugi að fleiri tundurduflum.
Reuter
Bridgeton í gær. Á milli sést
Persaflói:
Skipalestin komin til
Kuwait þrátt fyrir áföll
SKIPALEST olíuskipanna tveggja frá Kuwait og fylgdarskipa banda-
ríska flotans komst loks til Kuwait í gærkvöldi. Ekki gekk ferðin
áfallalaust fyrir sig, því að annað olíuskipið, Bridgeton, rakst á tund-
urdufl i gærmorgun. Enginn um borð særðist, en skipið þurfti að
varpa akkeri fyrir utan höfnina. Hitt skipið, Gas Prince, gat lagst
að helstu olíuhöfii Kuwait-búa, Mina al-Ahmadi. í Hvíta húsinu feng-
ust þær upplýsingar að Bandaríkjasfjóm hygðist i bili ekki hefiia
fyrir tjónið, sem hlaust af völdum tundurduflsins, en talið er ömggt
að það sé íranskt að uppruna.
Til fylgdar við skipin tvö vom
þijú bandarísk herskip, en þau
hættu fylgd sinni skammt frá
furstadæminu, þegar varðbátar frá
Kuwait tóku við.
íranir, sem til þessa hafa ráðist
á skip furstadæmisins, vegna stuðn-
ings þess við íraka í Persaflóastríð-
inu, lofuðu AUah vegna sprengingar
Reuter
Hér má sjá nokkra áhafiiarmeðlimi bera lík Xaviers Guillaume frá
borði. Á innfelldu myndinni er mynd af flugræningjanum og morð-
ingjanum Hariri.
Flugránið í Genf:
Ahöfhin yfirbug-
aði ræningnann
^ Genf, Reuter.
ÁHÖFN DC-10 vélar Air Afrique yfirbugaði og afvopnaði í gær flug-
ræningja eftir að hann hafði skotið einn farþega vélarinnar til bana.
Flugþjónn einn, sem fékk skot í magann í átökunum, liggur nú þungt
haldinn í sjúkrahúsi. Vélinni var rænt í morgun þegar hún var á
leið frá Rómaborg til Parísar, en um borð í henni vom 148 far-
þegar og 15 manna áhöfii.
Ræninginn krafðist þess að vélin
flygi til Beirút, en flugstjórinn,
Edouard Atizzu, sagði að til þess
yrði hann að taka eldsneyti og skip-
aði ræninginn honum því að lenda
í Genf.
Flugstjórinn lýsti atburðum svo:
„Ég heyrði byssuhvelli og skömmu
síðar kom maðurinn hlaupandi inn
í stjórnklefann með skammbyssu á
lofti og kvaðst eiga reikninga að
jafna við Frakkland."
Maðurinn heitir Hussein Ale
Amir Mohamed Hariri og er 21 árs
gamall Líbani. Honum var sleppt
úr ísraelsku fangelsi árið 1985 í
fangaskiptum, sem þá fóru fram.
Maðurinn sem féll, Xavier Guil-
laume, var 28 ára gamall og
vínsmakkari að atvinnu. Hann var
ókvæntur.
Morðið á honum þótti óhugnan-
legra en ella vegna þess að hann
gekk ekki heill til skógar og gat
enga björg sér veitt. „Hann [ræn-
inginn] safnaði saman vegabréfum
fólks og tók Frakkana út úr,“ sagði
Anatase Tognisso, áhafnarmeðlim-
ur. „Hann setti brekán yfir höfuð
mannsins, beindi byssunni að hon-
um og hleypti af.“
Þá sáu nokkrir farþeganna sitt
óvænna og ákváðu að fara út um
neyðarútganginn að aftan. Þegar
ræninginn varð þess var brá honum
nokkuð í brún, en um leið réðust
áhafnarmeðlimir á hann og yfirbug-
uðu. í sama mund ákvað lögreglan
að ráðast til uppgöngu.
tundurduflsins og sögðu að „ósýni-
leg hönd“ hefði reitt þar til höggs
gegn Bandaríkjunum.
„Enn sem komið er vitum við
ekki hver ber ábyrgð á tundurdufl-
inu,“ sagði Marlin Fitzwater,
talsmaður Hvíta hússins. „Tundur-
dufl eru þess eðlis að það erfitt að
átta sig á því hveijir standa að
baki ... sem stendur höfum við því
ekki í hyggju að svara fyrir okk-
ur.“ Bandarískir embættismenn
sögðu að þó erfitt myndi reynast
að komast að því hvaðan duflið
væri væri ólíklegt að aðrir en íran-
ir hefðu lagt það.
Tundurduflið, sem rauf gat á
Bridgeton, sprakk um klukkan fjög-
ur að morgni að íslenskum tíma.
Atvikið átti sér stað um 18 mílur
vestur af Farsi-eyjum, en þaðan
hafa írönsku byltingarverðimir
helst heijað á skip vegum Kuwait-
manna á Persaflóa.
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
sagði seint í gærkvöld að fundi
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri SÞ, og utanríkisráð-
herra íran, Ali Akbar Velayati, sem
fram átti að fara í dag, yrði frestað
að beiðni Velayati. Ekki kom frek-
ari skýring á frestuninni.
Velayati kom til Genfar frá Vest-
ur-Þýskalandi þar sem hann ítrek-
aði að stjórnvöld í Teheran myndu
ekki samþykkja ályktun öryggisr-
áðs SÞ um að íran og írak skyldu
lýsa yfir vopnahléi sín í millum.
Sagði hann að fyrst yrði að víta
Irak á opinberum vettvangi fyrir
að hafa hafið styijöldina. Stríðið,
sem staðið hefur í sjö ár, hefur haft
í för með sér gífurlegar fórnir
ríkjanna beggja, en auk þess hafa
þau ráðist á meira en 330 skip á
Persaflóa.