Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 35 verið endurskipulögð í samvinnu við þá ensku hönnuði, sem áður sáu um það verk, og við húsameistara ríkisins. Byggingu geðdeildar hefur verið lokið. Tvö einingahús hafa verið byggð fyrir rannsóknarstofur spítalans. Bygging sjö hefur verið hönnuð og byggð og innréttuð að hluta fyrir tannlæknadeild Háskóla íslands og bygging W var hönnuð og byggð fyrir móttöku spítalans. Það verk á Landspítalalóð sem nú er í byggingu og hefur verið síðustu ár, er sennilega eitt flókn- asta og vandasamasta hönnunar- verk sem unnið hefur verið, a.m.k. við sjúkrahús hér á landi. Þetta hús, sem venjulega er kallað K- bygging, á að hýsa krabbameins- lækningadeild, skurðdeild, rannsóknarstofur og röntgengrein- ingu. Ég sat í yflrstjóm mannvirkja- gerðar á Landspítalalóð fyrstu tíu árin sem hún starfaði. Á þessum tíma hafði ég gott tækifæri til þess að fylgjast með vinnubrögðum Ás- geirs sem framkvæmdastjóri þessa flókna byggingarverks. Ég er sannfærður um að hann hafði mikla ánægju af þessu verki. Hann naut þess að leysa eða fínna aðila til þess að leysa flókin mál. Hann tók engan mann mjög hátíð- lega og sá einatt broslegar hliðar þeirra sem reyndu að blása sig út með lýsingu sérþekkingar sinnar. Langar fundarsetur vom honum ekki að skapi og linnulausar um- ræður sem ekki leiddu til niðurstöðu fannst honum tímasóun. Mér fannst hann hafa ótrúlega gott vald á að leiða saman menn með ólíkar skoðanir og reyna að láta þá ná samkomulagi og þessi kostur var honum ómetanlegur þeg- ar hann þurfti að leiða umræður aðila sem áttu að skipta með sér húsnæði, sem báðum aðilum fannst of lítið fyrir sig einan. Starf Ásgeirs leiddi til þess að hann varð að hafa tengsl og sam- vinnu við íjölda manna, bæði þeirra sem störfuðu innan spftalans svo sem iækna og ýmissa sérfræðinga, arkitekta, verkfræðinga, skipulags- og byggingaraðila að ógleymdum ensku og dönsku fyrirtækjunum sem fengin höfðu verið til ráðgjafar- starfa. Ég held að í öllu þessu starfí sínu hafi Ásgeir áunnið sér traust og virðingu og vafalaust er skarð hans nú ófyllt við yfírstjóm mannvirkja- gerðar, þótt vitað sé að ávallt kemur maður í manns stað. Ásgeir lifði það ekki að sjá bygg- ingu K tekna í not og sá vágestur sem sú bygging verður sennileg við kennd varð honum að aldurtila á ótrúlega skömmum tíma. í fyrra héldum við samstúdentar frá 1946 upp á 40 ára stúdentsaf- mælið. Þá vantaði ellefu í hópinn og á því ári sem síðan er liðið hafa þrír horfið af sjónarsviðinu, þar af tveir á góðum starfsaldri. Þetta minnir okkur á að „allrar veraldarvegur víkur að sama punkt“, hjá sumum fyrr, hjá öðrum síðar. Ég gat þess áður að allir gerðu ráð fyrir því og sjálfsagt Asgeir sjálfur að ævistarf hans mundi snú- ast um verklegar framkvæmdir og smíðar í eigin fyrirtæki. Þessi ráða- gerð brást og er ég ekki í nokkrum vafa um að á þeim árum var það Ásgeir mikið áfall. Hann hafði hinsvegar styrk og þrótt til að skapa sér sjálfstæðan nýjan starfsgrundvöll og hann var gæddur þeim eiginleikum að hann gekk fullkomlega upp í þeim störf- um, sem hann tók að sér. Þess vegna er það trú mín að störf hans að geðvemdarmálum, uppbyggingu geðdeildarinnar á Landspítalalóð og síðar rúmlega áratugs starfs hans að uppbygg- ingu stofnana Landspítalans hafí gefíð honum þá lífsfyllingu sem hveijum manni er nauðsynleg. í einkalífí sínu var Ásgeir ham- ingjumaður. Eiginkona hans er Kristín Vilhjálmsdóttir kennari og eiga þau hjónin fjögur böm sem búin em bestu kostum foreldra sinna. Við Guðrún sendum Kristínu og Q'ölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum guð að styrkja þau í sorginni. Frá starfsmönnum heilbrigðis- ráðuneytisins flyt ég þakkir fyrir gott samstarf. Pyrir hönd íslensku heilbrigðis- stjómarinnar þakka ég Ásgeiri langt og giftudrjúgt starf að mál- efnum geðsjúkra og brautryðjanda- starf við yfírstjóm mannvirkjagerð- ar á Landspítalalóð. Páll Sigurðsson Síðastliðinn sunnudag lést í Landspítalanum Ásgeir Bjamason framkvæmdastjóri eftir nokkurra mánaða hastarleg veikindi. Ásgeir var borinn og bamfæddur Reykvíkingur, kominn af þekktum iðnaðar- og verslunarmönnum í bænum. Foreldrar hans voru Bjami Þorsteinsson, annar stofnandi og framkvæmdastjóri vélsmiðjunnar Héðins, og kona hans, Jóhanna Guðmundsdóttir Olsen. Faðir Ás- geirs lést 1938. Það hefur verið fjölskyldunni, eins og öðrum, sem fyrir slíku verða, mikið áfall, þó að sjaldan bæri það beint á góma á þeim 47 árum, sem við Ásgeir höf- um þekkst, lengst af sem nánir vinir. Aðrir fjölskylduvinir, sem eldri voru, hafa sagt mér að Bjami heit- inn hafi verið óvenju skemmtilegur, hugmyndaríkur og röskur athafna- maður, sem vafalaust hefði haft meiri áhrif á þróun og uppbyggingu iðnaðar í landinu, ef hann hefði lif- að lengur. Frú Jóhanna, móðir Ásgeirs, var fínieg og sérlega elsku- leg og kurteis kona, sem tók okkur félögum hans mjög vel. Hún vildi allt fyrir son sinn gera, sem var orðinn einn með henni, er verulega vinátta myndaðist með okkur As- geiri. Eldri bróðir hans, sem var fatlaður, lést um svipað leyti í Dan- mörku. Frú Jóhanna lést 1960 langt um aldur fram. Þau mæðgin bjuggu á Ægisgötu 27, þar sem Ásgeir áttí heimili alla tíð síðan. Ásgeir innritaðist í 1. bekk Menntaskólans í Reykjavík haustið 1940, en þann vetur fór kennsla 1. og 2. bekkjar fram í Alþingis- húsinu. Hann varð stúdent árið 1946 og var síðan við nám og störf í Sviss næstu 4—5 ár. Eftir heim- komuna hóf hann störf í vélsmiðj- unni Héðni og vann þar þangað til hann seldi hluta sinn í fyrirtækinu. Eftir það stundaði hann verslun og viðskipti og sá m.a. um byggingar- framkvæmdir fyrir Venus hf. í Hafnarfirði. Á árinu 1966 tók hann að sér framkvæmdastjóm Geðvemdarfé- lags íslands. Hann sá um rekstur skrifstofu félagsins og var ábyrgð- armaður tímaritsins Geðvemdar frá 1968—1985. Ásgeir var kosinn í stjóm Geðvemdarfélagsins 1971 og var gjaldkeri félagsins síðan. Undir framkvæmdastjórn Ásgeirs tókst félaginu að þoka hagsmunamálum geðsjúklinga vel á veg. Ásgeir sá um að komið var upp endurhæfing- araðstöðu fyrir 22 geðsjúklinga á Reykjalundi. Mæddi öflun fjár til framkvæmda mest á herðum Ás- geirs svo og umsjón af hálfu Geðverndarfélagsins. Síðar sá Ás- geir um byggingu endurhæfingar- stöðvar Geðvemdarfélagsins í Álfalandi 15. Sem framkvæmda- stjóri Geðvemdarfélagsins var Ásgeir skipaður í byggingamefnd geðdeildar Landspítalans 1971 og varð síðan starfsmaður hennar. Hafði hann umsjón með framgangi hönnunar og alls Undirbúnings að byggingu deildarinnar. Fyrir atfylgi hans og dugnað tókst að ljúka hönn- un fullkomlega í samræmi við það, sem lög um opinberar framkvæmd- ir gera ráð fyrir áður en hafíst var handa um framkvæmdir. Hygg ég að geðdeildin sé raunar ein af fáum opinberum framkvæmdum, sem undirbúnar voru jafn rækilega og hannaðar eins og lögin gera ráð fyrir, áður en framkvæmdir hófust. Fyrir bragðið var engu breytt með- an á byggingarframkvæmdum stóð. Ásgeir var vakinn og sofínn í þessu starfí eins og í öllu öðm sem hann fékkst við og áttum við þá enn oft- ar en endranær mörg og löng símtöl um gang mála, skipulag verka og ýmsa undirbúningsvinnu, sem Ás- geir annaðist. Þegar hönnun geðdeildar lauk og framkvæmdir hófust var Ásgeir ráðinn framkvæmdastjóri yfir- stjómar mannvirkjagerðar á Landspítalalóð, sem átti að hafa umsjón með nýbyggingum Land- spítalans og læknadeildar Háskóla Islands. Gekk Ásgeir mjög upp í þessu starfi og sinnti því með sömu elju og öðru og rann oft í skap, þegar ekki gekk eins hratt og skyldi. Okkur fannst eins og öllum öðmm að of litlum fjármunum væri ráðstafað til framkvæmdanna og þær gengju allt of hægt. Tók hann sér raunar mjög nærri löngu áður en hann veiktist, hve seint gekk með svokallaða K-byggingu. Jafn- framt gladdi það hann mjög er ákveðið var nýlega að heíjast handa um að ljúka byggingu læknadeild- arhúss. Kynni okkar Ásgeirs hófust þeg- ar við vomm í 1. bekk í mennta- skóla, en urðu ekki verulega náin fyrr en í 3. bekk. Tókst þá með okkur vinátta, sem hefur haldist alla tíð síðan. Hann var vel greind- ur með gott heymarminni og fljótur að læra, ef hann vildi það viðhafa. En hann var að eðlisfari fljóthugi og athafnamáður, sem hentaði bet- ur að standa í ýmsum framkvæmd- um og láta hendur standa fram úr ermum og þess vegna leituðu marg- ir til hans um ýmiss konar aðstoð og fyrirgreiðslu sem tók frá honum æði mikinn tíma. Á þessum ámm var Ásgeir á margan hátt þrosk- aðri og reyndari heldur en við skólafélagar hans. Því var við að búast að félagarnir leituðu til hans með ýmis praktísk mál, enda var hann bóngóður, stór í sniðum og höfðingi í sér. Vegna aðstæðna sinna þurfti hann þegar frá unga aldri að sinna ýmsu, sem skólapiltar ekki þurfa að gera venjulega, svo að tími til námsins varð oft minni en skyldi og hann hefði viljað. Ásgeir var óvenjulegur af íslend- ingi að vera að því leyti, að hann var mjög fljótur að svara bréfum og skrifaði bréf til manna jafn auð- veldlega og aðrir hringja í síma. Meðan hann dvaldi erlendis skrifaði hann mér bréf a.m.k. vikulega og oft fleiri bréf í viku, þannig að ég komst ekki til að svara nema kannski öðm hverju bréfi. Það hafði hins vegar ekki nein áhrif til þess að draga úr áhuga hans við skrift- imar. Hann var einnig allra manna duglegastur við að skrifa mér að heiman og þyrfti ég að fá svar við einhveiju fljótt var augljóst að best væri að skrifa Ásgeiri, þá kom svar- ið um hæl. Því hef ég fjölyrt svo um þessar bréfaskriftir að þær lýsa Ásgeiri mjög vel og þeim eiginleika hans að vilja aldrei láta standa á sér, en gjalda strax. Þetta kom einnig síðar fram í samstarfí okkar á öðmm sviðum, þar sem hann átti að sjá um ljármál, að samviskusem- in var svo mikil, að stundum lá við, að hann væri búinn að borga áður en reikningamir kæmu. Ásgeir var rúmlega meðalmaður á hæð, hnellinn, ljóshærður og fríður sýnum. Hann hafði háa og hvella rödd og mikinn talanda, var hvikur í hreyfingum og snaggarleg- ur og virtist fyrir bragðið oft nokkuð stórkarlalegur í fasi. Slíkt var aðeins skel því að í raun var hann mjög tilfínninganæmur, frek- ar feiminn og hlédrægur og mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Hann Minning: Kristján Jóhannes- son. Klambraseli Fæddur 29. nóvember 1892 Dáinn 21. júlí 1987 Er ísland var hemumið af Bret- um á vordægmm 1940 var talið að búast mætti við einhveijum hemaðaraðgerðum Þjóðveija í því tilefni. Var jafnvel búist við loft- árásum á Reykjavík. Vegna þessa var skipulagður brottflutningur bama úr Reykjavík og var allmikill fjöldi fluttur að Laugum í Suður- Þingeyjarsýslu. Ég fékk að fara með þessum krökkum norður því foreldrar mínir höfðu fengið fyrir mig dvöl í Klambraseli hjá föður- systur minni, Þuríði Þorbergsdótt- ur, og manni hennar, Kristjáni Jóhannessyni. Það er skemmst frá því að segja að í Klambraseli var við mér tekið sem þeirra eigin syni og ekki var langt um liðið er „flótta- maðurinn" bað þau hjón leyfis að mega kalla þau mömmu og pabba á sama hátt og önnur böm á heimil- inu. Þegar ég lít til baka og skoða húsakynnin í gamla Klambrasels- bænum undrast maður hvað margir gátu búið þröngt án þess að maður yrði þess nokkurn tímann var. Á þessum tíma vom öll börn þeirra hjóna, 8 talsins, heima svo og syst- ir Þuríðar (föðursystir mín), Guðrún Þorbergsdóttir. Ellefu manns vom í heimilinu og svo kom einn í við- bót, 9 ára gamall snáði, sem hlaut að auka enn frekar á erfíði húsmóð- urinnar. En enga grein gerði ég mér fyrir því þá og aldrei var ég látinn verða þess var. Gamalt mál- tæki segir: „Þar sem er hjartarúm þar er líka húsrúm." Þetta áttí sannarlega við um dvöl mína í Klambraseli, þaðan á ég margar góðar minningar en engar slæmar. Mér veitist sú ánægja að vera áfram í Klambraseli næsta vetur og sum- arið eftir, þannig að ég kynnist heimilisfólkinu vel svo og sveitar- störfunum eins og bami var unnt. Ég bar mikla virðingu fyrir bóndan- um, enda var hann fjölhæfur og áhugasamur um flesta hluti og á mörgum sviðum meðal brautryðj- enda í sinni sveit. Má þar til nefna að þá þegar árið 1940 hafði hann rafvætt bæ sinn og einnig rak hann refabú, en refaskytta sinnar sveitar var hann um íjölda ára. Einn at- burður er mér einkar minnisstæður sem lýsir vel hve úrræðagóður Kristján var þegar vanda bar að höndum. Það var einhveiju sinni að hestur sló annan hest svo illilega að stórt skeifumyndað sár opnaðist á lend hestsins og lærvöðvinn þrýst- ist út. Bóndinn dó ekki ráðalaus. Voru nú teknir strengimir úr fíðl- unni, vöðvanum þrýst á sinn stað og sárið saumað saman. Aðgerðin tókst vel og lífi hestsins þar með borgið. Eftir að Kristján og Þuríður brugðu búi fluttu þau til Þorbergs sonar síns og Guðfínnu konu hans í nýbýlið Brúnahlíð, sem reist var við hlaðvarpann í Klambraseli. Þama undu þau sér vel því bæði var að þau vom áfram á heimaslóð- um og jafnframt nutu þau í ellinni hlýrrar umönnunar yngri hjónanna. Síðustu árin hefur Kristján dvalið á Dvalarheimili aldraðra, Hvammi á Húsavík, við heldur lélega líkam- lega heilsu en alveg em andlega. Hann var sískrifandi og nær níræð- ur reit hann tvær greinar í Árbækur Þingeyinga. Aðra um mæðiveikina og hina um byggð á Þeystareykjum, en um það svæði var hann sérlega fróður og varla leið það sumar að hann ekki vitjaði Þeystareykja. En hann fylgdist og með daglegum málum okkar þjóðfélags og var vel heima í þeim málum til hinstu stundar. Það er ekki lengra síðan en í vor að hann sendi mér bréf þar sem hann fjallaði um áfengis- og vímuefnavandamál þjóðarinnar og hve mikilvægt væri að leita úr- ræða í þeim efnum. 21. febrúar 1920 kvæntist Krist- ján Þuríði Þorbergsdóttir, frá Litlu-Laugum í Reykjadal, fædd 7. janúar 1895, dóttur hjónanna Þor- bergs Davíðssonar bónda og konu hans, Sigurveigar Jónatansdóttur. Hjónaband þeirra var einkar far- sælt og ljúft og bjuggu þau bömum sínum gott og kærleiksríkt heimili. Þuríður lést 18. ágúst 1977. Þeim hjónum varð 8 bama auðið og em fylgdist vel með á sviði fram- kvæmda og viðskipta og raunar á flestum sviðum mannlífsins og gat talað um flest við hvem sem var og kom sér þá vel góð greind og frábært minni. Hann var eins og áður er að vikið mjög greiðvikinn og vann mikið hugsjónastarf. Fyrst í sambandi við geðvemdarmál og síðan við heilbrigðismál almennt og hirti þá lítt um hvort launað væri í samræmi við vinnuframlag. Ásgeir tók örlögum sínum með stillingu og kveið ekki því, sem koma skyldi, sjúkdómur sá er leiddi hann til bana var greindur í febrúar síðastliðnum. Ræddi hann þá um hvaða möguleikar væru fyrir hendi og hvemig best væri fyrir sig að velja og ráðstafa þeim tíma, sem hann gæti enn nýtt. Sjúkdómurinn var hins vegar illkynjaðri en okkur óraði fyrir, svo að tíminn varð ekki mikill, en dugði þó til að ljúka ýmsui' Ásgeir var mikill §ölskyldumað- ur og vildi veg bama sinna sem mestan og varð að ósk sinni í þeim efnum. Hann var kvæntur ágætri konu, Kristínu kennara Vilhjálms- dóttur Ámasonar skipstjóra og áttu þau fjögur böm: dr. Bjama lífefna- fræðing, Hönnu sjúkraþjálfara, Guðríði verkfræðing og Vilhjálm verkfræðinema. Þeirra er missirinn mestur, þó að við vinir Ásgeirs og samferðamenn söknum hans allir og vottum þeim samúð okkar. I samræmi við eðlislæga hlé- drægni sína óskaði Ásgeir eftir, að útfor hans yrði gerð í kyrrþey og fór hún fram í gær, föstudag 24. júlí. Það er huggun harmi gegn, að minningin um góðan vin lifir. Tómas Helgason 7 þeirra á lífí. Þau em: Jóhannes Sigþór, bóndi í Klambraseli, kvænt- ur Sigríði Jónsdóttur. Kristín, lést 25. júlí 1942 aðeins 20 ára, Svein- bjöm Kristjánsson, málmsteypu- maður í Garðabæ, kvæntur Sylvíu Kristjánsson. Þorbergur, bóndi í Brúnahlíð í Reykjahverfi, hann var kvæntur Guðfinnu Ámadóttur, en hún lést 15. júní 1985. Sigurveig, gift Þórami Jónssyni bónda á Skarðaborg í Reykjahverfí. Sigríður Kristjana, gift Matthíasi Bjöms- syni, trésmíðameistara á Akureyri. Gísli, starfsmaður við Laxárvirkjun og bóndi í Lækjarhvammi í Aðal- dal, kvæntur Helgu Jónsdóttur. Ásdís, gift Haraldi Þórarinssyni tré--''' smið á Húsavík. Minn tryggi aldni vinur verður nú jarðsettur í dag frá Grenjaðar- staðarkirlqu. Hinni löngu ævi hans er lokið en við hjónin emm þakklát fyrir hinar mörgu ánægjustundir sem við höfum átt með þeim hjón- unum Þuríði og Kristjáni og reyndar allri þeirra stóm fjölskyldu. Við vottum aðstandendum okkar dýpstu samúð en sérstakar samúðarkveðj- ur sendum við dóttur hans, Sigríði, sem liggur á sjúkrahúsi í Reykjavík og getur því ekki fylgt föður sínurrw hinsta spölinn. Eilíft líf. - ver oss huggun, vöm og hlíf, lif í oss, svo ávallt eygjum æðra lífið, þó að deyjum. Hvað er allt, þá endar kíf? Eilíft líf. (Matth. Jochumsson) Sigurður Jörgensson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.