Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 48
Framtíð ER VIÐ SKEIFUNA aana $ SUZUKI 19 DAGAR KRINGWN Kt5IHeNM LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Flugslysið við Blonduós: Orsakir slyssins ókunnar EKKERT lig-gur fyrir um orsakir flugslyssins, sem varð við Blönduós á fimmtudag þegar litil eins hreyfils vél af gerðinni Pip- er PA-28 hlekktist á skömmu eftir flugtak með þeim afleiðing- um að fjórir menn biðu bana. Flugvélin var flutt til Reykja- víkur til frekari rannsóknar eftir að starfsmenn Loftferðaeftirlitsins og Flugslysanefnd höfðu kannað aðstæður á slysstað og aflað upplýs- -'inga um ferðir vélarinnar og veðurskilyrði. Að sögn Péturs Ein- arssonar, flugmálastjóra, er ekki að vænta niðurstöðu rannsókna um hvað olli slysinu fyrr en eftir einn til tvo mánuði. Glæfra- Jegt flug í slæmu skyggni Seifömi. HEIMILISFÓLKIÐ á Selparti í Gaulveijabæjarhreppi hrökk ónotalega við þegar það var í síðdegiskaffi síðastliðinn mið- vikudag er stór tveggja hreyfla flugvél flaug rétt yfir bæinn úr norðaustri. Fólkið sá vélinni bregða fyrir út um eldhús- ^gluggann og horfði á eftir henni þar sem hún hvarf út yfir hafið í þoku. Mjög lágskýjað var þegar þetta átti sér stað og auðséð að flugmað- urinn flaug sjónflug undir þokunni í mjög lítilli hæð. Einn heimilis- manna sagðist hafa tekið eftir grænum röndum á stéli vélarinnar og það hefði ekki mátt miklu muna að hún rækist á súrheystuminn. Þau hefðu alveg eins átt von á því að vélin færi niður suður undan bænum. Sig. Jóns. Morgunblaðið/Snorri Snorrason Heyskapurá Brekku íMjóafírði Hæstiréttur staðfestir frávísun Hafskipsmáls Fallist á röksemdir Sakadóms varðandi vanhæfí Hallvarðar HÆSTIRÉTTUR kvað í gær upp dóm í frávísunarmáli forráða- manna Hafskips og ákæruvalds- ins. Meirihluti Hæstaréttar staðfesti frávísunardóm Saka- dóms og að Hallvarður Ein- varðsson ríkissaksóknari væri vanhæfur til að Qalla um Haf- skipsmálið vegna tengsla sinna við Jóhann S. Einvarðsson, fyrr- um varaformann bankaráðs Útvegsbankans. Sérstakur sak- sóknari í málinu verður skipað- ur innan skamms. Hæstirettur skiptist í áliti sínu. Meirihluti dómsins féllst á forsend- ur Haralds Henrýssonar sakadóm- ara með frávísun frá héraðsdómi og tók undir röksemdir hans. Helstu röksemdir Haralds fyrir vanhæfí Hallvarðs vom þær, að þar eð hinir fjórir ákærðu séu ákærðir fyrir alvarleg brot, sem beinist að hagsmunum Útvegs- bankans, hafí bankaráðið mikilla hagsmuna að gæta um úrslit máls- ... Hollendingar sleppa sex selum við Grímsey í dag Fluttir með leiguflugi frá Hollandi HÓPUR hollenskra náttúru- verndarmanna mun í dag sleppa sex selum í sjóinn við Grimsey, ef veður leyfir. Að þessu stendur Selaverndunar- stofiiun Hollands og er flöldi hollenskra blaðamanna í föru- neyti selanna. Selimir og fólkið koma í dag frá Amsterdam til Akureyrar með Fokker flugvél. Tvær Twin Otter vélar flytja seli og menn síðan til Grimseyj- ar. Um er að ræða fíóra vöðuseli og tvo hringanóra, sem flæktust suður á bóginn frá heimakynnum sínum í Barentshafí og Jan May- en-svæðinu í ætisleit. Selimir hafa fundist nær dauða en lífí af hungri við strendur Belgíu, Hollands og Þýskalands á undanfömum vikum og mánuðum. Lenie Hart, sem stofnaði sela- spítalann, sem stofnunin rekur, fyrir sextán ámm síðan, kom hingað í gær til þess að undirbúa komu hópsins og selanna. Þetta er í fjórða skiptið sem hún sleppir selum við íslands strendur. Hing- að til hefur hún þó ekki haft fleiri en einn sel með sér í farteskinu. Lenie, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að fjöldi fólks hvað- anæva léti stofnunina vita ef selur strandaði svo þau gætu komið honum til bjargar. Tekist hefði að bjarga tuttugu selum frá dauða á þennan hátt. Aðalstarf stofnun- arinnar væri þó að þjarga hol- lenska landselsstofninum sem hefði verið í mikilli útrýmingar- hættu undanfarið. Sjá Akureyrarsíðu bls. 27. ins, auk þess, sem málefni skipafé- lagsins hafí oft borið á góma á fundum ráðsins. Taldi hann að þar með væri Hallvarður vanhæfur til að fjalla um málið vegna bróður- tengslanna við Jóhann. Einn dómaranna greiddi sérat- kvæði og komst að gagnstæðri niðurstöðu. í fyrsta lagi taldi hann að vísa ætti frávísunarkröfunni frá héraðsdómi, þar eð dómsmálaráð- herra ætti endanlegt umsagnar- vaid um það hvort þörf væri á að skipa sérstakan ríkissaksóknara. í öðru lagi taldi hann, ef taka ætti afstöðu til hæfísins, ekkert benda til tengsla ríkissaksóknara við vamaraðila málsins, er gerði hann vanhæfan. í samtali við Morgunblaðið sagði Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri dómsmálaráðuneytisins, að Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra myndi innan tíðar taka ákvörðun um val á sérstökum saksóknara í Hafskips- og Útvegsbankamálinu. Hvort hér yrði um sama aðilann að ræða, væri ekki hægt að full- yrða að svo stöddu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Hallvarð Einvarðsson ríkissaksóknara í gær, en hann er erlendis. Ekki náðist heldur í neinn hinna ákærðu. Sjá bl. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.