Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 43 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Vaknað við þrastasöng Þrösturinn vakti mig í morgun með lofgjörð sinni til lífgjafans. í svefnrofunum sagði hann mér að vorið væri komið. Þessi lífsglaði músíkant fyllti vorloftið með fag- urri tónlist sinni og minnti mig á, að ekkert er list nema fallegt sé og sprottið úr fegursta aldingarði hugans, og ætlað til þess að fegra heiminn og samskipti þeirra sem í honum búa. Ljúfur söngurinn smeygði sér inn tií mín og nágrann- anna þennan sólbjarta morgun í apn'lmánuði. Ég reis léttur á fætur og fór út að austurglugganum í herbergi mínu og leit út. Sólin kyssti mig samstundis á vangann og bauð mér góðan dag. Heitur kossinn var vel þeginn og ég smeygði brosi til henn- ar gegn um gluggann. Ég þakkaði Guði fyrir að fá að lifa og vakna frískur árdegis á svo fögrum morgni. Þarna sat þrösturinn í tijánum hjá Sigurði leirkerasmiði og leit upp í mót almætti himnanna um leið og hann söng sinn lofgjörð- aróð í lítillæti sínu. Ég stóð við gluggann minn hinum megin við götuna og þakkaði Guði í hljóði. Kannski skaut hann inn á milli litlu ljóði til Ingibjargar, konu Sigurðar, því hún hafði gert það að vana sínum fyrir mörgum árum að brauð- fæða litlu vinina sem messuðu fyrir hana í garðinum á góðviðrisdögum, en ekki bara á sunnudögum. Það var af nógu að taka, diskurinn barmafullur af gómsætum brauð- molum úr Grensásbakaríi. Nokkrir þrestir komu úr suðri, liðu rennilega um loftið og steyptu sér síðan snaggaralega niður í garðinn hjá Sigurði. Þama var sannkallaður Edensgarður fyrir litlu greyin. Ingibjörg og Sigurður vöknuðu ávallt fyrir allar aldir á morgnana til vinnu sinnar. Sigurður er með vinnustofu sína í bílskúmum við hliðina á heimili sínu og vinnur þar. I öllum vetrarveðmm í vetur þegar ég slagaði oft á tímum svefn- dmkkinn niður í eldhús og setti vatn á ketilinn, vom þau stundum bæði þegar komin til vinnu sinnar í bílskúmum þegar ég leit út um gluggann og beið eftir vatninu á katlinum. Þá var Sigurbjöm skóari enn í fasta svefni, en var oftast búinn að kveikja, þegar Jónína byij- aði með morgunleikfimina í útvarp- inu klukkan sjö tuttugu og fimm. Sigurbjörn skóari bjó í næsta húsi við verkstæði Sigurðar, hress karl og skemmtilegur. Hvort þeir mátar sungu við vinnu sína þennan morg- un vissi ég ekki, en vorið heilsaði þeim m_eð fuglasöng og sólskins- kossi. A þessum tíma árs vom dagarnir hins vegar orðnir miklu lengri og sólin farin að rísa á sama tíma og Sigurður reis úr rekkju. Þannig að þá sá ég ekki lengur Ijós- ið í glugganum á verkstæðinu en vissi þó að á bak við skítugar gluggarúðurnar vom þaullærðar hendur meistarans að meðhöndla blautan leirinn og skapa úr honum eitt meistarastykkið í viðbót eftir fyrirmyndinni í huga hans. Móðir mín hafði vaknað á undan mér þennan morgun og ilmandi kaffílyktin fyllti húsið af sætri ang- an. Á öldum ljósvakans var Haukur Morthens, nágranni minn, að syngja hið fallega lag og ljóð Vorið kom. Tónamir streymdu til dýpstu uppsprettu gleði og auðmýktar og fylltu hjarta mitt undarlegri lífsfyll- ingu. Meðan þessi rómantíski og sívinsæli söngvari sem staðið hefur af sér alla rokkstorma síðustu ára söng hið hugljúfa lag og ljóð um vorið virti ég enn fyrir mér landið úr glugganum mínum. Fjöllin vom enn klædd drifhvítum klæðum vetr- arins því að þótt vorið hefði komið í dag var þó hægt að búast við kulda til bæja og sveita. Þrestimir sátu makindalega á greinum trjánna með fulla maga af heilsu- brauði frá Smára og Hauki í Grensásbakaríi. Ég kinkaði kolli til vorsins og sólin kyssti mig á fölan vangann eftir langan vetur. Einar Ingvi Magnússon Þessir hringdu . . . Músafælur fást hjá Sambandinu Agnar Hjartar hjá Búnaðar- deild Sambandsins hringdi. Hann vildi koma því á framfæri vegna fyrirspumar um músafælur að þær hafa fengist hjá Búnaðar- deild Sambandsins. Þeir hafa selt 220 W músafælur sem gefa frá sér hátíðnihljóð. Þær em að vísu uppseldar eins og er en em vænt- anlegar á næstunni og er verðið í kring um 10 þúsund krónur. Þakkir frá Ástralíufara Matthildur Björnsdóttir hringdi: „Mig langar að þakka Konu fyrir hlý orð um greinar mínar um Ástralíu og segja henni að hún fái meira að heyra í framtíðinni". Nýjar mjólkur- hyrnur Þ.H. hringdi: „Mikið hefur verið fundið að mjólkurhymum Samsölunnar hér á vesturhominu að undanfömu, í samtölum, greinum og skoðana- könnunum þar sem 70% neytenda dæma þær óhæfar. Forstjóri Sam- sölunnar hefur nú svarað þessarri gagnrýni fyrir alla framtíð. Hann hefur skipt um lit á hymunum. Segið þið svo að forstjórar opin- berra stofnana á íslandi séu ekki meðal snöllustu heila í heimi". Úrslitaleikurinn var sýndur á Stöð 2 Heímir Karlsson íþróttaf- réttamaður á Stöð 2 hringdi: „Ég vil svara tveimur körfu- boltaaðdáendum sem ekki sáu úrslitaleikinn í bandaríska körfu- boltanum á Stöð 2. í lok júní voru sýndar tvær viðureignir af sex, milli Los Angeles Lakers og Bos- ton Celtics og þar á meðal síðasti leikurinn sem réði úrslitum. Þann- ig stenst ekki fullyrðing þeirra að úrslitaleikurinn hafi ekki verið sýndur". Of mikil umferð um Njálsgötu 6780-6212 hringdi: „Ég heyrði það í fréttum á Rás 1 að 200 íbúar við Njálsgötu hefðu mótmælt umferðarþunga við göt- una. Ég vil taka undir þetta. Umferð við Njálsgötuna er mjög þung og mikið um tillitslausa bílstjóra sem aka hratt og skeyta ekki um gangandi vegfarendur. Það eru tvö barnaheimili við Snorrabrautina og fyllsta ástæða til að bflstjórar sýni meiri vark- árni og tillitssemi eða umferðar- þunga verði létt af þessum götum með einhveijum ráðurn". Hlutdrægar knattspyrnulýs- ingar á Stöð 2 Knattspyrauunnandi á Akur- eyri hringdi: „Við knattspymuunnendur á Akureyri viljum lýsa yfir óánægju okkar með lýsingar íþróttafrétta- manna á Stöð 2. Okkur fínst þeir vera hlutdrægir og engu líkara en þeir vonist til að Akureyringar tapi leikjunum. Þetta eru margir Akureyringar óánægðir með og getur engan veginn talist sann- gjamt". Gul kisa týnd í Breiðholti Kona hringdi og sagðist hafa tap- að læðu sem hún hafði í pössun í Völvufélli í Breiðholti. Læðan, sem er með gula snoppu og gul á baki með ljósa bringu, hefur verið týnd í tvær viklur og er hún merkt eigendum sínum. Eigend- umir búa á Hábergi 5, s: 73981 en em nú í burtu. Þeir sem kynnu að hafa fundið læðuna em því beðnir að hringja í síma: 71860. Nýtt vatns- salerni fyrir veiðimenn á Þingvöllum Heimir Steinsson þjóðgarðs- vörður á Þingvöllum hringdi: „Ég vil byija á því að taka undir hvatningarorð Þingvalla- fara í Velvakanda 23.júlí, „Hreint land- fagurt land“ og jafnfram svara fyrirspum hans um salem- isaðstöðu í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Reist hefur verið vatnssalerni fyrir veiðimenn niðri við Þing- vallavatn, í Vatnskoti sem er stærsta tjaldsvæðið við vatnið, skammt frá Öfugsnáða þar sem Þingvallafari gisti. Þetta er dálítið hús með tveimur salemum og tveimur handlaugum. Hlutaðeig- andi hefur sennilega borið að garði um það leiti sem verið var að reisa vatnssalemið því gamla salemið var þá tekið niður og það nýja kom dálítið síðar. Aðstaðan hefur því síður en svo versnað heldur hefur hún verið bætt frá því sem áður var. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur auglýstan síma 99-2677 þar sem beinlínis er óskað eftir ábend- ingum af því tagi sem Þingvalla- fari kom með og vil ég hvetja alla Þingvallafara til að hringja í þann síma ef þeim liggur eitthvað á hjarta, til að fá skjót viðbrögð og hægt sé að bæta sem fyrst úr því sem miður fer“. Eigum flestar gerðir nýrra Lada-bíla til af- greiðslu með stuttum fyrirvara SAFIR 199 þús. SPORT 332 þus. OPIÐ LAUGARDAGA 10-16 BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVÉLAR Suöurlandsbraut 14 107 Reykjavík. sími 38600 10 línui

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.